Norðurslóð - 27.05.1986, Qupperneq 6
Svarfdælsk byggð & bær
Má ég kynna?
Tímamót
Skímir
24. april var skírð í Da'lvíkurkirkju Adda Soffía. Foreldrar
hennar eru Hulda Steingrímsdóttir og Ingvar Engilbertsson,
Ægisgötu 5, Dalvík.
17. maí var skírð í Tjarnarkirkju Sigrídur Ásta. Foreldrar
hennar eru Júlíana Þ. Lárusdóttir og Björn Þórleifsson,
Húsabakka.
18. maí var skírð í Dalvíkurkirkju Fjóla Guðbjörg. Foreldrar
hennar eru Sigurbjörg Bjarnadóttir og Trausti Sveinsson,
Bjarnargili, Fljótum.
18. maí var skírð Þórgunnur Lilia. Foreldrar hennar eru
Helga Snorradóttir frá Völlum og Jóhannes K. Björnsson,
Þtigahlíð 2, Reykjavík.
Merkisafmæli
Þór og Engilráð um 1960.
Níutíu ára verður 1. júní n.k. ekkjan Engilrád Sigurðardóttir
■á Bakka. Ingibjörg Engilráð var fædd á Göngustöðum. en
giftist 30. nóvember 1918 Þór Vilhjálmssyni á Bakka. Þau
bjuggu •fyrst á Hjúki í Skíðadal til 1923, en eftir það bjuggu
þau rausnarbúi á Bakka allt til þess. að þau 'létu jörðina í
hendur dætra og'tengdaso-na. Þau eignuðust 5 dætUT'Og einn
son. flömin fles* búsett hér um slóðir og er ættin tjöJmerm
■öpðin.
.iEngih'áð er ewn \ið sæmilega heilsu, helur lótavist dag
hvern og hefúr fram tilþessaJöngum haft \ eulin:geðasokkaá
.prjónum.
Afmælisbarnið áað baki langan og farsaclaw vinnudag'Og
'viija sveitungarbennarogaðrir veiu'nnarar JJytja Jienni bestu
kveðjur og þakkir á iníræ'ðisafmælinu.
Fermingarmessa fór fram í Dalvíkurkirkju á hvitasunnudag
kl. 10.30. Blíðskaparveður var þennan dag, sólskin ogágætur
hiti, og varð dagurinn í alla staði hinn ánægjulegasti.
Fermingarbörnin voru 31, en þau heita:
Arna Arngríirtsdótlir
ArnariSverrissön
Ágúát 'Eiríksson
Arndis'ötf'ðný'Gwjtarsdóttir,
■fiirnir Kristjún Briem
Bjarki Heiðar Úrynjarsson
:BorghilJkfr 'Freyja iRúnarsdóttir
BOfktir 'Þór OttóSson
lElin Ása Hreiðarsdóttir
Gunnlau-gur Jónsson
Hálldór "S verrisson
Hákon 'Stefánsson
Hólmirfður'Stefánsdóttir
■íris ’Ððgg Váisdóttir
Jóhann Valur'Ólafsson
Jón Bjarki Jónsson
.lón Pálmi Óskars'son
'Kristín Sveinbjörnsdóttiir
JCristín Traustadóttir
l.inda Rós Jóhannsdóttir
Nina ’Hrönn'GunnarsdÖttir
Ragnar'Ólason
Róbert Tre-yr 'kórtsson
Rímar .lúlíus Gunnareson
Rúnar iHelgi Kristinsson
Sigríður Ólöl Halsteinsdóttii
Sigurlaug Elsa Heimisdóltir
Snjölaug Tlín Árnadóttir
Svanborg Sigmarsdóttir
Sunnudaginn 1. júní verður fermingarmessa í IJrðakirkju sem
hefst kl. 13.30. Fermdir verða fimm drengir:
Birkir Árnason, Ingvörum.
Börkur Árnason, Ingvörum.
Gauti Hallsson, Skáldalæk.
Magnús Marinósson, Búrfelli.
Valdimar -Búi Hauksson, Skeiði.
jHp-
Um nokkurra vikna skeið hefur
nýr læknir starfað við Heilsu-
gæslustöðina á Dalvík ásamt
Braga Stefánssyni, sem nú hefur
verið hér síðan haustið 1982.
