Norðurslóð - 17.12.1997, Blaðsíða 2

Norðurslóð - 17.12.1997, Blaðsíða 2
2 — NORÐURSLÓÐ NORÐURSLÓÐ Útgefandi: Rimar ehf. Ritstjórar og ábyrgðarmenn: Hjörleifur Hjartarson, Laugasteini. Sími 466-3370. Netfang: hjhj@ismennt.is Jóhann Antonsson, Dalvík. Netfang: joant@centrum.is Framkvæmdastjóri: Sigríður Hafstað, Tjörn. Sími 466-1555 Tölvuumbrot: Þröstur Haraldsson, Reykjavík. Netfang: throsth @ isholf.is Prentun: Dagsprent hf. Akureyri Svo undaríígt að mða 7L A. 'tirtrrson i pýðwgu tiöDvars (juDmundssonar Latj: Car(Xjtístn nf . , | i —j J—j 'j— \ ^ ' r ■ rt f jr f r WT r 1 Svo und-ar-lcgt aö ræö - a og ann-ar-lcgt að sjá að ( 2 Sér hrcið-ur bygg- lr star - inn, þar hjúfr-ar ung-lnn kær, og 3 Nci, hjart - a mitt skal ver - a þér hæl -1, Jes - ú minn, þar !pre-|d|z: . T J i i J J JJJ-i- J. Svo undarlegt að ræða Ljóð: H. A. Brorson. Lag: Carl Kjelsen. Þýðandi: Böðvar Guðmundsson. Svo undarlegt að ræða og annarlegt að sjá að kóngur hæstra hæða í kaldri jötu lá, að ljósið lífsins sanna og lífsins orðið milt skal hrekjast meðal manna í myrkrum húsavillt. Sér hreiður byggir starinn þar hjúfrar unginn kær, og villidýraskarinn í viði náttból fær, í skjóli vænna veggja sér vígi margur á: Skal lausnarann þá leggja á laun í jötustrá? Nei hjarta mitt skal vera þér hæli Jesú minn, þar bústað skal þér gera, ég býð þér glaður inn, og gjöld skal enginn greiða í griðum þessa ranns, þar skal ég rekkju reiða í reifum kærleikans. Bakkabræður Ný útgáfa segir þá búsetta í Fljótunum Bakkabræður bíða eftir að grauturinn kólni að Hólum. Myndskreyting Kristínar Arngrímsdóttur úr bókinni. Norðurslóð hefur oft brýnt fyrir mönnum nauðsyn þess að Svarfdælir nýti sér bræðuma þrjá, Gísla, Eirík og Helga frá Bakka, í því skyni að laða ferðamenn að daln- um. Bent hefur verið á að fleiri vilji eigna sér bræðurna og nú er ekki seinna vænna að gera eignar- nám í þeim Bakkabræðrum því ný útgáfa af sögum þeirra setur þá kyrfilega niður í Fljótunum. Það er bókaútgáfan Mál og mynd í Reykjavík sem hefur gefið út nýja bók með sögum af bræðr- unum þremur og er hún fallega myndskreytt af Kristínu Arngríms- dóttur. Að sögn útgefanda, Stein- gríms Steinþórssonar, þótti rétt að taka af öll tvímæli um lögheimili bræðranna í þessari útgáfu. I Þjóðsögum Jóns Amasonar eru til tvær útgáfur af sögunum um Bakkabræður. I annarri útgáfunni eiga þeir heima í Fljótum, en í hinni í Svarfaðardal. Síðamefndu útgáfunni fylgir hins vegar neðan- málsgrein Jóns um að Bakki muni vera í Fljótum. Að sögn Steingríms eru öll kennileiti óljósari í eyfirsku útgáfunni og ekki hægt að átta sig á því hvar þeir búa. Öðm máli gegni hins vegar um skagfirsku út- gáfuna, þar séu margar tilvísanir í þekkt kennileiti og bendir hann á eftirfarandi sögu því til staðfest- ingar: Bakkabrœðw gistu eitt sinn á Hólum í Hjaltadal. Vildu þeir wn morguninn hraða sér á stað til að ná heim um daginn, en létu þó til- leiðast að bíða eftir heitum graut sem þeim var boðinn um morgun- inn. Þegar grauturinn kom var hann svo heitur að þeim kom saman um að það vœri ógerningur að bíða eftir að hann kólnaði svo að