Norðurslóð


Norðurslóð - 23.06.1994, Side 8

Norðurslóð - 23.06.1994, Side 8
TímamóT Skírnir Þann 1. maí var skírður í Dalvíkurkirkju H jörvar Óli, fæddur 5. apríl. Foreldrar hans eru Guðný Sigríður Ólafsdóttir og Sigurður Jörgen Óskarsson, Hjarðarslóð 3a, Dalvík. 22. maí var skírð í Dalvíkurkirkju Sonja Kristín, fædd 7. apríl. Foreldrar hennar eru Hólmfríður Guðlaug Jónsdóttir og Guðmund- ur Jóhann Kristjánsson, Reynihólum 6f, Dalvík. 23. maí var skírð í Dalvíkurkirkju Unnur, fædd 5. maí. Foreldrar hennar eru Guðrún Þorsteinsdóttir og Stefán Svanur Gunnarsson, Efstakoti, Dalvik. 4. júní var skírð í Dalvíkutkirkju Kristín, fædd 9. febrúar. Foreldrar hennar eru Ester Margrét Ottósdóttir og Valur Björgvin Júlíusson, Reynihólum 9, Dalvík. 4. júní var skírður í Dalvfkurkirkju Gunnar Þór, fæddur 27. des- ember. Foreldrar hans eru Sif Sigmundsdóttir og Róbert Viðar Lár- usson, Skógarhólum 29a, Dalvík. 5. júní var skírð í Dalvíkurkirkju Sjöfn Særún, fædd 25. febrúar. Foreldrar hennar eru Snæborg Ragna Jónatansdóttir og Kristján Eldjárn Jónsson, Hjarðarslóð 6f, Dalvík. 5. júní voru skírðir í Dalvíkurkirkju tvíburarnir Gyða og Björn, fædd 21. mars. Foreldrar þeirra eru Helga Ester Snorradóttir og Jó- hannes Kristján Bjömsson, Karlsbraut 12, Dalvík. 5. júní var skírður í Dalvíkurkirkju Björgvin Theodór, fæddur 14. maí. Foreldrar hans eru Eva Björg Guðmundsdóttir og Örn Heiðar Sveinsson, Reynihólum 2, Dalvík. 17. júní var skírður í Dalvíkurkirkju Jón Ingi, fæddur 30. maí. For- eldrar hans eru Ingunn Bragadóttir og Óli Þór Jóhannsson, Lyng- hólum 2, Dalvík. Hjónavígsla Þann 4. júní voru gefin saman í Dalvíkurkirkju Róbert Viðar Lár- usson og Sif Sigmundsdóttir, til heimilis að Skógarhólum 29a, Dalvík. Prestur við ofangreindar athafnir var Svavar A. Jónsson. Afmæli 20. maí sl. varð 70 ára María Arngrímsdóttir, Hreiðarsstaðakoti. Norðurslóð árnar heilla. Andlát Þann 18. júní lést á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri Dýrleif Arnadóttir læknisfrú í Argerði. Hennar verður minnst í næsta blaði. 30. maí sl. varð 75 ára Kristín Þórs- dóttir, Bakka. Nykurinn lifir Daginn fyrir lýðveldisafmæl- ið, þ.e. snemma dags 16. júní brast snjóstífla frainan við Nykurtjörnina og vatnið steyptist niður hlíðina og eftir Grundargili niður í Svarfað- ardalsá. Vatnið var kolmó- rautt af leir, seni litaði alla ána og myndaði mórauðan flekk á sjónum, allt austur að Hálshöfða. Þetta lilaup í Grundarlæk mun ekki hafa verið nteð þeim stærri enda gerði það ekki skaða á landi eða mannvirjum. Auð- sætt var þó, að ekki þyrl'ti tnikið meira vatnsmagn til að taka sundur þjóðveginn. En það varð sem sé ekki t þetta sinn og gott er það. Á hinn bóginn er líka gott að vita til þess, að enn býr nykurinn í tjörninni sinni og sendir við og við kveðju sína til manna- byggða. HEÞ FréttahorniÐ spyrnu og fara þrír leikir fram hér á Mikill hasar hefur verið vegna veiða íslensku skipanna í Smugunni og öðrum svæðum sem Norðmenn telja sig hafa einskonar lögsögu yfir. Bliki EA hefur verið mikið í fréttum vegna þessa og virðist svo sem Norsurunum sé rneira uppsigað við Blikamenn en aðra. Norðurslóð hefur fréttaritara um borð í Blika sem lýsti því með- al