Nýi læknirinn heitir Jóhanna
Jónasdóttir af kunningjum
kölluð Góa. Fædd er hún í
Reykjavík árið 1950.
Jóhanna varð stúdent frá
Verslunarskólanum í Reykjavík
1971, lauk prófi sem meina-
tæknir frá Tækniskólanum, hóf
almennt læknanám við Stokk-
hólmsháskóla, en flutti heim í
miðju námi og lauk læknis-
prófi frá H.í. 1985. Siðan hefur
hún m.a. unnið sem læknir á
Þingeyri, á Vífilsstöðum og
á Landakotsspítalanum. Hér
vinnur hún í bráðabirgðastöðu
og verður til haustsins a.m.k.
Jóhanna var gift Lárusi Ými
Óskarssyni kvikmyndagerðar-
manni, sem nú starfar í Svíþjóð.
Þau skildu. Dóttir þeirra er
Halla Björg, sem kemur hingað
til móður sinnar að loknum
skóla í Reykjavík í lok mán-
aðarins.
Sambýlismaður Jóhönnu nú
er Ingólfur Margeirsson rit-
stjóri Helgarpóstsins.
Jóhanna læknir segist hafa
svo mikið að gera, að hún hafi
ekki tíma til að stunda önnur
hugðarefni heldur en starfið.
Samt leyfir hún sér að vera
dálítið úti í náttúrunni og munu
einhverjir Dalvíkingar áreiðan-
lega hafa séð hana skokkandi
austur á Sandi. „Þar eiga Dal-
víkingar dýrðlegan stað fyrir
útivist og heilsubótargöngur,“
segir Jóhanna læknir, og hún
veit hvað hún syngur.
Að lokum lætur’hún þess
getið, að hún kunni prýðilega
við sig á Dalvík. „Þetta er
skemmtilegur og líflegur bær,
hér þarf engum að leiðast.“
Ættfræðin
Við viljum endilega koma því að
að Jóhanna rekur ætt sína
hingað í dalinn. Móðirin heitir
Ingibjörg Eyþórsdóttir en faðir-
inn er Jónas, skrifstofumaður í
Reykjavík, sonur Hallgríms
kaupmanns í Reykjavík Tómas-
sonar prests á Völlum
Hallgrímssonar (1847- 1901).
Með öðrum orðum voru, sr.
Tómas, hinn góðkunni og vin-
sæli prestur hér á Völlum og
kona hans, maddama Valgerður
Jónsdóttir, langafi hennar og
-ajnma. Jóhanna á systur hér
á Dalvík, Ásgerði, starfsmann í
Sparisjóðnum, ekkju Snorra
heitins Árnasonar.
Til þess að fá meiri breidd í
ættfræðina skal það í lokin
rifjað upp, að séra Tómas á
Völlum var sonur Hallgríms
Tómassonar og Dýrleifar Páls-
dóttur. Móðir Hallgríms
Tómassonar var Rannveig
Hallgrímsdóttir á Steinsstöðum
í öxnadal, systir Jónasar skalds
og náttúrufræðings, „lista-
skáldsins góða“.
Sr. Hallgrímur Þorsteinsson,
faðir þeirra Rannveigar og
Jónasar, (hann drukknaði í
Hraunsvatni) átti 3 bræður, sem
allir urðu prestar hér í sveit, sr.
Baldvin á Upsum, sr. Kristján á
Tjörn og Völlum og sr. Stefán á
Völlum. Út af þeim bræðrum,
ekki síst Baldvini, er komið
margt manna sem enn býr í
þessu byggðarlagi.
Svona einfalt er nú þetta.
Fréttahornið
Mikil var undrun heimilis-
fólks á Klængshóli á
hvltasunnu, þegar það fór að
láta inn ærnar. Var þá kominn
veturgamall hrútangi saman við
féð heldur rýrðarlegur en þó
með góðu hornahlaupi, nýlegu.
Einhverjum hefði sjálfsagt
dottið í hug að þarna væri á
ferðinni útilegumannakind e.t.v.
úr Heiðinnamannadal, ef ekki
hefði verið áhenni laukrétt
mark Gísla á Hofsá.
