Norðurslóð - 26.06.1985, Qupperneq 5
Sveinsmót 1985
Fyrir skömmu stóö Taflfélag Dalvíkur fyrir viðamiklu og sterku
skákmóti hér á Dalvík. Hér var um opið mót að ræða og voru
keppendur m.a. frá nærliggjandi byggðarlögum. Þá voru mættirtil
leiks brottflutnir Dalvíkingar eins og Ottó Jónsson og Össur
Kristinsson. Sterkustu skákmenn hér á Dalvík tóku að sjálfsögðu
þátt í mótinu og náði Kúnar Búason bestum árangri þeirra, þó það
nægði honum ekki til verðlauna.
Blaðamaður Norðurslóðar fylgdist nokkuö með mótinu og varð
vitni af spennandi keppni og ákaflega skemmtilegu andrúmslofti
sem þarna ríkti. Það var mál manna, að með afbrigðum vel hefði
verið að mótinu staðið. Framkvæmt mótsins var í höndum Jóns
Stefánssonar og Þorgils Sigurðssonar og var þeim klappað lof í lófa
við mótsslit.
Jón sagði blaðamanni að aðstaða til svona viðamikils móts væri
ekki sem skyldi, hins vegar hefðu allir verið jákvæðir og því hefði
mótið gengið snurðulaust. Hann sagði að menn renndu hýru auga
til efstu hæðarinnar í Ráðhúsinu fyrir svona mótshald, þegar þar að
kemur.
Jón hefur tekið saman frétt um mótið og fer hún hér á eftir.
Stefánsson og Þorgils Sigurðs-
!
Verðlaunahafar: F.v. Gylfi Þórhallsson, Áskell örn Kárason, Arnar
Þorsteinsson og Arnfríður Friðriksdóttir frá Hálsi.
Skákmót til minningar um
Svein Jóhannsson fyrrverandi
sparisjóðsstjóra, undir nafninu
„SVEINSMÓT“ var haldið í
Dalvíkurskóla dagana 8. og 9.
júní s.l. Þorgils Sigurðsson setti
mótið með stuttri ræðu. Hann
bauð þátttakendur velkomna til
leiks og vænti þess að þetta
fyrsta opna skákmót, sem haldið
er á Dalvík, mætti verða til þess
að ella skáklíf á Dalvík og
nágrenni. Þá rakti Þorgils að-
draganda að þessu móti, sem
var á þann veg að Sparisjóður
Svarfdæla ákvað á 100-ára
afmæli sínu 1984, að heiðra
minningu Sveins Jóhannssonar
fyrrverandi sparisjóðsstjóra með
því að gangast fyrir minningar-
skákmótum, árlega næstu 10 ár.
Sparisjóðurinn hefur falið
„Taflfélagi Dalvíkur" að sjá urn
framkvæmd mótanna. Keppt
skal um veglegan verðlauna-
bikar, sem gefinn er af spari-
sjóðnum og skal bikarinn varð-
veittur í stofnuninni, en sigur-
vegari hverju sinni fær nafn sitt
letrað á hann. Sparisjóðurinn
gefur einnig ýmsa verðlauna-
gripi til sigurvegara í hverjum
tlokki og stendur straum af
kostnaði við skákmótin.
Strax að loknu ávarpi Þorgils
Sigurðssonar hófst skákmótið,
með því að Jón Stefánsson lét
fyrst leik fyrir Ottó Jónsson
menntaskólakennara, sent var
einn af stofnendum Taflfélags
Dalvíkur 1933. Ottó tefldi í
lyrstu umferð við Áskel Örn
Kárason. léllt var í opnum
flokki og unglingaflokki. I opna
flokknum var umhugsunartími
45. mínútur fýrir hvorn kepp-
anda til að ljúka skákinni.
Tefldar voru 7. umférðir eftir
Monradkerfi.
í flokki unglinga 14. ára og
yngri var umhugsunartími 30
mínútur lyrir hvorn keppanda
til að Ijúka skákinni og tefldar 8
umferðir eltir Monradkerti.
Albert Sigurðsson frá Akureyri
var skákstjóri, en íramkvæmda-
stjórar mótsins voru þeir Jón
son.
í opna flokknum voru kepp-
endur 35 en í f'lokki unglinga 14
ára og yngri voru keppendur 18.
Þess má geta að 8 keppendur
voru með yfir 2000 Eló-skákstig.
