Norðurslóð


Norðurslóð - 15.12.1993, Blaðsíða 3

Norðurslóð - 15.12.1993, Blaðsíða 3
NORÐURSLÓÐ —3 Dalvík: Ahaldahúsinu lokað, verkefnin boðin út - Leiðir til betri nýtingar fjármuna og styrkir verktakana í bænum, segir Kristján Pór Júlíusson bæjarstjóri - Þremur mönnum sagt upp og fimm færðir til í starfi Um síðustu mánaðamót urðu þau tíðindi að starfsemi áhalda- húss Dalvíkurbæjar var hætt í þeirri mynd sem verið hefur. Tæki og vélar hússins hafa verið auglýst til sölu og starfsmönnun- um sex verið sagt upp eða fengin önnur störf. Þjónustunni sem áhaldahúsið sinnti verður þó áfram haldið uppi, en með öðr- um hætti. Þegar þessi ákvörðun var til- kynnt í lok nóvember þótti mörg- um hana bera brátt að. Því er Kristján Þór Jdlíusson bæjarstjóri ekki sammála. Ákvörðunin hafi í raun verið tekin í febrúar sl. „Þá samþykkti bæjarstjóm sam- hljóða fjárhagsáætlun bæjarins ásamt rekstrarmarkmiðum sem bæjarráð hafði lagt til. Eitt þeirra var að selja vélar og tæki áhalda- hdssins og endurskipuleggja starf- semi þess í því augnamiði að auka kaup á þjónustu af verktökum. Helstu rökin fyrir því að leggja áhaldahdsið niður í þeirri mynd sem það var efu einkum tvenns- konar. I fyrsta lagi þau að hér á Dalvík séu nógu margir og öflugir verktakar og vinnuvélaeigendur sem geta og vilja yfirtaka þessi verkefni. Hins vegar teljum við að þetta leiði til betri nýtingar fjár- magns og styrki starfsemi verktak- anna í bænum. Með því móti sé Áhaldahdsið var til hdsa í syðsta hluta þessarar byggingar við Gunnarsbraut. Þar fyrir norðan eru slökkvibíll og sjdkrabíll geymdir ogá bærinn einnig þann hluta. Enn hefur ekki verið tekin ákvörðun um ráðstöfun hússins. Mynd:-ÞH Nýi Baldur á heimleið Nýi rækjutogarinn sem Snorri Snorrason festi kaup á í haust lagði úr höfn í Stettin í Póllandi sl. föstudag áleiðis heim. Skipið hafði viðkomu í Kaupmannahöfn um helgina en er nú á heimleið yfir Atl- antsála og er væntanlega til Dalvíkur um næstu helgi. Nýja skipið er475 rdmlestir að stærð og 45,3 metrar að lengd, smíðað í Noregi árið 1978. Það var áður gert dt frá Grænlandi. í því er 1.500 hest- afla aðalvél og vélar til vinnslu og frystingar á rækju. Baldur EA-71 hefur nd ver- ið seldur og er á leið til Nýja- Sjálands. Nýja skipið ber heitið Baldur EA-108. -ÞH heildarhagmuna bæjarbda best manns gætt. Eg er ekki sammála því að þetta hafi „brostið á“. Ákvörðunin hefur legið fyrir mestallt árið og við höfum rætt þetta við starfsmenn áhaldahdssins. Hins vegar er ekk- ert óeðlilegt við það að mönnum bregði þegar ákvörðunin er tekin og henni fylgt eftir.“ Þjónustan verður óbreytt Bæjarbdar hafa rætt það sín á milli hver muni nu sinna þeim verkefn- um sem áhaldahdsið sinnti, ekki síst ýmissi bráðaþjónustu. Hvað nd, ef það springur holræsi, þarf þá að bjóða viðgerðina dt og bíða eftir að fjórir verktakar skili tilboðum áður en hægt er að gera við? „Nei, það er misskilningur að til standi að hætta að veita þessa þjónustu. Hdn verður veitt áfram, en með öðrum hætti. Þessum sömu verkefnum verður sinnt áfram, en væntanlega með betri og hag- kvæmari hætti. Það verður skipt við