Norðurslóð - 22.04.1986, Side 7
Búnaðarfélag Svarfdæla
Metkýr í Dæli
Hornóttar kýr gerast nú sjaldséðar. Hér er ein hin síðasta. Ljósm. S.H.
Nýlega var haldinn aðalfundur
Búnaðarfélags Svarfdæla, sem
er elsta félag í sveitinni 106 ára
gamalt.
Á fundinn kom ráðunautur
BSE í nautgriparækt, Guðmundur
Steindórsson, og lagði fram
skýrslu um nautgriparækt og
mjólkurframleiðslu eins og hún
kemur fram í skýrsluhaldi bænda.
Það kemur fram, að á svæði
Búnaðarsambandsins halda 168
bændur gildar afurðaskýrslur
og eiga þeir til samans 5597 kýr.
Meðalnyt fullmjólka kúa reynd-
ist vera á árinu 1985 4.097 lítrar
af 4,03% feitri mjólk. Þettaer42
lítrum minni meðalnyt en árið
áður, sem varla telst marktækur
mismunur.
Meðalkjarnfóðurgjöf var hins
vegar 612 kg og hel'ur lækkað
um 50 kg frá fyrra ári. Töluverð-
ur mismunur kemur fram í
árangri bænda í hinum ýmsu
hreppum héraðsins. Hæstir eru
þeir í Skriðuhreppnum með
4.588 lítra meðalnyt, en lægstir
á Árskógsströnd með 3.951 Itr.
Svarfdælskir
miðlungar
Lítum svo aðeins á Svarfdæla-
deild í þessu sambandi. Skýrslu-
haldarar eru 24, sem er lítið
méira en helmingur mjólkurinn-
leggjenda í deildinni (Svarfaðar-
dalur og Dalvík tekin saman).
Ekki er það Svarfdælingum til
sóma.
Tala kúa hjá þessum24er450
og meðalnyt fullmjólka kúa er
4.054 ltr. Fitan er slétt 4%.
Kjarnfóðurgjöfin er 676 kg að
meðaltali á kú. Við erum sem sé
ákaflega nærri meðaltalinu nema
hvað við gefum öllu meiri
fóðurbæti en gengur og gerist,
en þá ber þess að gæta. að upp-
gefinn fóðurbætir er að líkind-
um fremur óáreiðanlegur.
Eins og fyrri daginn kemur
fram mjög mikill munur á
meðalnythæð kúa á hinum
ýmsu bæjum í sveitinni allt frá
ítæpum 5.000 lítrum á Sökku,
Dæli og S-Holti og niður undir
3.300 hjá þeim lægstu.
Þarna er líka mikill munur á
kjarnfóðurgjöf, sem skýrir mis-
muninn að hluta.
I 6. tölublaði Freys nú í ár er
grein eftir Jón Viðar Jónmunds-
son um skýrslur nautgripa-
ræktarfélaganna 1985. Hann
birtir þar töflu yfir 10 nythæstu
kýrnar í landinu, sem allar
mjólkuðu yfir 8.000 lítra á
árinu. Hæst er Sokka á Sól-
heimum i Sæmundarhlíð í
Skagafirði. Hún gaf af sér 9.059
lítra af 3,21% feitri mjólk. SÚ6. í
röðinni er Lukka 153 í Dæli í
Skíðadal. Hún mjólkaði 8.331
lítra af 3,75% feitri mjólk. Það
gerir 31,241 fitueiningar og er
vel ofan við metkúna. (Hærri er
þó Fía á Hríshóli í Saurbæjar-
hreppi með 8.204 x 3,99 = 32.733
fe.)
í heild má segja, að þróunin í
mjólkurframleiðslumálum okkar
sé jákvæð að því leyti, að minni
og minni hluti mjólkurinnar er
framleiddur af aðkeyptu kjarn-
fóðri. 4.000 lítrar af mjólk og
600 kg kjarnfóður á kú þýðir, að
einungis 1.500 lítrar af nytinni
stafar frá kjarnfóðrinu. 2.500
lítrar eru þá framleiddir af
heimafengna fóðrinu og má
þetta teljast gott hlutfall þó
betur megi ef duga skal með
tilliti til lækkaðs framleiðslu-
réttar á mjólk, sem nú er orðinn
staðreynd.
