Norðurslóð - 26.03.2002, Blaðsíða 3
Norðurslóð - 3
Gömul augnablik
Að þessu sinni eru myndirnar úr safni Dengsa (Lofts Baldvinsson-
ar). Allar eru þær teknar á sjómannadegi árið 1955. Það var alltaf líf
við höfnina á þessum degi auk þess sem landmenn og sjómenn
kepptu í fótbolta á knattspyrnuvellinum á kaupfélagstúninu. Matt-
hías Jakobsson skoðaði myndirnar með okkur og hjálpaði til við að
finna hver er hver á þeim.
Menn renndu sér eftir kaðli sein strengdur var á milli litlu bryggjunnar
og norðurgarðsins. Stundum náðu menn ekki að hanga alla leið og
duttu þá í sjóinn við mikinn fögnuð þeirra sem á horfðu.
Stœrstu skipin fóru með fólk í skemmtisiglingu út á Eyjafjörðin á sjó-
mannadag. Hér er Baldvin Þorvaldsson EA 24 að koma að landi með
fjöldann allan af fólki.
Hér eru tvö fótboltalið samtals
22 menn. Frá vinstri má þekkja:
Stebbi í Staðarhóli, Árni í Holt-
inu, líklega Óskar í Ártúni aft-
anvið, Óli í Vallholti, Matti í
Mói, Haukur Frímanns, Gunnar
í Brúarlandi, Matti Jak, Stebbi
Gren, Bergur Lár, ÓliJak, Ámi
í Miðkoti, Viddi í Sœgrund,
Sverrir í Sœlandi, Björn El,
Kiddi í Mói, Helgi Jak, Tommi
Péturs og Ægir Þorvalds. Krjúp-
andi eru Bjössi í Ásbyrgi; Steini
Sím og Gunni Jó.
Hér eru liðin að keppa og flestir
greinilega því sem nœst í sínum
sparifötum. Þessir leikir gátu
verið býsna harðir og fjörugir.
Það er eftirtektarvert að engin
tré eru við húsin og er það tals-
vert annað en það er í dag. Svo
eru Ámi og Bára ekki búin að
byggja húsið sitt og Bárubúðina.
Ráðhús Dalvíkur stendur nú þar
sem leikmennirnir eru að spila á
myndinni.
Hér er Ingólfur Jónsson að reka
nagla í planka í naglaboðhlaupi
dagsins. Áhorfendurfylgjast
áhugasamir með.
Horft af litlu bryggjunni yfir á
Norðurgarðinn. Hér má sjá hve
mannmargt hefur verið á
garðinum.
Sennilega er þetta sigursveitinn í naglabohlauinu. Sveit iðnaðar-
manna. Frá vinstri Júlli Eiðs, Elías í Víkurhóli, Jón Björnsson með
hamarinn, Ingólfur Jónsson í Kambi og Pálmi í Odda.
Þessi sveit gœti hafa sigrað. Sveit trillukarla. Óskar í Ártúni, Kiddi í
Sœgrund (Rommel), Óli í Vallholti, Torfi Guðlaugs (að vísu ekki
trillukarl) og svo Steingrímur í Grímsnesi.
• • ■ " . . / ..... ‘ * / * «
. • / ’ * ' -*-
: ’.'.lliíM ~4--* X • * i-/.