Norðurslóð


Norðurslóð - 16.12.1986, Blaðsíða 5

Norðurslóð - 16.12.1986, Blaðsíða 5
LÚLLI OG LEIÐARHNOÐAÐ Þórarinn Eldjáirn - Teikningar gerði Sigrún Eldjárn Lúlli l'rændi kom til okkar aö norðan sem unglingur og fékk að búa hjá okkur meðan hann væri að ljúka námi við Iðnskól- ann. Hann átti að verða smiður, hvaðan svo sem sú hugmynd var nú upphallega komin, klaufsk- ari manni hef ég aldrei kynnst. Ætli þau Sveinn og Rósa hafi ekki hugsað sér að hann tæki við búinu og þá kæmi sér alltaf vel að geta tekið til hendi við smíðar. Það má svo sem vel vera, en ég man að pabbi sagði það strax, að honum þætti fara í okkar bakarí, sagði pabbi, það verður leiðinlegt að fá ekki lengur þetta góða heilhveiti brauð. - Til hvers þarf bóndi að geta bakað? spurði afi. Hvað held- urðu að pabbi þinn segi? Veslings Svenni og Rósa, sagði mamma, þau eiga eftir að hengja bakara fyrir smið. En Lúlli frændi heyrði ekki til þeirra. Hann var kominn upp í og búinn að kveikja á útvarpinu. Hann átti að mæta í bakaríinu klukkan 5 næsta morgun. Þetta kvöld lagðist Lúlli ekki upp í rúm strax eftir kvöldmat eins og venjulega. Hann fór í sín bestu föt og sagðist þurfa að fara og hitta mann. Þegar ég kom á fætur morg- uninn eftir ríkti mikil gleði í fjölskyldunni. Lúlli hafði komið heim um kvöldið með leiðar- hnoða. Hann var staðráðinn í að hefja nám í múrverki og kominn á samning hjá ágætum meistara. Þetta hafði hann gert heyrinkunnugt, en síðan hafði hann tekið útvarpið úr sam- íslenskur landbúnaður eiga við alveg nóga erfiðleika að etja án þess að þetta þyrfti að bætast við. Lúlli byrjaði í skólanum og komst á samning hjá meistara sem pabbi þekkti. Fljótlega kom í ljós hver var raunverulega ástæðan fyrir því að Lúlli var sendur að norðan. Hann reynd- ist vera eitthvert latasta kvikindi sem lífsanda dró á þessari jörð, ónothælur sem ókeypis vinnu- kraftur og því lítils virði fyrir foreldra sína. Enginn mannlegur mátturgat fengið hann fram úr rúminu á morgnana. Dugðu þar hvorki fortölur né hótanir. Ogekki nóg með það, það var yfirleitt engin leið að fá hann til að sinna einu eða neinu. Eina raunverulega áhugamál hans var að liggja uppi á dívan og hlusta á kanaútvarpið í von um að fá að heyra Fats Domino syngja Blueberry Hill. LúHi dáði Fats meira en aðra menn og stóðst ekki reiðari en þegar pabbi þýddi nafnið hans og kallaði hann Hemma feita. Pabbi var með þýðingadellu, Cliff Richard hét Pétur Ríkharðsson, John F. Kennedy hét Jón Kenjadýr og Spike Jones Broddi Jóhannes- son. Það leið því ekki á löngu þar til smíðameistarinn sá sig til neyddan að leysa Lúlla frá störfum. Lúlli leit hinsvegarsvo á að hann hefði sjálfur sagt upp, enda búinn að sjá í gegnum þessa ómerkilegu iðngrein. Hann sagðist langa til að verða bakari og tilkynnti einn daginn að hann væri búinn að skipta um grein í skólanum og kominn á samning hjá bakaranum á horn- inu. - Þurftirðu nú endilega að . . . og hlusta á kanaútvarpið. Klukkan var orðin hálftíu þegar mömmu tókst loks að vekja hann. En hún hefði alveg getað sleppt því, bakaraferli Lúlla var lokið. Næst tók nann stefnu á rafvirkjun, þá hárskurð, síðan skósmíðar, pípulagnir og málara- iðn. Loks var haldinn fundur í fjölskyldunni. Fyrr um daginn hafði Lúlli lagt frásérpensilinn í síðasta sinn og farið á bíó. Þegar hann kom heim beið hans úrskurðurinn: Ef hann fyndi sér ekki grein sem hann gæti tollað í yrði hann sendur aftur norður. bandi, gengið til náða og sofnað strax. Hann lét hnoðað liggja á gólfinu við rúmið sitt og hélt í spottann meðan hann sval. Snemma um morguninn hafði svo