annars þegar Norðmennirnir settu sjálfa sig í hættu daginn eftir þjóðhátíðina. Þá kom einnig fram að þeir reyndu að setja tóg eða ein- hverskonar spotta í skrúfuna á Blika. Við skulum vona að öll joessi barátta endi vel og ekki hljót- ist skaði af. Björgúlfur EA kom nú um helg- ina úr mikilli klössun. Skipið var allt sandblásið ofandekks og utan auk þess var fiskimóttakan og ofurlítið af vinnsludekkinu sand- blásið. Ymislegt smálegt var gert þar fyrir utan en verkið var unnið í Slippstöðinni á Akureyri. Skipið leit sérstaklega vel út nýmálað eftir þessar aðgerðir enda voru þeir Ut- gerðarfélagsmenn afar ánægðir með verkið. I Slippstöðinni er ver- ið að setja niður lausfrysti í Baldur EA og lýkur því verki nú í byrjun vikunnar. Nýja sundlaugin er nú að verða fullbúin og þótt Arnar Snorra- son tæknifræðingur hjá Dalvíkur- bæ hafi ekki fengist til að nefna til- tekna dagsetningu sagði hann að laugin yrði vonandi tilbúin í ágúst, en hann gæti þó lofað því að menn gætu skolað af sér rykið eftir rétt- arball í nýrri og glæsilegri sund- laug. Nú er verið að ganga frá neðri hæð sundlaugarhússins, koma þar fyrir sturtum og öðrum hrein- lætistækjum. Það sem rekur á eftir er að í næstu viku verður haldið Norðurlandamót stúlkna í knatt- Dalvík á þriðjudaginn kemur. Er mikill áhugi fyrir því að stúlkumar geti skipt unr föt og skolað af sér svitann í nýjum búningsklefa sundlaugarinnar. Aefri hæðinni er verið að flísa- leggja og setja niöur hreinlæt- istæki, en utandyra eru það lagnir fyrir hreinsibúnað og frárennsli sem unnið er að. Eftir er að flísa- leggja sjálfa laugina, en það verk tafðist nokkuð vegna þess að flís- arnar komu ekki í tæka tíð. Inn- flytjandinn ber af sér alla sök og bendir á framleiðandann ytra. En nú er þetta allt að koma. Búið er að opna tilboð í lokafrágang lóðar og verður hafist handa við að malbika aðkeyrslu og bílastæði næstu daga, en því verki á að vera lokið áður en júlí er allur. Eins og menn hafa séð er búið að mála sundlaugarhúsið fjólu- blátt og má fullyrða að sitt sýnist hverjum um litavalið. Sá sem þetta ritar er heldur á því að liturinn venjist bara vel og hefur engar áhyggjur af honum. Né heldur af því að Dalvíkingar verði ekki ánægðir með nýju laugina sína. Víst er um að margur er orðinn langeygur eftir nýju lauginni og hlakkar til að fá sér sundsprett í henni. Þegar nýja laugin verður komin í gangið vaknar spumingin um það hvað eigi að gera við þá gömlu sem reist var til bráðabirgða fyrir mörgum árum. Ljóst er að notend- ur íþróttahússins hugsa sér gott til glóðarinnar, því nú verði loksins hægt að stækka húsið. Þeir sem iðka körfubolta hafa bent á að hús- ið þurfi að stækka um nokkra metra til þess að hægt verði að ná velli í fullri stærð með góðu móti í húsinu. En hætt er við að þeir þurfi að bíða eitthvað því í kosningun- um í vor reyndust allir flokkar sammála um að næsta stórverkefni bæjarins yrði að ljúka byggingu Dalvíkurskóla. Þar er á ferðinni verk sem tekur einhver ár og á meðan verður varla mikið afgangs til að ráðast í byggingu íþróttahúss. Á það hefur lfka verið bent að íþróttaunnendur hafi fengið heil- mikið upp á síðkastið, bæði nýjan grasvöll og sundlaug, auk þess