Norðurslóð - 24.04.1985, Side 5

Norðurslóð - 24.04.1985, Side 5
Gestir í Húsabakkaskóla Dýrmæt reynsla að kenna við heimavistarskóla... Síðustu þrjár vikurnar fyrir páska voru tvær ungar stúlkur í Húsa- bakkaskóla við æfingakennslu. Þær stunda nám við Kennara- háskóla Islands og eru á öðru námsári af þrem. Blaðamanni Norðurslóðar þótti forvitnilegt að taka þær tali og fá meira að heyra um þeirra hagi. Þær heita Jórunn Anna Guðjóns- dóttir úr Reykjavík og Auður Adamsdóttir frá Akranesi. Er þetta fyrsta œfingarkennsla ykkar utan skólans? Jórunn. Nei, við vorum með æfingarkennslu í fyrra og s.l. haust í bænum. Það er allt öðru- vísi þar fengum við aðallega að fylgjast með kennslunni, vera í tímum hjá öðrum kennurum. Þetta er fyrsta dvölin úti á landi, og nú fáum við að spreyta okkur við að kenna sjálfar, og það er mjög spennandi. Hvernig finnst svo kennara- efnum að koma út í fámennan heimavistarskóla í sveit? Auður. Alveg yndislegt, dvöl- in hér hefur verið mjög ánægju- leg,. það hefur verið gaman að kynnast Svarfdælingum, þótt við höfum ekki kynnst mörgum sem kontnir eru yfir fermingu. Það er góður andi hér og börnunum líður augsýnilega vel. Kom ykkur eitthvaö á óvart? Jórunn: Við tókum strax eftir því hvað börnin tala fallegt mál, og svo kom okkur á óvart vinnusemi þeirra, og hvað þau eru jákvæð, og svo finnst mér þeim koma svo vel saman. Auður: Krakkarnir eru kurt- eis, og hlusta vel í tímum, og það er ekki lítils virði fyrir kennar- ann. Samvinna kennaranna virðist líka mjög góð, og mér finnst börnin fá góða þjónustu og umönnun. Hvaö haldið þið um svona fámennar bekkjardeildir eins og hér? Jórunn: Börnin fá meiri kennslu, og það er hægt að gera meira fyrir hvern nemenda í svona litlum bekkjardeildum, en viðbrigðin verða auðvitað mikil þegar þau koma svo í 20- 30 nemenda bekki eftir skyldu- námið. Auður: Agavandamál finnst okkur nú ekki mikil hér miðað Auður t.v. - Jórunn t.h. við það sem við þekkjum í bæjunum. Hérþarfekkiaðeyða löngum tíma í að fá þögn í bekknum áður en- hægt er að hefja kennslu, eins og er svo algengt í þessum fjölmennu bekkjum. Gœtuð þið hugsað ykkur að kenna við svona heimavistar- sveitaskóla að loknu námi ykkar? Jórunn: Já alveg tvímæla- laust, það væri alveg óskahlut- verk að fá að byrja í svona skóla meðan maður er að koma sér upp .eigin kennsluaðferðum, og þurfa ekki að stríða við öll þau vandamál sem fylgja stóru skól- unum bæði í sambandi við aga og fleira. Auður: Ég er sammála, það er áreiðanlega dýrmæt reynsla að kenna við heimavistarskóla, þar kynnist maður nemandanum allt öðruvísi og betur en í bæjar- skóla. Ég dáist að kjarki litlu krakkanna að vera að heiman frá sér 3 nætur í viku aðeins 7-8 og 9 ára gömul. Þetta er auðvitað léttara í svona litlum skóla sem er næstum því eins og stórt heimili, þar sem kennarar og starfsfólk fylgjast vel með litlu krílunum. Þetta má nú ekki bara vera lof og prís um skólann eitthvað hljótið þið að geta sett útá. Jórunn: Umhverfi skólans hvetur ekki til góðrar umgengni, og finnst okkur að vel mætti gera það heimilislegra, t.d. með meira gróðri, trjám, og betur skipulagðri lóð. Viðhald skól- ans virðist líka vera í lágmarki. En okkur finnst bókakostur hans ótrúlega góður miðað við fjölda nemenda. Auður: Við viljum nota tæki- færið og þakka kennurum og öðru starfsliði skólans fyrir sérlega góðar móttökur og stuðning. Við eigum örugglega oft eftir að minnast ánægjulegra stunda í hópi lífsglaðra kennara, nemenda og starfsfólks Húsa- bakkaskóla í Svarfaðardal. Norðurslóð þakkar þessum geðugu stúlkum og verðandi kennurum komuna í dalinn og óskar þeim velfarnaðar í námi og starfi. S.H. Kven- félagið Tilraun 70 ára Kvenfélagið Tilraun í Svarfaðar- dal hélt upp á 70 ára afmæli sitt í Þinghúsinu á Grund þann. 29. mars. Þrátt fyrir vont veður og átrygga færð var þarna saman kominn milli 70 og 80 manns. Formaður kvenfélagsins, Svana Halldórsdóttir, rakti sögu félagsins. Komþarframað af stofnendunum, sem voru 36 að tölu, eru enn 4 konur á lífi, en það eru Anna Jóhannsdóttir, Syðra-Carðhorni, Rósa Þorgils- dóttir, Sökku, Sesselja Eldjám, nú á Hrafnistu í Reykjavik og Rannveig Rögnvaldsdóttir frá Skeggsstöðum (síðar Atla- stöðum) nú búsett á Sauðár- króki. Þær Anna og Rósa hafa verið í kvenfélaginu frá upphafi til þessa dags. Var þeirra getið sérstaklega og þeim fluttar þakkir