Norðurslóð - 23.09.1992, Síða 4
4 — NORÐURSLÓÐ
Iþróttaannáll sumarsins
Fjallahjólakeppnin á Tröllahátíðinni fór fram í Böggvisstaðafjalli og Hrísár-
höfða. Aðstæður voru heldur leiðinlegar, kalsarigning og noröangjóla, en
keppendur létu það ekki á sig fá. M>nd: iik.
Norðurslóð hefur ekki gert
mikið af því að fjalla um
íþróttir í dálkum sínum. Rit-
stjórninni þótti rétt að breyta
þessu, ekki síst í Ijósi þess
hversu fyrirferðarmiklar
íþróttir eru orðnar í lífl fólks.
Sumarið í sumar var líka
óvenju viðburðaríkt á íþrótta-
sviðinu á Dalvík. Þess vegna
fengum við Jónas Baldursson
leikmann í meistaraflokki og
þjálfara yngri flokka í knatt-
spyrnu á Dalvík til aðstoðar við
að setja saman eins konar ann-
ál um það helsta sem dreif á
daga íþróttafólks á Dalvík í
sumar.
Við byrjum á pistli Jónasar um
knattspyrnuna:
Slakt gengi
meistaraflokks karla
Meistaraflokkur karla kom til leiks
í upphafi sumars undir stjórn nýs
þjálfara, Guðjóns Guðmundsson-
ar. Undirbúningur liðsins hafði
verið langur og strangur. Farið var
í æfingaferð til Hollands fyrir
páskana og heppnaðist hún af-
bragðsvel. Nokkur umskipti urðu á
mannskap milli ára og ber þar hæst
inngöngu nokkurra nágranna okk-
ar úr Reyni frá Arskógsströnd. I
ljósi þessa og hversu litlu munaði
sumarið áður að liðinu tækist að
vinna sér sæti í 2. deild, voru menn
eftirvæntingarfullir í upphafi móts.
Fyrsti leikurinn var bikarleikur
gegn Magna sem tapaðist. Síðan
hófst deildarkeppnin og byrjuðu
Dalvíkingar með látum. Sigur
gegn nýliðunum frá Þorlákshöfn í
fyrsta leik. Svo voru menn slegnir
niður á jörðina aftur með tveimur
ósigrum í röð. Eftir það gekk allt á
afturfótunum hjá liðinu og það
lenti í hatrammri botnbaráttu.
Hvorki gekk né rak og þegar ein-
ungis einn leikur var eftir voru
Dalvíkingar í 3. neðsta sæti með
jafnmörg stig og Ægir en mun
betra markahlutfall. Þeim nægði
því að sigra til að vera öruggir með
sæti sitt í deildinni.
Ekki blés byrlega framan af, 1 -
0. fyrir Skallagrím í hálfleik og
Dalvík manni færri. Og til að bæta
gráu ofan á svart höfðu Ægismenn
forystu í sínum leik. Svo fór að
Dalvík tapaði 1-0 en til allrar
lukku fyrir þá tapaði Ægir líka svo
Dalvíkingar héldu sæti sínu á betra
markahlutfalli. Liðið hlaut 17 stig
úr 18 leikjum, þar af 12 stig gegn
tveimur neðstu liðunum. Fimm
leikir unnust, tveim lyktaði með
jafntefli og 11 töpuðust, þaraf átta
með einungis eins marks mun.
Víst verður að segjast að árang-
ur liðsins olli mönnum miklum
vonbrigðum og verður það að taka
sig verulega á ef það ætlar að
standa sig á næstu sparktíð. Þó var
það huggun harmi gegn að liðið
varð bæði Eyjafjarðarmeistari og
Eyjafjarðarbikarmeistari í ár eins
og reyndar tvö síðustu sumur.
Viðunandi hjá kununum
Meistaraflokkur kvenna kom einn-
ig til leiks með nýjan þjálfara í far-
teskinu, Valdimar Pálsson. Stúlk-
urnar kepptu í Norðurlandsriðli 2.
deildar ásamt KA, Tindastóli, KS
og Leiftri. Einnig tóku þær þátt í
bikarkeppni en féllu úr henni í
fyrstu umferð. Arangur sumarsins
var viðunandi, 3. sætið í riðlinum
sem KA vann, en KA varð síðan
Islandsmeistari 2. deildar. Nokkrar
breytingar urðu á leikmannahópi
liðsins, nýjar stúlkur komu inn og
aðrar hurfu á braut. Er vonandi að
hópurinn haldist að mestu næsta
sumar svo stúlkumar komi enn
sterkari til leiks að ári.
