Norðurslóð - 29.01.1997, Qupperneq 4
4 - NORÐURSLÓÐ
Veðrið og mannlífið í
skammdeginu
Vallakirkja
Góðar líkur á
endurbyggingu
Veturinn hefur sem af er verið
okkur íbúum norðurslóðar eink-
ar hagstæður. Snjór hefur verið
með minnsta móti og aldrei til
vandræða að heitið geti. Litlar
áhyggjur hefur þurft að hafa af
samgöngum af þeim sökum og
sáralítið komið til kasta snjó-
ruðningstækja á vegum úti.
Þó hefur verið hér ljómandi
skíðasnjór og ekkert hægt að
kvarta um gæftaleysi á því sviði.
Jólaveðrið var eins og það gerist
best á jólakortum, hiti rétt undir
frostmarki snjór á jörð og á sjálfa
jólanóttina var fullt tungl á skaf-
heiðum himni sem stirndi af á
snjóbreiðunni í næturkyrrðinni.
Rímfróðir menn segja að við get-
um næst vænst jólanáttar með
fullu tungli árið 2134 en þá gæti
rétt eins verið skýjað svo það tekur
því vart að bíða. Desember var
nánast ein samfelld froststilla sem
teygði sig langt fram á árið 1997.
í áratugi hefur verið fastur liður
í janúarblaði Norðurslóðar að
gera upp gamla árið með hlið-
sjón af veðráttu. Ekki verður
þeim vana brugðið í þetta sinn
þótt góðæri hafi jafnan þótt
minni tíðindi en hallæri. Góðæri
var það sem sé til lands og sjáv-
ar, bæði í náttúrufarslegu og
efnahagslegu samhengi. Sumir
Um miðjan janúar urðu loks veðra-
brigði. Hann snerist til norðanáttar
sem ríkti um nokkurt skeið með
hríð svona af og til sem aldrei gat
þó flokkast undir verulegt óveður.
Víða var þó ófært á tímabili en
óþreytt snjóruðningstæki vega-
gerðarinnar voru snögg að kippa
því í liðinn strax og færi gafst.
Þegar þetta er ritað hefur suðlæg
átt verið ríkjandi um skeið og hef-
ur mikið af þeim snjó sem norðan-
áttin færði okkur nú tekið upp aft-
ur. Svona getur veðrið hagað sér
óskynsamlega stundum.
- og mannlífið
Að venju höfðu menn eitt og ann-
að fyrir stafni um jól og áramót.
Ljósaskreytingar settu mjög svip
sinn á Dalvíkurbæ og hefur ljósa-
dýrðin aldrei verið meiri. Astæðan
er e.t.v. sú að fyrir jólin varefnt til
samkeppni á sviði jólaljósaskreyt-
inga. Dómnefnd komst að þeirri
urðu að vísu lítið varir við efna-
hagsbatann.
Urkoman í heild var 408 mm
sem er 20% undir meðallagi. Ekki
er það þó neitt metár í þeim efnum
því árið 1980 fór úrkoman niður
fyrir 300 mm. Mars sló hins vegar
persónulegt met. Síðan mælingar
hófust á Tjöm hefur mánuðurinn
aldrei mælst svona úrkomusnauð-
niðurstöðu að fallegust væri
skreyting á Svarfaðarbraut 15 (hjá
Valda Snorra). Fleiri aðilar unnu
til verðlauna og þá voru veitt auka-
verðlaun þeim sem öðrum fremur
þóttu taka þátt af lífi og sál. A milli
jóla og nýárs stormuðu böm á jóla-
böll en fullorðnir skemmtu sér m.a.
við söng karlakórsins og síðustu
sýningar Leikfélagsins á Stútunga-
sögu. A gamlárskvöld var að sjálf-
sögðu mikið um dýrðir enda veðr-
ið eins og pantað, stillt og heiðskírt.
Kveikt var í brennu á Sandinum kl.
17.00. Var þar fjölmenni saman
komið en einnig þó nokkuð af
tröllum, álfurn og púkum. Gamla
árið kvaddi síðan með hefðbundn-
um hætti og það nýja heilsaði þeg-
ar björgunarsveitarmenn mynduðu
ártölin með blysum uppi í Böggv-
isstaðafjalli. A gamlárskvöld opn-
aði Café Menning á nýjum stað
þar sem áður hét Sæluhúsið. A
jarðhæð fögnuðu menn nýju ári á
rólegum nótum en á efri hæð var
dansað fram eftir nóttu.
Nýja árið virðist leggjast vel í
íbúa í svarfdælskum byggðum. At-
vinnuástand er gott og víða unnið
á vöktum allan sólarhringinn. I
frystihúsinu hefur þurft að bæta
við fólki að undanfömu. Bygg-
ingamenn hafa og í nógu að snú-
ast. Skrifstofuhúsnæði Sæplasts
kallar á mannskap og í sveitinni er
verið að leggja síðustu hönd á fé-
lagsheimili. Mál málanna þessa
dagana er þó e.t.v. val á nýjum
presti en menn hafa beðið spenntir
eftir að frétta hver verður eftir-
maður Jóns Helga sem nú er tek-
inn til við að messa fyrir Langhylt-
inga í Reykjavík við góðar undir-
tektir þess langþreytta safnaðar.
ur. Hitastigið var í kringum frost-
mark allan mánuðinn, stillur og sól
dag eftir dag.
