Norðurslóð - 27.10.1992, Qupperneq 8

Norðurslóð - 27.10.1992, Qupperneq 8
8 — NORÐURSLOÐ HMRÉ Svarfdælsk byggð & bær TÍMAMÓT Skírnir 11. október var Elín María skírð í Ólafsfjarðarkirkju. Foreldrar hennar eru Sigríður Kristinsdóttir, Ólafsvegi 28, Ólafsfirði og Jón Emil Gylfason, Drafnarbraut 3, Dalvík. 13. október var Viktor Arni skírður á heimili sínu Hólavegi 5, Dalvík. Foreldrar hans eru Þórunn Árnadóttir og Bjöm Víkingsson. Afmæli I síðasta blaði reyndist ekki pláss fyrir afmæli í Tímamótum Norð- urslóðar. Við bætum úr því nú og teljum upp afmælisbörn sumars- ins, þau sem við höfðum upp á: Marinó Sigurðsson bóndi Búrfelli varð 70 ára 2. júlí. Björn Þorleifsson smiður Bárugötu 12 varð 70 ára 13. júlí. Ása Þórólfsdóttir Dalbæ varð 85 ára 17. júlí. Snjólaug Valdemarsdóttir Melum, Dalvík, varð 70 ára 2. ágúst. Páll Guðmundsson verkamaður Upsum varð 70 ára 7. ágúst. Þórey Jóhannsdóttir Hlíð varð 70 ára 11. ágúst. Kristín Jóhannsdóttir Bjarkarbraut 15 varð 75 ára 6. september Sólveig Kristjánsdóttir Dalbæ varð 85 ára 27. september. Stefán Stefánsson sjómaður Goðabraut 15 varð 60 ára 14. október. Kári Kárason sjómaður Hjarðarslóð 2 varð 75 ára 24. október. Valdemar Oskarsson endurskoðandi og fyrrverandi sveitarstjóri á Dalvík varð 70 ára 25. október. Karl Karlsson bóndi Klaufabrekknakoti verður 80 ára 30. október nk. Andlát 15. október lést á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri, Jolanta Renata Holeksa, Sunnubraut 13, Dalvík. Jolanta fæddist í Varsjá í Póllandi 21. nóvember 1961 og var hún af pólsku bergi brotin. Hún var lærður kennari, sérhæfði sig í kennslu þroskaheftra bama og vann við slíka kennslu í heimalandi sínu. 1991 kynntist hún Leifi D. Bjömssyni, Sunnubraut 13, Dalvík og flutti hingað til lands í desember s.l. ásamt dóttur sinni og móður. Gengu þau Leifur í hjónaband 25. september s.l. Jolanta var jarðsungin frá Dalvíkurkirkju 19. október. 15. október lést á Dalbæ, dvalarheimili aldraðra Dalvík, Elínborg Jónsdóttir. Elínborg fæddist á Kálfsá í Ólafsfirði 17. sept. 1895. Foreldrar hennar voru Lísbet Friðriksdóttir og Jón Magnússon. Móðir hennar var þrígift og voru systkinin alls 14 og af þeim komust 12 til fullorðinsára. Hún fór ung sem kaupakona að Kambfelli í Djúpadal í Eyjafirði og giftist síðar Kristni Stefánssyni frá þeim bæ. Þar bjuggu þau fyrstu búskaparár sín en fluttu árið 1923 til Akureyrar og bjuggu þar saman ætíð upp frá því. Eignuðust þau fjögur böm, Jón, Stefaníu. Jóhann og Hannes. Elínborg missti mann sinn 1973 en árið 1979 flutti hún á Dalbæ, dvalarheimili aldraðra á Dalvík, meðal fyrstu íbúa heimilisins. Þar bjó hún til dauðadags en hún lést þar á heimilinu 15. október s.l. 97 ára að aldri. Elínborg var jarðsungin frá Akureyrarkirkju 26. október. 