Norðurslóð - 29.06.1987, Side 8

Norðurslóð - 29.06.1987, Side 8
Tímamót Skírnir. Á uppstigningardag, 28. maí var skírður í Urðakirkju Jónas Rúnar. Foreldrar hans eru Guðrún Ingvadóttir og Ingólfur Jón- asson Hólavegi 1, Dalvík. Við sömu athöfn var skírð Guðrún Þórdís. Foreldrar hennar eru Halldóra Lilja Þórarinsdóttir og Halldór Jónasson nú til heimilis að Ytri-Hofdölum, Skagafirði. Á uppstingningardag var skírður í Dalvíkurkirkju Andri. Foreldrar hans eru Dóra Rut Kristinsdóttir og Sigurjón Krist- jánsson Karlsbraut 7, Dalvík. 6. júní voru skírðir Magni Freyr og Jóhann Hilmar. Foreldrar þeirra eru Kolbrún Margrét Jóhannsdóttir og Emil Magni Andersen Hafnarbraut 25, Dalvík. Á hvítasunnudag, 7. júní, var skírður í Dalvíkurkirkju Friðjón. Foreldrar hans eru Margrét Einarsdóttir og Jón Helgi Þórarinsson Hólavegi 17, Dalvík. Á sjómannadaginn, 14. júní, var skírð í Dalvíkurkirkju Nanna Björk. Foreldrar hennar eru Hjörtína Guðmundsdóttir og Albert Gunnlaugsson Dalbraut 1, Dalvík. Á sjómannadaginn var einnig skírð Bylgja Gunnur. Foreldrar hennar eru Guðný Gunnlaugsdóttir og Arngrímur Jónsson Karlsrauðatorgi 24, Dalvík. 17. júní var skírð í Dalvíkurkirkju Ingunn Hafdís. Foreldrar hennar eru Arna Hafsteinsdóttir Miðkoti, Dalvík og Júlíus Sævarsson Hólavegi 11, Dalvík. 17. júní var skírð í Dalvíkurkirkju Erla. Foreldrar hennar eru Jóhanna Óskarsdóttir og Björn Bárðarson Hjarðarslóð 2e, Dalvík. Andlát 24. maí lést á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri Unnur Tryggvadóttir. Unnur fæddist 27. desember 1907 dóttir Tryggva Kristinssonar kennara og orgelleikara og Nönnu Arngrímsdótt- ur. Móðir hennar lést skömmu eftir fæðingu stúlkunnar og tóku þá prestshjónin á Völlum, Sólveig Pétursdóttir og Stefán Krist- insson, barnið að sér og ólu upp sem sitt eigið. 1936 giftist Unnur sveitunga sínum Jakobi Tryggvasyni orgel- leikara frá Ytra-Hvarfi. Hófu þau búskap sinn í Reykjavík en fluttu til Akureyrar 1941 þar sem þau bjuggu síðan, ef frá eru talin þau ár er Jakob var við orgelnám í London. Börn þeirra hjóna eru 3, Nanna Kristín, Soffía Guðrún og Tryggvi. Unnur var jarðsungin frá Vallakirkju 2. júní. Frá sóknarpresti Dalvíkurprestakalls Verð fjarverandi 19. júní-12. júlí. Sr. Pétur Þórarinsson á Möðruvöllum annast þjónustu í prestakallinu á meðan. Sími hans er 21963. Jón Helgi Þórarinsson. Frá Ferðafélagi Svarfdæla Ferðafélag Svarfdæla hefur nú gengið frá ferðaáætlun sumars- ins. Birtist hún hér og er fólk hvatt til að kynna sér hana vel og festa í minni. Eins og margir vita er í gangi átak gegn hreyfingar- i leysi og ættu þeir sem vilja vera^ með í slíku átaki að huga vel að ferðum Ferðafélagsins. Áætlunin er fjölbreytt og ættu allir að finna eitthvað við sitt hæfi því boðið er upp á stuttar og langar göngu- ferðir og þurfa menn ekki að vera miklir garpar til að geta tekið þátt. Hver ferð verður nánar aug- lýst með götuauglýsingum og þá frekari grein gerð fyrir fyrir- komulagi, hvar á að mæta, með hvaða útbúnað, hve langan tíma á að ætla í gönguna o.s.frv. En ferðaáætlunin er svohljóð- andi: 1. Fimmtudag 2. júlí kl. 20.30. Gengið upp í „Lokugarnir“ (fjallshlíðin ofan við Háls) að njóta miðnætursólar. Létt göngu- ferð fyrir alla aldurshópa. 2. Laugardagur 11. júlí. Gengið frá Ólafsfirði yfir Dranga til Dal- víkur. 