Norðurslóð - 23.06.1994, Blaðsíða 6
6 — NORÐURSLOÐ
Samstarfssamningur I og B lista
- í bæjarstjórn Dalvíkur, kjörtímabilið 1994-1998
Fulltrúar I og B lista hafa, á
eftirfarandi grundvelli, ákveðið
að hafa með sér samstarf á
kjörtímabilinu 1994-1998.
• Reglugerð um Atvinnuþróunar-
sjóð verði endurskoðuð með
það að markmiði að sjóðurinn
verði nýttur til að efla atvinnulíf
á hverjum tíma.
• Sérstakar ráðstafanir verði gerð-
ar til að laða að ný atvinnufyrir-
tæki.
• Kannaðir verði möguleikar á
stofnun iðngarða - verkvers -
og þá jafnframt tekið tillit til
þarfa þeirra fyrir vinnu og sölu-
aðstöðu sem vinna að heimilis-
iðnaði.
• Á vegum Hafnarsamlags Eyja-
fjarðar verði unnið samkvæmt
þegar ákveðinni framkvæmda-
röð að uppbyggingu hafnanna.
Sérstök áhersla verði lögð á að
halda uppi sem bestri þjónustu.
• Markvisst verði unnið að við-
haldi húseigna bæjarins.
• Vinnutilhögun við verklegar
framkvæmdir verði tekin til
endurskoðunar.
• Unnin verði áætlun um frágang
eldri gatna og að því stefnt að
gengið verði frá nýjum götum
um leið og hafist er handa við
íbúðarhúsabyggingar við þær.
• ••
• Fundinn verði framtíðarstaður
fyrir olíubirgðastöð olíufélag-
anna.
• Gerð verði áætlun um fráveitu-
mál sem unnið verði eftir á
kjörtímabilinu þannig að frá-
gangur standist reglugerðir.
• í samráði við friðlandsnefnd og
náttúruverndarráð verði mörk
friðlands Svarfdæla betur merkt
og lífríki Hrísatjarnar verndað
með aðgerðum sem duga.
• Opin svæði verði deiliskipulögð
og unnið að frágangi þeirra.
• Unninn verði, í samvinnu við
aðila í ferðaþjónustu, kynning-
arbæklingur unt Dalvík og þá
möguleika sent ferðamönnum
bjóðast á svæðinu.
Minning
Asta Aðalsteinsdóttir
Fædd 20. júlí 1941 - Dáin 12. maí 1994
Þegar sól hækkar á lofti og fönn
leysir til Ijalla, þegar nótl verður
björt og angan gróðurs fyllir
loftið, þá lifnar von í hjörtum
mannanna, það er að koma sum-
ar. Hringing dyrabjöllunnar boð-
ar komu gests, oftast með góðar
fréttir, en nú eru tíðindin alvar-
leg. Jóhann frændi minn ber mér
þau boð að hún Ásta móðursystir
hans, væri nýlátin. Undanfarna
daga hafði ég fylgst með Ástu og
baráttu hennar við þann sjúkdóm
sem leiddi hana til dauða, því
kom fréttin mér ekki alveg á
óvart. Þó er það svo að þegar fólk
í blóma lífsins er burtu kallað,
fólk sem hefur verið fullt af lífs-
orku, þróttmikið og dugmikið
fólk, fólk sem borið hefur með
sér angan vorsins og birtu sum-
arsins, þá koma upp í hugann orð
Drottins Jesú er hann var að ræða
við Pétur, en Pétur vildi ekki
leyfa honum að þvo fætur hans.
Þá mælti Drottinn „nú skilur þú
ekki hvað ég er að gjöra, en
seinna ntuntu skilja það“.
Kynni okkar Ástu hafa varað í
mörg ár, en ráðning hennar sem
matráðskonu að Sumarheimilinu
að Ástjöm urðu til að efla kynnin.
