Norðurslóð - 23.01.2002, Side 5
Norðurslóð - 5
Vísubotnar
Að vanda barst fjöldi botna við
vísufyrripartana sem birtir voru
í jólablaðinu.
Ljósadýrðin litaskœr
lýsir myrkrið svarta.
Vonir okkar flutt hún fær
um frið í sérhvert hjarta.
Hartmann Eymundsson
Æskan góðar gjafir fær
og gleðst af öllu hjarta.
eða
Jólafriður færist nær
og fangar mannsins hjarta.
Eyjólfur Valgeirsson
Hrafnistu Rvík
Hugurinn er hreinn og tær
sem himinhvolfið bjarta.
Leifur Jóhannsson
Mosfellsbœ
Líklega væri lýðnum nær
að lýsa upp eigið hjarta.
Magnús Sigursteinsson
Ólafsfirði
Fögnuður ogfjöldi manns
á fiskidaginn mikla.
Leika margir léttan dans
og liprum fótum stikla.
eða
Ég horfi á þennan darradans
og dökkar brúnir hnykla.
HE
Af áfergju í djöfladans
Dalvíkingar sprikla.
eða
Öldungar og ungdómsfans
af innlifun þar sprikla.
EV
Mátti þar sjá mannafans
matinn kringum stikla.
MS
Opnast bráðum undirgöng
út í Siglufjörð.
Þá verður ei leiðin löng
né lífsbaráttan hörð.
eða
Til farsældar er leiðin löng
þó liggi gegn um jörð.
HE
Þessi leið mun þykja löng
þeim sem unna jörð.
eða
Þeim mun leiðin þykja löng
er þrá að skoða jörð.
EV
Ekki verður leiðin löng.
Loksins sé ég Héðinsfjörð.
eða
Þótt andstaðan sé ansi ströng
á endanum klárast þessi gjörð.
MS
Lausn á krossgátu
Skelfing er skelfingin erfið / hún skyrpist og pumpast.
Það fýkur af fólkinu gerfið / og flatneskjan krumpast.
íR HOÍfr ASWI FÆrr vctijd uC<5 \oUA íH El HS FUöL Cr HUJTH 5 NÆ4U Sl'om iKH'AH MANN A GÍÖ0/ UHOtJ1 1‘MDl
KÁritJ OALvir F" i y K 1 D A G U R 1 N N 'K A R. Fs A
jrucAu A R K A £> At>»£»0 StRHt. Hf' E Ð u L U Ö M Æ R Ð u“ Á’
A R N eT S KÍMA 1 3 K 1 Ls' D 1 nT G 1 N N 1 E'N. PERA R R
— iiSil Á‘ L T A ÖÍUNA 1 . ■ ■ O R. A JULTM ntKUK W A u K 'alpa A G Ð A
QALHur / 5 L A N D s‘ F“ U & L 1 rS'-r 0<OA ÍOKVA L A L L A
«3ÖT s” N u •Ð R A A U & u JP80TA T E l N D '0 R 1
W' L j R A E L D & u D RtlÐ KL/lf f O Ð L T l” L 1 X
jrerr A £> A L1 KRIK 1 GUO V fó L L*JTd AJÖKIM L 0 Á A ð” A F.'-.A Z. SERHL A F's FlataB MALL-
WÍ.JK vnu* N A U tj tb V j s11 S B A K T L úíoaRA KIPfOR R Ýs N R A
TAuA D KE/pki KO*N Mmit 1 E. 1 kf’ A R A X KAKA i£lZ. LUTA T E“ R T A P“ •a A R
KTOT1 .88 K r N K ÍV u KYK A R H VÖU Roc 'ilAt 5 1 T 1“ 'I 999 CLÖD 1 M 'iMÓtt
SKOLI ri A ÚK StjÓLAV N 'Á R. S&JTVR. F ’A K" K l“ A R K A 2 eiNS útÁTA B B
ÍTAP- uft. E F ArcKitM BlLI RbrA 3 K É‘ R T A Á uttnno FEft*> HHLIK K A L T O R
RÓFA I6 L A M ‘svw 1 K Æ T 5" 'A 5 77 T U jttirou ÍKKI nönou 3 'A Ð u
VOM tinK.\V 5 A T A N R" *trs IO_ DJÚP N A S A T 0‘’ R F Æ. R A nT
uooan MAl> T R. A F A K K Att BLOTI N A SILfuK f/ILJKT A cf' HiKAA BOCi *>CK ‘A L Á‘ R ÖIRTA