21. október lést Friðrikka Haraldsdóttir í Lambhaga á Dalvík, fyrrverandi húsfreyja á Ytra-Hvarfi. Hún verður jarðsett á Völlum laugardaginn 31. október kl. 13.30. Hennar verður minnst í næsta blaði. Jón Halldórsson skíðakaupmaður og -frömuður í Sportvík. Mynd: Hj.Hj. FRÉTTAHORNIÐ s Aþessu ári heldur Ungmenna- samband Eyjafjarðar upp á 70 ára afmæli sitt og Búnaðarsam- band Eyjafjarðar fagnar 60 ára starfsemi sömuleiðis nú í ár. Af því tilefni héldu þessi félög sameigin- lega upp á þessi tímamót þann 17. okt. s.l. með samkomu í Frey- vangi. Og því er þessarar sam- komu getið hér í blaðinu að þar var Dalvíkingurinn Jón Stefánsson frá Brúarlandi heiðraður sérstaklega af UMSE vegna áratuga ódrepandi áhuga hans á málefnum ung- mennafélaganna, bæði félagsins á Dalvík og einnig Ungmennasam- bandsins, og óeigingjams starfs í þágu þess. Skriður er að komast á stofnun hafnasamlags Dalvíkur og Ól- afsfjarðar, en það á að verða að veruleika um næstu áramót. Nú eru allar líkur á að hafnimar í Hauganesi og á Árskógssandi bæt- ist í hópinn því hreppsnefnd Árskógshrepps hefur sótt um að- ild. Hins vegar fara Hríseyingar sér hægt og segja ekkert liggja á að ákveða hvort þeir eigi erindi inn í þennan selskap. Nú er búið að ákveða að aðalstöðvar hafnasam- lagsins verði á Dalvík. Einnig er búið að ákveða framkvæmdaröð, en hana þarf að endurskoða í Ijósi þess að hafnir Árskógshrepps bæt- ast við. Samkomulag hefur náðst um ákveðna verkaskiptingu hafn- anna sent er á þá leið að Dalvíkur- höfn verður inn- og útlJutnings- höfn svæðisins, en hinar hafnimar verða fyrst og fremst fiskihafnir. Um áramót verða hafnarsjóðimir sameinaðir í eitt fyrirtæki og ætti með því að nást fram talsverð hagræðing og spamaður auk þess sem hægara verður að skipuleggja framkvæmdir við hafnimar fjórar (eða fimm). Kirkjukór Dalvíkur heldur tón- leika í Dómkirkjunni í Reykjavík kl. 17 laugardaginn 7. nóvember nk. Tónleikamir eru lið- ur í árlegum tónlistardögum Dóm- kirkjunnar. Kórinn er með þessu að endurgjalda heimsókn Dóm- kórsins til Dalvíkur sl. vor þar sem hann hélt tónleika. Góð tengsl eru milli þessara tveggja kóra sem helgast af því að kórstjóri Kirkju- kórsins, Hlín Torfadóttir, og fjórir kórfélagar hafa sungið með Dóm- kómum. Leikfélag Dalvíkur hélt aðal- fund sinn á haustdögum og var hann ágætlega sóttur. Þar kom fram að hagur félagsins er góður, enda var mikil aðsókn að sýningu þess á Rjúkandi ráði sl. vor. Hana sáu um 1.200 manns sem samsvar- ar 80% íbúa Dalvíkur. Var það raunar í takt við aðrar aðsóknartöl- ur hjá leikfélögunum við Eyjafjörð á síðasta leikári. Ekki hefur enn verið tekin ákvörðun um vetrar- starf LD eða hvaða leikrit verður ráðist í að setja upp. Við stjómar- kjör gekk Guðlaug Bjömsdóttir úr stjóm að eigin ósk en hún hefur verið formaður félagsins undanfar- in sjö ár. I hennar stað var kjörinn Kristján E. Hjartarson á Tjörn, en hann er ekki alveg reynslulaus í formannsstarfinu. Undanfarin misseri hefur verið til umræðu að stofna listvina- félag við utanverðan Eyjafjörð. Upphaf þeirra umræðna má rekja til lélegrar aðsóknar að nokkrum listviðburðum, en eftir það voru margir famir að óttast að listamenn myndu sniðganga þetta menning- arsnauða svæði framvegis. Nú er þetta félag að verða að veruleika og verður stofnfundur þess haldinn í Tjamarborg á Ólafsfirði 21. nóv- ember nk. I tengslum við félags- stofnunina verður efnt til nokkurra tónleika þar sem fram kemur lista- fólk úr héraði og öðrum plássum. Við segjum nánar frá þessu fram- taki í næsta blaði. Nýr forstöðumaður hefur verið ráðinn til Dalbæjar, en staðan