verktaka á almennum markaði og gerðar auknar kröfur til for- stöðumanna stofnana bæjarins um að þeir beri meiri ábyrgð á verk- efnum sínum. Við.færum tvo starfsmenn til veitnanna svo þar verða fimm starfi, ma. við að sinna bráðaþjónustu þar sem það á við. Einnig verða gerðir samningar við verktaka um að sinna slíkri þjón- ustu fyrir tiltekið einingaverð. Raunar er þegar bdið að kalla eftir tilboðum frá verktökum og samn- ingagerð að hefjast. Það þarf því ekki að efna til dtboðs ef holræsi springur heldur munu ýmist starfs- menn veitnanna eða verktakar bregðast við, það fer eftir aðstæð- um og ákvörðun forstöðumanna stofnana hvemig brugðist verður við hverju sinni. Eins hef ég orðið var við það að sumir halda að þessi breyting hafi einhver áhrif á snjómokstur í bæn- um. Svo er alls ekki. Við höfum verið með fasta samninga við verktaka um snjómokstur undan- farin fjögur ár og þeir samningar verða nd endumýjaðir.“ Úttekt á tæknideild Þessi breyting mun væntanlega hafa í för með sér meiri vinnu fyrir tæknideildina. Þær raddir hafa heyrst að fyrst verið var að endur- skoða rekstur áhaldahdssins hefði verið réttast að endurskoða alla starfsemi sem undir tæknideildina heyrir. Stóð það aldrei til? „Jd, það þarf að.endurskoða allt sem lýtur að verklegum fram- kvæmdum bæjarins. Og er raunar verið að því. Við höfum beðið fyr- irtækið sem gerði dttekt á áhalda- hdsinu, Rekstur og ráðgjöf, að gera dttekt á tæknideildinni, yinnu- skipulagi og tengslum hennar við áhaldahds/veitur og aðrar stofnanir bæjarins. Eg á von á því að sd dt- tekt verði tilbdin fyrir jól. Mitt sjónarmið er það að þegar ákveðið hefur verið að grípa til að- gerða af þessu tagi sé rétt að bregðast skjótt við. Þama er oft um viðkvæma hluti að ræða og því best fyrir alla að málin gangi fljótt fyrir sig,“ segir Kristján. Húsið ekki selt strax Eins og margir hafa eflaust tekið eftir hafa tæki og vélar áhaldahdss- ins verið auglýst til sölu og eiga tilboð að hafa borist bæjarskrif- stofunum í dag, 15. desember. Segir bæjarstjórinn að nokkuð hafi verið spurt um tækin. Hins vegar er ekki komið á dagskrá enn að selja hdsnæðið sem áhaldahdsið hefur verið í. Verður það skoðað seinna og þá í samhengi við slökkviliðið og sjdkrabílinn sem eru í sama hdsi. Áður en breyting varð á rekstri áhaldahdssins störfuðu þar sex manns, þrír fastráðnir og þrír laus- ráðnir. Auk þess störfuðu tveir fastráðnir menn hjá veitunum. Ein- um þeirra lausráðnu var boðið starf hjá veitunum, en hinum tveim var sagt upp með venjulegum fyrir- vara og þeir beðnir að vinna dt uppsagnarfrestinn. Um þá fastráðnu er það að segja að starf vélaviðgerðarmanns var lagt niður og viðkomandi settur á biðlaun í sex mánuði. Hinir fjórir tóku allir boði um breytt starf eða sambærilegt. Þess má geta að Ingvar Kristinsson bæjarverkstjóri var ráðinn í starf hdsnæðisfulltrda Dalvíkurbæjar. -ÞH Geisladiskur Karlakórs Dalvíkur: Til sölu hjá Svarfdælinga- samtökunumum syðra Geisladiskurinn og snældan með söng Karlakórs Dalvíkur hefur að sögn aðstandenda selst ágæt- lega. Hafa sölumenn gengið með hann í hús og víðast hvar verið tekið