Félagar í Búnaðarfélagi Svarf-
dæla eru nú 50. Árgjald til
félagsins hefur í mörg ár verið
verðtryggt og miðast við grund-
vallarverð á 100 lítrum af mjólk
ár hvert, kr. 1900 á árinu 1985.
Stjórn félagsins skipa nú:
Þorgils Gunnlaugsson formað-
ur, Sóley Sigtryggsdóttir féhirðir
og Símon Helgason ritari, er nú
kom inn í stjórnina í stað
Gunnlaugs Sigvaldasonar.
FASISMI: Þú átt tvær kýr,
stjórnin tekur báðar og selur þér
mjólk.
NAZISMI: Þú átt tvær kýr,
stjórnin tekur báðar og skýtur
þig-
SKRIFFINNSKUVELDI: Þú
átt tvær kýr, stjórnin tekur þær
báðar, skýtur aðra þeirra,
mjólkar hina og hellir svo
mjólkinni niður.
KAPÍTALISMI: Þú átt tvær
kýr, þú selur aðra og kaupir þér
naut.
ÍSLENSKA EFNAHAGS-
UNDRIÐ: Þú átt tvær kýr,
stjórnin kaupir af þér mjólk-
ina, niðurgreiðir hana og selur
þér hana aftur á lægra verði og
lánar þér svo fyrir þriðju kúnni.
Hver er besta stjórnarstefnan?
sá,_að velja rétta uppskrift.
Ég var að lesa í Norðurslóð,
að þið í Svarfaðardal farið ekki
vel út úr kvótanum.“
Með bestu kveðju
Bjarki Elíasson.
Svo kemur hér plaggið.
Hver er besta stjórnarstefnan?
SÓSÍALISMI: Þú átt tvær kýr,
þú gefur nágranna þínum aðra.
KOMMÚNISMI: Þú átt tvær
kýr, stjórnin tekur báðar og
lætur þig hafa mjólk.
ATVINNA
Stöður gæslufólks við sundlaug Dalvíkur sumarið
1986 eru lausartil umsóknar.
Um er að ræða 3 stöður, 1 full staða og 2 stöður,
sem hvor um sig verður um 65% starf.
Umsóknum skal skilað fyrir apríllok til æskulýðs-
fulltrúa, Hjarðarslóð 3 c, sem jafnframt veitir
nánari upplýsingar í síma 6-11-26.
Dalvíkurbær.
Þegar annar ritstjóri Norður-
slóðar (HEÞ) var í Reykjavík í
febrúar fékk hann eftirfarandi
tilskrif frá sveitunga vorum
Bjarka Elíassyni yfirlögreglu-
þjóni og aðalsiðameistara
þeirra í Reykjavík. Þar sem svo
má líta á, að bréfið sé ekki síður
stflað til blaðsins en til rit-
stjórans persónulega birtum við
það hér, sérstaklega bændum og
búaliði til athugunar.
Ritstj.
„Þar sem ég veit að þú ásamt
fleirum situr með sveittan skall-
ann við að leysa hin ýmsu
vandamál í íslenskum land-
búnaði, datt mér í hug, að með-
fylgjandi plagg gæti orðið ykkur
að leiðarljósi. Vandinn er bara
Húseigendur á Dalvík
Setjið Danfoss hitastýringar á ofnana fyrir
1. júlí.
Eigum pottofna og hitastýringar á lager.
Byggingavörudeild KEA
Dalvík
ATVINNA
Stöður verkstjóra og flokksstjóra við vinnuskóla
Dalvíkur sumarið 1986 eru lausar til umsóknar.
Umsóknir skulu berast fyrir apríllok til æskulýðs-
fulltrúa, Hjarðarslóð 3 c, sem veitir jafnframt
nánari upplýsingar í síma 6-11-26.
Dalvíkurbær
Álagastaðir
Frh. af bls. 2
una“ á Ytra-Garðshorni. Þykir
mér líklegt að þar sé átt við
sama atburðinn, og sagan hafi
farið bæjavillt.
