Norðurslóð


Norðurslóð - 16.12.1986, Blaðsíða 17

Norðurslóð - 16.12.1986, Blaðsíða 17
UMF Sklði um 1930 Grœddu mein hjá mey og svein/mjallarfríði salur. Sjónarsteina unun ein/ertu Skíðadalur. H.Z. Hjá Pálma Jóhannssyni í Odda fékk blaðið meðfylgjandi gaman- vísnabrag um félaga í UMF Skíða i Skíðadalnum. Þetta mun ort á blómaárum Skíða í kringum eða upp úr 1930. Höfundurinn er Halldór Jónsson frá Þverá, öðru nafni Dóri á Völlum. Ekki var hann í félaginu, en hefur verið fenginn til að setja saman brag og líklega syngja á skemmtisamkomu unga fólksins í dalnum. Við birtum þetta meinlausa gaman í þeirri vissu, að enginn fyrrtist við, hvorki lífs né liðinn. A eftir visunum 25 fylgja skýringar. þar kemur fram að af þessum gömlu félögum eru nokkrir nú dánir og flestir hinir brottfluttir úr Skíðadalnum. Aðeins 3 eru enn búsettirá gamla heimiiinu sínu. Þannig er þessi hálfrar aldar gamanbragur orðinn dálítil sagnfræði. Skíðadalur í sumarblíðu. 15. í ýmsu Júlli aföðrum ber, einhver vill hann kvinna. Ekki verður álmagrér eftirbátur hinna. 16. Mörg er eikin alþakin ávöxt fyrir Steina. Vertu snar í víngarðinn og veldu þér fíkju eina. 17. Engimj grœtur íslandsson inngang fyrir krónu, ef hann mœtti eiga von á ástinni hennar Jónu. 18. Anna hún er björt og blíð, brögnum líst á hana. Þó hún sé ei fjarska fríð J'er það strax í vana. 19. Það er a/veg undravert í eyrum vel það lœtur, það sem Árni getur gert til gamans daga og nætur. 20. Arna þínum ertu góð ótal kyssir munna, þó má j'inna falda glóð i fórum þinum, Nunna. 1. Kann ég lítið kvœðalag, við kvörnina má ég stríða, Játœklegan J'lyt ég brag um Jélagana í ,,Skíða“. 2. Lestraraðjérð Árni kann, ást þó litla Jinni. Með blautan hausinn bisar hann við börn á Dalvikinni. 10. Óskar hej'ur létta lund landssjóð mikils virði. Kemur oj't á J'élagsJ'und og J'lytur gamanyrði. 11. Oji hjá Snjók'u y/ ég J'inn, aldrei má þó kyssa, því ekki vill hann Óskar minn eignarréttinn missa. 21. Margur veg þann velur sér visdóm saj'na i kollinn. Alli litli ekki fer út í meyjasollinn. 22. Þeir, sem ungan þekkja Björn, þrautseigur hann stríðir, kappinn eignast konu og börn og kaupir Hlið um siðir. 3. Margt er það sem Á r,istinn kann, kevrt á bíl hann getur. Einhver stúlka eignast hann og eina rollu betur. 4. Valt er að treysta á vöxtinn einn vont er slikt að dylja. Einhverntíma yngissveinn unnað J'œr þér, Lilja. 5. Gráttu ekki, Gunnar minn, þó gangi misjaj'nt stundum. Það er J'ullur jjörðurinn affögrum vngissprundum. 12. Mér þvkir það mikils von, að meyjar augum renni til þín A lli Óskarsson, ajbragðs glœsimenni. 13. Ef þú kýst þér konu að J'á í Krosshól skalt þú J'ara, þar er Freylaug faldagná Jljót til slikra svara. 14. Margra er erj'ið ástarleið og það J'elst í mörgu. Farðu bara og Jinndu Eið og J'alaðu hana Björgu. 23. Eyða margoj't ástarbönd allri sorg og pínu. Sigldu beint að Sœluströnd og sestu þar hjá Stínu. 24. Brátt ég enda braga Jlckk, búin er þessi vaka. Það má hver úr kvarnarstokk köku sína taka. 25. Út á hinsta œj'ikvöld er oss skylt að stríða. Daga, vikur ár og öld auðnan J'ylgi Skiða. 6. Þórhallur minn þyrj'ti snót, það J'er ej'tir vonum. Einhver býður bros á mót bliðu atlolunum. 7. Er hún Jóna ekki Ijót, allra vœnsta kvendi. Hrijin yrði, ef hreppti snót hring á rétta hendi. 8. Það er ekki álitlegt með aldurinn á Sveini, ástin gengur œði tregt, einatt þó hann reyni. 9. Frœgri Skíða skemmtun á skotnum augum glyrni. Einhver mœnir auðargná eftir Þverár-Birni. Logi Kjartansson við hljóðfærið. Skýringar 2. Árni Rögnvaldsson Dæli, nú Akureyri. 3. Kristinn Rögnvaldsson Dæli, nú Hnjúki. 4. Lilja Rögnvaldsdóttir Dæli, síðar Hóli, nú á Dalvík, 5. Gunnar Rögnvaldsson Dæli. 6. Þórhallur Pétursson Ytri-Másstöðum, síðan Grund og á Akur- eyri. Dáinn. 7. Jóna Vigfúsdóttir Þverá, nú. Dalvík. 8. Sveinn Vigfússon Þverá nú Dalvík. 9. Björn Vigfússon Þverá. Dáinn. 10. Óskar Kr. Júlíusson Kóngsstöðum, nú Dalbæ Dalvík. 11. Snjólaug Aðalsteinsdóttir Kóngsstöðum. Dáin. 12. Aðalsteinn Öskarsson Kóngsstöðum, nú Akureyri. 13. Freylaug Eiðsdóttir Krosshóli, nú Nesi Saurbæjarhr. 14. Friðbjörg Eiðsdóttir Krosshóli, síðar Hánefsst. nú Dalvík. 15. Júlíus Eiðsson Krosshóli, nú Dalvík. 16. Steingrímur Eiðssön Krosshóli, síðar Ingvörum. Dáinn. 17. Jónína Kristjánsdóttir Klængshóli. 18. Anna Kristjánsdóttir Klængshóli, nú Dalvík. 19. Árni Valdemarsson Hnjúki, síðar Dalvík. Dáinn. 20. Steinunn Jóhannesdóttir Hnjúki, síðar Dalvík. Dáin. 21. Alexander Jóhannsson Hlíð. Dáinn. 22. Friðbjörn Jóhannsson Hlíð. 23. Kristín Ingólfsdóttir Sælu, síðar í Fnjóskadal, nú á Akureyri. Úr skólastarfinu á Dalvík Kennarar næra sig. Börnin teikna. Kennari og nemandi, Waclas og Snjólaug Vilhelmsdóttir NORÐURSLÓÐ - 17

x

Norðurslóð

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Norðurslóð
https://timarit.is/publication/1253

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.