Norðurslóð - 22.05.2002, Page 2
2 - Norðurslóð
Norðurslóð
Útgefandi: Rimar ehf.
Ritstjórar og ábyrgðarmenn: Hjörleifur Hjartarson, Lauga-
steini, 621 Dalvík, sími: 466 3370. Netfang: hjhj@ismennt.is
Jóhann Antonsson, Dalvík. Netfang: ja@radgjafar.is
Framkvæmdastjóri: Sigríður Hafstað, Tjörn. Sími: 466 1555.
Umbrot: Þröstur Haraldsson. Netfang: throsth@isholf.is
Heimasíða: www.Nordurslod.is
Prentvinnsia: Alprent, Glerárgötu 24, Akureyri, sími: 462 2844.
Traustar
stofnanir
Nýlega hafa bæði Sparisjóður Svarfdæla og Dalvíkur-
byggð birt ársreikninga sína fyrir árið 2001. Samkvæmt
þeim er staða þessara mikilvægu stofnana sveitarfélags-
ins mjög góð. Sé borið saman við sambærilegar stofnan-
ir víða um land er afkoma síðasta árs með því besta sem
sést. Það er auðvitað mjög mikilvægt fyrir byggðarlagið
að staða bæði sveitarsjóðs og einu peningastofnunar-
innar á staðnum er svo taust sem og raun ber vitni.
Sparisjóður Svarfdæla skilaði yfir fimmtíu milljónum
króna í hagnað eftir skatta. Þetta er langbesta rekstrar-
afkoma sparisjóðsins í 118 ára sögu hans. Afkoma af
hefðbundinni bankastarfsemi var viðunandi en aðal-
hagnaður var af hlutabréfasölu. Staða sparisjóðsins svo
sem eiginfjárstaða er mjög góð og stofnunin traust.
Á aðalfundi sparisjóðsins sem haldinn var í lok apríl
var vígður konsertflygill sem ákveðið var að kaupa í lok
síðasta árs þegar ljóst var að afkoman yrði jafn góð og
raun ber vitni. Flygillinn verður eign sparisjóðsins og
staðsettur í Dalvíkurkirkju þar sem tónlistarfólk getur
haft afnot af honum til tónleikahalds. Dalvíkurkirkja
hefur alltaf þótt hafa góðan hljómburð. Eftir þær breyt-
ingar sem gerðar voru á kirkjunni fyrir tveimur árum og
kaupin á flyglinum hefur skapast einhver besta aðstaða
til tónlistaflutnings hér um slóðir og þótt víðar væri leit-
að.
Á aðalfundinum var að venju tilkynnt um úthlutun úr
Menningarsjóði Svarfdæla. Að þessu sinni hlutu 10
styrk vegna starfsemi af ýmsu tagi. Menningarsjóðurinn
var stofnaður í tilefni 100 ára afmælis sparisjóðsins árið
1984 og þó hann sé sjálfstæð stofnun er hann tengdur
nafni Sparisjóðs Svarfdæla enda fjármagnar sparisjóð-
urinn einn menningarsjóðinn. Upplýst var við þetta
tækifæri að menningarsjóðurinn hefði frá upphafi út-
hlutað styrkjum til menningarmála sem nema 30 millj-
ónum króna á núverandi verðlagi.
Auk þess sem hér hefur verið talið upp styrkir spari-
sjóðurinn ýmsa íþrótta- og menningarviðburði á hverju
ári. Það munar því um Sparisjóð Svarfdæla við upp-
byggingu á sviði íþrótta- og menningarmála í byggðar-
Iaginu.
Ársreikningur Dalvíkurbyggðar ber vott um trausta
stöðu bæjarsjóðs. Það er auðvitað mikilvægt fyrir íbúa
sveitarfélagsins að fjárhagsstaðan sé með þeim hætti að
hægt sé að auka og bæta þjónustu við íbúana eftir því
sem aðstæður kalla á.
Ymissa hluta vegna hafa margar byggðir utan höfuð-
borgarsvæðisins átt við andstreymi að etja. Sennilega er
ekkert ömurlegara við þá stöðu en þegar fjölmiðlar eru,
dag eftir dag, uppfullir af neikvæðum fréttum frá ein-
staka byggðum, hvort sem fréttin er af erfiðri stöðu at-
vinnumála eða skuldum vafinn sveitarsjóð sem ekki
getur veitt íbúum eðlilega þjónustu. Slík umræða er ein-
ungis til þess fallinn að draga kjark úr fólki og hrekja
það brott úr byggðarlaginu. Því hrukku ýmsir við þegar
fréttamenn svæðisútvarpsins fóru að tíunda tölur sem
ekki eiga sér stoð í ársreikningum bæjarsjóðs og bentu
til mun verri stöðu sveitarfélagsins en raun ber vitni.
