Norðurslóð


Norðurslóð - 23.06.1994, Page 5

Norðurslóð - 23.06.1994, Page 5
NORÐURSLÓÐ —5 Dalvík Líkamsræktin nýtur vinsælda - 183 toku þátt í Kvennahlaupinu á Dalvík Það er greinilega vakning í gangi á Dalvík og í Svarfaðardal . Það sést þegar könnuð er þátttaka fólks í íþróttum og almennri lík- amsrækt. Fjöldi manns stundar reglulega íþróttir og leikfimi og þátttaka í Kvennahlaupi ISI vex ár frá ári. I ár tóku 183 konur þátt í Kvennahlaupinu á Dalvík, en það fór raunar fram um allt land á kvennadaginn 19. júní. Hlaupinn var 2ja km hringur í bænum og voru þær allmargar sem fóru tvo hringi. Hraðanum réð hver fyrir sig að sjálfsögðu, en allar sem luku hringnum fengu að launum bol og verðlaunapening, auk þess sem þær fengu líka ávaxtasafa þegar þær kontu í mark. Að sögn Helgu Níelsdóttur var heilmikið fjör og gaman í Kvenna- hlaupinu í ár, enda fer áhuginn á því vaxandi. I fyrra urðu þátttak- endur 150 áður en yfir lauk svo aukningin er rúmlega 20%. Kvennahlaupið er skipulagt af átakinu Iþróttir fyrir alla sem starf- ar á vegum Iþróttasambands Is- lands. Hér á Dalvík eru það konur í blakliðinu Rimum sem bera hitann og þungann af skipulagningunni, en það félag dregur að sjálfsögðu nafn sitt af sama fjalli og útgáfufé- lag Norðurslóðar. Helmings fjölgun í útileikfiininni Kannski á það sinn þátt í aukinni þátttöku í Kvennahlaupinu að hér á Dalvík var í fyrsta sinn í fyrra efnt til útileikfimi fyrir þá sem eldri eru en 25 ára. Leikurinn sá er endur- tekinn í ár og að sögn Dagnýjar Harðardóttur eru þátttakendur allt að helmingi fleiri en í fyrra. Dagný segir að áhuginn sé mik- ill og skráðir þátttakendur alls 57 talsins, þótt ekki mæti allir í einu. Yfirleitt eru rúnrlega 30 manns á hverri æfingu. Bæði kynin eiga þama fulltrúa þótt konur séu nokk- uð fjölmennari en karlar. Fólkið er á öllurn aldri, allt frá tvítugu upp fyrir fimmtugt. Leikfimiæfingarnar fara fram á grasvellinum og standa frá kl. 18- 19 á mánudögum, miðvikudögum og föstudögum. Það er UMFS Dal- vík sem stendur fyrir þessunt æf- ingum en þjálfari er Olafur Osk- arsson. Og þá er bara að taka fram æf- ingaskóna og skella sér í gallann. Undirritaður er að vísu sérfræðing- ur í því að koma sér undan því að taka þált. en er samt alltaf á leið- inni. -ÞH Auglýsing Nýsköpun í smáiönaöi lönaöarráöuneytiö áformar í samstarfi viö lön- tæknistofnun Islands, Byggöastofnun og at- vinnuráðgjafa út um land aö veita styrki, þeim sem hyggjast efna til nýsköpunar í smáiðnaði. Styrkirnir eru fyrst og fremst ætlaðir til þess aö greiða fyrir tæknilegum undirbúningi, hönnun, framleiðsluundirbúningi svo og markaössetningu nýrra afurða. Þeir eru ætlaöir þeim, sem hafa þegar skýrt mótuö áform um slíka starfsemi og leggja í hana eigiö áhættufé. Umsækjendur snúi sér til iðn- og atvinnuráðgjafa eöa löntæknistofnunar íslands þar sem umsókn- areyöublöö liggja frammi. Umsóknarfrestur er til 30. júnín.k. Bréf frá Borgá Norðurslóð barst ekki alls fvr- ir löngu þakkarbréf frá Nátt- úrufræðiklúbbum skólanna í Borgá í Finnlandi sem blaðið var beðið uin að koma á fram- færi við alla þá sem greiddu götu þeirra í heimsókn þeirra hingað til okkar í fyrra. Til vina okkar í Svarfaðardal og Dalvík Senn er liðið eitt ár síðan Nátt- úrufræðiklúbbur skólanna í Borgá fór í hinn mikla íslands- leiðangur sinn. Hjá ykkur fengum við stór- kostlegar móttökur, við mættum vinarþeli og fengum alla þá hjálp við skipulagningu sem hægt er að óska sér varðandi húsnæði, upplýsingar og skemmtilegar frístundir. Við munum aldrei gleyma gestrisni ykkar og hjálpsemi. Við gleym- um heldur ekki hestunum, hund- unum, fuglunum eða fiskunum og ekki heldur grænkandi daln- um góða milli snævi þakinna fjallanna. Mörg okkar vilja gjaman koma aftur. Hjartans þakkir og hlýjar kveðjur frá Borgá í suður Finn- landi. Anita Rosengren og allir náttúrufræðingarnir. Asamt með þessu bréfi fylgdi skýrsla um ferðalagið skrifuð af nemendum og birtum við til gamans lauslega þýðingu á ein- um kafla. ...Hvað viðvíkur íslandi ber Dalvík hæst sem raunverulegur vinabær. Þar búa sannir vinir. Einn þessara Dalvíkinga býr Þannig Iítur merki náttúrunnend anna í Borgá út. reyndar í Borgá. Það er Sigur- björg Arnadóttir, eða Sibba, sem var okkar helsti ráðgjafi varð- andi Islandsþátt ferðarinnar. Kunningjahópur hennar virðist spanna allt landið og margir vina hennar tóku þátt í skipu- lagningunni af lífi og sál. Sibba mælti með gamla skólanum sínunt, Húsabakkaskóla í Svarf- aðardal, sem gististað. Rektor Helga í skólanum tók við okkur og útvegaði mat og ótakmörkuð afnot af heitu uppsprettuvatni sundskálans. Helga sá jafnvel til þess að koma okkur á fyrirtaks hestasýningu. A Dalvík átturn við hauk í horni sem var Sveinbjörn Stein- grímsson. Eins og venjulega tók hann okkur Borgábúa upp á arma sína, sýndi okkur fyrst heimabyggð sína og kom því til leiðar að við fengum að heim- sækja bæði fiskiðjuver og nú- tímalega risatogarann Björgvin. Þetta tókst þrátt fyrir að mikið væri að gera á báðunt stöðunt. Sveinbjörn fór líka með okkur í byggðasafnið á Dalvík og var með svör á reiðum höndum við hvers konar spumingum... Svarfdœlabúö Dolvík Muníð Lukkupottinn Nlazola' é’jnhnson '2 íavAzza < Aíri' i si’Kisso Success &UAB ANIKD b l.A.i NEWMAN’S OWN briHo Okkel. Ælestial Seasonings “The NQl Herb Tea in the U.S.A.” ^ Glade Þrír vagnar fullir af allskyns vörum dregnir út 1. júlí verður dregið út nafn heppins kaupanda sem hlýtur ÖrbylgjUOÍn í vinning

x

Norðurslóð

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Norðurslóð
https://timarit.is/publication/1253

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.