hnoðað togað hann fram úr og rakleitt til meistarans í vinnu. Meistarinn hafði hringt í kaffi- tímanum til að láta í ljós ánægju sína með dugnað og kapp Lúlla. Honum virtist ekki falla verk úr hendi. Lúlli varð allur annar maður eftir að hann fékk hnoðað, einbeittur og markviss. Múr- verkið átti hug hans allan, en Fats hvarf úr lífi hans. Hann mætti samviskusamlega alstaðar þar sem ætlast var til af honum. Allir dáðust að einbeitni unga mannsins þegar hann rauk til vinnu sinnar morgun hvern á efti hnoðanu. Á sunnudagsmorgnum dró hnoðað hann ,til kirkju. Lúlli átti það líka til að fara í fótbolta við okkur strákana og hafði þá hnoðað fyrir bolta. Mikið var ég stoltur áf því að eiga þennan stóra frænda. Strákarnir göptu af undrun og dáðu Lúlla takmarkalaust þegar hann sólaði þá upp úr skónum og rakti hnoðað út um víðan völl eins og það væri límt við tærnar á honum. Og alltaf tókst hónum að skora, hvernig sem Nonni endasentist og skutlaði sér í markinu. Þannig leið tíminn. Námið gekk vel hjá Lúlla. Hann múraði og múraði. í tómstund- um hans leiddi hnoðað hann gegnum vel skipulagða og þaul- hugsaða menningar- og félags- lífsdagskrá. Oft fékk ég að fylgjast með þeirn. Ég kynntist þarna á unga aldri ýmsu upp- byggilegu og þroskavænlegu starfi sem ég hef búið að síðan, þökk sé hnoðanu. Dag einn bar hnoðað okkur á fund í stóru húsi í nýlegu hverfi. Við eltum það inn um dyrnar og komum strax inn á breiðan gang. Lyfta stóð opin og stefndi hnoðað rakleitt inn í hana. Við ætluðum að fylgja á eftir, en maður sem fyrir var í lyftunni stöðvaði okkur og sagði að ekki mættu fara of margir í lyftuna. Þetta var auðvitað fáránlegt, maðurinn var tágrannur og á skiltinu stóð greinilega að lyftan væri gerð fyrir sjö manns, ég gáði sérstaklega að því á eftir. En við þetta kom hik á okkur og áður en við vissum af lokuðust Iyftudyrnar báðumegin frá og klipptu á þráðinn. Lúlli stóð eftir eins og þrumu lostinn með lítinn spotta í hendi, en lyftan var rokin af stað í hæðir með hnoðað og mjóa manninn. Lúlli virtist eins og áttavilltur. en tók þó loks á rás upp tröppumar og bað mig að bíða niðri og reyna að góma hnoðað ef lyftan kæmi niður með það aftur. Ég beið og beið. Lengi vel heyrði ég fótatak Lúlla í stigan- um, hann hljóp upp og niður tröppur, ég heyrði hann kalla og banka, en smám saman dofn- uðu þó hljóðin, ég vissi að hann hlaut að vera kominn mjög hátt. Ég beið langt fram á kvöld, ekki kom Lúlli og ekki kom lyftan. Á endanum kom þó lyftan og opnaðist. Út úr henni stigu tvær gamlar konur með regnhlífar. Hnoðaðsáéghvergi. Þá fór ég heim. Lúlli sást aldrei eftir þetta. Pabbi hafði oft orð á því hvað það hefði verið leiðinlegt að hann skyldi ekki hafa getað lokið múrverkinu, og afi talaði um hvað það væri óréttlátt að hann skyldi hafa týnst þegar hann virtist loksins vera búinn að finna sjálfan sig. í mörg ár eftir þetta stóð mér stuggur af þessu stóra húsi, mér var ekki vel við að vera mikið á ferli í nágrenninu. í fyrra átti ég erindi í þetta hús, mér hafði verið falið að taka viðtal við gamla konu á fjórðu hæð. Ég var næstum búinn að gleyma þessum atburð- um. Það var því ekki furða þó mér brygði illilega þegar ég stóð þama og var að leita að nafni gömlu konunnar á dyrasímanum. Við einn hnappinn stóð skrifað skýrum stöfum: 13. hæð t.v. Lúðvík Sveinsson, múrari. rauk til vinnu sinnar hvern morgun á eftir hnoðanu. NORÐURSLÓÐ - 5

x

Norðurslóð

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Norðurslóð
https://timarit.is/publication/1253

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.