Norðurslóð


Norðurslóð - 29.01.1997, Síða 2

Norðurslóð - 29.01.1997, Síða 2
2 - NORÐURSLÓÐ NORÐURSLOÐ Útgefandi: Rimar hf. Ritstjórar og ábyrgöarmenn: Hjörleifur Hjartarson, Laugahlíð. Netfang: rkb@ismennt.is Jóhann Antonsson, Dalvík. Netfang: johant@centrum.is Framkvæmdastjóri: Sigríður Hafstað, Tjörn. Sími 466-1555 Tölvuumbrot: Þröstur Haraldsson, Reykjavík. Netfang: throsth @ isholf.is Prentun: Dagsprent hf. Akureyri Sittu í friði séra Jón Sóknarnefndir í Dalvíkurprestakalli sem fengu það erfiða hlutskipti að kjósa okkur nýjan prest, hafa nú lokið því vandasama verki. Valið stóð á milli fimm mjög svo frambærilegra frambjóðenda og niðurstaðan var sú að Magnús G. Gunnarsson hlaut kosningu. Hann verður því næsti sóknarprestur okkar nema ef farið verður fram á almenna kosn- ingu og þeirri kosningu lyktaði með annarri niður- stöðu. En hvernig sem því verður háttað óskar Norður- slóð fyrir sitt leyti Svarfdælingum til hamingju með nýja prestinn og prestinum til hamingju með sitt nýja brauð. Væntanlega munu sóknarbörnin taka vel á móti presti sínum og með töluverðri eftir- væntingu því hér hefur jafnan ríkt jákvæðni og virðing í garð embættisins og þeirra sem það hafa skipað í gegnum tíðina. Við höfum átt því láni að fagna að hér hafa um langan aldur setið afbragðs- menn í prestsembætti og hafa þeir notið farsældar í starfi og vinsælda hjá alþýðu. Jón Helgi Þórarins- son er síst undantekning frá þeirri reglu, eflaust verður hans sárt saknað af mörgum og ekki með öllu öfundsvert fyrir nýjan prest að setjast í sæti hans. Það er við hæfi að við verjum nokkrum línum hér í blaðinu til að kveðja séra Jón og þakka fyrir hans frábæra starf þau 12 ár sem hann hefur verið hér sóknarprestur. Ekki er ofsagt að Jón hafi notið hér mikilla vinsælda og hylli hvort heldur í starfí eða Ieik. Vart hefur verið haldin sú samkoma hér um slóðir að Jón hafí ekki verið hvattur til leiks og átt þar drjúgan þátt í söng og öðrum gleðskap. Þorrablótin verða varla svipur hjá sjón þegar hans styrku veislustjórnar nýtur ekki við og eitthvað verður haustsmölun í Hnjótunum lakari en undan- farin haust nú þegar sá ágæti hlaupagikkur er burtu hlaupinn. Knattspyrnulið Dalvíkinga á vafa- laust baráttuþrek sitt og sigursæld að einhverju leyti Jóni að þakka. Hann hefur jafnan staðið fremst- ur meðal jafningja í liði áhorfenda og hvatt sína menn til dáða. Þó grunar undirritaðan að þau störf sem unnin voru í kyrrþey á nóttu sem degi og lúta að sálgæslu hafí verið meiri að vöxtum og margháttaðri en margan grunar og vegi þyngra þegar upp er staðið. Starfi prests má e.t.v. líkja við ísjakann sem að drýgstum hluta marar undir yfírborðinu. Uppúr standa messur og helgihald en hlutur sálusorgar- ans er sjaldnast hafður í hávegum. Séra Jón hefur þannig bæði deilt með okkur gleði og sorg og er ekki að efa að hvorttvegga er Guði þóknanlegt. Norðurslóð hefur jafnan átt hauk í horni þar sem Jón er. Hefur hann séð blaðinu fyrir margvís- legu efni, bæði því sem lýtur að starfí hans, s.s. fregnum af tímamótum (giftingum, skírnum og andlátum), sem verið hefur fastur þáttur í blaðinu frá upphafi, og einnig ýmsum tilskrifum öðrum. Norðurslóð þakkar Jóni Helga og fjölskyldu hans allt þeirra starf hér í prestakallinu og óskar þeim velfarnaðar í nýju umhverfí. Við tökum undir með skáldinu og segjum: Sittu ífriði séra Jón í sókn við holtið langa. hjhj Gísli Jónsson: Nöfn Svarfdæla og nágranna