Norðurslóð - 28.01.1992, Blaðsíða 7
NORÐURSLÓÐ — 7
■Áj JEp -Gym g MliLJI
Skammdegisstemmning í Svarfaðardal. Mynd: Hj.Hj'.
Svör við málsháttum
Arna Rögnvaldssonar
1. Hver er hollur heimafenginn? Svar: Baggi
2. Hvað er illt að reyta af lófa? Hár
3. Hver lofar sér líkt? Heimskan
4. Hver lætur á glysi ginnast? Heimskur
5. Hvað verður oft úr göldum fola? Góður hestur
6. Hvað er sá, er einskis spyr? Ófróður
7. Hverjir njóta oft góðra gesta? Hjúin
8. Hver flýgur seint á kvöldin? Hrafninn
9. Hvernig er iðjulaus hönd? Örm
10. Hvað skal hamra meðan heitt er? Jámið
11. Hvað er ekki sopið, þó í ausuna sé komið? Kálið
12. Hvað er best með forsjá? Kapp
13. Hvað kennir hesti að aka? Keyri
14. Hvað kennir neyðin naktri konu? Að spinna
15. Hvað heftir hálfa framkvæmd? Kvíðinn
16. Hvað kemur sjaldan hlæjandi aftur? Lán
17. Hvað vildu öll skáld kveðið hafa? Lilju
18. Hvað dansar eftir höfðinu? Limimir
19. Hvað er oft í lygnu vatni? Ljótur ormur
20. Hvað dregur lofið oft í halanum? Háðið
21. Hver er mönnum misholl? Lukkan
22. Hvað er sá, er við rassinn glímir? Ragur
23. Hvað er oft undir bjartri lilju? Blökk rót
24. Hvað er það, sem oft má kyrrt liggja? Satt
25. Hvað kemur með nýjum herrum? Nýir siðir
26. Hvern kámar sá, er skarni á aðra kastar? Sjálfan sig
27. Á hverju læra hvolpamir að stela? Mjóum þvengjum
28. Hvar situr sjaldan svinnur maður? 1 dyrum
29. Hvað hefur margur undir sauðargærunni? Úlfinn
30. Hvað lofar meistarann? Verkið
31. Hvað er næst, þegar neyðin er stærst? Hjálpin
32. Hvað er sá, er til vamms segir? Vinur
33. Hver kennir árinni ? Illur ræðari
34. Lofa skal mey að morgni, en hvað að kveldi? Dag, veður
35. Hverjar verða ekki bældar með byssustingjum? Hugsjónir
Þeir sem skiluðu svörum voru þessir: Friðrika og Friðjón Dalvík,
Sigurður Bjami Sigurðsson Brautarhóli, Hallgrímur Einarsson Urð-
um, Jökull Bergmann Klængshóli, Bjöm Þórðarson Akureyri, Stef-
án Jónmundsson Dalvík og Ingveldur Gunnarsdóttir Akureyri.
Dregið var milli þessara 7-menninga. Út kom talan 4, þ. e Jökull
Bergmann og fær hann að verkalaunum 1000-kallinn hans Áma
Rögnvaldssonar.
Botnar
Vísa 1
Úti í löndum Islendingar
iðka söng og magaskelli
Vísa 2
A Holtsmóunum hestamenn
hús sitt byggja á traustum grunni
Botnar
Vísa 1.
Æskufólkið enginn þvingar
oft því mun það hljóta skelli.
Hartmann Eymundsson Akureyri
Þótti arfur þjóðmenningar
þannig betur halda velli
Björn Þórleifsson Akureyri.
Krummavísur kempur slingar
krunka œttu á heimaveUi
Kristján Jónsson Húsavík.
Þetta eru Þingeyingar
Það eg sá í einum Itvelli.
Ósk Þorkelsdóttir Húsavík.
Menning Fróns ogfremdir slyngar
fyrir bragðið halda velli.
eða
Myndagátan
Lausnin er þessi:
Dalvíkingar halda nú í hópum
austur um haftil Skotlands og
Irlands, höggva strandhögg í
vöruhúsum stórborganna og
snúa heim að dagsverki loknu
með herfang sitt.
Þeir sem sendu lausnir, voru:
Sólveig Sigurðardóttir, Brautar-
hóli, Stefán Jónmundsson, Dalvík,
Gunnsteinn Þorgilsson, Sökku,
Lilja Kristjánsdóttir, Rvík, Trausti
Pálsson, Hólum í Hjaltadal, Ey-
steinn Gíslason, Skáleyjum, Hart-
mann Eymundsson, Akureyri, og
Þórunn Eiríksdóttir, Borgarfirði.
