Norðurslóð - 28.01.1992, Page 3
NORÐURSLÓÐ —3
Svarfdælabúð:
- Dýr eða ódýr?
Kveðja
Þar sem ég hef nú látið af störfum sem fram-
kvœmdastjóri Sœplasts hf vil ég nota tœkifœr-
ið og þakka Dalvíkingum og Svarfdœlingum
ánœgjulegt samstarf og einstaklega skemmti-
lega viðkynningufrá því ég kom hérfyrst í júlí
1984.
Lifið heil.
Pétur Reimarsson
Fólksfjöldaspreng-
ing í Svarfaðardal
Hreppsbúum fjölgaði um 4,5% árið 1991
Svarfdælabúð er í hópi 10 ódýr-
ustu matvöruverslana landsins
en er þó engu að síður um 10%
dýrari en KEA Nettó á Akur-
eyri. Þetta eru upplýsingar sem
komu fram í verðkönnun neyt-
endasamtakanna nú fyrir jólin.
Neytendafélag Akureyrar og
nágrennis gekkst fyrir verðkönnun
á algengum neysluvörum í fjórum
matvöruverslunum á Eyjafjarðar-
svæðinu hinn 9. desember s.l.
Verslanimar voru: Hagkaup, KEA
Nettó og Hrísalundur á Akureyri
og Svarfdælabúð á Dalvík. Niður-
staða könnunarinnar var m.a. sú að
„vöruverð reyndist um 10% hærra
á Dalvík en á Akureyri" eins og
segir í fréttabréfi samtakanna.
Þar með er þó ekki öll sagan
sögð því að í heildarkönnun Neyt-
endasamtakanna á vöruverði í mat-
vöruverslunum á öllu landinu
kemur fram að þessar fjórar versl-
anir eru allar í hópi tíu ódýrustu
verslana á landinu. Þar er KEA
Nettó í 2. sæti, Hagkaup Akureyri í
3. sæti, Hrísalundur í 6. sæti og
Svarfdælabúð í því 9. Landsins
ódýrasta matvöruverslun var sam-
kvæmt könnuninni verslunin Bón-
us við Skútuvog í Reykjavík.
Þessi könnun náði til 85 versl-
ana vítt og breitt um landið og var
borið saman verð á 77 algengum
neysluvörum. Könnunin má því
teljast nokkuð áreiðanleg fyrir við-
komandi tímabil sé eingöngu litið
á verð en ekki aðra þjónustu s.s.
opnunartíma, staðgreiðsluafslátt,
greiðslukortaviðskipti o.þ.h.
Svarfdælabúð er þá þrátt fyrir
allt níunda ódýrasta matvöruversl-
un landsins.
Verðstríð á tveim
vígstöðvum
Að sögn Vilhjálms Inga Amasonar
formanns Neytendafélags Eyja-
fjarðar má segja að verðstríð í
Reykjavík eigi að hluta „sök“ á
lágu verði í þessum verslunum á
Eyjafjarðarsvæðinu. En að hluta er
einnig um að ræða sérnorðlenskt
verðstríð milli annars vegar Hag-
kaupa og hins vegar Kaupfélags-
verslana á Akureyri. Afleiðingin er
sú að verð á algengri matvöru í
þessum verslunum er 10% lægra
en á sama tíma í fyrra.
I stórum dráttum er málið þann-
ig vaxið að Hagkaup í Reykjavík
hefur nú í nokkuð langan tíma
reynt að hrista af sér hinn nýja
keppinaut; verslunina Bónus við
Skútuvog, með stöðugum undir-
boðum á ýmsum tegundum mat-
vara, stundum jafnvel töluvert
undir heildsöluverði. Bónus hefur
að sama skapi lækkað sitt vöruverð
og aðrir stórmarkaðir á höfuðborg-
arsvæðinu hafa dansað með nauð-
ugir viljugir. Hagkaup rekur þá
stefnu að verð skuli vera það sama
í öllum verslunum fyrirtækisins og
þar af leiðandi fylgir verðlag í
Hagkaupum á Akureyri stóra bróð-
ur í Reykjavík. Stórmarkaðir á Ak-
ureyri þurfa síðan að lækka verð á
sinni vöru til að mæta samkeppn-
inni og það sama gildir að nokkru
leyti um Svarfdælabúð sem sam-
fara bættum samgöngum stendur í
beinni samkeppni við Akureyrar-
búðimar um sína svarfdælsku
kúnna.