Ýmislegt þykir benda til að
hrússi hafi gengið af vestan ár en
buslað austuryfir þegar hann
varð var fénaðarferða handan
ár. Hér fylgir mynd af Gísla
bónda með hrút sinn - og eru
báðir fundi fegnir.
Gísli og hrúturinn.
Hús gömlu síldarbræðsl-
unnar sálugu er nú farið að
láta á sjá að utam að minnsta
kosti. Nú er byrjað að klæða
það utan með svokölluðum
Barkareiningum. Eins <og kunn-
ugt er hefur Fóðurstöðin tekið
húsnæðið á leigu o.g hefur starf-
semi sina þar til húsa.
Nýlega voru hér á kynnisferð í
sveitinni þau heiðurshjón
Unnur Tryggvadóttir og Jakob
Tryggvason hinn góðkunni
organisti á Akureyri. Þau eru
auðvitað hreinræktaðir Svarf-
dælingar eins' og flestir eldri
Tryggvi Kristinsson.
menn a.m.k. vita, hann frá Ytra-
Hvarfi en hún dóttir Tryggva
Kristinssonar (1882-1948) kenn-
ara og söngstjóra, sem var
bróðir sr. Stefáns á Völlum og
bjó sjálfur í Uppsölum stítttan
tíma skömmu eftir aldamótin.
Kona hans var Nanna Arngríms-
dóttir málara og Þórunnar
Hjörleifsdóttur frá Tjörn og
Völlum.
í ritinu Svarfdælingum er
þetta sagt um Tryggva og
verður það að nægja hér til aþ
gera grein fyrir starfi hans hér á
fyrsta fjórðungi aldarinnar:
„Hann fékkst mest við kennslu
og starfaði mikið á sviði tón-
fræða, stjórnaði söngkórum og
var lengi organisti bæði I
kirkjum Svarfdæla og síðast í
Siglufjarðarkirkju."
Þau Jakob og Unnur litu m.a.
inn í Arngrímsstofu í Gull-
bringu þar sem afi Unnargerði
sér fyrstu málarastofu á íslandi.
Áður en þau Jakob og Unnur
yfirgáfu sveitina afhentu þau
gjafir til minningar um Tryggva
Kristinsson og störf hans hér:
kr. 10.000 til Kirkjukórs Svarf-
dæla og kr. 10,000 til Orgel-
kaupasjóðs Dalvíkurkirkju,
hvorttveggja „til eflingar tón-
listar og söngstarfs í Svarf-
dælabyggð."
Þetta var vel til fundið og er
ekki að efa, að þessi hugul-
semi og velvilji er vel metinn af
Svarfdælum og gjafirnar með
þökkum þegnar.
Ríkissjóður hefur nú boðið
út frágang nýju lögreglu-
stöðvarinnar við Gunnarsbraut.
í útboðinu er gert ráð fyrir að
helmingur neðri hæðar verði
tilbúinn 15. ágúst n.k. Loka-
frágangur neðri hæðar og hlem-
ings efri næðar á að standa til 1.
febrúar á næsta ári. Skrifstofur
lögreglunnar verða tilbúnar í
ágúst þó fangageymslur verði
ekki til fyrr en í vetur, enda
verður vonandi ekkert með þær
að gera.
All góð veiði hefur verið hjá
netabátum framm við Kol-
beinsey. í síðustu viku komu
bátarnir með allt að 25 tonn
hver. Kvótamál standa mjög
misjafnlega hjá þeim, sumireiga
eftir talsvert en aðrir eru svo
gott sem búnir.
Allir stefna bátarnirá úthafs-
rækju í sumar, en þeir sem enn
eiga kvóta halda áfram þorsk-
veiðum, sérstaklega meðan
gengur að hengja upp skreið
fyrir Ítalíumarkað.
IBella Center í Kaupmanna-
höfn verður dagana 17-21.
júní mikil sjávarútvegssýning.
Annað hvert ár eða svo eru
slíkar sýningar haldnar í þessari
frægu sýningarhöll. Það hefur
hayrst að allmargir áhugamenn
hér hyggist leggja land undir fót
og heimsækja frændur vora
Dani af þessu tilefni. Þá erljóst
að eitt dalvíkst fyrirtæki, Sæ-
plast h/f, mun verða með
sýningarbás og kynnirþarfram-
leiðslu sína svo sem ker og palla.