Norðurslóð - 28.09.1994, Side 5

Norðurslóð - 28.09.1994, Side 5
NORÐURSLOÐ —5 Hálfkveðnar vísur 7 Skrýtið er það hvað maður get- ur oft leiðst af leið og lent í liálf- gerðum villigötum þó maður ætli sér aðeins skemmstu leið til næsta bæjar. Ég fór at stað með þessa vísnasyipu í þeirri von. að það niætti verða til þess að einhver börn lærðu nokkrar góðar vísur. Ekki hef ég hugmynd utn. hvort það hefur borið nokkurn minnsta árangur. Nú er ég ósjálfrátt kom- inn út í allt aðra sálma. í síðasta þætti kenndi Klara Arnbjörnsdóttir í Ólafsfirði okkur vísu eða þulu, sem virðist geta verið tengt vísubrotinu: „ úr Svarfaðardal er seggurinn frá Seyðisfirði hrúðurin". Ég gat þess í framhaldi af þessu, að mér fyndist vísan vera þessleg, að hún hefði verið sung- in. Þetta var ekki svo vitlaus til- finning. Nú hefur Aðalbjörg Jónsdóttir kennari í Ólafsfirði sent okkur bréf þar sem hún seg- ist kunna lag við þessar vísur, enda hafi hún sungið það í kór þar í Ólafsfirði. Én Aðalbjörg gerði betur. Hún sendi líka Ijósrit af laginu, sem vísan er sungin undir. Vonandi geta nú söngelsk- ir lesendur Norðurslóðar farið að raula þessa „þjóðvísu'* fyrir sér við vinnu sína. P.S. Eftir dúk og disk hafa borist nýjar upplýsingar um vís- umar: „Berhöfðaður hurt égfer" o.s. frv. Þær komu í stuttu bréfi til blaðsins frá Eysteini Gísla- syni. bónda í Skáleyjum á Breiðafirði. Ég er að hugsa um að geyma mér bréf Eysteins. Það Moderato Berhöfðaður burt ég fer. ísl. þjóðlag. i!" 11' 'i', =± Hjall - a, heim aÖ Stakk - a - hjall - a. kon - a, kom - in verð - ur ko,n hjall - - a heim að stakk - a - hjall - kon ' - a, kom - in verð - ur kon - Hvað-an hún kem - ur og Samt er það svon - a, ............................ samt er það si - svon - a. Ur Hjalt-a-dal er hal-ur-inn, af. Höfð-a-strönd er tf r » i M U t*!1 i f| 1 J II U. I UJHJ ® ’jf 'r fVV^rf r ## P pi r r ir í- samt er það si - svon - a. Úr Hjalt - a passar alveg sem sjálfstæður áreiðaniega lokaþáttur þessarar þáttur í næsta blað og yrði þá langloku - eða hvað? HEÞ. Tj ar nar k var tettinn á geisladiski Síðustu viku ágústmánaðar var Tjarnarkvartettinn við upptöku vegna plötuútgáfu. Eins og kunn- ugt er skipa kvartettinn þeir bræður Kristján og Hjörleifur Hjartarsynir og konur þeirra þær Kristjana Arngrímsdóttir og Rósa Kristín Baldursdóttir. Hafa þau á undanförnum árum sungið saman og notið mikilla vinsælda. Kvartettinn hefur haldið fjöl- marga konserta hér um slóðir og víðar auk þess komið fram við ýmis tækifæri. Söngskráin hefur alla tíð verið fjölbreytt enda hefur fjölhæfni verið þeirra að- alsmerki í músíkinni. Geisladiskurinn sem nú er í vinnslu verður einmitt gotl sýnis- horn af því sem þau hafa verið að gera að undanförnu. Alls hafa ver- ið valin 22 lög á diskinn. Þar eru á ferðinni evrópskir matrigalar, ís- lensk og skandinavísk þjóðlög, dægurlög og slagarar og lög með djassívafi. Nú er diskurinn í vinnslu erlendis þar sem umslag verður prentað og gengið frá öllu endanlega. Reiknað er með að hann verði tilbúinn til sölu um rniðjan október. Utgefandi er FF útgáfan eða Friðrik Friðriksson á Dalvík en hann sá unt endurútgáfu á plötu Karlakórs Dalvíkur í fyrra. Stjórn upptöku var í höndum Hreins Valdimarssonar. Gerrit Schuil hef- ur verið faglegur ráðunautur kvart- ettsins á undanförnum mánuðum og var tónstjóri við upptökuna. Ekki er að efa að margir munu fagna því að söngur Tjarnarkvart- ettsins verður nú til á geisladiski. JA Slökun í október og nóvember verð ég með leiðsögn í slökun eíns og undanfarin ár7 m.a. með því að nota léttar líkams- og öndunaræfingar. Að þessu sínni komast aðeíns að þeir, sem sótt hafa tíma áður. Nánari upplýsingar hjá mér í síma 2-65-11 Steinunn P. Hafstað Hamragerði 1, Akureyri Tilboð! Allt til slátur- gerðar Rúgmjöl hafragrjón salt - gœrur og skálar Svarfdœlabúð Daivík Lambakjöt af nýslátruðu í heilum skrokkum Lambahjörtu, -lifur, -nýru á frábœru verði Slátursala Afgreitt verður eftir pöntunum sem þurfa að berast eigi síðar en degi áður Tekið er á móti pöntunum í síma 61200 frá kl. 10-12 Afgreiðslan verður í Alla-húsi, Ránargötu 1, og verður opin frá kl. 14.30-17 Viku- tilboð á ýmsum vörum

x

Norðurslóð

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Norðurslóð
https://timarit.is/publication/1253

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.