fYUtt A ATVOrt CN0U6 'ohAoa N1" 1 0" 2 A K HWHt R“ '0 R 1 d' U æst 6 rtci/np JTIWC, G
ren> -'A VmR.4 k. ö HUO t /V6AK. &8 R A F A K Hxjtna Mtfe- F R. Á‘ nm JCtHL. 3 T Ö L
T A M A R. A CLIOI ELJKA &" 'A 3 K7' A JURT ÁTT u R T ÍÉi M ö
c_:cí-. A R A J*örr/ DvRi F A N N 3 T t/CJiR 3 TJ‘ A R T A R
rtvs-o- 'o" K d' M- M Æ. L r N G'" A R 45 Þoi-* ALlCrC, ItLIM R.” A u kT A
bsiou^ T A P" ,,Í4 3 Ú R T" öru& Ú u JtlMj HbFi 0 37 0 0 RÖÐ roft- RKFN F CÉ i XÉRHL. *
* MEIRA V A L A N D Lw 47 1 T 3 L Á F T 1 N
ElKlS UM A '1 'A j KONA A* N N1 A K.NS TÖF L L T 9S T SK'lT’ U<r FA.OI K Á M U
JÁRW u B R Ú S A Ú 3 A B A K2 K A JtWl. U
MAG 1 WfiriA. lF Ö A R N 'ATT IÚ-LU- XÖWS. 3 FKOI Tr€n< ÁVÁ 1 R Æ. i/ N - Ö L A : b R N X
•— r B E - T R. A A F 7/ T A K." H 1 R MSBK- JRIHH L 1 R Fss A N *
Lausn á myndagátu
Gríðarlegur fólksfjöldi var á hafnarbakkanum á Dalvík á fiskidaginn
mikla sem haldinn var í sumar og þótti lukkast með ólíkindum vel.
Lausn á ljóðagetraun
Norðurslóðar Jan 2002
1. Hver situr á búlkanum?
Svar. Á búlkanum situr brúður ung. - Eggert Ólafsson
- Matth. Joch.
2. Hver eirir engri skepnu?
Svar. Pögull Porri. - Þorraþrœll - Kristján Jónsson
3. Hver ríður húsum og hælum lemur?
Svar. Hann. Glámur. Úr Grettisljóðum . - Matth. Joch.
4. Hver leikur sér einnig um himininn?
Svar. Drengurinn litli sem dó. - Systkinin . - Einar H.
Kvaran
5. Hvenær hverfur allt sem geðið gremur?
Svar. Þegar blessað kaffið kemur. - Eftirköstin - Páll
Ólafsson.
6. Hver bjó eitt sinn í Alfahamri?
Svar. Ekkill - Ekkillinn - Davíð Stefánsson
7. Hver brýndi einnig gogginn vel?
Svar. Krummi. - Krummavísur - Jón Thóroddsen.
8. Hver er fædd og alin blind?
Ást. - Mótsagnir - Steingrímur Thorsteinsson.
9. Hver var mín fylgikona fá því eg kom í þennan
heim?
Svar. Fátœktin. - Hjónavers - Jón Þorláksson frá
Bægisá.
10. Hver greiðir sér upp úr bárulaugunum?
Svar. Sólin klár. - Stökur - Sigurður Breiðfjörð.
11. Hver hefur skrifað hugsun sína og hag í ljóð?
Svar. íslensk þjóð. - íslenskur kveðskapur - Steph. G.
Steph.
12. Hvenær kyssir torfan náinn?
Svar. Þegar allt er komið í kring. - Stökur - Jónas
Hallgrímsson.
13. Hver hefur hendur sundurleitar?
Ástin.-Ástin hefur hýrar brár, - Sigurður Breiðfjörð.
14. Hvenær var vofa í hverjum skugga?
Svar. Um skeið. - ísl. vögguljóð. Halldór Laxness
15. Hver minnist við boðaföllin?
Hinn myrki Múli. - Áfangar - Jón Helgason.
16. Hvað er eins og að spila á spil?
Svar. Að sigra heiminn. - Steinn Steinarr
17. Hverjir koma og fara sömu ævigöng?
Svar. Kynslóðir. - Fögur er foldin - Matth. Joch.
þýddi.
18. Hver fannst meðal þyrnanna hörðu.
Svar. Fegursta rósin. - Hin fegursta rósin er fundin. -
Helgi Hálfdánarson.