Þannig hefur Jóhannes í Bónus
bein áhrif á vöruverð á Dalvfk
þökk sé hinni frjálsu samkeppni.
Borgar sig að versla
á Akureyri?
Samkvæmt áðumefndri könnun
Neytendafélags Akureyrar og ná-
grennis er 10% ódýrara að versla í
KEA Nettó en í Svarfdælabúð.
Munurinn er lítið eitt minni í Hag-
kaupum. Það þýðir með öðrum
orðum að sé verslað fyrir 10.000
kr. í KEA Nettó sparast 1000 kr.
miðað við sömu innkaup í Svarf-
dælabúð. Þá er spumingin hvort sá
sparnaður vegi á móti ferðakostn-
aði og fyrirhöfninni af því að fara
til Akureyrar frekar en að versla í
heimabyggð. Það er Ijóst að marg-
ir hér um slóðir telja svo vera því
það færist í vöxt að Svarfdælingar
og Dalvíkingar fari í stórinnkaupa-
leiðangra til Akureyrar.
Óréttmætur
samanburður
Gylfi Björnsson verslunarstjóri í
Svarfdælabúð segir það alls ekki
réttlætanlegt hjá Neytendafélagi
Eyjafjarðar að bera saman verð í
Svarfdælabúð og stórmörkuðum á
Akureyri sem eigi í innbyrðis
verðstríði. Nær væri að bera þá
saman við sambærilegar verslanir í
bæjarfélögum eins og Húsavfk eða
Grenivík eða þá smærri kjörbúðir
KEA á Akureyri. Gylfi segir að
Svarfdælabúð geti alls ekki og ætli
ekki að taka þátt í að undirbjóða
vörur niður fyrir öll skynsamleg
mörk en engu að síður hafi verðlag
hjá þeim lækkað um 2% á árinu.
Það mun vera stefnan hjá KEA
að sama vöruverð sé í öllum búð-
um félagsins enda innkaup öll á
einni hendi. Undantekningin frá
þessari reglu eru stórmarkaðir fé-
lagsins á Akureyri sem harðast
keppa við Hagkaup. Verð á vörum
í Svarfdælabúð ætti þannig að vera
það sama og í Vöruhúsi KEA og
kjörbúðinni við Byggðaveg svo
dæmi sé tekið. Gylfi sagðist ekki
merkja það að fólk hér beindi við-
skiptum sínum í auknum mæli til
Akureyrar. Þvert á móti taldi hann
verslun í Svarfdælabúð hafa aukist
nokkuð frá því í fyrra en vissulega
hefði hann áhyggjur af að saman-
burðurinn við ofangreindar versl-
anir á Akureyri kynni að beina
heimamönnum í auknum rnæli
inneftir. Hj.Hj.
Hagstofa íslands hefur sent frá
sér bráðabirgðatölur yfir íbúa-
fjöla í öllum sveitarfélögum
landsins eins og þær birtust 1.
desember s.l. Þar kemur fram að
íbúum Dalvíkurbæjar hefur
fjölgað um 0,95% eða 14 manns
á árinu og eru nú 1495 talsins.
Það má teljast nokkuð góð
frammistaða miðað við að í kjör-
dæininú öllu fjölgaði íbúum um
0,44% samtals. Fjölgunin á
landsvísu er þó meiri eða um
1,51% og er mestöll á suð-vest-
urhorninu.