Sem betur fer hefur staða mála í Dalvíkurbyggð verið
með þeim hætti að héðan hefur ekki þurft að segja mik-
ið af neikvæðum fréttum enda á það að vera keppikefli
allra að svo sé. Við skulum vona að fréttamenn svæðis-
útvarpsins sjái sér fært að leiðrétta fyrri fullyrðingar.
Það getur ekki verið keppikefli þeirra að mála svæðið
dekkri litum eða auglýsa einstaka byggðarlög með nei-
kvæðari hætti en nokkrar efnisforsendur eru fyrir.
JA
Hagræðifræðingurinn
Hagræði-fræðingurinn er
ógeðfelld skepna. Hjarta
hans er ekki í brjósthol-
inu heldur brjóstvasanum. Mátt-
ur hans er mikill enda á hann
það sameiginlegt með Guði og
Kölska að geta verið alls staðar
nálægur. Boðskapur hans er ein-
faldur: Enginn rekstur sem
stenst ekki alþjóðlega sam-
keppni á sér tilverurétt. Engin
stofnun sem ekki „ber sig“ eða
lýtur lögum hagræðifræðinnar á
rétt á sér. Allt mannlíf sem ekki
sveigir sig að þessum skilmálum
dæmist til dauða. Önnur gildi en
rekstrarleg og fjárhagsleg hag-
kvæmni skipta ekki máli. Hag-
ræði-fræðingurinn er holdi
klæddur fulltrúi lögmála kapítal-
ismans í stjórnkerfi og pólitík.
Það gefur honum valdið. Hann
er ekki flokksbundinn, áhrif
hans eru meiri en svo. En vissu-
lega gætir áhrifa hans meira í
sumum flokkum en öðrum.
Landsbyggðin skiptist í frem-
ur smá samfélög sem mörg
standa á gömlum merg. Á 20. öld
döfnuðu þessi samfélög og þró-
uðust, fólkið byggði upp at-
vinnustarfsemi sína og leysti sín
samfélagslegu mál svo sem
verslun, heilsu- og félagsþjón-
ustu, grunnskóla o.fl. í samvinnu
við virkt ríkisvald. Gæði lífsins í
slíkum samfélögum tengist ná-
lægðinni; nálægð fólksins við
náttúruumhverfi, nálægð ein-
staklingsins við samfélag sitt og
þar með gildi hvers og eins sem
samfélagsþegns. Slík samfélög
bjóða upp á samheldni og félags-
lega virkni. Ný tækni og þekking
bjóða upp á ótal möguleika til
að bæta þar atvinnulíf, þjónustu
og mannlíf.
Fyrir svo sem 20 árum hafði
hagræði-fræðingurinn magnast
upp í sístækkandi ófreskju og
gekk ljósum logum á lands-
byggðinni. I hans augum voru öll
samfélög hinna dreifðu byggða
fáránlega smá og óhagkvæm.
Hreinlega ógeðsleg á mæli-
kvarða hagræðifræðinnar. Síðan
hefur hann verið að kippa undan
þeim stoðunum, einni af einni,
smáútgerðum sem sigla frá
heimahöfn, smærri verslunum,
samvinnurekstri um sláturhús,
mjólkursamlög og smáiðnað og,
ekki síst, litlum skólum. Burt
með það allt saman, hrópaði
hann. Já herra, sögðu pólitíkus-
arnir álengdar, það verður að
nútímavæða. Ykkur líður miklu
betur svona, sagði hagræði-fræð-
ingurinn við fólkið og hélt áfram
að brjóta niður æfistarf þess.
Nú á að kjósa um sveitar-
stjórnarmál. I Dalvíkurbyggð
virka gömlu hrepparnir þrír - á
Árskógsströnd, Dalvík og í
Svarfaðardal - ennþá sem bæri-
lega lifandi samfélög þrátt fyrir
sameiningu sveitarstjórna í eina.
