Norðurslóð - 28.01.1992, Qupperneq 8

Norðurslóð - 28.01.1992, Qupperneq 8
IflWHfe Svarfdælsk byggð & bær TÍMAMÓT Skírnir 26. desember var Alexander skírður í Dalvíkurkirkju . Foreldrar hans eru Júlía Linda Ómarsdóttir og Stefán Jóhannesson (Stef- ánssonar) til heimilis að Steinahlíð 1 i, Akureyri. 30. desember 1991 var skírður að Mímisvegi 15, Dalvík, Arnar Ingi. Foreldrar hans eru Ragnheiður Rut Friðgeirsdóttir og Sævar Freyr Ingason, Hjarðarslóð 6 d, Dalvík. Andlát 20. desember lést á Dalbæ, dvalarheimili aldraðra á Dalvik, Tryggvi Kristinn Jónsson. Tryggvi fæddist á Hóli á Upsaströnd 3. nóvember 1906, sonur hjónanna Jóns Jónson- ar frá Hóli og Kristjönu Hallgrímsdóttur. Hann var næstelstur fimm systkina sem voru auk hans: Steinberg, sem er látinn, Björgvin er býr á Dalvík, Loftur sem er látinn og Þórhildur er býr í Kaupmannahöfn. Tryggvi aflaði sér skipstjómarréttinda á minni báta og einnig vélstjómarréttinda. En sjómennsku stundaði hann aðeins fram á þrítugsaldur því árið 1932 varð hann fastur starfsmaður verslunar Kaupfélags Eyfirðinga á Dalvík. 1950 tók hann við rekstri Frystihúss Kaupfélagsins og stjómaði því fyrirtæki til ársins 1973 eða í tæpan aldarfjórðung. I tengslum við starf sitt var hann kosinn í stjóm Félags sambandsfiskframleiðenda, SAFF, og sinnti marvíslegum erindum fyrir þau samtök m.a. í Bandaríkj- unum. Tryggvi tók virkan þátt í félagsmálum og var m.a. í Ungmenna- félaginu, Slysavamarfélaginu og einn af stofnendum Lionsklúbbs Dalvíkur. Hann var kosinn formaður hafnarnefndar árið 1936 og gegndi því starfi til 1942 en á þeim árum var margt að gerast í hafnarmálum Dalvíkinga. Hófust framkvæmdir við hafnargerð sumarið 1939 og var þá lagður grundvöllur að þeirri höfn sem nú er. Tryggvi var kosinn í hreppsnefnd hins gamla Svarfaðardalshrepps árið 1942 og varð þá oddviti. Eftir skiptingu hreppsins 1946 varð hann fyrsti oddviti Dalvíkurhrepps, gegndi því embætti í fjögur ár en sat í hreppsnefnd allt til ársins 1970. Eftir að Tryggvi hætti störfum við Frystihúsið starfaði hann hjá Sparisjóðnum í um áratug. Tryggvi var tvíkvæntur. 1931 kvæntist hann Rögnu Pálsdóttur frá Akureyri en lést hún eftir um árs hjónaband. Sonur þeirra er Ragnar verslunarmaður á Akureyri. 1935 kvæntist Tryggvi Jórunni Jóhannsdóttur og eignuðust þau tvö börn, Kristínu Hólmfríði, sem er skólastjóri og býr í Hafnarfirði og Jóhann sem er flugstjóri og býr í Garðabæ. Fyrstu árin bjuggu Tryggvi og Jórunn í Asbyrgi, sem þau byggðu, en fluttu 1943 í Þórshamar, Sognstún 1, sem þau byggðu. Bjuggu þau þar meðan bæði lifðu en Jórunn lést þar heima 13.desember 1990. Tryggvi flutti á Dalbæ haustið 1991 og þar lést hann 20.desember, 85 ára að aldri. Tryggvi var jarðsunginn frá Dalvíkurkirkju 29,desember. 4. janúar lést á Dalbæ, dvalarheimili aldraðra á Dalvík, Gunnlaug- ur Gíslason. Gunnlaugur fæddist á Syðra-Hvarfi, Svarfaðardal, 27.mars 1898. Foreldrar hans voru Gísli Jónsson bóndi þar og kona hans Ingibjörg Þórðardóttir. Eignuðust þau fimm börn er upp komust og var Gunnlaugur næst elstur. Önnur böm þeirra voru Halldóra sem er látin, Jón sem er látinn, Dagbjört er býr í Reykjadal og Soffía sem býr á Akureyri. Gísli og Ingibjörg fluttu frá Syðra-Hvarfi í Hof árið 1904 og þar ólst Gunnlaugur upp. Vorið 1921 tók hann búfræðipróf frá Hóla- skóla. Gunnlaugur kvæntist Rósu Þorgilsdóttur frá Sökku árið 1924 og hófu þau búskap það ár á þeirri