3. Fimmtudagur 23. júlí kl. 20.30. Gengið frá Koti að Skeiðs- vatni. Létt gönguferð fyrir svefninn. 4. Laugardagur-sunnudagur 8.-9. ágúst. Tungnahryggur. Gengið úr Barkárdal og gist í skála Ferðafélagsins og gengið niður í Skíðadal á sunnudag. 5. Laugardagur 29. ágúst. Geng- ið á Rimar. Fréttatilkynning. Endurbætt Dalborg I síðustu viku kom Dalborg til Dalvíkur eftir að gerðar voru á henni miklar endurbæt- ur hjá Slippstöðinn h/f á Akur- eyri. Sett var ný brú á skipið og um leið gerður nýr matsalur og eldhús. Þá voru gerðar ýmsar breytingar á trolldekki og betri aðstaða fyrir veiðarfæri ofan- dekks, ásamt stakkageymslu fyrir áhöfnina. I brúnni voru sett ýmis ný tæki í bland með þeim gömlu og skipt um allan spilbúnað. Af þessari upptalningu má sjá að skipið hefur tekið talsverðum breytingum. Nýja brúin er tals- vert hærri og lunningar voru hækkaðar og skipið lokað tals- vert að framan. Utlit Dalborgar hefur því breyst umtalsvert og vinnuaðstaða áhafnar á dekki stór batnað. Nú í lok júní eru lið- in tíu ár frá því Dalborg kom fyrst til heimhafnar hér á Dalvík. Skipið var á sínum tíma keypt frá Sardiníu á Ítalíu. Síðan var því breytt í Danmörku og settar í það rækjuvinnsluvélar og var það þar með fyrsti rækjutogari íslendinga. Ekki er ætlunin að fara að rekja sögu skipsins frekar hér nú. það bíður betri tíma hér á síðum blaðsins. Dalborg hélt síðan á veiðar á sunnudaginn var og hafði skamma viðdvöl hér á Dalvík aft- ur í vikunni þegar menn sem fóru með til að stilla nýju spilin og annan tækjabúnað voru settir í land. Það var á skipverjum að heyra að reynslutúrinn hafi geng- ið vel og breytingarnar virðast koma vel út. Eins og áður hefur komið fram var Björgúlfur í breytingum í Hollandi í vetur og Otur var Að kvöldi 23. júní gekkst ung- mennafélagið Þorsteinn Svörfuð- ur fyrir jónsmessuhátíð á Flötu- tungu, íþróttasvæði félagsins. Samkomuna sóttu rösklega hundrað manns í kalsaveðri. Margt var þar gert til gamans s.s. víðavangshlaup barna og ungl- inga, hjólböruakstur, reiptog, varðeldur og söngur en mest var þó spennan í kring um knatt- spyrnukappleiki á milli bænda af vestur- og austurkjálka og Svarf- aðardal fram og húsfreyja af vestur- og austurkjálka. í leik vestur- og austurkjálka, bændaflokki, vildi þó ekki betur til en svo að Sverrir bóndi á Mel- um lenti í árekstri við einn varn- armann austanmanna og hlaut slæmt fótbrot upp úr krafsinu. Skyggði þetta óhapp að sjálf- lengdur um áramótin. Nýsmíðin fyrir Útgerðarfélag Dalvíkinga er hafin í Noregi og einnig fyrir Rán h/f í Svíþjóð. Ránarskipið verður tilbúið i haust en Útgerðartogar- inn snemma næsta árs. Þá hefur því verið fleygt að einhverjir fleiri hér hugsi nú til stækkunnar sinna skipa. sögðu töluvert á hátíðarstemn- inguna. Þegar sjúkrabíll frá Dalvík hafði flutt burt hinn slasaða var þó knattspyrnunni haldið áfram og urðu úrslitin þau að lið bænda af austurkjálka „Gallarnir“ sigr- uðu báða andstæðinga sína örugglega en í kvennaflokki höfðu húsfreyjur af vesturkjálka næsta öruggan sigur yfir húsfreyj- um austan ár. Síðar kom í ljós að Sverrir var ekki sá eini slasaði. Einn uppskar tognuð liðbönd og hjá öðrum blæddi inn á lið og einhver heyrð- ist kvarta undan kviðsliti. Það er auðsætt af þessu að svarfdælskir bændur gefa ekkert eftir