Norðurslóð - 15.12.1993, Qupperneq 24
Gröfukálfur Þegar blaðamaður var á ferð frammi á
Hæringsstöðum á dögunum varð hann vitni að þessum nýtískulegu
vinnubrögðum við að „stinga út“. Verkfærið er einskonar
vasaútgáfa af skurðgröfu og gæti heitið gröfukálfur á íslensku.
Kálfurinn á þó ekki eftir að taka út frekari vöxt. Að sögn Magnúsar
Guðmundssonar stjórnanda og eiganda gröfunnar er hún einkar
handhæg þar sem olnbogarými er takmarkaö og kemst td. inn í
fjárhúskrær þó breidd þeirra sé lítiö ytir einn metra.
Mynd: hjhj
TímamóT
Skírn
28. nóvember var Jenný skírð í Dalvíkurkirkju. Foreldrar hennar
eru Birgitta Níelsdóttir og Gunnar Gunnarsson, Drafnarbraut 2,
Dalvík. Prestur var sr. Svavar A. Jónsson.
Ingibjörg Valde-
marsdóttir, Brim-
nesbraut 39 varð
75 ára 6. desember
sl.
Guðrún Krist-
insdóttir, Skíða-
braut 6, varð 80
ára 13. desember
sl.
Friðleifur Sig-
urðsson, Karls-
rauðalorgi 14,
verður 80 ára 30.
des. nk.
Norðurslóð ámar heilla,
A ðfangadagskvöld.
Mynd: Lene Zachariassen
FréttahorniÐ
Nýja félagsheimilið á Húsa-
bakka þokast hægt og örugg-
lega upp úr jörðinni. Nú er búið
að steypa alla veggi og komið þak
á stóran hluta hússins. Smiðir
voru í óða önn að reisa sperrur úr
límtré þegar blaðamaður heimsólti
þá nú um mánaðamótin.
Tréverksmönnum hefur gengið
vel að halda áætlun enda hefur
veðrið verið með þeim hætti að
ómögulegt hefur verið að láta það
tefja sig. Stefnt er að því að koma
öllu húsinu undir þak fyrir jól. Þá
tekur innivinnan við og þá má
hann snjóa eins og hann lystir.
Og meira af húsbyggingum í
sveitinni. Það heyrir jafnan til
tíðinda þegar byggð eru ný íbúð-
arhús í Svarfaðardal. Nú stefnir
allt í það að tvenn hjón flytji inn í
nýbyggð hús sín fyrir jólin.
Annars vegar eru það ungu hjónin
á Bakka; þau Þór Ingvason og
Kristín Gunnþórsdóttir sem nú
eru að ljúka við smíði íbúðarhúss
heima á Bakka. Hins vegar eru
það svo Björn Daníelsson og
Fjóla Guðmundsdóttir á Húsa-
bakka sem flytja sig upp fyrir
þjóðveginn í nýbýiið Lauga-
brekku.
Og í framhaldi af þessu er
freistandi að slúðra dálítið,
því heyrst hefur að ýmsir séu
farnir að renna hýru auga til
byggingarlóða í landi Laugahlíðar
sem Svarfaðardalshreppur á.
Einkum þykir mörgum Dalvík-
ingum þar vænlegt undir bú og
setja ekki fyrir sig 5 km keyrslu í
vinnuna þegar vegurinn er orðinn
eins góður og raun ber vitni.
/
Iveðurblíðunni í síðasta mánuði
unnu þungavinnuvélar Steypu-
stöðvarinnar að lagfæringu á veg-
arslóðanum að Stekkjarhúsum í
Skíðadal. Eins og kunnugt er ligg-
ur frumstæður jeppavegur frá
Kóngsstöðum fram^að afréttar-
girðingu. Er hann einkum notaður
til fjárflutninga og hefur oft verið
erfiður yfirferðar, einkum í væt-
utíð. Vegurinn var allur sléttaður
og færður ofar á versta kaflanum.
Einnig voru sett ræsi þar sem þess
þurfti og mokað upp mala-
rhaugum sem stefnt er að að bera
ofan í veginn þegar skilyrði verða
til þess. Verkið var fjármagnað
með úthlutun úr Reiðvegasjóði
sem hestamannafélagið Hringur
fékk á árinu, og að hluta til úr
Fjalivegasjóði.
Kirkjukór Dalvíkurkirkju var
með kaffisölu í safnaðarheim-
ilinu fyrsta sunnudag í aðventu.
Þar söng kórinn nokkur jólalög
undir stjórn Hlínar Torfadóttur.
Kórinn er að búa sig undir söng-
ferð til Skotlands næsta vor, en
þar í landi dveljast tveir ágætir
söngkraftar við framhaldsnám,
prestshjónin á Dalvík. Fyrirhugað
er að halda fleiri fjáröflunar-
samkomur á borð við þessa eftir
áramót, enda kostar það sitt að
fara með stóran hóp af fólki milli
landa. Já, og vel á minnst, það
vantar bassa í kórinn!
Félagsheimilið rís úr jörðu, en fyrstir til að stíga þar á svið voru að
sjálfsögðu smiðirnir. F.v.: Porgils Gunnþórsson, Þórólfur Jónsson, Guðni
Þór Ragnarsson, Sigurður Bjarni Sigurðsson og Þorsteinn Hólm Stefánsson.
Yfirsmiður verksins er Guðmundur Ingvason er liann var fjarverandi þegar
blaðamann bar að garði. Myndir: hjhj
Ja, ÞVÍLÍK EINMUNABLÍÐA í skammdeginu. Blaðamaður Norðurslóðar
hitti fyrir þá feðgana Anton Gunnlaugsson og Sigurð Antonsson á Arnar-
holtsvelli í byrjun jólaföstu. Voru þeir þar ásamt fleirum að spila golf í
skammdegisblíðunni og létu vel af aðstæðunum þó völlurinn væri nokkuð
harðari en þegar best lætur. Mynd: hjhj
—
Til lesenda
Norðurslóð sendir vinum og
vandamönnum um land allt
bestu óskir um
gleðileg jól
og gæfuríkt komandi ár
með pakklæti fyrir samskiptin
á liðnum árum
V________________