Ibúar Svarfaðardalshrepps slá
þó granna sína út og ekki bara Dal-
víkinga heldur öll sveitarfélög í
Norðurlandskjördæmi eystra. Þeirn
fjölgaði um 12 manns eða 4,44%
og eru nú orðnir 282 talsins.
Þessa miklu fjölgun má að hluta
til skýra með óvenju mikilli og al-
mennri frjósenti hreppsbúa en
einnig hafa nýjar fjölskyldur flust í
dalinn.
Af sveitarfélögum kjördæmis-
ins eru það aðeins Þórshafnarbúar
sem komist hafa nálægt Svarfdæl-
ingum á þessu sviði á árinu. Þeim
fjölgaði um 4,26 % en þar er skýr-
ingin sú að áhöfnum báta þar ásamt
fjölskyldum er gert skylt að eiga
lögheimili íhreppnum.
A Dalvík bjuggu 1. des. 766
karlar og 729 konur en í sveitinni
gætir meira jafnræðis. Þar eru 140
konur á móti 142 körlum.
1990 1991 fjölgun %
Dalvík 1481 1495 14 0,95
Svartaöardalur 270 282 12 4,44
Til gamans má geta þess að
hreppar sem telja 300 íbúa eða
fleiri fá ár hvert snöggtum hag-
stæðari úthlutun úr Jöfnunarsjóði
sveitarfélaga en hinir smærri
hreppar. Og haldi íbúum Svarfað-
ardalshrepps áfram að fjölga um
einn í mánuði verður 300 íbúa
markinu náð í júní á næsta ári.
Blaðið hvetur því ungt fólk í daln-
um til dáða svo þessu marki verði
náð. Hj.Hj.
Kveðja til lesenda
Upprunaleg ritstjórn Norðurslóðar þegar lagt var upp haustið 1977. Nú er Jóhann einn eftir af brautryðjend-
unum í haus blaðsins - og þessutan búinn að raka sig.
Eins og lesendur
munu sjá, ef þeir líta
á blaðhausinn að
þessu sinni, hefur átt sér
stað “hallarbylting” í rit-
stjórn Norðurslóðar. Bylt-
ingin felst m.a. í því, að
nafn undirritaðs er horfið
en í staðinn eru komin tvö
ný nöfn. Raunar má líka,
og ekki síður kalla þetta
sögulega þróun, evólúsión
ekki síður en revólúsión. á
máli þjóðfélagsfræðinnar.
I 15 ár hefur undirritað-
ur, ásamt öðrum, staðið að
því að gefa út þetta byggð-
arblað, Norðurslóð, reglu-
lega 10 sinnum á ári - og
var hann þó kominn hátt á
sextugsaldur þegar gangan
hófst. Svarfdælsk Bvggð og
Bær er undirtitill blaðsins
til þess að minna menn á,
að sveitabyggðin í dalnum
og bærinn Dalvík við
ströndina eiga að vera sam-
felld heild menningarlega
og atvinnulega, eins og þau
eru það sögulega séð. Sá
boðskapur hefur ver-
iðrauði þráðurinn í leiður-
um Norðurslóðar frá upp-
hafi, þótt margt annað hafi
verið þar á dagskrá. í þess-
um skilningi er Norðurslóð
hápólitískt blað, þótt hún
sé það alls ekki í flokkspóli-
tískum skilningi.
Það er ósk undirritaðs og
bjartsýn von, að Norður-
slóð eigi enn gott líf fyrir
höndum og haldi áfram að
rækja hlutverk sitt, inn á
við sem sameiningarafl og
út á við sem vitnisburður
um svarfdælska menning-
arrækt.
Þrátt fyrir byltinguna
mun undirritaður ekki með
öllu hverfa af síðum blaðs-
ins. Ný ritstjórn mun leyfa
honum að láta þar ljós sitt
skína við og við.
Kærar þakkir til allra
vina og vandamanna Norð-
urslóðar. Megi ávallt
blómgast svarfdælsk byggð
og bær.
Hjörtur E. Þórarinsson