jörð, fyrsta árið í tvíbýli við Ara Þorgilsson og Halldóru konu hans, en síðan ein á allri jörðinni þar til Þorgils sonur þeirra og Olga kona hans hófu búskap með þeim 1957. A þessum árum, er Gunnlaugur og Rósa voru að hefja sinn bú- skap, horfðu bændur hér í sveit, sem annars staðar á landinu, fram til breyttra og bættra tíma í búskaparháttum. Gunnlaugur hafði kynnst mörgu af þessu á Hólum og víðar og varð alla sína starfsævi framarlega í flokki bænda hér um slóðir er kepptu eftir framförum í búskaparháttum og bættri afkomu. Heima á Sökku byggði Gunn- laugur ný hús og endurbætti önnur og var hann hagur og útsjónar- samur eins og verk hans bera skýrt vitni. Hann hafði mikinn áhuga fyrir ræktun og stórbætti og ræktaði ný tún á Sökku þá nær hálfa öld er hann bjó þar. Gerði hann um árabil tilraunir með komrækt sem tókst með ágætum í bestu ámm. Hann var aðalhvatamaður að stofnun Framræslu og áveitufélags Svarfdæla sem starfaði í meira en áratug og formaður allan tímann. Snemma hlóðust margs konar nefndarstörf á Gunnlaug og gegndi hann þar æði oft formennsku. Hæst ber að hann var lengi í stjóm Búnaðarfélags Svarfdæla og lengst af fonnaður og sat einnig um skeið í stjóm Búnaðarsambands Eyjafjarðar. Þá var hann í hreppsnefnd Svarfaðardalshrepps áður en honum var skipt og árið eftir þá skiptingu varð hann oddviti Svarfaðardalshrepps sem nú er og gegndi því starfi í tvö kjörtímabil. Rósu og Gunnlaugi varð fjögurra bama auðið en þau eru: Jóna, gift Stefáni Snævarr og býr á Seltjamamesi, Dagbjört gift Þóri Stephensen og býr í Reykjavík, Halldóra er býr á Akureyri og Þorgils, kvæntur Ölgu Steingrímsdóttur og býr á Sökku. Einnig ólu Fyrsti sólargeisli ársins gægist yfir Skíðadalsfjöllin Mvnd: Hj.Hj. F réttahornið Nú um helgina fór fram á vegum hjálparsveitar Slysavarnafélagsins á Dalvík námskeið fyrir bátadeildir björgunarsveita við Eyjafjörð. Til leiks voru mættir sex slöngubátar með áhöfnum frá Dalvík, Akureyri, Ólafsfirði, Ár- skógsströnd, Hrísey og Grenivík. Einar Örn Jónsson frá Reykjavík stjórnaði námskeiðinu sem byrjaði með bóklegu námi fyrir hádegi, en eftir hádegið voru æfi5 ýmis atriði björgunar á sjó. Mynd: íij.iij. Blaðinu hafa borist upplýsingar frá Byggðastofnun um breyt- ingar á íbúafjölda sveitarfélaga á árunum 1985-90 með hliðsjón af fjölgun eða fækkun ársverka við- komandi sveitarfélaga. Þar kemur fram að íbúum á Dalvík hefur fjölgað um 10.5% eða 141 á tíma- bilinu og ársverkum um 52 eða 8.4%. Þetta er til muna meiri fólks- fjölgun og fjölgun ársverka en víð- ast hvar á landsbyggðinni. Til sam- anburðar má geta þess að á Akur- eyri varð fólksfjölgunin á þessu tímabili um 3.2% og fölgun árs- verka 3.6% . Víðast hvar er ástand- ið enn verra og á mörgum stöðum hefur fólki fækkað verulega. A stórreykjavíkursvæðinu og einkum í sveitarfélögunum í kring um höfuðborgina varð fólksfjölg- unin og fjölgun ársverka 10- 20% á þessu 5 ára tímabili. Félagar í Leikfélagi Dalvíkur eru nú enn á ný komnir af stað með leikrit. I þetta sinn hefur orðið fyrir valinu söngleikurinn „Rjúk- andi ráð“ eftir þá Jónas og Jón Múla Amasyni. 