Hagræði-fræðingurinn hefur
vissulega látið þar til sín taka þó
að hann hafi leikið nálæg sveit-
arfélög enn verr. Framtíð Dal-
víkur og gamla Árskógshrepps
varð skyndilega ótrygg vegna
hagræðingar í kvóta og útgerð
þar sem heimamenn misstu for-
ræði sinna mála. Ibúar Svarfað-
ardals voru löngum þekktir af
virkni og samheldni um sín sam-
félagsmál, en samfélagið hefur
um skeið verið í varnarbaráttu
eins og bændasamfélagið víðast
hvar. Á dalbúum brennur nú eitt
stórt sveitarstjórnarmál: vernd-
un Húsabakkaskóla. Húsabakki
er hjarta samfélagsins í dalnum.
Þar er allstór vinnustaður, í
tengslum við skólann eru flestar
samkomur sveitunganna og í
enn auknum mæli eftir að félags-
heimilið Rimar var byggt. En
umfram allt er þar frábærlega
góður skóli í nánum tengslum
við foreldra og samfélagið í
kring. Ég hef oftar en einu sinni
hitt kennara sem heimsótt hafa
skólann og lýst honum með
stjörnur í augum eins og píla-
grímur sem kemst til Mekka.
Vaxandi fjöldi Dalvíkinga kann
að meta þessa skólagerð og
sendir þangað börn sín. Svarf-
dælingar vita undir niðri að til-
vera skólans er fyrsta forsenda
fyrir góðu mannlífi í Svarfaðar-
dal. I bland við sætan söng fram-
bjóðendanna í Dalvíkurbyggð
má þó heyra stríðsöskur hag-
ræði-fræðingsins. Hann hefur
fengið augastað á Húsabakka-
skóla og finnst hann andstyggi-
legur.
Á kosningadag verða Svarf-
dælingar að muna að þetta mál
er númer eitt. En einn kosninga-
dagur stöðvar ekki umrædda
þróun. Ofreskjan fer sínu fram
alla daga ársins gegn öllu því
sem enn gerir mannlífið í byggð-
arlaginu gott, og sókn hennar
mun sífellt þyngjast þar til al-
menningur lærir að þekkja djöf-
ulinn á hornunum og tekur upp
baráttu gegn honum. Alla daga.
Þórarinn Hjartarson
Júlli Júll stofnsetur
unglingaleikhús
Júlíus Júlíusson athafnamaður í félagsmúlum margra kynslóða.
Júlíus Júlíusson athafnaskáld á
Dalvík fékk sl. fimmtudag 130
þúsund króna styrk frá Félags-
málaráði Dalvíkurbyggðar til að
halda leiklistarnámskcið fyrir
unglinga og setja upp unglinga-
leikhús í sumar.
Styrkurinn er veittur af fé
sem sérstaklega er ætlað til for-
varnarstarfs meðal unglinga en
Júlíus segir að sú sjálfstyrking
sem felst í þátttöku í leikstarfi
hafi tvímælalaust mikið forvarn-
argildi. Júlíus segir ætlun sína að
vera sem mest úti undir beru
lofti með krökkunum, setja upp
götuleikhús og vera með uppá-
komur hér og þar um byggðina.
Þátttökugjald verður ekkert og
er ætlunin að vera með leikstarf-
ið í tengslum við vinnuskólann.
Þetta er þó ekki það eina sem
Júlíus fæst við þessa dagana því
fyrir utan að eignast erfingja í
byrjun mánaðarins og ferma ann-
an nú um helgina brá hann sér á
þing Bandalags íslenskra leikfé-
laga þar sem hann setti upp ein-
þáttung eftir sjálfan sig og sló svo
rækilega í gegn að annað eins
hefur varla gerst. Uppsetning
verksins var með nokkuð nýstár-
legu sniði því leikararnir sjö vissu
ekki fyrr en fimm mínútum fyrir
sýningu hverjir mótleikararnir
væru. Æfingar og leikstjórn fór
fram gegnum síma og segist Júlí-
us fyrst og fremst hafa lagt
áherslu á karaktervinnu með
leikurunum. Sýningin sjálf
byggðist á spuna en þó innan
ákveðins söguramma.
Þá má að lokum geta þess að
mikill áhugi er fyrir því hjá LD
að setja upp unglingaleikrit
næsta vetur með skólakrökkum
og er málið raunar svo langt
komið að leiklist hefur verið
tekin upp sem valgrein í 9. og 10
bekk í Dalvíkurskóla.