Norðurslóð - 31.03.1987, Page 5
Svipmvndir frá sjávarsídumii
Yfir vetrarvertíðinni hefur fram til þessa verið heldur rólegur hlær.
Verkfall í byrjun ársins gerði það að verkum að róðrar hófust ekki fyrr
en seinast í janúar. Afli var síðan heldur tregur í febrúarmánuði. Mars
hefur verið talsvert skárri þó segja megi að afli hangi ekki í meðallagi.
Sjómenn segja að lítil áta hafí verið á grunnslóð. Þangað hafí komið
fískur en staðið stutt við. Nú að undanförnu hefur orðið vart við loðnu
svo menn eru bjarsýnni á að afli fari að glæðast. Þó einmunatíð hafi
verið í vetur til landsins, hefur tíðarfar til sjósóknar verið ótrúlega risj-
ótt. Sjálfsagt væri afli orðin meiri ef hægt hefði verið að stunda sjó
betur.
Þar sem veiðin hefur verið treg er nægur kvóti eftir. Um páska verð-
ur svo sem tíu daga stopp, svo kvótans vegna ættu netaveiðar að geta
staðið eitthvað lengur fram á árið en verið hefur. í fískhúsunum er
þrátt fyrir allt nóg að gera. Ljósmyndari Norðurslóðar brá sér í nokkur
þeirra nú á dögunum og festi fólk við störf á fílmu.
Hausarnir aftur orðnir söluvara. Hér kippa þau hausa Sólrún Ingvadóttir,
Stefán Steinsson, Hilmar Gunnarsson og Víkingur Árnason. Öll vinna þau
hjó Stefáni Rögnvaldssyni h/f.
—
Alþjóðlegt vinnuafl gæti þessi mynd heitið. Frá Grænhöfðaeyjum kemur Matti, Sandra frá Portúgal og Minna Rista
frá Finnlandi. Bak við saltfískinn er Hildur Pétursdóttir frá Bessastöðum. Myndin er úr fískhúsi Blika h/f.
Landað úr Bjarma EA 13, Kristinn Hauksson við Sæplast-
kerið en Ottó Jakobsson veifar pappírum í bakgrunninn.
Sá guli er bara sæmilega vænn.
Hér flokka þeir frosin flök í Fiskverkun Jóhannesar og Helga h/f. Grétar Kristinsson til vinstri og Jóhannes Stefáns-
son.
Úr vinnslusal Fiskverkunar Jóhannesar og Helga h/f.
Afla tölur á vetrarvertíð
Stefán Rögnvaldsson EA
Otur EA
Haraldur EA
Sæljón EA
Sænes EA
Bjarni EA
Hrönn EA (dragnót)
Búi EA
Njörður
smábátar
Togarar:
Björgvin
Björgulfur
Dalborg
Baldur
Kækju:
Bliki
Sólfell
Vonin
Sigurhorg
Dalborg
Ath. Siglingar togara eru ekki í
uflatölum þeirra.
1/1-15/3'87 1/1-15/3 '86
afli í tonnum aíli i tonnum
82 129
105 187
170 163
118 134
84 103
102
39 77
19 21
36 54
4 27
759 895
542 599
31 389
90
72 368
735 1.356
83 47
50
324__________55ö
Það þarf líka að útluía bátana. Árni Óskarsson hjá Stefáni Rögnvaldsvni h/f f ÍÍ^Mf.V' 'b’bannsson saltar í stæðu
við netafellingu. hja Blika h/f.
NORÐURSLÓÐ - 5