Lausn
krossgátu
Nauðar úti norðan slydda
notalegt að vera inni.
Blaðið tek og blýant ydda
berst við gátuna að sinni.
Styttir upp nú stuðlað hef
Steinunn þessar vísur.
Lausn með stolti loks þér gef
lúin dreg svo ýsur.
Héraðsfréttir:
- Dalvíkurbær hélt norrænt vina-
bæjarmót sem var til sóma
- Kirkjugarðurinn á Tjöm var
sléttaður.
- Var til tíðinda að tvennir fæddust
tvíburar í dalnum.
- Starfsemi Tónlistarskólans á
Dalvík fær byr undir báða
vængi eftir flutning í stærra
húsnæði.
- Fegrun framan Ráðhúss
- Gulrætur voru teknar í hús sjötta
nóvember
Að gefnu tilefni. Eg stend við það
sem eg hef sagt, að það er erfiðara
að ráða þessar gátur mínar en
semja og eg á góðar stundir við
gerð þeirra. Þakka kærlega fyrir
yndisleg bréf sem fylgja mörgum
lausnunum, þau eru sannarlega
hvatning. St.H.
Svo margar Iausnir bárust, að óger-
legt er að skrifa nöfn allra þátttak-
enda, það tekur hreinlega of mikið
pláss í blaðinu. Þegar dregið var úr
nöfnunum kom upp talan 20. Það
reyndist vera númer Guðrúnar
Björnsdóttur, Reykjavfk. Hún fær
bráðum senda góða bók.
Andleg kreppa aðra þvingar
íslensk menning heldur velli.
Eysteinn Gíslason Skáleyjum.
Vísa 2
Láta spretta úr spori senn
sprœkir úti í náttúrunni
Hartmann Eymundsson
Þar mun gammur geysa senn
og garpar ausa úr sagnabrunni
Bjöm Þórleifsson
Tappa úrflösku taka enn
Teyga mjöðinn þyrstum munni.
Kristján Jónsson
Því góðir bœndur geyma enn
gull í sínum viskubrunni
Ósk Þorkelsdóttir
Vel mun rekkum reynast enn
að ríða úti í náttúrunni
eða
Þarna verður saman senn
sopið ögn á bjórflöskunni
Eysteinn Gíslason
Vel er kveðið og erfitt að gera upp á milli góðskáld-
anna. yið verðum þó að taka af skarið og dæmum
botna Óskar á Húsavík besta að meðaltali. Hún fær
senda góða bók.
Norðursióð þakkar þátttöku í öllum jólaleikjun-
um og óskar öllum árs og friðar.
Ljóðagetraun
Lausn á getraun úr jólablaði
1. Hver hlær við sínum hjartansvini?
Sólskríkjan mín. Páll Ólafsson.
2. Hvað heitir fuglinn í fjörunni?
Hann heitir már. Ókunnur höfundur.
3. Hver greiðir sér upp úr bárulaugunum?
Sólin klár á hveli heiða/hvarma gljár við baugunum
A sér hár hún er að greiða/upp úr bárulaugunum.
Sigurður Breiðfjörð.
4. Hver er svört á brún og brá?
Hún hét Abba Labba Lá/Hún var svört á brún og brá.
Davíð Stefánsson.
5. Hver varpar sér á teig?
Valur í vígahuga. Jónas Hallgrímsson
6. Hvenær skein sól á sundin blá?
I dae skein sól á sundin blá. Davíð Stefánsson.
7. Hvað eykur mér óyndið?
Látt’ekki illa liggja á þér/lundina berðu káta.
Óyndið það eykur mér/ef ég sé þig gráða. Óþekktur höfundur.
8. Hvar átti ég löngum mitt sæti?
Innan við múrvegginn átti ég löngum mitt sæti. Jón Helgason.
9. Hvað er komið í koppinn minn?
Veltast í honum veðrin stinn/veiga - mælti - skorðan.
Kominn er þefur í koppinn minn/kemur hann senn á norðan.
Ókunnur höfundur.
10. Hver grær á grænum völlum?
Maríuklukkan grær á grænum völum.
Halldór Guðjónsson Laxness.