með blómum. Anna Jóhannsdóttir var sjálf mætt á samkomunni bráðhress að vanda og tók á móti blómunum sínum (mynd). Tilraunakórinn, þ.e. lOkonur sem árum saman hafa æft söng sér til gamans, söng nokkur lög undir stjórn Elínborgar á Syðra- Hvarfi og fleira var sér til gamans gert. Að lokum var slegið upp balli og dans stiginn fram eftir nóttunni. S. Kaffidagur Svarfdælingasamtakanna Samtök Svarfdælinga í Reykjavík og nágrenni hafa fjölskyIdukaffi í Múlabæ, Ármúla 34 í Reykjavík sunnudaginn 12. maí n.k. kl. 3 e.h. Við vonum aðsem flestirSvarfdælingarog gestir þeirra komi. Ókeypis fyrir 60 ára og eldri. Verið velkomin Stjórn Samtaka Svarfdælinga FERÐALAG SLYSAVARNARKONUR. FÆREYJARFERÐIN er ákveðin vikuna 27. júní - 4. júlí ’85. Þátttaka tilkynnist sem fyrst, eða í síðasta lagi 10. maí’85. Nánari upplýsingar gefa, Hrefna, síma 61176, Kolbrún, síma 61308, Þóranna, síma 61252. Fundur um ferðalagið verður í Jónínubúð föstu- dagskvöld 10. maí kl. 21. Ferðanefndin. Innilegustu þakkir til allra þeirra sem heimsóttu mig og sendu mér afmœliskveðjur og gjafir á 90 ára afmœli mínu. Guð blessi ykkur öll. Ásgerður Jónsdóttir Dalbæ, Dalvík. Mér er spurn? Hvernig er með þetta æskulýðsheimili? Er ekki æskulýðsfulltrúinn þarna sjálfur þegar opið er? Mín börn segja mér að svo sé ekki og að þarna sé ekki verandi fyrir ólmanda og stjórnleysi. Er þetta rétt? Þóra Rósa. Svar bæjarstjóra Fyrstu viðbrögð mín við ofanritaðri spurningu Þóru Rósu, voru þau að mig setti hljóðan. Ég hef hvorutveggja gert að ræða við ungmenni þau sem sækja æskulýðsheimilið og foreldra þeirra, ásamt því að ég hefi farið í heimsóknir á staðinn til að reyna að fylgjast með og sjá það, sem fram fer þar. Égget sagt með sanni að ekki er gott að eiga viðræður inni í salnum þegar tónlistin lætur sem hæst, en ólmandagangur og stjórn- leysi eru afstæð hugtök þegar unglingar eiga í hlut og skemmta sér frjálsir og óheftir af umvönd- unum, mínum líkum, yfir hávaða og gauragangi. Almennt virðist mér að þeim sem staðinn sækja líki vel og umkvartanir hafa ekki áður borist mér til eyrna, en fróðlegt væri ef foreldrar vildu kynna sér starfsemina í „Gimli" og láta álit sitt í ljós t.d. í Norðurslóð, og ekki væri á móti því að kynnast áliti unglinganna, sem staðinn sækja heim, sem gæti sem hægast komið fram í viðtölum í Norðurslóð, með þá tilheyrandi myndum frá staðn- um. En ekki má gleyma að svara spurningunni, sem varð tilefni þessara skrifa. S.l. haust var ákveðið m.a.m.t.t. að nýta starfskrafta æskulýðsfulltrúa sem best, að ráða annan mann að hluta til að sjá um opið hús á móti æsku- lýðsfulltrúa. - Ég leitaði til æskulýðsfulltrúa og bað hann í stuttu máli að svara framkom- inni spurningu. Svar hans fer hér á eftir: „Þegar starfsemi hófst í haust var ákveðið að annar maður sinnti gæslu á móti æskulýðs- fulltrúanum. Til verksins vaídist ungur og áhugasamur maður, sem ekki er mikið eldri en elstu unglingarnir sem félagsmiðstöð- ina sækja. Hafa hann og æsku- lýðsfulltrúi séð um gæslu sína vikuna hvor í vetur. Ekki er því að neita, að stundum hefur verið all hávaða- samt og ærsl og læti nokkur, enda ekki eðli margra barna og unglinga að sitja hljóðlát og prúð þegar þau eru komin til að skemmta sér. Það er með þetta eins og marga aðra hluti, að erfitt er að rata meðalveginn. Ekki hentar öllum börnum sömu ærslin og lætin og vera kanna að einhverntíma hafi verið farið yfir mörkin." Ég vona að framanritað svari því sem um var spurt og jafn- framt að saga barna spyrjanda sé ekki sú, sem börn og ungmenni almennt hafa að segja eftir veru sína í ,,Gimli“, því þá er ver að stað farið en heima setið í rekstri æskulýðsheimilis- ins. Og að lokum, um leið og ég þakka spurninguna, óska ég eftir að líeiri láti í sér heyra og komi með ábendingar um úr- bætur ef úrbóta er þörf. Bæjarstjóri. Formaðurinn og heiðursgesturinn Þrjár kynslóðir: F.v. Svana Halldórsdóttir, Birna Friðriksdóttir, Svan- fríður Gunnlaugsdóttir. - Ljósm. S.H. Kvennakórinn: F. v. Ingibjörg á Jarðbrú, Stefanía í Brautarhóli, Ástdís í Syðra-Holti, Helga á Bakka, Erna á Hnjúki, Sigríður á Tjörn. Sit. f.v. Jóhanna á Urðum. Elínborg á Svðra-Hvarfi. Svana á Melum. NORÐURSLÓÐ - 5

x

Norðurslóð

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Norðurslóð
https://timarit.is/publication/1253

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.