Norðurslóð - 25.11.1986, Blaðsíða 8
Svarfdælsk byggð & bær
Tímamót
Skírnir
16. nóvember var skírður í Vallakirkju Þorgils, í'oreldrar,
Guðrún Karlotta Þorgilsdóttir frá Sökku og Magnús H.
Jóhannsson. Þau búa í Lönguhlíð 15, Akureyri.
8. nóvember var skírður í Dalvíkurkirkju Sœmundur Ómar,
foreldrar Kristín Guðmundsdóttir og Dúi K. Andersen,
(Sæmundar Andersen) Skíðabraut 17, Dalvík.
Afmæli
Þann 24. nóvember varð fimmtugur Jón
Jónsson bílstjóri á Dalvík.
í meira en 30 ár hefur Jón ekið mjólkur-
bíl frá mjólkurframleiðendum í Svarfaðar-
dal og úr útanverðum Eyjafirði til Akur-
eyrar, lengur en nokkur annar maður frá
upphafi.
Fyrir hönd vina Jóns og velunnara
sendir Norðurslóð honum bestu afmælis-
kveðjur og heillaóskir.
/. r
Börn á dansæfingu,
í jazzballett,
Sparisjóður Svarfdæla skenkti nýlega tveimur dalvískum skíðaköppum
æfíngagalla og smágjöf með. Hér sjáum við f.v. Friðrik Friðriksson spari-
stjósstj., Ingigerði Júlíusdóttur, Daníel Hilmarsson og Jón Halldórsson
„faðir skíðaíþróttarinnar á Dalvík“.
Dalvíkingar
Gerið pöntun í laufabrauðið.
Magnafsláttur.
Víkurbakarí
Má ég kynna?
Kominn er til starfa sem æsku-
lýðsfulltrúi Dalvíkurbæjar nýr
maður í stað Gísla Pálssonar, er
hætti nú í haust eftir þriggja ára
starf.
Sá heitir Ingimar Jónsson,
fæddurá Akureyri 19. des. 1937.
Foreldrar hans voru Jón
Ingimarsson, sem lengi var
formaður Iðju, félags iðnverka-
fólks á Akureyri, og kona hans
Gefn Geirdal Steinólfsdóttir frá
Grímsey. Systir Ingimars er
María húsfreyja á Ingvörum.
Ingimar gekk í Gagnfræða-
skólann á Akureyri, en settist
síðan í íþróttakennaraskóla
íslands á Laugarvatni og lauk
þaðan prófi á tilsettum tíma.
Hann kenndi íþróttir á ýmsum
stöðum veturinn 1958-59 þar á
meðal á Dalvík og þekkir marga
Dalvíkinga frá þeim tíma. 1960
hélt Ingimar_ til A-Þýskalands
og hóf nám í íþróttaháskólanum
í Leipsig. í Leipsig var hann í 8
ár þar af 4 ár í háskólanum og
brautskráðist þaðan með doktors-
gráðu í uppeldisfræði 1968.
Titill hans er því dr. ped. (agogie).
Heimkominn hóf hann kennslu
við Kennaraskóla íslands, en
varð síðan námstjóri á íþrótta-
sviðinu á vegum menntamála-
ráðuneytisins allt til 1984. Síðan
þá hefur hann mest fengist við
ritstörf. Þar til má nefna endur-
skoðaða heilsufræði fyrir skóla
og uppsláttarrit um skák, sem
kemur út á næsta ári. Ennfremur
samdi hann fyrir 10 árum síðan
Alfræðirit um íþróttir í ritröð
Menningarsjóðs.
Ingimar er mikill skákáhuga-
maður frá barnæsku. Af afrek-
um hans á því sviði má nefna, að
1957 varð hann skákmeistari
Norðlendinga og næstu 2 árin
hlaut hann annað sætið á Skák-
þingi íslands. 1958 var hann
einn íslensku keppendanna á
Ólympíuskákmótinu í Múnchen.
Þá hefur hann látið til sín taka í
félagssamtökum skákmanna og
var forseti Skáksambands
Islands í 2 ár.
