Norðurslóð - 27.10.1992, Page 2

Norðurslóð - 27.10.1992, Page 2
2 — NORÐURSLÓÐ NORÐURSLÓÐ Útgefandi: Rimar hf. Ritstjórar og ábyrgðarmenn: Jóhann Antonsson, Dalvík Hjörleifur Hjartarson, Laugahlíð Framkvæmdastjóri: Sigríður Hafstað, Tjörn. Sími 96-61555 Blaðamennska og tölvuumbrot: Þröstur Haraldsson, Dalvík Prentun: Dagsprent hf. Akureyri Málgagn já- kvæðra tíðinda í þessu tölublaði er þess minnst að Norðurslóð hefur nú komið út í 15 ár. í upphafi gerðu útgef- endur grein fyrir því að hér væri um tilraun að ræða og að framhaldið myndi ráðast af viðtökum lesenda og því hvernig gengi að ná auglýsingum og áskrifendum til að standa undir kostnaði af út- gáfunni. Voru gefin fyrirheit um að blaðið yrði gefið út a.m.k. tíu sinnum á ári ef undirtektir leyfðu það. Nær undantekningalaust hafa komið út tíu blöð á ári öll þessi 15 ár. Það sýnir betur en annað að það sem í upphafi var kynnt sem tilraun hefur tekist all vel. Strax í byrjun gekk vel að safna áskrifendum og hefur sá hópur haldið ótrúlegri tryggð við blaðið. Milli blaðsins og lesenda myndaðist snemma mikið trúnaðartaust sem hefur haldist í gegn um árin. Þetta traust vilja útgefendur nú þakka. Tryggð áskrifenda við blaðið hefur verið sú uppörvun sem útgefendurnir hafa þurft á að halda. Það hefur umfram annað verið drifkraft- urinn sem tryggt hefur 15 ára samfellda útgáfu- sögu. Þó ekki sé ætlunin hér að dæma um efnistök blaðsins í gegnum tíðina þá er það nú svo að blað- ið hefur alla tíð reynt að segja frá því jákvæða sem er að gerast hér í byggðalaginu. Það hefur verið beinlínis ritstjórnarstefna blaðsins að dvelja ekki lengi við neikvæðar fréttir. Slík ritstjórnar- stefna er að sjálfsögðu umdeilanleg en þó fer það varla á millli mála að í dag er mikils virði að segja frá jákvæðum hlutum. Satt best að segja er of- framboð á neikvæðum fréttum og beinlínis lenska hjá fjölmiðlum að dekra við neikvæðu féttirnar. Sem betur fer er það svo að það hefur verið frá mörgu jákvæðu að segja héðan úr svarfdælskri byggð og bæ þessi 15 ár sem blaðið hefur komið út. I dag vekja þjóðarathygli fréttir af stöðu mála hér á Dalvík. Myndin sem menn fá af byggðalag- inu er jákvæð, hér er enginn barlómur og flestir hlutir stefna í framfaraátt. Ekki er vafi á því að þessi mynd gerir íbúana sáttari við sitt hlutskipti en ef aðeins er klifað á hinu neikvæða. En hóf er best í öllu. Ekki er betra að draga upp of mikla glansmynd og að segja frá hlutum sem ekki eiga sér stoð í veruleikanum. Það er alltaf svo að þó ástand sé gott er margt sem betur má fara. Hlutverk héraðsfréttablaða eins og Norðurslóðar er að benda á slík mál og vekja til umhugsunar. Við viljum hvetja lesendur blaðsins að hjálpa því að sinna betur þessum þætti í fram- tíðinni með því að skrifa í blaðið. Um leið og Norðurslóð vill þakka lesendum sínum góða samfylgd í 15 ár er sett fram sú ósk að blaðinu auðnist að halda því trausti sem velunn- arar þess hafa sýnt því alla tíð. Útgáfa sem þessi hefur engan annan tilgang en að reyna að vera mannbætandi og menningarleg. Útgefendur hafa talið sig vinna í þeim anda og svo lengi sem það helst og lesendur halda sinni tryggð við blaðið verður útgáfu þess haldið áfram. J.A. Svona leit bærinn að Tungufelli út þegar Guðmann sat þar og orti Bændavísur. Bændavísur Guðmanns á Tungufelli frá 1935 Fyrsti þáttur Gerð bæjarvísna eða bænda- rímna er gömul og vinsæl dægrastytting á landi hér. Sömuleiðis gerð formannavísna. Hér í Svarfdælabyggð hafa verið ortar nokkrar bændarímur og eru vel kunnar a.m.k. fernar slíkar: Bændavísur Jóns Hall- grímssonar á Karlsá frá miðri 19. öld, gátubæjarvísur Eiríks Pálssonar í Uppsölum nokkru yngri og bæjarvísur Haraldar Zóphóníassonar frá fjórða ára- tug þessarar aldar. Guðmann Þorgrímsson bóndi á Tungufelli, var Skagfirðingur en bjó hér lengi og orti mikið um menn og málefni, sér og öðrum til skemmtunar. Bæjarvísur þær, sem birtar verða