Norðurslóð - 22.04.1986, Page 1
Starfsmenn sem til náðist. Verkstæðisformaður fimmti frá hægri.
Gleðilegt sumar
„Vorið góða grænt og hlýtt.“
Frá Bílaverkstæðinu
40 ár í eigu UKED
Einn af meiriháttar vinnu-
stöðum á Dalvík er Bílaverk-
stæði Dalvíkur. Svo vill til, að
um næstkomandi áramót eru
liðin 40 ár frá því er Jónas
Hallgrímsson seldi bílaverk-
stæði sitt Kaupfélaginu og varð
sjálfur forstöðumaður þess
áfram um meira en 30 ára skeið.
Frá öndverðu hefur Bílaverk-
stæðið verið mjög þýðingar-
mikið þjónustufyrirtæki við at-
vinnuvegi og einstaklinga hér í
byggðarlaginu. Og þó að fleiri
aðilar fáist nú við samskonar
verkefni bæði á Dalvík og i
nágrenninu, er verkstæðið með
þeim tækjum og verkkunnáttu,
sem þar eru fyrir hendi, algjör-
lega ómissandi stofnun í pláss-
inu.
Norðurslóð lagði leið sína
niður á Verkstæði og ræddi
stundarkorn við verkstæðisfor-
manninn, Gunnar Sigursteins-
son, og deildarverkstjórana,
Gunnar Gunnarsson og Óskar
Jónsson.
Fyrirtækið greinist í tvær
deildir, Bíladeild og Véladeild.
Þar að auki er svo vörulager og
skrifstofa. Samanlagt vinna nú
á öllum þessum stöðum 23
menn.
Bíladeildin annast fyrst og
fremst viðhald og viðgerðir
vélknúinna tækja eins og nafnið
bendir til, þ.e. bíla og tragtora.
Óskar Jónsson verkstjóri upp-
lýsti að þar ynnu nú 6 manns og
vinna væri alveg nægileg. Mætti
jafnvel fjölga mannskap þess
vegna. En það er lítil aðsókn í
þessa vinnu eða fagið yfirleitt,
sagði Óskar, launin eru lág og
skattarnir háir. Ófaglærðir
menn hafa alveg jafnmikið upp
úr sér eins og við bifvélavirkjar.
Mikið umleikis
hjá Véladeild
Litið var inn í Véladeildina og
rætt við Gunnar Gunnarsson
verkstjóra. Hjá honum vinna nú
12 manns í fullu starfi. Útgerð-
in er aðalviðskiptavinur deildar-
innar, ekki síst Útgerðarfélag
Dalvíkinga, og hefur verið til
margra ára. Nýlega var líka
lokið upptekt á aðalvél í Dal-
borginni. Það var mikið verk
Óskar Jónsson með fóðurvagninn.
upp á meira en milljón krónur.
Núna er svo Snæfellið úr Hrísey
í svipaðri aðgerð, þó það sé
talsvert minna verk.
Nú er ætlunin að koma af
stað ákveðnu viðhaldskerfi fyrir
fiskiskip þannig m.a. að fyrir-
fram er ákveðið viðgerð og
endurnýjun hinna ýmsu hluta í
vélbúnaðinum og þannigkomið
í veg fyrir bilanir og stopp
kannske í miðri veiðiferð. Slíkt
viðhaldskerfi á að verða til
hagsbóta báðum aðilum, út-
gerðinni og verkstæðinu.
Það er Félag málmiðnaðar-
fyrirtækja, sem er að skipuleggja
þessa starfsemi og er vonast til,
að unnt verði síðar að taka þessi
kerfi upp gagnvart land-
búnaðartækjum og er verið að
vinna að því til að byrja með í
sambandi við Bændaskólann á
Hvanneyri.
