Víkurfréttir - 06.11.1997, Qupperneq 4
ÚTLÁNAMÖGULEIKAR
Einn veigamesti þátturinn í starf-
semi Sparisjóðsins er útlánaþátt-
urinn.
í gegnum tíðina hefur Sparisjóðurinn
séð um að fjármagna ýmsar fram-
kvæmdir og kaup hvort sem er fyrir
fyrirtæki eða einstaklinga. Spari-
sjóðurinn hefur alla tíð reynt að sinna
eftir bestu getu þeirri eftirspum sem
hefur verið eftir lánsfé þó svo að
stundum hafi framboð lánsfjár verið
takmarkað.
Það er liðin sú tíð að fólk þurfi að
leita til sparisjóðsstjóra til þess að fá
fyrirgreiðslu. í dag geta viðskipta-
vinirnir snúið sér til þjónustufulltúa
eða annara starfsmanna og fengið
fyrirgreiðslu sinna mála.
Þjónustufulltrúar Sparisjóðsins íKeflavík, aftari röð f. v. Erna Árnadóttir, Björn
Kristinsson, Bryndís Hákonardóttir. í fremri röð f. v. Elsa Skúladóttir og Helga Jakobsdóttir.
Asdís Ýrjakobsdóttir,
forstöðumaður ein-
staklingssviðs
VANSKIL SKULDBINDINGA:
Heildarlausn í stað
skammtímalausna
Oft hefur inikil vinna farið í það hjá starfs-
fólki sem vinnur við útlán að
taka á móti viðskiptavinum sem eiga í
erfiðleikum með sínar skuldbindingar.
Ásdís Ýr forstöðumaður einstaklingssviðs
segir að mikil breyting hafi
átt sér stað í viðhorfi fólks til skulda sinna.
I dag vilja viðskiptavinirnir sem leita sér
aðstoðar varðandi vanskil skuldbindinga fá
heildarlausn í sínum málum. Engar
skammtímalausnir duga lengur.
Fólk er líka óhrætt að koma
fyrr inn og ræða vandamálin. Auk þess er
starfsfólkið mun virkara að grípa inn í
málin og koma með lausnir áður en
skuldirnar verða að stóru og óleysanlegu
máli.
Greiðsluþjónustan skipar þar stóran sess.
VISSIR ÞÚ?
..að árið 1907 þegar Spari-
sjóðurinn f Keflavík var
stofnaður voru í Keflavík
34 hús. fbúamir vom 440,
220 konur og 220 karlar á
80 heimilum.
...að aðaltilgangur spari-
sjóða um aldamótin var að
koma í veg fyrir óþarfa
kaup og eyðslusemi, en
geyma og ávaxta fé
efnalítilla manna sem þeir
kynnu að hafa afgangs....
...að Geirmundur Krist-
insson, sparisjóðssjóri
hefur starfað lengst
núverandi starfsmanna í
Sparisjóðnum, í 32 ár eða
fráárinu 1965...
Líf- og sjúkdómatryggingar
og SP-fjármögnun
Alþjóða líftryggingarfélagið
er nýjasta fyrirtækið í eigu
sparisjóðanna sem
Sparisjóðurinn í Keflavík er
farinn að bjóða þjónustu frá.
Nú er hægt að kaupa líf- og
sjúkdómatryggingu í öllum
afgreiðslum Sparisjóðsins.
Kaupþing hf. er verðbréfa-
fyrirtæki í eigu sparisjóðanna
og flest það sem íyrirtækið
býðuruppá er hægt að nálg-
ast í afgreiðslum Spari-
sjóðsins.
Það sama má segja um SP-
fjármögnun, en í gegnum
fyrirtækið getur
Sparisjóðurinn boðið við-
skiptavinum sínum upp á fjár-
mögnun í gegnum kaup- og
eignaleigusamninga.
Fyrsta tölvan
Fyrsta lölvan í Sparisjóðmwi var af
gerðinni Wang og varfyrir 1-2
notendur.
Tölvuöldin hóf innreið sína á
Suðurnesjum fyrir rúmum tutt-
ugu árum eða árið 1975. Fyrsta
tölvan var af gerðinni Wang.
Hún var aðeins með 24kb
minni og 10 mb disk.
í dag hafa allir, um sextíu starfs-
menn Sparisjóðsins sína
einkatölvu sem er nettengd á
víðneti sparisjóðanna. Þar eru
allir sparisjóðir landsins sömu-
leiðis nettengdir um Tölvu-
miðstöð sparisjóðanna. Einnig
eru allar tölvur tengdar við
Keiknistofu bankanna sem er
sameiginleg gagnavinnslustöð
allra banka og sparisjóða á Isl-
andi. Sannarlega mikil tölvubylt-
ing í starfseminni á aðeins
rúmum tuttugu árum.
Bikarmeistaraskápur
KeflvOdngar urðu sem kunnugt er bikanneistarur í
knattspymu í liaust. Sjtarísjóðurinn í Keflavík er aðal-
styrktaraðili liðsins. Bikarar ogfleira tengt liðinu er af
jtessu tilefni sýnt i glerskáp í Sparisjóðnuni í Keflavík.
Blaðauki
Víkurfréttir