Ingimar var kvæntur Agnesi
Löve píanóleikara í yfir 20 ár en
þau skildu fyrir nokkrum árum.
Synir þeirra eru Þorsteinn 24
ára, bakari að iðn, og Jón 23
ára, sem um þessar mundir
vinnur á samyrkjubúi í ísrael.
Ingimar kveðst hyggja gott til
starfsins hér, það á vel við hann
að vera þátttakandi í virku
félagsstarfi og hann vonast til að
geta látið nokkuð gott af sér
leiða hér. Hann er þegar farinn
að starfa með Taflfélaginu og
telur, að þar sé mikill og góður
efniviður.
Norðurslóð býðúr dr. Ingimar
velkominn til Dalvíkur og óskar
honum góðs gengis.
Fréttahornið
Hjá Fjölrita s/f hafa nú orðið
breytingar. Sigmar Sævalds-
son sem stofnaði fyrirtækið í
upphafi með Guðmundi Inga
Jónatanssyni hefur hætt aðild
sinni að því. Sæmundur Andersen
kemur að einhverjum hluta sem
eignaraðili nú ep fyrirtækið er
að mestum hluta í eigu Guðmund-
ar. Fjölriti hefur fest kaup á
setningartölvu og stærri prent-
vél og mun geta veitt meiri
þjónustu en áður var. Bæjar-
pósturinn, sem legið hefur í
dvala frá því í júní, er nú að
vakna til lífsins aftur. Fréttst
hefur að Heimir Kristinsson
hafi tekið að sér ritstjórn
blaðsins og að útgáfa byrji að
nýju í desember.
Að undanförnu hefur verið
til umræðu hjá Bæjarstjórn
Dalvíkur endurskoðun á eignar-
aðild bæjarins að sjávarútvegs-
fyrirtækjum hér á Dalvík. Það
er ekkert nýtt að þessi mál beri á
góma. Á síðasta kjörtímabili
gerði þáverandi bæjarstjórn
nokkrar samþykktir um að
stefna að sameiningu fyrirtækja
með það að markmiði að veiðar
og vinnsla verði sameinuð.
Ekkert kom útúr þeim hug-
myndum þá. Nú snúast umræður
um, að hve miklu leyti þörf er á
að bærinn hafi bundið fé í
þessum fyrirtækjum. Smærri
fiskverkendur hafa sent erindi
til bæjarins um að fá aðgang að
hráefnisöflun togaranna og hafa
lýst sig reiðubúna til að kaupa
hlut bæjarins í fyrirtækjunum
að einhverju leyti í þessu skyni.
KEA er aðaleigandi með bænum
í fyrirtækjum og hefur einn
viðræðufundur verið milli bæjar-
ins og fulltrúa KEA um þessi
mál. Var sá fundur haldinn á
laugardaginn fyrir rúmri viku.
Bæjarstjóri og bæjarráð tóku
þátt í fundinum að hálfu Dalvík-
urbæjar en Valur Arnþórsson,
Kristján Ólafsson og Rögnvaldur
Skíði Friðbjörnsson frá KEA.
Engar ákvarðanir hafa verið
teknar en reiknað er með áfram-
haldandi vinnu og umræðum í
þessum málaflokki.
Skíðafélag Dalvíkur hefur
reist byggingu við neðri
enda skíðalyftunnar. Þessa dag-
anna er verið að innrétta bygg-
inguna. Þarna verður aðstaða
fyrir skíðafólkið að búa sig í
öðrum endanum en snyrting í
hinúm. í haust varvatnogskólp
lagt frá bæjarkerfinu þarna
uppeftir. Ekki hefur enn verið
ákveðið hvenær lyfturnar verða
teknar í notkun nú í vetur, en
snjór er orðin nægur til að vera á
skíðum. Skíðamenn hafa verið
að æfa þótt þeir hafi ekki notað
snjóinn. í september hófust
þrekæfingar á þeirra vegum og
þá úti. Frá því í október hafa
æfingar farið fram í íþrótta-
húsinu. Aðsókn vargóð í byrjun
en aðeins hefur dregið úr henni
að undanförnu. Björgvin Hjör-
leifsson hefur aftur verið ráðinn
þjálfari félagsins í vetur og er
ekki að efa það að því fagna allir
áhugamenn um skíðaíþrottina.
