Norðurslóð - 21.03.1991, Page 1

Norðurslóð - 21.03.1991, Page 1
Svarfdælsk byggð & bær 15. árgangur Fimmtudagur 21. mars 1991 3. tölublað Ný yegaáætlun - margt á döfinni og allt gott Tónlcikar í Dalvíkurkirkju. Frá vinstri: Systurnar Ella Vala, Auður og Unnur Ármannsdætur og Valva Gísla- dóttir kcnnari (mcð hvítan kraga). Mynd: Heimir Mozart í Dalvíkurkirkju Tónlistarskóli Dalvíkur, sem hefur deild í Húsabakkaskóla í Svarfaðardal, hélt nemendatón- leika í Dalvíkurkirkju laugardag 9. mars. Viðfangsefnið var nær eingöngu snillingurinn Wolf- gang Amadeus Mozart, sem lést 1791 aðeins 35 ára gamall. Unga fólkið lék á ýmis hljóðfæri, flautur, gítara og píanó. Til stuðnings var Valva Gísladóttir kennari, sem lék með á þverflautu í sumum lögunum. Aheyrendur, sem voru einkum aðstandendur unglinganna, voru ntjög ánægðir með frammi- stöðu unga fólksins og sannfærðustum að tónlistarskólinn er ein hin styrkasta menningarstoð í byggðarlaginu Dalvík/Svarfaðardalur. um framkvæmdum verið frestað frá því sem áætlað var í síðustu vegaáætlun t.d. var vegakaflinn Holt-Tjörn á áætlun fyrir þetta ár en verður sem sagt að bíða eitt ár. Að sögn Guðmundar Svafarsson- ar hjá Vegagerðinni fara stærstu fjárveitingar áætlunarinnar í þessu umdæmi í að ljúka fram- kvæmdum við Ólafsfjarðargöng- in. M.a. verður lagt bundíð slit- lag á 800 metra kafla innan gang- anna Eyjafjarðarmegin en ekki er ráðgert að leggja slitlag á ann- an hluta vegarins frá Dalvík til Ólafsfjarðar að þessu sinni. Stærsta verkefni Vegagerðar- innar í ár verður vegurinn um Öxnadal en árið 1993 verður kominn góður vegur með varan- legt slitlag alveg upp að sýslu- mörkum á Öxnadalsheiði. Er þá lítið orðið eftir af gamla ntalar- veginum á leiðinni til Reykjavík- ur. Síðasta vígið, Bólstaðarhlíð- arbrekkan, fellur væntanlega 1995. Af öðrum vegaframkvæmd- um hér í ngrenninu má nefna slit- lag á Hjalteyrarveg og endurbæt- ur á veginum frá Moldhaugna- hálsi fram fyrir Þelamerkurskóla. Aðspurður um hvað gert yrði við gamla Múlaveginn sagði Guðmundur að ætlunin væri að reyna að halda honum opnum, annað hvort alla leiðina eða út í Hántúlann Eyjafjarðarsýslumeg- in, svo fremi sem það færi ekki að kosta margar milljónir. Tíminn yrði því að leiða í ljós hvað yrði um Múlaveginn gamla. Árið 1992 er áætlað að verja 17 millj. króna í styrkingu og bundið slitlag á veginn milli Syðra-Holts og Tjarnar. Sömu- leiðis verður þá hafíst handa við endurbætur á vegakaflan- um Skáldalækur-Hofsá og verður varið til þess 12 millj. það árið. Á vegaáætlun fyrir árið ’94 er gert ráð fyrir að Ijúka endurbótum á þeim kafla og verður 8 millj. þá veitt í verkið. Það ár verður einnig hafíst handa við endurbætur á vegarkaflanum Þverá-Tungu- vegur og fara 10 millj. í það verk. Þessar upplýsingar koma fram í nýrri vegaáætlun fyrir næstu fjögur árin sem þingmönnum og ráðherrum tókst með harðfylgi að afgreiða frá Alþingi áður en yfir lauk á dögunum. Eins og kunnugt er hefur ýms- Múlagöngin voru vígð 1. mars. Gamli vegurinn á innfelldu myndinni. Dagsmyndir Aðalfundur Sæplasts hf. Eins og fram hefur kontið í fjölmiðlunt hélt Sæplast h/f á Dalvík aðalfund sinn um síðustu helgi og enn er mikill uppgangur í fyrirtækinu. Heildartekjur á síðasta ári voru 285 milljónir króna og af því er hreinn hagnað- ur fyrirtækisins 58,9 milljónir. Mikil aukning hefur verið í sölu erlendis og jukust útflutn- ingsverðmæti um 64% frá árinu ’89. Innanlandssalan var hinsvegar svipuð