Strax og hún hóf þau störf, varð
okkur Ijóst að þarna var kominn
starfskraftur sem fyllti upp þær
vænlingar sem við gerum til
þeirra er hjá okkur starfa að Ás-
tjörn. Hún var dugmikil ráðskona
með útsjónarsemi hinnar hagsýnu
húsmóður, hún var kokkur sem
eldaði góðan mat. En það sem
öllum féll best í geð, var hið
elskulega viðmót hennar og góða
skap. Þá varð börnunum fljólt
ljóst að hjá Ástu gátu þau alltaf
Ieitað huggunar og þeir sem
minna máttu sín l'undu hjá henni
traust. Þannig var oft á tíðum
nokkuð margt í eldhúsinu, sem
eflaust sumir hefðu amast við, en
Ástu féll þetta vel í geð. Aldrei
var kvartað yfir löngum
vinnudegi eða tilfallandi
aukaverkum, og eflaust hefur
ósérhlífni hennar orðið til þess að
fleiri verk komu á hennar hendur
en ætlunin stóð til. Það fór því
svo að fljótt voru aðalinnkaup
heimilisins jafnan borin undir
Itana. Við stjórnun á stóru
barnaheimili koma einnig upp
mörg vandamál, og fljótt lærðist
mér, að gott var að leita ráða hjá
Ástu, því næntni hennar á mann-
leg samskipti var henni svo eðli-
leg, að vandamál voru til þess að
leysa þau, ósætti til að sætta það.
Á Ástjörn byrjar hver dagur
og endar með bænastund. Það er
ekki skylda hvers starfsmanns að
mæta, en Ásta lét sig ekki vanta
þótt á hennar herðum hafi verið
mesta starf dagsins. Hún talaði
ekki mikið um trú sína, en líf
hennar allt gerði það og bar henni
fagran vitnisburð. Trú hennar og
traust á skapara sínum kom ef til
vill best í Ijós nú er hún varð að
Iúta því kalli sem við öll verðum
einhvern tfma að lúta. Bæna-
stundirnar þá og sá óttalausi svip-
ur sem hún bar, var vitnisburður
um fullvissu hennar. Við Ástirn-
ingar höfðum vænst þess að eiga
Ástu að áfram, og það hafði verið
rætt um það að hún kæmi sérstak-
lega vegna stúlknanna sem koma
í sumar. Það verður okkur erfitt
og sakna munum við vinar í stað.
Við vitum þó að söknuður fjöl-
skyldu Ástu er mikill, þróttmikil
og elskuð eiginkona, móðir og
amma hefur verið burtu kölluð,
svo ótímabært að okkur finnst.
Faðir Ástu er einnig á lífi, og veit
ég að mjög kært var með þeim,
einnig systrunum tveim og fjöl-
skyldum þeirra. Öllunt þessum
aðstandendum vottum við okkar
innilegustu samúð og biðjum
þeim Guðs blessunar.
Ásta var elsta dóttir hjónanna
Aðalsteins Óskarssonar frá
Kóngsstöðum í Skíðadal og Sig-
urlaugar Jóhannsdóttur frá
Brekkukoti í Hjaltadal. Foreldrar
hennar bjuggu þá á Ytri-Más-
stöðum í Skíðadal, en fluttu árið
1950 til Dalvíkur, og bjó Ásta þar
upp frá því. Árið 1959 giftist hún
eftirlifandi eiginmanni sínum
Hauki Haraldssyni frá Svalbarði
á Dalvík. Saman eignuðust þau 5
böm, Aðalstein, f. 29. september
1959, Kristin, f. 22. september
1962, Auði Elfu, f. 18. júní 1964,
Sigurlaugu, f. 1. apríl 1975, og
írisi Dögg, f. 4. júnf 1982. Bama-
börn þeirra eru orðin 5.
Fyrir það að Guð gaf okkur
samvistardaga með Ástu, verðum
við honum ævarandi þakklát.
Hún gerði okkur að betri mönn-
um með áhrifum sinqar heil-
næntu persónu.
Ásta mín! „Hafðu þökk fyrir
allt, friður Guðs þig leiði.“
Guð blessi minningu þína.
Bogi Pétursson
Ásta var jarðsungin frá Dalvík-
urkirkju 21. maí sl.
teknar í samvinnu við leikfélag-
ið.
• Mörkuð verði stefna í íþrótta- og
æskulýðsmálum í samráði við
viðkomandi félög.
• Fundinn verði staður fyrir mal-
arvöll í samvinnu við UMFS
Dalvík og uppbyggingu hans
lokið þegar viðbygging grunn-
skólans hefst.
• ••
• Öldruðum verði gerl kleift að
búa í heimahúsum svo lengi
sent þeir kjósa. Kannaðir verði
möguleikar á því að byggja
þægilegar leiguíbúðir i'yrir aldr-
aða og jafnframt hver þörfin er
fyrir þjónustuíbúðir.
• Lokið verði viðbyggingu við
Dalbæ árið 1994 í góðri sam-
vinnu við nágrannasveitarfé-
lögin og gengið frá umhverfi
heimilisins sem fyrst.
• Tjaldstæði verði byggt upp með
það að markmiði að unnt sé að
veila fjölbreytta ferðamanna-
þjónustu. I tengslum við það
verði litið til möguleika á bygg-
ingu orlofshúsa/heilsárshúsa.