Fyrir rúmri viku hófust hér á
Dalvík námskeið fyrir fisk-
verkunarfólk. Markmið þessara
námskeiða er að auka þekkingu
starfsfólksins á sínu sviði. í
kjarasamningum er gert ráð
fyrir að að afloknum námskeið-
um hækki hver um að jafnaði
tvo launaflokka, svo þetta hefur
talsverða þýðingu fyrir fisk-
vinnslufólk. Aðsókn að nám-
skeiðunum er líka mikil. Áttatíu
manns hjá fiskvinnslustöðvun-
um hér hafa nú þegar skrifað
undir samning um að sækja
námskeið. Alls eru þetta tíu
ljögurra tíma námskeið fyrir
hvern. Fimmtán manns eru í
senn í hverjum hóp. Áformað er
að öll kennsla fari fram á
Dalvík, en fyrirlesarar koma
víða að. Fólk er að sögn ánægt
með það sem búið er og telur
byrjunina lofa góðu.
Dansnámskeið var haldið
hér á vegum Danslínu
Huldu Hallsdóttur, bæði fyrir
skólabörn og fyrir fullorðna.
All sæmileg aðsókn var hjá
skólabörnum. Hjá fullorðnum
var nokkuð góð þátttaka í
gömludönsunum þar voru níu
pör í læri. Hins vegar var engin
þátttaka í samkvæmisdönsum
sem boðið var upp á. Aftur á
móti var einn flokkur í djass-
ballet. í lokin var haldin eins
konar útskriftarhóf. Þeir full-
orðnu fengu engin formleg
útskriftarskýrteini, en vafalítið
fer það ekki fram hjá neinum á
dansleikjum vetrarins hverjir
voru þar. Þátttakendur sögðu
að mjög gaman hefði verið á
þessu námskeiðum, menn á balli
tvisvar í viku, og hyggjast þeir
halda þeim sið í vetur. Næsta
haust verður þetta námskeiðsJ
hald endurtekið og ætla allir að
mæta aftur og vafalaust verða
fleiri áhugasamir þá.
Ungmennafélagið Þorsteinn
Svörfuður bryddaði upp á
þeirri nýbreytni nú um helgina
að auglýsa hjónaball á ÞingJ
húsinu. Þar var boðið upp á
skemmtiprógramm og dans.
Hljómsveit frá Akureyri mætti á
staðnum og lék í tvo tíma. Þá
var skemmtuninni slitið því
þarna mættu aðeins 6 pör.
Hljómsveitinni var greitt það
sem henni bar og þessum 6
pörum endurgreiddur aðgangs-
eyririnn. Eftir stóð ^Ungmenna-
félagið töluvert fátækara.
Um þessa sömu helgi efndi
Menningarsamband Norðlend-
inga til samkomu á Dalvík. Þar
var margt áhugavert til skemmt-
unar svo sem léttur fiðluleikur,
söngur með djasshljómsveit,
steppdanssýning o.fl. örn Ingi
stjórnaði af öryggi og léttleika.
Allt tókst þetta ljómandi vel og
áheyrendur skemmtu sér prýði-
lega. En á þessa vönduðu
samkomu keyptu 14 manns sig
inn. Er þetta það sem koma skal
í skemmtanalífinu í vetur? Ef
svo er ætti Leikfélagið kannske
að hugsa sig um áður en félagar
þar leggja á sig miklar vökur og
vinnu við æfingar og uppsetn-
ingu á söngvum og leiksýningu,
sem byrjað er á og sýna á um
jólin. Og er eitthvað hægt að
gera til þess að svona slys
,endurtaki sig ekki?
Hér á dögunum brá Gunn-
steinn Þorgilsson bóndi og
veiðimaður á Sökku sér fram í
Skíðadalsafrétt í þeim tilgangi
að bæta nokkrum rjúpum í
safnið og huga um leið að týndu
kvígunum frá Tjörn, sem áður
hefur verið minnst á hér í
blaðinu.
Frh. á bls. 6