sem offjárfestingar í íþróttahúsum á landsbyggðinni hafi verið gagn- rýndar harðlega að undanfömu. Er ekki verið að byggja eitt slíkt hús í Svarfaðardal? MÁ ÉG kynnA ✓ Olafur Valsson nýskipaður héraðsdýralæknir Ólafur Valsson hefur verið ráð- inn héraðsdýralæknir í Dal- víkurhéraði frá og með 1. júlí. Hann var valinn úr hópi fjög- urra umsækjenda. Ólafur er Akureyringur, sonur Vals Arnþórssonar fv. kaupfélags- stjóra og Sigríðar Ólafsdóttur. Hann lauk stúdentsprófi frá M.A. 1980 og hóf nám í dýralækningum í Kaupmannahöfn 1981 og lauk þar náini 1988. Meðfram námi vann hann við sumarafleysingar í Stykkishólmi og sumarið 1988 leysti hann af á Egilsstöðum. 1988-90 vann hann og kenndi við skurðdeild fyrir stórgripi í dýra- læknaskólanum í Kaupmannahöfn en eftir það fékk hann vinnu við almennar dýralækningar á Norður- Sjálandi. „Þar fékkst ég við allar tegundir dýra, kýr, kindur, geitur og hesta. Þarna var stór smádýraspítali og einnig hestaspítali sem ég vann einna mest við,“ sagði Olafur í samtali við Norðurslóð. Og /íraS hefur þú verið að fást við eftir að þú fluttir heini? - Eg flutti heim 1991 og var þá ráðinn hjá yfirdýralækni við ýmis störf. Ætli það heiti ekki aðstoðar- maður yfirdýralæknis. Eg hef mik- ið verið að fást við júgursjúkdóma, fylgst með því að nýrri reglugerð varðandi þá sé fylgt eftir hjá sam- lögurn og mjólkurframleiðendum Ólafur Valsson dýralæknir. og í því sambandi verið með nám- skeið fyrir mjólkureftirlitsmenn og bændur í samvinnu við skólann á Hvanneyri. Þá hef ég verið með annan fótinn á Ströndum þar sem enginn dýralæknir er til staðar og sinnt þar bæði sláturhúsum og almennum dýralækningunt. Svo er ég reyndar í framhaldsnámi í naut- gripasjúkdómum. Það er fjamám sem ég er hálfnaður með. En ég þarl' að fara út 2svar til 3svar til viðbótar til að Ijúka því. Og hvernig líst þér svo á að koma hingað norður til okkar? - Mér líst ákaflega vel á það og hlakka mjög til að byrja. Þetta er blómlegt hérað og við hlökkum öll til að koma norður á gamlar slóðir og vantar nú bara húsnæði að búa í. Já vel á minnst. Fjölskyldan. Ekki má gleyma henni. - Nei, satt segirðu. Eg er giftur Jóhönnu Baldvinsdóttur (Bjama- sonar skólastjóra Gagnfræðaskóla Akureyrar) og við eigum 3 böm saman; Baldvin, níu ára, Sigríði eins og liálfs árs og eina óskírða þriggja mánaða snót. Svo áttu hesta. - Jaaá, eitthvað lítið, þrjár mer- ar og nokkur tryppi. Mér líst vel á hestamennskuna á svæðinu. Sjálf- ur hef ég unnið dálítið meðfram starfinu með Helga Sigurðssyni dýralækni við skurðaðgerðir á hrossum og get vel hugsað mér að koma mér upp aðstöðu til þess fyr- ir norðan ef áhugi er fyrir hendi. Hvencer megum við svo húast við þér. - Ja, ég get nú ekki alveg svarað því í augnablikinu, það ræðst svo- lítið á næstu dögum. Eg er skipað- ur frá 1. júlí en þó gæti dregist að ég komi norður fram til 1. ágúst. Það er svolítið undir yfirboðurum mínum hér fyrir sunnan komið. Þá þökkum við Ólafi fyrir spjallið og bjóðum hann að sjálf- sögðu velkominn til starfa. hjhj

x

Norðurslóð

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Norðurslóð
https://timarit.is/publication/1253

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.