hann yrði étandi, en eins affaragott mundi verða fyrir sig að gína yftr guf- unni. Tóku þeir nú það ráð að þeir göptu yfir henni uns þeir hugðu komna saðning sína. Riðu þeir svo afstað. En þegarþeir voru komnir út hjá Sleitustöðum, sem nú er ysti bœr í Hólasókn, hefst einn þeirra máls á því að þeim hafi gleymst að þakka fyrir matinn. Sneru þeir þá til baka heim að Hólum til að þakka fyrir matinn. Hver samdi? Þama ber ekki á öðru en að þeir bræðurhaft tekið stefnuna út Hjalta- dal en ekki upp á Heljardalsheiði eins og eðlilegt væri ef þeir hefðu átt heima í Svarfaðardal. En nú ber þess að gæta að það hefur aldrei þótt sérstaklega eftir- sóknarvert hér á landi að vera tal- inn heimskur. Það gæti skýrt tregðu manna, jafnt í Fljótum sem í Svarf- aðardal, til að eigna sér þá bræður. Og vel mætti hugsa sér að það hefðu verið Eyfirðingar sem hefðu komið sögunum um Bakkabræður úr Fljótum á kreik í því skyni að gera nágrönnum sínum grikk. Og svo hafi Fljótamenn svarað fyrir sig með því að skila bræðrunum aftur austur yfir heiði. En hvað sem því líður vil ég ítreka þá skoðun mína að Bakka- bræður eru tilvalið efni í ferða- mannabeitu og algjör synd að þeir skuli liggja óbættir hjá garði af þeirri ástæðu einni að menn veigra sér við að taka þá upp á sína arma af ótta við orðsporið. -ÞH Jóhannes úr Kötlum: Af endalokum Bakkabræðra Hin nýja útgáía af sögunum um Bakkabræður eru enn eitt dæntið um það þegar íslenskir listamenn sækja sér efnivið í þessar vinsælu sögur. Eitt þeirra skálda sem hefur spreytt sig á sög- unum er Jóhannes úr Kötlum sem batt nokkrar sögur í kvæði og gaf út fyrir mörgum árum. I þeirri útgáfu eru líka myndir eftir Tryggva Magnússon. Hér á eftir fer eitt kvæða Jóhannesar en það heitir Herskipið og greinir frá endalokum þeirra bræðra, Gísla, Eiríks og Helga. „Uppi á himins bláum boga“ blikar mikill stjarnafjöldi. Yfir fjallsbrún föla gægist fullur máni á sumarkvöldi. Ægilegur er hann sýnum, eins og vilji ‘ann heimi granda. Eiríkur og Helgi á hlaði liissa og óttaslegnir standa. Upp á þetta undur góna, - í því skynja bráðan dauða: rautt er þetta stóra, stóra, stórt er þetta rauða, rauða. Aldrei séð þeir áður hafa aðra eins skepnu á himinslóðum. Og til næsta og efsta bæjar æða þeir með skrítnum hljóðunr. Hitta bónda í bæjardyrum, benda á tunglið, augum gjóta, Myndskreyting Tryggva Magnússonar af þeim Eiríki og Helga að skoða tunglið spyrja í hljóði, hver sé þessi hræðilega skepna og ljóta. Bóndi glottir, svarar síðan, - segir þetta herskip vera. Þá þeir hálfu verri verða, - vita naumast hvað skal gera. Samt þeir eins og örskot flýja undan þessum heimsins voða inn í fjós og að sér loka, upp í hverja smugu troða. Ekki meira af þeim segir, (- urðu kannske hungurmorða.) En undan herskips andstygðinni alténd tókst þeim sér að forða. Þannig var það alla ævi, - einatt völdu þeir það rétta. Aldrei, aldrei bjuggu á Bakka bræður slíkir eftir þetta.

x

Norðurslóð

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Norðurslóð
https://timarit.is/publication/1253

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.