fagnandi. Ekki er ólfklegt að brottfluttir Svarfdælingar margir hafi hug á að eignast diskinn eða snælduna. Hér er á ferðinni aldeilis upplögð jóla- gjöf bæði til að gefa og þiggja. En þar sem gripir þessir eru ekki til sölu á hinum almenna markaði skal lesendum á höfuðborgarsvæð- inu, þeim sem áhuga hafa, bent á að hafa samband við Atla Rafn Kristinsson, Stefán Amgrímsson eða Siguriínu Steinsdóttur stjóm- armenn Svarfdælingasamtakanna. hjhj Innilegar þakkir til allra þeirra sem glöddu okkur meö heimsóknum, gjöfum og heillaóskum á afmæli okkar 20. nóvember sl. Lifið heil. Árni Steingrímsson Ingvörum Eiður Steingrímsson Dalvík Sæplast h/f: Verðlaun fyrir gott starfsumhverfi - Veltuaukning á yfirstandandi ári Á næsta ári verður Sæplast h/f tíu ára. Eins og menn rekur minni til var rekstur fyrirtækis með sama nafni keyptur og flutt- ur hingað norður. Það er mikið vatn runnið til sjávar síðan þá og fyrirtækið sem átti í ýmsum örð- ugleikum í byrjun orðið að fyrir- myndarfyrirtæki á ýmsum svið- um. Nú fyrir skömmu var Sæ- plasti h/f veitt viðurkennig fyrir gott starfsumhverfi. Það var fé- lagsmálaráðherra sem afhenti forsvarsmönnum fyrirtækja við- urkenninguna í hófi 26. nóvem- ber s.I. Vinnueftirlit ríkisns, Lands- samband iðnverkafólks og Félag íslenskra iðnrekenda mynduðu samstarfsnefnd árið 1991 til að undirbda dttekt á starfsumhverfi í verksmiðjuiðnaði og fylgjast með framvindu hennar. Uttektin var framkvæmd af Vinnueftirlitinu og miðaði í senn að því að kanna ástand vinnustaða í matvæla-, vefj- ar- og efnaiðnaði og bæta það. Hdn náði til samtals 130 fyrirtækja með 2.700 starfsmenn. Eftir að niður- stöður höfðu verið dregnar saman og gefnar dt í skýrslu ákvað sam- starfsnefndin að veita viðurkenn- ingu einu fyrirtæki í hverri Jteirra greina sem dttektin náði til. I efna- iðnaði var það Sæplast h/f sem hlaut viðurkenninguna. Jóhanna SigurOardóttir félagsmálaráðherra afhendir Kristjáni Aðalsteins- syni framkvæmdastjóra Sæplasts h/f viðurkenningu fyrir gott starfsum- hverfi. En það er á fleiri sviðum sem Sæplasti gengur allt í haginn. Reksturinn á þessu ári hefur geng- ið vel. Að sögn framkvæmdastjór- ans Kristjáns Aðalsteinssonar verður nokkur veltuaukning á þessu ári frá síðasta ári. Sala á framleiðslu fyrirtækisins hefur gengið betur en menn höfðu þorað að vona. Það hefur verið unnið á vöktum allt árið allan sólahringinn 5 daga vikunnar. Hefðbundnir markaðir eins og Danmörk hafa reynst fyrirtækinu hagstæðir og einnig hafa ýmsir nýir markaðir, sumir í fjarlægum heimsálfum, verið að bætast við. Framleiðsla á fiskkerjum er svipuð og á síðasta ári en aukning hefur orðið í sölu á trollkdlum og rotþróm. Á sjávardtvegssýning- unni í Reykjavík í haust kynnti fyrirtækið nýja gerð af kerjum sem á eftir að valda straumhvörfum í þessari framleiðslu. Þessa nýjung hefur Sæplast h/f verið að þróa í samvinnu við hollenskt fyrirtæki og verður nýja kerið sett á markað á næsta ári. J.A.

x

Norðurslóð

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Norðurslóð
https://timarit.is/publication/1253

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.