í þessu og næstu 2-3 tölu- blöðum Norðurslóðar, orti Manni fyrir og um 1935, svo þær eru í sjálfum sér orðnar að sagnfræði. Ekki veit undirritaður til, að þessi bæmdaríma Guðmanns hafi kom- ist á þrykk áður, en handrit hafa gengið manna á milli. Það sem hér er farið eftir er úr fórum Jóhannes- ar Jóhannessonar á Dalvík. Jóa leikara, og er birt með góðfúslegu leyfi Jóhönnu dóttur hans. Ekki má taka þennan kveðskap of alvarlega, Manni hefur ort þetta með það fyrir augum að vekja kátínu, fremur en að reyna að lýsa í alvöru einkennum manna og af- rekum. Hann lætur hér gamminn geysa og skiptir um bragarhátt þegar minnst varir og eykur með því fjölbreytnina í bragnum, sem annars hættir til að verða nokkuð tilbreytingarlítill. Líklega passar að skipta efninu á 4 blöð og taka eina kirkjusókn í senn. En því má að sjálfsögðu breyta ef með þarf og skipta ríntunni bara í þrennt. Við sjáum hvað setur. Vallasókn 1 Hýrum má ég bregða bhmd bragarsmíð að hefja um stund. Hirðir Þorsteinn Hálsagrund hœga með og skýra lund. 2 Held ég svo á Hamarinn honum stýrir Laugi hugaður og harðsnúinn ég hefhann ekki í spaugi. 3 Afram Kjálkann œtla ég mér Oðinsjálk að finna á Hrísabálka Arni er við ýsudálka leikur sér. 4 Lœt ég skríða Ijóðafák að lœknum-fríða-Skálda Guðjón smíðar skeifuskák skal þeim lýðnum sálda. 5 Geymir Sökku Gunnlaugur gylltum hnöppum reifaður hey á Bökkum hann tekur hót ei klökkur búmaður. 6 Ölduhryggsins yrkir lá er Björn hygginn hrings með gná mjög íbygginn maður sá mestan hyggur gróða á. 7 Á Hánefsstöðum stundar bú stólpa-Höður baugs með frú Pétur í blöðum blaðar nú bóndans hlöðum vill hann hlú. 81 Uppsalakoti Anna býr eru þar skotin björt og hýr Þórður lotinn lögin knýr lítt er í þroti veigatýr. 9 Miðbœ rœður röskur klœða- Þórinn hann á svœði er hamramur hlynurinn skœði, Þorleifur 10 Upp- í -sölum einn þar býr er hjá þjölum mikið skýr Kristján völund vopnatýr vígs á bölum ekki flýr. 11 Að Völlum leitar lýðurinn lúnurn veitist huggunin með stáltrú þreytir starfa sinn Stefán heitir presturinn. 12 Bú sitt tryggir býsna hygginn maður lífs í skóla kempan kná Kristján Brautarhóli á. 13 Stefán heitir stálaþór stjórnar Gröfmeð prýði vart sá þykir viskusljór vel þekktur hjá lýði 14 Hofið byggir herra Jón liann ei styggir nokkurn þjón bú sitt tiyggir, bœtir tjón bóndinn hygginn yrkirfrón. 15 Bú sitt glœðir göfugur gautur klœða alþekktur heims á svœði hamramur Hofsá ræður Þorleifur. 16 Gamalíel greini égfrá geymir Skeggjastaði réttarstjóri er röskur sá runnur hátalaði. 17 Að Hofsárkoti held ég svo með huga glöðum Sigvaldi á svannann fríða sú kann búið vel að prýða 18 A Ytra-Hvarfi einn égfinn er hann Tryggvi hýr á kinn mikið hygginn maðurinn mjög vel tryggir búskapinn. 19 Á Syðra-Hvarfi lœt ég Ijóð lending taka nœst í ranni hann Askell minn á ekkert fljóð ógleði það veldur manni. 20 Bú sitt rekur býsna þrekinn maður hjá höldum glöðum heiðvirtur á Hjaltastöðum Steingrímur. 21 Bú sitt tiyggir býsna hygginn maður Ýtum þykir æði skýr Ingólfur í Sœlu býr. 22 Að litlu Hlíð minn Ijóða skríður fákur Jóhann hefur bjarta brá á beði faðmar hringagná. 23 Arni á Hnjúki á sér mjúka sprundið hefur glaða og létta lund laus við skaða festir blund. 24 Klœngshól stýrir kappinn sá Kristján er að heiti býr sáfremsta býli á í blóma fögrum reiti. 25 Bú sitt stundar býsna uhdarlega lífs er glaður geðs um ból geymir Eiður Krossahól. 26 Lífs á róli lúinn hjólar maður fátækur meðfaldagná Friðrik bóndi Hverhól á. 27 Bú sitt styður bauga -meður- sprundi Ýtum snýrfrá ógöngum Óskar býr á Kóngsstöðum. Hér mun lokið umferð höfundar um Vallasókn. í næsta blaði gerir hann væntanlega skil Urðasókn, frá Þverá fram að Þverá niður, að báðum meðtöldum. Þökk þeim er lásu. HEÞ

x

Norðurslóð

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Norðurslóð
https://timarit.is/publication/1253

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.