Upp og ofan í yngri
flokkunum
I yngri flokkum náðist þokkalegur
árangur. Erfiðlega gekk þó að
manna lið í 3. flokki pilta þrátt
fyrir samstarf við Olafsfirðinga.
Liðið féll út úr bikarkeppninni í 1.
umferð og lenti í 5. sæti í sínum
riðli í Islandsmótinu. A Unglinga-
landsmóti UMFI vann liðið hins
vegar með fullu húsi stiga.
4. flokkur lenti í 5. sæti íslands-
mótsins og hlaut silfurverðlaun á
Unglingalandsmótinu. Þar var líka
samstarf við Olafsfirðinga. I 5.
flokki náðist ágætur árangur: 4.
sæti á íslandsmóti og öruggir sigr-
ar á Unglingalandsmóti og hinu
árlega Króksmóti. Loks átti Dalvík
sigurlið og bronslið í Hraðkeppni
UMSE í 5. flokki. 6. flokkur varð í
5. sæti í Islandsmótinu, vann
Króksmótið með glæsibrag (þar
vann B-liðið brons) og hlaut silfrið
á KEA-mótinu. Loks var 7. flokk-
ur starfræktur í fyrsta sinn senv
sérstakur flokkur. Mikill fjöldi
stundaði æfingar og áhuginn var
gríðarlegur. Drengirnir tóku þátt í
Króksmótinu og urðu í 3. og 4.
sæti sem telst gott hjá byrjendum.
Þjálfari 3. flokks var Þorsteinn
Guðbjörnsson, Jónas Baldursson
þjálfaði 4., 5. og 7. flokk en Valdi-
mar Pálsson 6. flokk.
Hjá stúlkunum var aðeins einn
yngri flokkur starfræktur í sumar.
Það var 3. flokkur fyrir stúlkur 14
ára og yngri. Þær lentu í 6. sæti á
Islandsmótinu en sigruðu á Ung-
lingalandsmótinu. Loks urðu þær
neðstar á afmælismóti KS en gátu
huggað sig við að vera kjömar
prúðasta liðið. Þjálfari í sumar var
Jóna Ragúels.
Bikarkeppni FRÍ og
Unglingalandsmót
En það eru iðkaðar fleiri íþrótta-
greinar á Dalvík en knattspyma,
eins og best kom fram á Unglinga-
landsmóti UMFI. Þangað mættu á
annað þúsund keppenda til leiks og
undu sér vel á nýjum íþróttavelli í
þrjá daga meðan mótið stóð. Hér
verða ekki tíunduð úrslit en víst er
um að þetta mót var Dalvíkingum
til hins mesta sóma. Framkvæmd
mótsins var með ágætum þótt
veðrið hefði mátt vera betra. Nýr
íþróttavöllur var tekinn í notkun en
með tilkomu hans stórbatnar öll
aðstaða til iðkunar frjálsra íþrótta
hér í bænum. Nú er bara að bíða
eftir sundlauginni sem jafnvel gæti
verið komin í gagnið seint á næsta
ári eða snemma árs 1994.
í liði UMSE sem tók þátt í Bik-
arkeppni 1. deildar Frjálsíþrótta-
sambands Islands um miðjan
ágústmánuð voru nokkrir þátttak-
endur úr Svarfaðardal og frá Dal-
vík. Meðal þeirra voru Sigurður
Matthíasson sem sigraði í spjót-
kasti og Snjólaug Vilhelmsdóttir
sem sigraði í 400 metra hlaupi og
varð önnur í 100 og 200 metra
hlaupi. Ekki má gleyma þremur
systkinum frá Brautarhóli, Gunn-
ari, Sigurði Bjama og Sólveigu
Sigurðarbörnun, Þóru Einarsdóttur
sem varð 2. í hástökki og Rut
Berglindi Gunnarsdóttur sem er
aðeins 13 ára og yngsti keppand-
inn á mótinu. UMSE stóð sig vel í
keppninni og varð í þriðja sæti sem
er besti árangur sambandsins frá
upphafi bikarkeppninnar. Þess má
geta að Snjólaug Vilhelmsdóttir
var kjörin frjálsíþróttamaður ársins
hjáUMFS.
