Norðurslóð - 24.04.1985, Qupperneq 4

Norðurslóð - 24.04.1985, Qupperneq 4
Frh. af bls. 2± 1938. Kemur þar einnigfram að steinninn er sunnan við túnið. „Gömul kona, sem var í Sauðanesi um aldamótin 1900 - Anna gamla hafði margsinnis varað alvarlega við því að ónáða huldufólkið, og fullyrt að slíkt myndi illa borga sig. Eigi að síður komust unglingspiltar í álagablettinn og slógu hann. Ekki höfðu þeir lokið því, þegar þeir heyrðu öskur mikil og hávaða, skipti engum togum, að kýrnar komu æðandi með bölvi og ragni, eins ogfjandinn sjálfur hefði hlaupið í þær.“ Óðust var nýkeypt mjólkurkýr, nýlega borin. Varð henn þó komið í hús, og reynt með ýmsum ráðum að róa hana, sem þó kom fyrir ekki. Ætlaðibóndi aðgrípa til þess örþrifaráðs að skjóta hana, en þá fór heldur að sljákka í henni, go náði hún sér eftir nokkra daga. Jóhannes Óli (Örnefnaskrá) getur um svonefndar Peninga- stein, „suður og niður frá túni í Sauðanesi“. „Þar töldu margir, að fólgið væri peningakvartil og fjársjóður frá búskapartíð Þorvalds Rögnvaldssonar." Merkilegast er að Sigurjón þekkir ekki þetta örnefni, en hins vegar kannaðist Steingrímur Þorsteinsson vel við það, þó ekki þekkti hann Huldufólks- steininn. Læðist því að manni sá grunur, að upp á síðkastið hafi menn farið að kalla Huldu- fólkssteininn þessu nafni, og tengja hann við Þorvald skáld, eins og svo margt annað á þessu svæði. Er það algengt fyrirbæri, að þekktar þjóðsagnapersónur „ræna“, ef svo má segja, öðrum og etv. upprunalegri sögnum, þar sem þær eru heimaríkar. (Um Þorvald, sjá þjóðsögur Jóns Þorkelssonar, bls. 339- 3Ö3V Allmargir staðir í Sauðanes- landi og utar á Ströndinni eru tengdir sögnum af Þorvaldi skáldi, svo sem Tréurð (Urðin) í fjörunni utan og neðan við bæinn, sem hann átti að hafa sprengt fram yfir rekatré, er Hólastóll eignaði sér. Hákarla- klettur, nefnist sker eitt fram af Ríplinum yst á Sauðaneslandi, en þar átti Þorvaldur að hafa bundið hákarla þá er hann veiddi, áður en hann kom þeim heim. Um Rípilsvörðuna og Múlavoga verður getið hér á eftir. Ekki er fyrir það að synja, að annar álagablettur geti verið í mýrinni sunnan við Grófar- ásinn, eins og getið er í Örnefna- skrám, en heldur er það ósenni- legt. Væri fróðlegt ef einhver vildi upplýsa það nánar. f Samvinnutryggingar g.t. Vor í lofti. senda viðskiptavinum við EyjaJjörð og landsmönnum öllum bestu óskir um farsœlt og slysalaust sumar til sjós og lands. [^x] Þökkum viðskiptin á liðnum vetri. -------------—---------------' ------- ---------------------< Nýtt happdrættisár Miði er möguleiki. Búið öldruðum áhyggjulaust ævikvöld. Sala á lausum miðum og endurnýjun stendur yfir. Dregið í 1. fl. 3. maí. Verslunin Sogn Dalvík Júdósveit Dalvíkur. Hraustir júdómenn Hið árlega aprílmót Judoráðs Akureyrar var haldið laugard. 13/4., fór mótið fram í íþrótta- höllinni á Akureyri. Keppendur á þessu móti voru tæplega 70, þar af 13 frá Judodeild UMFS (Dalvík). Aðrir keppendur voru frá eftirtöldum stöðum, Akur- eyri, Reykjavík, Grindavík, og Egilsstöðum, þannig að þetta var tiltölulega sterkt mót. Þrír Dalvíkingar komust á verð- launapall, Örn Sveinsson -70 kg. 1. verðl. Ásgeir Páll Matthíasson -70 kg. 3. verðl. Hallgrímur Matthíasson -62 kg. 2. verðl. Örn byrjaði að stunda æfíngar fyrir um mánuði síðan og er það ljóst að þarna er efnilegur judomaður. Allavega höfðu þeir sem við hann glímdu ekki mikið í hann að gera og höfðu sumir stutta viðdvöl hjá honum á dýnunni. í stuttu máli sagt, vann hann allar sínar glímur á ippon (10 stig) fulln- aðar sigur. Ásgeir Páll sem keppti í sama þyngdarflokki og Örn gerði það gott að komast í þriðja sæti. Það má segja að Hallgrímur hafi verið óheppinn að ná ekki 1. verðl. í sínum þyngdarflokk. Varð hann til dæmis að glíma 5 glímur á undan sjálfri' úrslitaglímunni, og var þess vegna mjög þreyttur þegar að henni loks kom. Hann tapaði þeirri glímú síðan mjög naumlega á móti íslands- meistaranum. Aðrir keppendur frá Dalvík stóðu sig yfirleitt vel. Judodeild U.M.F.Sv. Landhelgiskort Landhelgiskortið, sem gefið var út af sjávar- útvegsráðuneytinu og afhent Slysavarna- félagi íslands til styrktar starfsemi þess.er til sölu hjá slysavarnadeildunum á DALVÍK. Hér aðsskj alasafnið - ársskýrsla - Blaðinu hefur borist ársskýrsla Héraðsskjalasafns Svarfdæla 1984, 5. árgangur. Efni ritsinser í fyrsta lagi skýrsla stjórnar, þá aðfangaskrá og í þriðja lagi frásögn Gests Vilhjálmssonar „Krapaflóðin í Svarfaðardal 21. apríl 1919“. Aðfangaskráin er meginefni heftisins. Kemur þar fram að enn berst safninu ótrúlega mikið af verðmætum heimildum, en einnig hitt að sumstaðar er tregða á að afhenda gögn, sem lögum samkvæmt eiga að af- hendast slíkri stofnun sem safnið er. Rit þetta er prýðilega vandað og ber með sér að safninu er stjórnað af áhuga og reglusemi. Snemma árs 1984 sagði Steinunn Sveinbjörnsdóttir upp stöðu sinni sem safnvörður en í hennar stað var ráðin Ragnheiður Sigvaldadóttir. Stjórn héraðsskjalasafnsins skipa 5 menn, 3 frá Dalvíkurbæ og 2 frá Svarfaðardalshreppi. Formaður stjórnar er Júlíus Kristjánsson. 4 - NORÐURSLÓÐ

x

Norðurslóð

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Norðurslóð
https://timarit.is/publication/1253

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.