Úrslit í opna flokknum urðu
þessi:
A. 18 ára og eldri:
Vinning
1. Áskell Örn Káras., Ak. 5!ó
2. Gylli Þórhallsson, Ak. 5!4
3. Arnar Þorsteinss., Ak. 5'/4
4. Pálmi R. Péturss., Ak. 514
B. l'nglingar 17 ára og yngri:
Vinning
1. Reimar Helgas., Svalb. 3'/í
2. Bogi Pálsson, Ak. ... 3
3. Árni Hauksson, Ak. . 3
Arnlríður Friðriksdóttir, Dal-
vík tefldi í opna flokknum og
hlaut verðlaun fyrir þátttöku í
mótinu.
Unglingaflokkur
Unglingar 14 ára og yngri:
Vinning
1. Rúnar Sigurpálss., Ak. 5!á
2. Pétur Blöndal, Ak. ... 5'/2
3. Jón Stefánsson, Svalb. 5'A
4. Hákon Stelánss., Dalv. S'A
5. Eiríkur Haukss., Svalb. 5'/>
Þessir ungu menn fengu allir
verðlaun.
Verðlaun voru afhent á mót-
stað, en síðan var mótinu slitið
kl. 18 í Sæluhúsinu á Dalvík
með sameiginlegri kaffidrykkju.
Sæluhúsið á Dalvík sá um
allar veitingar lyrir aðkomu-
menn báða mótsdagana.
Þátttakendur lýstu ánægju
sinni yfir framkvæmd mótsins
og öllum viðurgerningi.
Mótinu barst fagur blóm-
vöndur frá Ungmennasantbandi
Eyjafjarðar, til minningar urn
Svein Jóhannsson.
Enginn ágreiningur kom upp
meðan á mótinu stóð og fór
mótið injög vel fram undirgóðri
skákstjórn Alberts Sigurðssonar.
Við hittum að máli sigurveg-
arann Áskel Örn Kárason frá
Taflfélagi Akureyrar. Áskell er
16. stigahæsti skákmaður lands-
ins um þessar mundir, tefldi á
síðasta ári í landsliðsflokki. Nú í
vetur tók hann þátt í helgar-
skákmóti á Húsavík og stóð sig
þar mjög vel í viðureigninni við
stórmeistarana sem þar tefldu.
Uvernig hefur þér líkaó mótið?
Mér hef ur líkað það vel. Það
hefur verið staðið vel og raunar
höfðinglega að þessu móti.
Viðurgjörningur við okkar að-
komumennina er betri en við
eigum að venjast. Heimamenn
hafa lagt metnað sinn í undir-
búning þess, t.d. var setningar-
athöfnin mjög hátíðleg.
En stvrkleiki mótsins?
Það er nú ekki hægt að halda
öllu sterkara mót hér á þessu
svæði með heimamönnum.
Flestir sterkustu skákmenn frá
Akureyri tóku þátt í því og
mótið telst öflugt. Ég tefldi að
mestu við Akureyringa, að
undanskildri fyrstu umferð
þegar ég tefldi við Ottó Jónsson.
Þess vegna get ég ekki dæmt um
styrk heimamanna, en hann
hlýtur að fara vaxandi ef svona
verður haldið áfram.
Finnst þér jyrirkomulag
mótsins lienta vit) þessar
adstœdur?
Já, þetta er nokkuð gott
fyrirkomulag. Að vísu má segja
að umferðirnar hefðu þurft að
vera fleiri til að fá ótvíræð úrslit,
þar sem margir keppendur eru
jafnsterkir núna. Ef umferðir
yrðu níu stæði mótið einum degi
lengur, nema að stytta umhugs-
unartímann. Ég tel ekki raun-
hæft að stytta tímann, sumum
finnst hann jafnvel of stuttur.
Það er hægt að vera með svona
vangaveltur eins og ég núna, en
ég endurtek að fyrirkomulagið
tel ég heldur gott.
Hehiuröu aö menn komi
ajiur d næsta ari a svona mót?
Það tel ég enga spurningu. Ég
mun gera það, efégget. Samaer
með aöra Akureyringa. Stutt að
fara og mjög góð tilbreyting.
Hvaö meó aó Jd þekkt nöjh
aö suttnan til aö taka þatt i
mótinu?
Því lylgja nú bæði kostir og
ókostir. Kostnaður við mótið
yrði miklu meiri, því það þyrfti
að greiða þeim ferðir og uppi-
hald. Ég álít að þá þyrfti að
bjóða 4-6, því ef aðeins yrði um
einn eða tvo af okkar sterkustu
skákmönnum að ræða yrði yfir-
burðir þeirra væntanlega það
miklir að heildarsvipur mótsins
myndi gjörbreytast. Auðvitað
væri gaman að hafa þessa menn
með, slíkt mundi lyfta mótinu
tölvert upp. Það væri hugsanlegt
að bjóða þeim annað slagið.