Páskahretið kom í dymbilvik-
unni eins og vera bar. Þá snjóaði
tölvert þrjá daga í röð og vegir
urðu þungfærir víða um land. Þann
snjó tók fljótt upp og 21. apríl varð
alautt á láglendi. Eftir það festi
ekki snjó á jörð fyrr en vetur gekk
Nú benda allar líkur til þess að
Vallakirkja verði endurbyggð í
sömu mynd og áður. A safnaðar-
fundi sem haldinn var í byrjun
mánaðarins þar sem Iögð var
fram kostnaðaráætlun fyrir end-
urbyggingu, Iauk safnaðarfólk
upp einum munni um það að
stefnt skyldi að endurbyggingu
hennar. Endanleg ákvörðun um
það mál verður þó ekki tekin
fyrr en á aðalsafnaðarfundi
seinna í vetur.
Samkvæmt áætluninni mun
endurbyggingin kosta um 15 millj-
ónir króna. Tryggingafé eftir brun-
ann nemur um 7 milljónum fyrir
kirkjuna sjálfa og ríflega 2 millj-
ónum fyrir innbú. Með innbús-
tryggingunni hefur safnaðarstjóm-
in greitt niður áhvílandi skuldir og
reiknast svo til að fyrir þær sjö
milljónir sem eftir eru megi gera
kirkjuna fokhelda. Ovíst er hversu
mikils er að vænta úr sjóðum eins
í garð á ný, 31. okt. Vorið og sum-
arið voru góð, heyskapur hófst um
mánaðamót júní-júlí, heyfengur
var góður og spretta berja og garða-
gróðurs með ágætum. September
var óvenju hlýr og um göngur vora
allar ár í vexti og sumar kolmó-
rauðar, einkum þær sem eiga upp-
tök í jöklum. Fannir í fjöllum tók
að mestu upp en þær sem eftir
lifðu voru dökkar af sandi og aur. I
októberbyrjun var settur út hvítur
diskur til að sjá hvort vart yrði við
öskufall frá eldsumbrotunum í
Vatnajökli. A hann kom ekki kom
og lykt fundu menn ekki heldur.
Veturinn settist að með hægð,
nóvember var frostkaldur en mikl-
ar stillur og kyrrviðri settu svip
sinn á jólahátíðina með fullu tungli
á jólanótt. Þá var fagurt um að lit-
ast í Svarfaðardal og flestir sam-
mála um þetta hafi veri með jafn-
bestu árum í manna minnum.
áh.
✓
Urkoma og
úrkomudagar 1996
Mánuður Úrkoma Úrkomu-
mm dagar
janúar 8,4 5
febrúar 68,4 18
mars 1,2 4
apríl 36,9 7
maí 6,1 3
júní 24,5 12
júlí 16,8 5
ágúst 22,0 12
september 53,1 17
október 91,0 27
nóvember 64,2 18
desember 15,5 11
Alls 408,1 139
og Húsafriðunarsjóði og Jöfnunar-
sjóði kirkna en þaðan verður leitað
eftir framlögum. I Jöfnunarsjóðn-
um kváðu menn setja það eitthvað
fyrir sig hve söfnuðurinn er lítill
og ekki sé beinlínis brýn þörf á
þrem guðshúsum í Svarfaðardal.
Að sögn sóknamefndarkvenna í
Vallasókn hefur einnig þó nokkuð
fé safnast bæði af kortasölu og
frjálsum framlögum en geta má
þess að reikningur kirkjunnar er
nr. 380 í Sparisjóði Svarfdæla.
Frystihús
ÚKED:
14 Ólafs-
firðingar
í vinnu
Mikil atvinna er í Frystihúsi
KEA á Dalvík þessa dagana
og unnið allan sólarhringinn.
Búið er að ganga frá viðbót-
arsamningi við franska versl-
unarkeðju um sölu á fullunn-
um þoski, laxi og steinbít.
Fyrir áramót voru framleidd
100 tonn til prufu fyrir Frakk-
ana og nú vilja þeir 65 tonn til
viðbótar í febrúar. Bæta hefur
þurft við starfsfólki og hefur
frystihúsið í þeim efnum notið
góðs af bágu atvinnuástandi á
Ólafsfirði ef svo má segja.
Hafa 14 Ólafsfirðingar fengið
vinnu í frystihúsinu hér en sem
kunnugt er hefur Hraðfrystihús
Ólafsfjarðar verið lokað vegna
rekstrarörðugleika.
Hesta-
menn,
athugið!
Vegfarandi hafði samband við
blaðið og bað fyrir ábendingu
til hestamanna sem stunda reið-
mennsku sína eftir að rökkva
tekur. I guðanna bænum notið
endurskinsmerki eða einhvern
annan búnað sem tryggir að þið
sjáist í myrkrinu. Endurskins-
merki sjást því betur eftir því
sem þau eru höfð nær jörðu.
Það gerir afar takmarkað gagn
þó knapi sitjandi hátt á hestbaki
beri slík merki sjálfur. Víða er
mikil hálka á vegum um þessar
mundir og engin leið fyrir bfl-
stjóra að stöðva bíl í einu vet-
fangi þó lífið liggi við. Hafið
þetta í huga hestamenn!
Sparisjóður
wlW Svarfdæla, Dalvík
Hraðbankinn
- opnn allan sólarhrlnginn
Heimabankinn
- opnn daga og nœtur!
Sparisjóðurinn
fyrir þig og þína
Hestar á útigangi.
s
Urkomumælirinn talar