Norðurslóð - 25.10.1995, Blaðsíða 4
4 - NORÐURSLÓÐ
Kyrralífs-
myndir
að hausti
Sumir segja að haustið sé fallegasti árstíminn.
Þegar fjöllin skarta hvítum hettum þar sem rauðum
lyngmóunum sleppir, gul sinustrá bærast í svölum
andvaranum og yfir öllu saman hvelfist heiðblár
himinninn. Það er eins og náttúran hafi hægt á
hjartslætti sínum á einhvern óútskýranlegan hátt.
Ef til vill er það þögnin sein hefur þessi áhrif.
Raddir sumarsins eru skyndilega hljóðnaðar,
fuglarnir flognir burt yfir úthafið og syngja nú á
öðrum tungum í öðrum löndum. Þeir skilja eftir sig
þegjandi land sem lætur fara lítið fyrir sér eins og
bráð sem bíður átekta eftir að veturinn geri áhlaup.
Það er stund milli stríða, logn á undan storminum.
Hvarvetna gefur að líta kyrralífsmyndir sjálfrar
náttúrunnar hvort heldur horft er yfir hafið eða
skyggnst niður í þröngan lækjarskorning. Þær láta
kannski lítið yfir sér í fyrstu en þegar betur er að
gáð eru þær allrar athygli verðar.