13 leikarar taka þátt í leiknum ásamt hljómsveit og öðru baktjaldafólki en leikstjórinn er Sigurgeir Scheving. Stefnt er að frumsýningu um mánaðamót febr- úar/mars. Nú hillir undir lausn sorpeyð- ingarmála Dalvíkinga og raunar allra Eyfirðinga. Að undan- fömu hefur verið unnið að athug- unum á því að urða allt sorp af Eyjafjarðarsvæðinu á Glerárdal fyrir ofan Akureyri, ofan og innan við núverandi öskuhauga Akureyr- inga. Að sögn Kristjáns Þórs Júl- íussonar bæjarstjóra bendir allt til þess að urðun verði hafin og öll brennsla á Sauðanesi lögð af áður en þetta ár er úti. Mun þá margur kætast þegar aftur verður hægt að draga djúpt andann þótt hafgola sé. Söltunarfélag Dalvíkur h/f hefur að undanfömu verið að vinna rækju úr frosnu hráefni og verður svo áfram um sinn. Veiðar báta sem landa rækju ísaðri hefst ekkert að marki fyrr en kemur fram í apr- fl. Ef veiði verður góð er ljóst að vinnsla ætti að geta orðið hér meiri en nokkm sinni fyrr. Afkastageta verksmiðjunnar var aukin verulega á síðasta ári og kvóti er nú meiri en oftast áður. Til skoðunar er nú hjá SFD að taka sölumálin á fram- leiðslunni inn í fyrirtækið. í all- mörg ár hefur Sambandið eða ís- lenskar sjávarafurðir h/f eins og það heitir nú selt alla framleiðsl- una en líkur em sem sagt á að nú verði þar breyting á. Slíkri breyt- ingu fylgja aukin umsvif hjá fyrir- tækinu sjálfu og að markaðsþekk- ing verður meiri hjá því. þau upp fósturson Halldór Arason, sem er giftur Huldu Þórarins- dóttur, og búa þau á Akureyri. Rósa og Gunnlaugur létu af búskap árið 1973 en bjuggu áfram á Sökku meðan bæði lifðu. Rósa lést haustið 1988 og í ársbyrjun 1989 fór Gunnlaugur á Dalbæ, þar sem hann lést 4.janúar. Gunnlaugur var jarðsunginn frá Dalvíkurkirkju 11. janúar og jarðsettur í Vallakirkjugarði. 16. janúar andaðist á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri, Lilja Tryggvadóttir. Lilja fæddist á Ytra-Hvarfi í Svarfaðardal 26.júlí 1910 dóttir Tryggva Jóhannssonar og Guðrúnar Soffíu Stefánsdóttur. Þau hjón eign- uðust fimm böm er upp komust en auk þess lést einn drengur, Jóhann, bam að aldri. Þau böm er upp komust voru auk Lilju: Jakob er býr á Akureyri, Jóhann sem býr í London, Stefán sem er látinn og Olafur er býr á Dalvík. 1935 giftist Lilja Antoni Baldvinssyni. Þau hófu búskap á Ytra-Hvarfi í félagi við Tryggva og Soffíu og vom þar í 8 ár þar til þau fóm í Hrafnsstaði. Bjuggu þau þar til 1949 er þau fluttu til Dalvíkur. Byggðu þau sér hús við Goðabraut 18 og fluttu þangað 1954 og var það heimili beggja upp frá því. Þau hjón eignuðust fjögur böm, Sólveigu, Guðlaugu Sigríði, sem er gift Reimari Þorleifssyni og Jóhann Friðrik, sem er giftur Svanfríði Jónasdóttur, og öll eru búsett hér á Dalvík en Guðrún Soffía lést fyrir tveimur áratugum. Auk þess að sinna sínu heimili og gleðja þá er þangað komu með gestrisni sinni og hlýju, vann Lilja utan heimilis og lengst af í Frystihúsinu í um aldarfjórðung. Lilja var afar félagslynd og starfaði í ungmennafélaginu á sínum yngri árum og einnig í kvenfélaginu Tilraun og síðar í kvenfé- laginu Vöku alveg til dauðadags. Hún hafði mikið yndi af söng og hóf að syngja í kirkjukór rétt um fermingu og eftir að hún kom til Dalvíkur söng hún með Kirkjukómum allt fram á þetta ár og hafði þá sungið í kór hátt í sjö áratugi. Hún tók einnig þátt í annarri söngstarfsemi hér á Dalvík s.s. með Samkór Dalvíkur. Anton lést haustið 1986 en Lilja bjó áfram í Goðabrautinni ásamt Sólveigu dóttur sinni. Lilja lést 16. janúar og var jarðsunginn frá Dalvíkurkirkju 25. janúar. JHÞ

x

Norðurslóð

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Norðurslóð
https://timarit.is/publication/1253

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.