þeirra 1703-1855 (og að nokkru leyti fyrr og síðar) - 4. hluti Lítum á fáein nöfn sér á parti: Anna, sem einnig er títt í gerðinni Hanna, er úr hebresku Channa og merkir náð. Anna var kölluð að væri móðir Maríu meyjar. Messu- dagar hennar eru 26. júlí og 9. desember. Anna var gert að skímamafni meyja í Noregi á 14. öld og svo sem öld síðar hér. Utbreiðsla nafns- ins var hins vegar fremur hæg framan af, árið 1703 voru Önnur 264, dreifðar mjög um landið. A fyrri hluta 19. aldar má segja að nafnið taki undir sig stökk. Að nokkru leyti fór það saman við tví- nefnatísku, sjá síðar, því að al- gengast var unt tvínefndar meyjar víðast hvar á Islandi fyrst um sinn, að Anna væri fyrra nafnið. Einkum vom vinsælar samsetningamar Anna Sigríður, Anna Margrét, Anna María og Anna Sof(f)ía. A okkar dögum þykir hæfa að síðara nafnið sé eitt atkvæði: Anna Rós, Anna Rut, Anna Björk. Arið 1845 voru Önnur orðnar 750, flestar norðan lands og aust- an, árið 1910 voru þær 1391, nú í þjóðskrá um 4700. Arið 1845 voru 26 Önnur í Svarfaðardalshreppi hinum foma og hafði þá fjölgað mikið á skömmum tíma. Halldór(r) er fomnorrænt nafn og var afar vinsælt, 18 í Landnámu og 38, hvorki meira né minna, í Sturl- ungu. Erfitt er að átta sig til hlítar á nafnliðunum stein og Itall, en rétt að minna á að forfeður okkar voru sagðir trúa á stokka og steina, sbr. áður um Atla jarl. Síðari hluti nafnsins Halldór er vafalítið orð- inn til úr Þór(r). Heildarmerkingu vinsælla nafnliða, sem settir eru í eitt, er erfitt að ráða. En þarna er vaflaítið skírskotað til hylli þeirra goðmagna eða náttúruvætta sem menn töldu sig hafa traust hjá. Ed- ward Schröder segir að í nöfnum felist stutt, skáldleg ósk um vel- gengni. Um Hallgrím var áður rætt nokkuð, og til Arngríms, framar- lega í þessari ritsmíð, vísast um síðari liðinn. Halldór hefur orðið eitt af vin- sælustu karlheitum á íslandi, hefur komist upp í 16. sæti, og nú eru í þjóðskránni 1868. Hallgrímur hefur aldrei náð við- líka hylli, síst á Suðurlandi. Arið 1910, er 205 íslendingar hétu Hall- grímur, vom 45 þeirra fæddir í Eyjafjarðarsýslu og 26 í Þingeyjar- sýslu. Nafnið heldur prýðilega hlut sínum í þjóðskránni núna. Jóhanna kemur til okkar úr dönsku, sjá Jóhann rétt bráðum, og áður Anna. I Noregi var það haft að skírnarnafni a. m. k. frá 16. öld og hér frá 17. Lengi vel hétu þessu nafni fáar íslenskar konur og helst vestanlands. A 19. öld fjölgaði geysilega, og Jóhönnur í Svarfað- ardalshreppi foma voru orðnar 10 árið 1845. Þegar lengra leið fram, fjölgaði Jóhönnum enn að tiltölu. Nafnið komst í 8. sæti kvenna yfir allt landið um síðustu aldamót, en hefur ekki haldið hlut sínum síð- ustu áratugi. Þó era Jóhönnur í þjóðskránni um hálft þriðja þús- und. Það er auðvitað best að taka Jó- hann hér við hliðina á Jóhönnu. Lítum fyrst á uppranann og þá um leið uppruna Jóns, því að þetta er eitt og sama nafn í fyrstunni. Nöfn þessi eru úr hebresku og táknar fyrri hlutinn guð (Jehóva) og seinni hlutinn náð, sbr. Anna. Merking þessara nafna var þá „sá sem nýtur náðar guðs“. Ekki var það dóna- legt. Nú bættist við að tveir miklir guðsmenn nefndust í grískri gerð Jóhannes, það er að segja skírarinn og postulinn. Urðu nöfn þeirra ær- ið vinsæl um heiminn, og þóttust margar þjóðir þurfa að breyta þeim að sinni tungu. Þegar á 11. öld tókum við upp ensku gerðina Jón, en seinna þýsku gerðina Jóhann. Var þá búið að klippa gríska end- ingu af. En