Hejur þú tejit mikiö og tekió
þdn í sterkum ntótum?
Ég byrjaði ekki að tefla fyrr
en tolf ára gamall austur á
Húsavík, en tefldi þar talsvert.
Eins þegar ég stundaði nám í
Rcykjavík, þá tefldi ég meðal
annars í landsliðsflokki. Ég var
erlendis í nokkurn tíma og tók
þá þátt í nokkrum sæmilega
sterkum opnurn mótum. Ég hef
ekki tekið skákina ýkja alvar-
lega, og reikna ekki með að gera
það eftirleiðis, verð svona gutlari
áfram.
Ottó Jónsson gerði sér ferð
frá Egilsstöðum til aðtaka þátt í
mótinu. Það var mjög skemmti-
legt að einn af stofnendum tafl-
félagsins fyrir rúmum 50 árum
var mcðai keppenda á þessu
fyrsta opna móti sem það
stendur fyrir.
Norðurslóð náði tali af Ottó í
lok mótsins og spurði hann fyrst
hvernig honum hafi líkað mótið.
Mér linnst þetta mót til fyrir-
myndar í alla staði, og er sönn
ánægja að hafa tekið þátt í
þessu. Raunar sló ég tvær flugur
í einu höggi meðað koma í þetta
mót, því um leið heimsæki ég
gamla vini og kunningja. Það
var gaman þegar Þorgils Sigurðs-
son var að rilja upp atvik frá
bernsku Taflfélags Dalvíkur.
Við tefldum í fyrstu símaskák-
inni við Ólafsfirðinga 1935 að
mig minnir. Ég var búinn að
gleyma þessu. Það var teflt um
nótt og við höfðum báðir
sofnað á vaktinni, því oft var
löng bið milli leikja. En hann
segir að þetta haf i endað þannig
að hann tapaði en ég hafi náð
jalntefli sofandi.
Þú en a skrá yjir ELO stiga-
Jjölcia skdkmanna, Itejúröu tejlt
mikiö um daganna?
Það er nú ckki mikið, en ég
héif alltaf haft mjög gaman af að
tefla. Það er nú sennilega tilvilj-
un að ég er á þessari skrá.
Einhverju sinni var sauma-
klúbbur heima hjá mér, svo ég
rölti út og fór í húsakynni skák-
félagsins á Seltjarnarnesi þar
sem var að byrja mót. Ég var
drilinn í þetta mót og árangur-
inn þar gaf mér þessi stig.
Annars hef ég aðallega teflt
léttar fimm mínútna skákir, t.d.
var ég einu sinni í klúbbi með
Tómasi Árnasyni, Guðmundi
Arnlaugssyni og Hjalta Þórarins-
syni. Ég hef aldrei stúderaöskák
neitt.
Ertu dnægóur ttteó drangur
þinn í ntótinu?
Já ntjög, ég fékk 4 vinningaaf
7, sem ég er ánægður með.
Fyrstu skákinni tapaði ég, það
var fyrir Áskeli Erni svo sem
engin skömrn af því. Það hefur
verið ganian aö sprcý ta sig gegn
þessum sterku Ákureyringum.
Ég hef ekki teflt við heimamenn
nema hana Arnfríði og mátti
hrósa happi að vinna hana.
Ætlaröu aö stansu hér lengi?
Tvo til þrjá daga. Ég ætla að
reyna að komast á faeri, og hitta
íleiri kunningja. Annars fer ég
austur fijótlega, ég bý á Egils-
stöðum núna. Ég vil að lokum
óska Taflfélaginu til hamingju
nteð gott mót og árna því heilla í
framtíöinni.
Jón Stefánsson leikur fyrsta leikinn fyrir Ottó Jónsson. Valdimar Bragason
horfir spekingslega á.
TlltLPRIPPIPi
FRÁ PBJ AKUREYRI
SÉRPRENTANIR LAGERVARA
ÖLL ALMENN PRENTUN
BÆKUR, BLÖO, TÍMARIT, BÆKLINGAR, EYÐUBLÖÐ
Stjórnendur mótsins: F.v. Jón Stefánsson, Albert Sigurðsson, Þorgils
Sigurðsson.
NORÐURSLÓÐ 5