Tröllahátíð
Loks ber að nefna að í lok ágúst
var efnt til svonefndrar „Trölla-
hátíðar" á Dalvík. A þeirri hátíð
var keppt í ýmsum greinum hjól-
reiða, einkum á fjallahjólum.
I síðasta tölublaði Norðurslóð-
ar, þ.e. í júníblaðinu, hóf göngu
sína þáttur, sem við nefndum
þessu nafni, Stökur mánaðar-
ins. Þetta er hugsað þannig, að
fólk sé að kveðast á eins og mik-
ið var gert í gamla daga, áður
en útvarp og sjónvarp var til,
og menn urðu að gera sér sjálf-
ir eitthvað til skemmtunar.
Við skulum rifja upp regluna:
Ef t.d. ég hef kveðið vísuna „Afi
minn fór á honum Rauð". sem allir
kunna, þá er okkar regla sú, að þú
verður að svara með vísu, sem
byrjar á T, þ.e. fyrsti stafurinn í
síðasta orði vísunnar minnar:
sitt af hvoru t(agi). Skiljið þið?
Það er rétt. að gamla reglan var sú,
að vísa varð að byrja á síðasta staf
fyrri vísunnar. Það hefði veriö i
eftir þeirri reglu, (tag)i.
Keppendur voru á sjötta tug tals-
ins, að stærstum hluta aðkomu-
menn því Dalvíkingar kepptu að
heita má eingöngu í bamaflokkum.
Sá sem hélt uppi merki heima-
manna var Sveinn Brynjólfsson
sem vann til nokkurra verðlauna í
flokki 16-19 ára keppenda. Því
miður var leiðindaveður meðan á
mótinu stóð svo það varð ekki sú
hátíð sem að var stefnt.
Ýmsir hringdu í blaðið í sumar
og fundu að þessari breytingu, en
sannleikurinn er sá, að það fæst
miklu meiri fjölbreytni og dreifing
yfir allt stafrófið. ef okkar regla er
notuð. Hún er ættuð úr Skagafirði.
Síðasta vísan í júníblaðinu end-
aði á orðnu tófugreni. Svo fyrsta
vísan okkar verður að hefjast á T.
Og nú byrjar ballið:
Trú og von og ást ég á
eins og datntin sýna.
Mér er vel við þessa þrjá
þrílemhinga mína.
Næst M.
Margitr hlásinn helgur sprakk.
hljúgur laut að fróni.
í sem glettin ungfrú stakk
ástartítuprjóni.
Næst Á.
Astin hefur hýrar hrár,
en hendur sundurleitar.
ein er mjúk og önnur sár,
en þó háðar heitar.
Næsta vísa á að byrja á H.
Og aftur vil ég segja, að þessi
vísnaþáttur er fyrst og fremst ætl-
aður bömum og öðru ungu fólki,
sem á hvað auðveldast með að læra
ljóð utanbókar. Ef fólk gerir það
ekki á þeim aldri er hætt við. að
það geri það ekki síðar í lífinu.
HEÞ
Hjartans þakkir til
allra sem sýndu okk-
ur samúö, hlýhug og
vináttu viö andlát og
útför eiginkonu og
móöur okkar
Ragnheiðar
Gunnlaugar
Björnsdóttur
Karlsbraut 15, Dalvík.
Gunnar Magnússon
Sigríöur
Gunnarsdóttir
Bjarney Bjarnadóttir
T1 / p • • / X •
Fra Spansjoði
Svarfdæla
Flestir taka sér sumarfrí: verkamenn, verslunarmenn, kennarar, nem-
endur, iðnaðarmenn, bæjarstarfsmenn, skrifstofumenn, hjúkrunarfólk,
læknar, prestar og prelátar.
En Sparisjóðurinn fer aldrei ísumarfrí. Hann er alltafá sínum stað
og vinnur baki brotnu meðan vinir hans skemmta sér.
Hann telur þetta samt ekki eftir sér, en óskar öllum góðrar ferðar og
býður þá velkomna heim aftur.
Sparisjóðurinn er fasti punkturinn í tilverunni. Hann óskar öllum
gleðilegra haustdaga og þakkar liðið sumar.
Sparisjóður Svarfdæla, Daivíkc 61600
-ÞH/JB
Stökur
mánaðarins II.