þannig að nú nemur útflutningur 43% af sölunni og fer stöðugt vaxandi. Á aðalfund- inum voru reikningar fyrirtækis- ins bornir upp og samþykktir. Þá var samþykkt að greiddur yrði 15% arður af hlutafé og gefin út jöfnunarbréf sent nema 10% af áður útgefnum bréfunt. Hluthafar í Sæplasti eru nú um 230 talsins, þar af um 50 á Dalvík, ca. 50 á Akureyri en afgangurinn annars staðar að af landinu, mest af Stór-Reykjavík- ursvæðinu. Það vekur athygli hversu fjármálaspekúlantar.fyrir- tæki og fjárfestingasjóðir í höfuð- borginni hafa sóst eftir hlutabréf- um í Sæplasti og hafa þessir áðil- ar nú eignast sinn fulltrúa í stjórn. Á aðalfundinum gekk Ein'kur Helgason úr stjórninni og í hans stað kom doktor Pctur H. Blön- dal framkvæmdastjóri Kaupþings h/f, en eins og kunnugt er hefur það fyritæki haft með sölu á hlutabréfum Sæplasts að gera. Pétur hefur verið mjög áberandi í fjármálalífi landsins undanfarin ár bæði sent framkvæmdastjóri Kaupþings, forstjóri Lífeyris- sjóðs verslunarmanna, forntaður Landssambands lífeyrissjóða og Húseigendafélagsins svo eitthvað sé nefnt enda maðurinn „spreng- lærður" eins og Begga gamla sagði. Aðrir í stjórn eru: Mattías Jakobsson form., Valdimar Snorrason, varafornt. Jón Gunn- arsson og Hallgrímur Hreinsson. Varantenn í stjórn eru Óskar Jónsson og Kristján Þ. Júlíusson. KEA I lalvík 1990 - velta IV2 milljarður - aukning frá 1989 3 prósent (afrúnnað) Fimnttudag 13. mars voru deildafundir KEA haldnir á Grund og Dalvík. Á Grundar- fundi mættu Magnús Gauti kaupfélagsstjóri, Óli Valde- marsson sláturhússtjóri og Þórarinn Sveinsson mjólkur- samlagsstjóri auk Dalvíking- anna Rögnvaldar Skíða útibús- stjóra og hans manna. Á Dal- víkur fundi mættu tveir síðast- nefndu auk Gimnars frystihús- stjóra. Hlemmarnir sýna hlut- fall og veltu í 5 greiniun 1990 og 1989, í verslun - útgerð - landafurðum - fískvinnslu og þjónustu. Launagreiðslur alls 1990 voru 330 niilljónir - lækk- un frá 1989 4,7%.' Helstu stærðir í greinunum eru þessar: Svarfdælabúð sala Byggingavörud. sala Seld vinna á Bílaverkst. Sala Frystihúss Útgeröarfélag Dalvíkinga hf. 195,3 milljónir - aukn. 15% 71,8 miíljónir - aukn. 37% 32,0 milljónir - lækkun 19,6% 589,8 milljónir - aukn. 3,8% 342,7 milljónir - aukn. 25% Stofnkostnaður helstu stærðir: Svarfdælabúð, ávaxtaborð Bílaverkstæöi Skipaafgreiðsla, hús, lóð, lyftari Frystihús, flökunarvél o.tl. Frystihús, vélbúnaður úr Hvaleyri hf. Keyptir kvótabátar kr. 400.000 kr. 500.000 10.000.000 10.400.000 60.000.000 33.000.000 VELTA KEA DALVlK 1990 KR. 1.414.351 ÞÚS. + 2.91% ÞJONUSTA 9% 121.163. VERSIUN 24% 338.418 FISKVI. 47% Ú.D. 24% 342.723 LANDAFURDIR 0% 4.122 ÞJONUSTA 6* LANDAFURDIR 4% 1990 1989 Ofanskráð er nokkuð hrátt og illa unnið. Þarfnast sjálfsagt skýr- inga. Fram kom, að margt gekk vel á árinu 1990 þ.á m. verslunin í heild sinni. Frystihúsið gekk mjög vel og var farið þar inn á nýjar brautir. Fiskiland var lagt niður. Bílaverkstæðið dróst sam- an og þarf að athugast vel. Ú.D. er nú allt í eigu KEA og eykur að sjálfsögðu heildarveltu. Baldur EA-108 var seldur á 50 milljónir. Mjólkursamlag á Akureyri gekk vcl, sömuleiðis sláturhús þar. Slátrun er nú hætt á Dalvík og lítið um það rætt á fundunum. í heild var árið 1990 KEA hag- stætt og skilar ágóða í stað taps 1989.

x

Norðurslóð

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Norðurslóð
https://timarit.is/publication/1253

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.