Guðbjargarhóll
a Tjorn
Svo nefnist hólbunga nokkur
neðst í Tjarnartúni, ofan við
svonefndan Guðbjargarkfl, en
þar átti kona með þessu nafni að
hafa drukknað. Hjörtur
Þórarinsson, bóndi á Tjörn,
segir að sá sem sló hólinn hafi
ekki þurft að óttast heyleysi
veturinn eftir, þótt afrakstur
hans væri ekki mikill. „Fyrir
kom að faðir minn lánaði
hólinn mönnum, sem oft urðu
uppiskroppa með hey, og urðu
þeir a.m.k. ekki heylausir þau
árin,“ sagði Hjörtur.
Þessi góðu álög á hólnum má
ef til vill tengja góðum hug
konunnar sem drukknaði í
kílnum, og væri betur að fleiri
skildu eftir slík minnismerki.
Hér getur þó legið önnur saga á
bakvið, þ.e. að álögin hafi orðið
tilefni nafnsins, því hvað er
bóndanum betri Guðs gjöf en
það að forðast heyleysi?
Eftirmáli
Grein þessi (eða greinar) er(u)
hugsuð sem framhald af þáttum
þeim, sem birtir voru 1 Norður-
slóð, 1.-6. tölubl. 9. árgangs
1985, undir titlinum Vættar-
stöðvar í Dalvíkurumdæmi.
Hér er þó aðeins tekinn einn
flokkur slíkra „vættarstöðva",
þ.e. álagastaðirnir, en aðrir
helstu flokkar þeirra, þ.e. huldu-
staðir og „fornhaugar“ verða að
bíða betri tíma, ef höfundi og
blaðinu endist líf og heilsa.
Raunar væri þjóðtrú Svarf-
dælinga nægilegt efni í heila
bók, og mætti þá byrja á Svarf-
dæla sögu, sem er eitthvert
fjölbreyttasta fornritið hvað
þetta efni varðar. Má vera að
þjóðtrú Svarfdælinga dragi enn
nokkurt dám af þessari forn-
sögu. Að minnsta kosti er víst,
að í Svarfaðardal er um óvenju
auðugan garð að grisja, á þjóð-
trúarsviðinu, jafnvel saman
borið við aðrar sveitir í Eyja-
firði, sem er þó eitt það hérað á
íslandi sem mest kveður að
þessari svonefndu hjátrú.
Að lokum vil ég færa öllum
neimildamönnum mínum hinar
bestu þakkir fyrir þeirra tillög í
þessa ritsmíð, og vona að hafa
ekki brenglað máli þeirra svo
teljandi sé. (Ártöl eru flest tekin
eftir bókinni Svarfdælingar 1-11,
eftir Stefán Aðalsteinsson.
(Rvík. 1976-78)
Akureyri á jólaföstu,
Helgi Hallgrímsson.
Athugasemd varðandi Huldu-
hóla á Hálsi.
Guðrún Þorsteinsdóttir á Hálsi
hefur sent mér eftirfarandi
athugasemd eða leiðréttingu við
myndtexta, er birtist í janúar-
blaði Norðurslóðar 1985, í þætti
mínum „Vættarstöðvar í Dal-
víkuumdæmi“. Birt er mynd af
hólum nokkrum í mynni Háls-
dals/Hamardals, og er ritað
undir hana: Framhlaupshólar á
Hálsdal. Eru þetta Hulduhól-
arnir? Guðrún segir í bréfi sínu:
„Okkur ber saman um það
hér á bænum, að þetta séu ekki
svonefndir Hulduhólar, heldur
yztu og neðstu hólar í Ríplum,
framhlaupi sunnan og neðan
við Selið. Hulduhólarnir eru
nokkru utar, eða suður og niður
af Hádegishól, eins og stendur í
umræddri grein.“
Þessu er hérmeð komið á
framfæri, og þarmeð er þá líka
spurningu myndatextans svarað
Þökk fyrir upplýsingarnar
°Uðr<‘n H.Hg.
NORÐURSLÓÐ - 7