var auglýst í sumar eftir að Halldór Guðmundsson sagði stöðunni lausri. I hans stað var ráðin Guð- björg Vignisdóttir frá Akureyri, en hún hefur starfað sem skrifstofu- stjóri við öldrunardeild Akureyrar- bæjar. Guðbjörg tekur til starfa um næstu áramót. Snorri Snorrason útgerðarmaður og skipstjóri hefur selt bát sinn Þór EA til Hafnarfjarðar, án kvóta. Nýi togarinn hans sem keyptur var frá Höfn í Homafirði í sumar heitir nú Baldur EA og er þar með til lykta leidd deila Snorra og Land- helgisgæslunnar um skipsnöfnin Þór og Baldur. Snorri heldur Baldri en Gæslan endurheimtir Þór. Stóðrf.tt á TungurÉtt er uröin fastur liður í fjölbreyttu athafnalíti hausts- ins í Svarfaðardal. Réttað var fyrstu helgina í október og kom fjöldi manns á réttina að fylgjast með. Meðal annarra mæðgurnar Þórunn Þórðardóttir og Birna Willardsdóttir. Mynd: Hj.Hj. Byssur sem framleiða snjó - Jón Halldórsson vill flytja inn snjóbyssur til að koma í veg fyrir að snjóleysi hamli skíðaiðkun einn veturinn enn Þeir menn eru til, og fer fjölg- andi, sem ekki tlnnst Svarfað- ardalur nógu snjóþungur. Eftir að flytja varð skíðalandsmótið til Akureyrar sl. vor vegna snjóleysis sáu þessir áhuga- menn um skíðaiðkun að við svo búið mátti ekki standa. Og nú í nóvember er væntanlegur til Dalvíkur sérastakur búnaður til að framleiða snjó. Það er Jón Halldórsson kaup- maður í Sportvík og einn af for- ystumönnum Skíðafélags Dalvíkur sem stendur fyrir því að flytja hingað til lands tvær snjóbyssur. Önnur verður sett upp í Böggvis- staðafjalli, en hin suður í Reykja- vík. Getur svo hver sem er fengið að skoða og prófa framleiðsluna. Byssumar eru frá Svíþjóð og eru hin mestu þing. Þær eyða geysimiklu vatni því þegar fullur kraftur er á þeim renna í gegnum þær 500 lítrar á mínútu. Jón hefur fengið vilyrði frá Dalvíkurbæ um frítt vatn í tilraunaframleiðsluna. Svona líta þær út snjóbyssurnar sem Jón Halldórsson fær í haust. Þessar tvær byssur eru einungis til sýnis og verða sendar aftur út að því loknu. Hins vegar kostar hver byssa um tvær milljónir króna að viðbættum virðisaukaskatti og á þá eftir að koma upp ýmsum hjálpar- búnaði. - En hver er þörfin fyrir þessar byssur, Jón? „Hún er brýn. Við erunt búin að leggja 50-60 milljónir króna í skíðasvæðið og verðum því að geta rekið það með sæmilegu ör- yggi. Það þýðir ekkert að bíða eftir snjónum. Erlendis þykja svona byssur sjálfsagður búnaður á skíðasvæðum, meira að segja í Austurríki og Sviss þar sem mætti ætla að nægur væri snjórinn. Jafn- vel þótt snjór sé mikill á svæðinu eigum við alltaf í vandræðum með ákveðna bletti. Við þurfum að verja fé og tíma og slíta út tækjum til að koma snjó á þessa bletti, en það yrði miklu auðveldara með byssunum,” segir Jón. Þess má geta að á síðasta vetri voru þeir dagar teljandi sem hægt var að vera á skíðum í fjallinu og næstu tvo vetur þar áður féllu úr langir kaflar. Það má því segja að skíðasvæðið hafi ekki nýst dal- vísku skíðafólki nema í rúma ein vertíð samanlagt síðustu þrjá vetur. -ÞH

x

Norðurslóð

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Norðurslóð
https://timarit.is/publication/1253

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.