Kannaður verði áhugi félaga-
samtaka á þátttöku í slíku.
• ••
• Stutt verði dyggilega við átakið
„Vörn fyrir börn“.
• Mótuð verði skólastefna fyrir öll
skólastig.
• Byggt verði við grunnskóla og
stefnt að einsetningu f samstarfi
við foreldra og kennara.
• Gerð verði könnun á vistunar-
rými fyrir böm í samræmi við
ný leikskólalög og málefni leik-
skólans færð til skólanefndar.
• Studdar verði tillögur um sjálf-
stæðan framhaldsskóla á Dalvík
og stefnt að því að koma honum
í varanlegt húsnæði.
• Uppbygging tónlistarskólans og
tónlistarlíf njóti stuðnings.
• Menningarmál verði vistuð í
íþrótta- og æskulýðsráði.
• Ákvarðanir um framtíð Ungó og
framkvæmdir við húsið verði
• Þrýst verði á að aukinni þörf fyr-
ir hjúkrunarrými aldraðra verði
mætt.
• Leitað verði samstarfs við önnur
sveitarfélög og stofnanir um þá
þætti félagsþjónustunnar sem
varða einstaklinga og fjölskyld-
ur.
• Leitað verði leiða til að mæta
húsnæðisþörf íbúa Dalvíkur og
þeirra sem vilja flytja til bæjar-
ins.
• Fulltrúar Dalvíkur beiti sér fyrir
því í Landssamtökum húsnæð-
isnefnda að kerfi Húsnæðis-
stofnunar verði gert skilvirkara,
einfaldara og uppgjörum hrað-
að.
• Mótuð verði skýr starfsmanna-
stefna.
• Nefndakerfi og bæjarmálasam-
þykkt verði tekin lil endurskoð-
unar.
• Forstöðumenn stofnana og
nefndir fái aukna ábyrgð.
• Skipulega verði unnið að því að
kynna íbúum Dalvíkur kosti og
galla samvinnu og/eða samein-
ingar sveitarfélaga. Samráðs-
fundir sveitarstjórnarmanna við
utanverðan Eyjatjörð verði
teknir upp að nýju.
Dalvíkurbær:
F erðamálafulltrúi
ráðinn til starfa
Ráðinn hef'ur verið ferðamála-
fulltrúi til Dalvíkurbæjar. Heitir
hann Kolbeinn Sigurbjörnsson
og er búsettur á Akureyri. Að
sögn Hannesar Garðarssonar
fráfarandi formanns ferðamála-
nefndar var ákveðið að verja
einni milljón króna til að skipu-
leggja ferðamálin á Dalvík.
Ákveðið var að ráða ferðamála-
fulltrúa í tfmabundið starf og verð-
ur helsta verkefni hans að kynna
sér hvernig starf ferðamálafulltrúa
er skipulagt annars staðar og gera
tillögur um framtíðarskipan slíks
embættis hjá Dalvíkurbæ. Hann á
einnig að vinna með hagsmunaað-
ilum í ferðaþjónustu á Dalvík að
einstökum verkefnunt, en Ijóst er
að ráðningu hans ber of seint að til
þess að hann nýtist í sumar.
Ferðamálafulltrúinn sem ráðinn
hefur verið, Kolbeinn Sigurbjörns-
son, er menntaður í Englandi á við-
skiptasviði. Hann hefur víðtæka
reynslu af ferðamálum og starfaði
lengi að markaðsmálum, bæði inn-
an lands og utan, hjá Flugleiðum.
Að sögn Hannesar hefur hann
aflað sér mikillar reynslu og getið
sér gott orð í ferðamálageiranum.
Reynslan mun einnig nýtast hon-
um vel í því að skipuleggja starf
ferðamálafulltrúa því liann þarf
ekki að byrja á byrjuninni, hann
þekkir grunninn. Kolbeinn starfar
nú hjá fyrirtækinu Sandblástur og
Málmhúðun á Akureyri og mun
sinna starfinu hér á Dalvík í
sumarleyfi sínu og sem aukavinnu
fram á haustið. Hvað svo tekur við
er óvíst því ekki er ljóst hvaða
stefnu nýi meirihlutinn tekur í
ferðamálunum.
Vonandi verður nýja fulltrúan-
unt ágengt í því að sameina kraft-
ana á Dalvík sem að ferðamálum
starfa, ekki veitir af ef við eigum
að byggja á þessari starfsgrein til
frambúðar. -ÞH