11. Hvenær hef ég annað eins reynt?
Þegar ungur ég var/hef ég annað eins reynt. Kristján Jónsson.
12. Hvað kom eftir seglskipið?
Eftir súðbyrðings för/kom hinn seglprúði knörr,
eftir seglskipið vélknúin skeið. Örn Arnarson.
13. Hvenær var frækomi sáð?
í fornöld á jörðu var frækorni sáð. Valdemar Briem.
14. Hverju stakk hún í síðu?
Saxinu hún stakk í síðu. Ólafur liljurós, ókunnur höfundur.
15. Hvað er ungum allra best?
Að óttast guð sinn herra. Hallgrímur Pétursson.
16. Hver telur tárin mín?
Drottin telur tárin mín. Kristján Jónsson.
17. Hvað eiga 9 menn að stytta?
Nú eru líka 9 menn,/sem nóttina eigaað stytta.
Jónas Hallgrímsson.
18. Hvar hafði fólkið hversdagsskemmtan af hanagali?
Undir bláum sólarsali/Sauðlauks upp í lygnum dali.
Eggert Ólafsson.
19. Hver labbar þvera götu?
Litla Jörp. Ókunnur höfundur.
20. Hvaðan komu feðurnir frægu?
Austan um hyldýpis haf. Jónas Hallgrímsson.
21. Hvað sé ég í anda?
Sé eg í anda knör og vagna knúða. Hannes Hafstein.
22. Hvern bæri ég hermannlega?
Heldurð' ekki að hringinn þinn/eg hermannlega bæri.
Þorsteinn Erlingsson.
23. Hver kannar straum vandlega.?
Vandlega Kópur kannar straum. Grímur Thomsen.
24. Hvar skal hafa aðgát?
Aðgát skal höfð í nærveru sálar. Einar Benediktsson.
25. Hver er blóðug um sólarlag?
Bylgjan sen bar það uppi/var blóðug um sólarlag.
Jóhann Sigurjónsson.
26. Hvenær er engin þörf að kvarta?
Þegar blessuð sólin skín. Stefánfrá Hvítadal.
27. Hver settist sjálf við okkar borð?
Mamma settist sjálf við okkar borð. Matthías Jochumsson.
28. Hvenær fannst Jóni komið nóg?
Er gigtin fór að jafna um Jón/fannstJóni komið nóg.
Davíð Stefánsson.
29. Hvaðan er ekkjan fögur og rík?
Hún er ættuð að austan. Örn Arnarson.
30. Hvenær er best að hætta hverjum leik?
Best er að hætta hverjum leik/þá hæst fram fer.
HaUgrímur Pétursson.
Þeir sem tóku þátt í ljóðagetrauninni voru: Dagbjört Asgrímsd., Dal-
vík, Þórunn Eiríksd., Borgarfirði, Friðrika og Friðjón, Dalvík, Helga
Þórsd., Bakka, Pálmi Jóhannsson, Dalvík, Stefanía og Sigurður,
Brautarhóli, Björn Stefánsson, Rvík, Anna Björg og Gísli, Akureyri,
Hallgrímur Einarsson, Urðum, Jónína Kristjánsd., Klængshóli,
Freygarður og Kristján, Uppsölum, Adda Gunnarsd., Akureyri,
Haukur Hafstað, Skagafirði, Aðalgeir og Elísabet, Húsavík, Bjöm
Þórðarson, Akureyri, Stefán Jónmundsson Dalvík, Lilja Kristjánsd.,
Rvík, Eysteinn Gíslason, Skáleyjum, Sigvaldi Jónsson, Húsavík, og
Stefán Snævarr og fjölskylda, Seltjamamesi.
Dregið var úr lausnum, og kom upp nafnið Sigvaldi Jónsson,
Húsavík. Hann fær senda bók í verðlaun.
Leiðrétting III
1 texta með ljóði Önnu S. Snorra-
dóttur um “Snerru” á bls. 8 í jóla-
blaðinu segir, að Snorri Sigfússon
hafi byggt sumarhúsið Snerru o. s.
frv. Ritstj. hefur verið bent á, að
þetta er ekki rétt. Læknishjón á
Dalvík, Stefán Guðnason og Elsa
Kristjánsdóttir byggðu húsið, en
seldu það Guðrúnu og Snorra
1943. Lítið mál þetta, en rétt skal
vera rétt.
Norðurslóð biðst velvirðingar á
missögnum þessum.