þegar knattspyrna er annars vegar og láta sér þá meira varða heill liðsins en eigin heilsu. Fótbrot á Jónsmessuhátíð Fréttahomið Eins og fram kemur annars staðar í blaðinu opnar ný verslun hér á Dalvík, Kotra, í júlí. Þar verður m.a. verslað með vefnaðarvöru og tilheyrandi. Sumum mundi finnast í fullmikið lagt að vera með þrjár slíkar verslanir á staðnum, þar sem KEA og Rikka eru fyrir. Norður- slóð barst það hins vegar til eyrna að Rikka væri að hætta með sína verslun. Ekki er að efa að margar munu sakna þess að geta ekki skotist til hennar eftir tvinna eða rennilás því oft hefur hún bjarg- að saumakonum í þeim efnum. Þjónustan verður þó væntanlega áfram til staðar, því þær Kotru konur munu kaupa það af lager og fleiru af Rikku, sem hæfir þeirra rekstri. Útsaumsvörur og fleira hefur Rikka síðan hugsað sér að setja á útsölu með haust- inu og losa sig þannig alveg út úr verslunarrekstri. Eins og víða hefur komið fram og meðal annars hér í blað- inu er talsvert mikið um að vera i atvinnulífinu á Dalvík. Eins og undanfarin ár starfrækir Dalvík- urbær vinnuskóla fyrir unglinga. Aðsókn eldri unglinganna er lítil núna því auðvelt hefur verið fyrir fimmtán ára og jafnvel talsvert yngri að fá vinnu á almennum vinnumarkaði. Sú vinna sem unnin.er af unglingunum er mjög mikilsverð. Snyrting og fegrun bæjarins er talsvert í þeirra hönd- um og hefur þess oft sést stað þegar vel hefur verið að þessu staðið. Vonandi verður aðsókn ekki það dræm að ekki verði hægt að vinna þessi verk í fram- tíðinni eins og verið hefur. enslan á vinnumarkaðnum hérna hefur leitt til merkjan- legs launaskriðs hér á Dalvík. Ýmsar sögur hafa gengið um launaskrið á höfuðborgarsvæðinu á undanförnum árum og hefur landsbyggðinni þótt á sig hallað. Úttekt á útsvarstekjum sveitar- félaga fyrir tveimur árum eða svo sýndi lágar meðaltekjur hér á Dalvík og raunar í fleiri kaup- stöðum í grenndinni. Þó það hafi ekki verið kannað er hald manna að eitthvað hafi ræst úr hér á Dal- vík í fyrra og enn muni rætast úr á þessu ári. Og enn um launamálin. Dal- víkurbær hefur gengið frá samningi við Verkalýðsfélagið Einingu um kjör Einingarfélaga sem vinna hjá bænum. Þar til nú hafa samningar við Dalvíkurbæ verið þeir sömu og við Akureyr- arbæ en í þetta sinn gerði Eining fyrst samning við Akureyrarbæ og síðan hærri kaupkröfur á Dal- víkurbæ sem bæjarstjórn gekk að. Um síðustu áramót gengu nokkrir af starfsmönnum bæjar- ins í Starfsmannafélag Dalvíkur- bæjar og Dalbæjar, sem áður voru í Einingu. í vetur gerði starfs- mannafélagið samning við bæinn á svipuðum grunni og hjá sveitar- félögum víða um land. Hestamannfélagið Hringur varð 25 ára 16. júní sl. Að því tilefni efndi félagið til kaffi- samsætis að Grund. Var þar hver bekkur skipaður. Bar þar helst til tíðinda að tveir gamalreyndir hestamenn voru gerðir að heið- ursfélögum. Það voru þeir Steingrímur Óskarsson á Sökku og Björn Gunnlaugsson á Dalvík. Þetta er æðsta viður- kenning sem hestamannafélagið getur veitt félagsmönnum sínum og hefur aðeins einn maður áður verið heiðraður með þessum hætti. Það var Klemens heitinn Vilhjálmsson í Brekku.

x

Norðurslóð

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Norðurslóð
https://timarit.is/publication/1253

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.