19. Hvað vekur þig æ af blíðum blundi?
Svar. Brennandi kossar unnustans. - Hríslan og
lœkurinn. - Páll Ólafsson.
20. Hvað sá hugurinn yfir hlykkjóttum stafanna
baugum?
Svar. Hendur, sem var stjórnað af lifandi taugum.-
Áfangar,- Jón Helgason
21. Hver heilsar glaður heiðum degi?
Lítillfugl á laufgum teigi,- Lítill fugl,- Örn Arnarson
22. Hvað græðir fjör um dalinn?
Svar. Vorið góða grænt og hlýtt,- Vorvísur.- Jónas
Hallgrímsson.
23. Hvað eggjar bröttu sporin?
Svar. Hugann eggja bröttu sporin,- Fram til heiða,-
Stefán frá Hvítadal.
24. Hvað fyllir alls staðar þarfir manns?
Svar. Ástarsœlan. - Úr Hulduljóðiun -Jónas Hallgrímsson.
25. Hvenær er best að hætta hverjum leik?
Svar. Þá hœstfram fer. - Nú er eg glaður á góðri stund. -
Hallgr. Pétursson.
Góð þátttaka var í jólagetraununum að venju.
Flestir spreyttu sig á krossgátunni, um 50
manns. Örlítið minni var þátttakan í ljóða-
getrauninni og myndagátunni en góð samt.
Bókmenntagetraunin virðist hafa verið þyngst, þó
voru nokkrir sem sendu rétt svör við henni.
Dregið var úr réttum lausnum og komu upp
eftirtalin nöfn:
Krosscátan.. Vilborg Tryggvadóttir Austurbrún 6,
9-3,105 Reykjavík
Myndagátan. Margrét Bjartmarsdóttir Sandhólum
641 Húsavík.
Ljóðagetraunin. Björn S. Stefánsson Kleppsvegi
4o, 105 Reykjavík.
Bókmenntagetraun. Sigurður Bjarni Sigurðsson,
Brautarhóli
Verðlaunahafar fá senda bók áður en langt um
líður.
Augljóst er að þrautirnar hafa vaídið ýmsum þó
nokkrum heilabrotum og jafnvel vökunóttum yfir
hátíðirnar. Um myndagátuna orti Hartmann
Eymundsson.
Ekki átti langt í land
að leysa myndagátu.
Hjá rollunum mig rak í strand.
Þær rúnir eftir sátu.
Lilja Sólveig Kristjánsdóttir frá Brautarhóli sendi
þessa vísu ásamt lausn sinni á ljóðagetraun:
Bæði ströng og langvinn leit
líka næturvökur
sýnir Ijóst að lítið veit
Lilja um kvæði og stökur.
Þá sendi Hartmann blaðinu eftirfarandi kveðju
sem við kunnum honum að sjálfsögðu hinar bestu
þakkir fyrir.
Til útgefenda Norðurslóðar.
Alltaf hef ég undrast það
að þið skuluð megna
að gefa út þetta góða blað
gróðahyggju vegna.
Grunur minn er sífellt sá
svona efupp er litið
að áhuginn sín meira má
en mammons hyggjuvitið.
Hvort heldur sem reynist rétt
í reynd þá upp er staðið
ykkur vil ég þakka þétt
þetta fyrir blaðið.
Norðurslóð þakkar öllum þeim sem þátt tóku í
þessum jólaleikjum kærlega fyrir.
Lausn á
Bókmennta
getraun
1. Fóstbræðrasaga -Þormóður
Kolbrúnarskáld.
2. Njáls saga -KolurÞorsteinsson
3. Sturlunga saga -Þórir Jökull
4. Grettis saga -Illugi
Ásmundsson
6. Sturlungasaga -Snorri
Sturluson
7. Njáls saga -Skarphéðinn
Njálsson
8. Grettis saga -Atli
Ásmundarson
9. Gunnlaugs saga ormstungu
-Gunnlaugur ormstunga
10. Egils saga -Þórólfur
Kveldúlfsson
11. Konungsbók Eddukvæða
(Sigurðarkviða in skamma)
-Brynhildur Buðladóttir
12. Laxdæla saga -Kjartan
Ólafsson
13. Fagurt mannlíf
(ÞórbergÞórðarson)
-Gvendur dúllari
14. Isl. þjóðsögur og ævintýri
(Jón Árnason) -Kerling í
-koti við sjó
15. Mávahlátur ( Kristín Marja
Baldursd.) -Björn Theódór