Þá hefur verið í gangi og er
framundan mikil smíðavinna
fyrir Frystihúsið bæði gerð
snyrtilínu í vinnslusalinn og
gerð handflökunarlínu. Enn-
fremur eru í smíðum lausfrysti-
rekk fyrir Frystihúsið og fyrir
fiskmóttökuna á Hjalteyri, sem
rekin er í tengslum við Dal-
víkurfrystihús. í öllum þessum
smíðum telja þeir verkstæðis-
menn, að þeir séu að verða sam-
keppnisfærir og gera sér vonir
um verkefni á þessu sviði utan
Dalvíkur.
Nóg verkefni
framundan
Gunnar verkstjóri telur, að ekki
sé skortur á verkefnum fram-
undan. Nú er t.d. að fara í gang
viðgerð á syðri hluta gömlu
Beinaverksmiðjunnar, sem
Fóðurstöðin s.f. mun fá á leigu
til viðbótar því húsnæði, sem
hún þegar hefur frá Kaupfélag-
inu. Ennfremur uppsetning á
tækjum í Fóðurstöðinni og fyrir
Dalvíkurkaupstað verður smíðuð
vegrist ein mikil í stað þeirrar,
sem nú er norðan við Árgerði og
ekki lögleg talin.
Þetta eru aðeins dæmi um
ákveðin verkefni en svo fellur
alltaf eitthvað til, sem ekki er
vitað um fyrr en þau detta á.
Að lokum var blaðamanni
sýndur fóðurvagn, sem ætlunin
er að setja á markaðinn og
framleiða helst í miklum mæli ef
viðtökur verða góðar ( sjá
mynd). Þetta er léttur og lipur
handvagn hugsaður bæði fyrir
blautfóður, einkanlega í loð-
dýrabúum og fyrir þurrfóður í
fjósum. Fyrst og fremst er
hugsað til að ná markaði hér í
Eyjafjarðarhéraði, en etv. víðar
um land ef vel tekst til og verð
getur orðið samkeppnisfært við
annað, sem er á boðstólum á
þessu sviði.
Reyndar er ætlunin, að þessi
framleiðsla fari frarri í Bíla-
deildinni og er þá öðrum þræði
hugsuð til að stuðla að vinnu-
jöfnun þar.
Góður vinnukraftur
Gunnar verkstæðisformaður
sagði, að ágætir starfskraftar
væru á Bifreiðaverkstæðinu.
Þar eru enn menn, sem hafa
unnið á verkstæðinu allt frá því
að KEA' tók við því. Það eru
þeir Arngrímur Stefánsson og
Hörður Sigfússon. Svo eru á
hinn bóginn lærlingar 5 að tölu
núna. Og síðan menn á öilum
aldri þarna á milli. Hér má
nefna Hörð Kristgeirsson for-
stöðumann Varahlutaverslun-
arinnar, sem starfað hefur
þarna í 30 ár, ennfremur Stefán
Jónsson, Baldur Friðleifsson og
Guðmund Óskarsson, sem allir
eru gamlir í hettunni.
„öldungarnir" Hörður Sigfússon
og Arngrímur Stefánsson.
Velta verkstæðisins er tölu-
verð. Á árinu 1985 var hún um
45 milljónir og er þá meðtalin
bensín- og olíusalan, sem nam
ca. 5 milljónum.
Að lokum sagði Gunnar, að
skipta mætti viðskiptavinum
verkstæðisins í þrjá flokka í
stórum dráttum: Það er útgerðin
sem er langstærsti viðskipta-
aðilinn, tekin sem heild, og
skiptir aðallega við Véladeild-
ina. Þá er landbúnaðurinn, sem
skiptir mikið við báðar deild-
irnar og hefur næstmest við-
skiptamagnið. Og að lokum eru
það bæjarbúar á Dalvík og aðrir
bíleigendur, sem skiptajyrst og
fremst við Bílad^ildin^.'.
Gunnar lýsti ánægju sinni
með samskipti verkstæðisins
við viðskiptavinina til sjós og
lands og bað blaðið flytja þeim
öllum bestu óskir um gleðilegt
sumar og þakkirfyrir viðskiptin.
Það gerir Norðurslóð hér
með og þakkar fyrir upplýsing-
arnar.