brátt varð þetta allt, og miklu fleira, að sjálfstæðum nöfn- um. Erlendis má minna á rússnessku Ivan, ítölsku Giovanni, spönsku Juan, frönsku Jean og írsku Sean (les Sjon). Gerðin Jóhann varð að sjálf- stæðu skímamafni á Islandi á 17. öld, en það var ekki fyrr en á fyrri hluta 19. aldar að fjölga tók að marki, og var sú fjjölgun með ólík- indum ör á Norðurlandi, einkum í Eyjafjarðarsýslu. I sýslunni var nafnið komið í 4. sæti karla og hafði talan rösklega tífaldast á 30 árum. I Svarfaðardal og Arskógs- strönd var enginn Jóhann 1801, en 22 árið 1845. Þá er þess að geta, er tvínefni færðust í vöxt, að Jóhann varð býsna oft fyrra nafh af tveimur. Jóhann náði, þegar best lét, svip- uðum vinsældum meðal karla eins og Jóhanna meðal kvenna. Lilja er úr latínu, alþekkt blóms- heiti, og varð oft tákn Maríu meyj- ar í bókmenntum. Langþekktast var það hér vegna hinnar glæsilegu drápu Eysteins munks sem allir vildu kveðið hafa. Nafnið varð fyrst gert að skím- arheiti meyja hér á 18. öld, og voru framan af langflestar norðanlands. Lilja var orðið mjög algengt nafn um allt Norðurland nema Þingeyj- arsýslu 1845, en þá var engin ein- asta t. d. í Rangárvallasýslu, og enn engin þar 1855. I Svarfaðardalshreppi hinum foma vora Liljur orðnar þrjár 1845: 1) Lilja Ketilsdóttir 44 ára Þor- steinsstöðum Urðasókn 2) Lilja Pétursdóttir 29 ára Blængs- hóli (Klængshóli) Vallasókn 3) Lilja Sveinsdóttir 17 ára Ytri- Haga Stærra-Arskógssókn. Rósa er einnig latneskt blómsnafn og tákn Maríu meyjar. Sigurður blindur orti líka mikla hrynhendu sem Rósa hét. Rósur vora í Svarfaðardal orðn- ar stórum fleiri en Liljur 1845, 18 talsins. Nafnið hafði lagt undir sig Norðurland. Af 259 á öllu landinu vora 69 í Eyjafjarðarsýslu, 28 í Húnavatnssýslu, 27 í Skagafjarð- arsýslu og 31 í Þingeyjarsýslu. Þá var aðeins sín Rósan í hvorri, Skaftafells- og Rangárvallasýslu. Sofía (Soffía) er úr grísku Sophia= viska. Þetta má sjá í mörgum fræðiorðum, t. d. philosophy= heimspeki (bókstafleg merking „fróðleiksást"). Þá höfum við hirt úr grísku karlheitið Sophus=spek- ingur og stundum breytt í Sófús, svona til þess að það líkist Sigfúsi ofurlítið. Sofía var dýrlingur, messudag- ur hennar 15. maí. Hún átti heldur en ekki góðar dætur. Svo segir í Heilagra meyja drápu (um 1400): Sínar dœtur sigri vœnum Sofía hafði drottni ofrað, Fídes, Spes og Kárítas kvceðum, kristilega er lífið misstu, o. s. frv. Eitthvað þykjumst við þekkja þetta systraval, bæði úr nafnaforða okkar og af myndum. Ætli við sé- urn ekki vönust Karítasi, en roms- an, trú, von og kærleikur, er okkur ekki mjög framandi. Englendingar fóra þá leið að þýða þessi nöfn og gera að kvenheitum; Faith, Hope og Charity. Sofía var snemma gert að skím- amafni á Islandi, ekki síðar en á 14. öld að tali Linds, og er það fyrr en í Noregi. Nafnið var þó lengi vel mjög sjaldgæft hérlendis, og ekki vora nema 17 Sof(f)íur árið 1703, helst norðan og vestan. Danir höfðu þá lengi vanist þessu nafni, og meðal bama Lárasar lög- manns Gottrúps (d. 1721) var Anna Sofía. Eins og í sumum dæmum hér að framan tók konum með nafninu Sof(f)ía ekki að fjölga til muna fyrr en á fyrri hluta 19. aldar, óg sú fjölgun var að mestu bundin við Norðurland. Árið 1845 vora Sof(f)- Framhald á bls. 6

x

Norðurslóð

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Norðurslóð
https://timarit.is/publication/1253

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.