Norðurslóð - 23.01.2002, Qupperneq 3

Norðurslóð - 23.01.2002, Qupperneq 3
Norðurslóð - 3 Gömul augnablik Hér krýpur Stjáni í Sólheimum fyrir framan Ellu Skarp en karlakórsmenn mynda hálfhring um þau. Þeir eru frá vinstri; Villi Bjössa, Arni Amgríms, Jói í Arnarhóli, Kiddi Þorleifs, Baldi í Hrafnsstaða- koti, Villi á Karlsá, Dóri á Melum, Dúddi á Stöðinni, Ingólfur Jóns, Ami Óskars, Jóhannes Arskóg og Dóri Jó. Elín Skarphéðinsdóttir lék aðalkvenldutverkið í sýningunni og er hér að skála við Stjána í Sólheim- um (Kristján E. Jónsson). Virðulegir ungir menn. Nonni í Miðkoti (Jón H Pálsson) til vinstri og Sœvar Sigtýs. Frá vinstri: Ingólfur Jóns, Villi Þórarins, og Arnar Sigtýs. Það vekur athygli að Sœvar bróðir Arnars er á myndinni hér að ofan ogforeldrar þeirra Sigtýr og Stína á öðrum, sem sagt öll fjölskyldan. Leikritið var frumsýnt á annan í jólum eins og vant var á þessum árum. Eftir sýningu var dansleikur sem stóð fram undir morgun. Þannig var þetta flest kvöld milli jóla og nýjaárs, leiksýnig og dansleikur á eftir. A einhverjar þessara sýningar mætti Loftur Baldvinsson og tók fjöldan ailan af myndum og birtum við nokkrar þeirra nú. Stein- grímur Þorsteinsson var leikstjóri og málaði leiktjöld. Við fengum hann og Steinunni til þess að rýna í myndirnar og hjálpa okkur að finna hverjir þar eru. Stína Sigtýs (Kristín Stefánsdóttir) er lengst til vinstri en hún var mikið búin að starfa með leikfélag- inu. Lengst til liœgri er Villi Þórarins sem oft var á leiksviði á Dalvík. A milli þeirra stendur Lauia (Guðlaug Björnsdóttir) en hún hefur starfað mikið með Leikfélagi Dalvíkur og var lengi formaður þess. Bomnti situr hér fyrir enda borðsins með karlakórsfélaga á báða bóga. Annars vegar Villi Bjössa, Árni Arngríms, Baldi í Hrafnsstaðakoti, Villi á Karlsá. Hins vegar Dúddi á Stöðinni (Þorgils Sig- urðsson), Ingólfur Jóns, Árni Óskars, Jóhannes Árskóg og HalldórJó. Fólkið baksviðs: Imba í Ásbyrgi (Ingibjörg Valdimarsdóttir), Tani (Jónatan Kristinsson), Imba Sig- fríðar (Ingibjörg Jónsdóttir) og Anna Arngríms. Það er alkunna að á Dalvík og í Svarfaðardal hefur oft verið þróttmikil leikstarfsemi. Leikfélag Dalvíkur var stofnað 1944 og hefur það verið burðarás leikstafseminnar hér í byggðalaginu síðan þá. Stundum hefur félagið verið í samstarfi við önnur félög um uppsetningu leikrita. Þannig var að um áramótin 1955-56 þegar sönglcikurinn Alt Heidelberg var settur á svið í Ungó. Leikfélagið fékk þá Karlakór Dalvíkur til liðs við sig og settu kórfélagar svip sinn á sýninguna með söng sínum. Hér eru á sviðinu þrírsem lengi voru lykilmenn í leikstarfseminni á Dalvíkfrá vinstri; Sigtýr Sigurðs- son, Bommi (Hjálmar Júlíusson) og Bassi (Marinó Þorsteinsson).

x

Norðurslóð

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Norðurslóð
https://timarit.is/publication/1253

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.