Norðurslóð - 27.10.2002, Blaðsíða 8

Norðurslóð - 27.10.2002, Blaðsíða 8
Tímamót Skírnir Sunnudaginn 17. nóv sl. var skírður í Vallakirkju Styrmir Þeyr. Foreldrar hans eru Trausti Þórisson og Ásdís Gísladótt- ir. Prestur var séra Magnús G. Gunnars- son. Afmæli Þann 27. októ- ber sl. varð 70 ára Jórunn Sigurðardóttir, Smáravegi 9, Dalvík. Þann 17. nóvem- ber sl. varð 90 ára Þórgunnur Loftsdóttir, Dalbæ, Dalvík. Þann 18. nóvem- ber sl. varð 75 ára Jóhann Daníclsson, Sunnubraut 14, Dalvík. Andlát Þann 9. nóvember sl. lést Sæmundur E. And- ersen. Sæmundur var fæddur á Siglufirði 8. desember 1936. Foreldrar hans voru hjónin Magna Sæmundsdóttir og Emil Helgi Ander- sen, en einnig áttu þau dótturina Margréti, sem er látin. Sæmundur átti átti þrjú hálfsyst- kin, samfeðra, þau eru: Anna Halla, býr á Akureyri, Þröstur, býr í Reykjavík og Björk, sem býr í Reykjavík. Á sextánda aldursári fluttist Sæmundur frá Siglufirði og bjó eftir það víða hér á landi og einnig um tíma erlendis. Á tvítugsafmæli Sæmundar gekk hann að eiga Þórdísi Lindu Andersen. Hún er fædd 18. ágúst 1937 á Helgeland í Nor- egi. Börn þeirra eru: Emil Magni, maki Kolbjörg Margrét Jó- hannsdóttir, þau eiga sex drengi og búa í Reykjavík; Sæmundur Hrafn, ókvæntur, á eina dóttur og býr á Akureyri; Birgitta Hrönn, gifl Oltó Harðarsyni, þau eiga tvær dætur og búa á Akur- eyri; Dúi Kristján, kvæntur Elísabetu Kristínu Guðmundsdóttur, þau eiga tvo syni og eina dóttur og búa á Dalvík. Þegar Sæmundur fluttist til Dalvíkur, hafði hann áður búið í Skagafirði, starfað sem bakari á Akureyri og var um tíma próf- dómari í þeirri grein. Einnig lærði hann við landbúnaðarháskóla í Noregi. Eftir að Sæmundur fluttist til Dalvíkur stundaði hann kennslustörf, einnig vann hann sem frjótæknir og fleiri störf. Síðustu árin vann hann við bókhald. Sæmundur var mjög virkur í ýmsum félögum hér í bæ, hann var m.a. í Kvenfélaginu Vöku, eini karlkyns meðlimurinn í því félagi. Reyndar má geta þess að hann var fyrsti íslenski karlmaðurinn til að ganga í kvenfélag. Hann var einnig félagi í Lionsklúbbi Dalvíkur. Hann var um tíma félagi í Kiwanisklúbbnum Hrólfi. Útför Sæmundar var gerð frá Dalvíkurkirkju þann 16. nóvember. Þann 12. nóvember lést á Dalbæ, Jónas Hallgrímsson frá Bjarn- arstöðum. Hans er minnst í grein á bls. 6 inni á blaðinu. Aðventukvöld Aðventukvöld verður að Rimum að kveldi 1. desember kl 20:30, í Dalvíkurkirkju að kveldi 8. desember kl. 20:30, en í Stærri- Árskógskirkju sama kvöld kl. 20. Kór Stærri- árskógskirkju heldur sína árlegu „Sveiflu" í kirkjunni laugardaginn 14. desember kl. 20. Þar koma fram einstaka kór- félagar ásamt kórnum öllum og láta ljós sitt skína. Sunnudaginn 15. verður svo kveikt á kirkjugarðslýsingu í kirkjugarðinum kl. 18. Laufabrauð Nú fer í hönd tími laufabrauðs- baksturs, sem talin var svarf- dælsk hefð til skamms tíma. Norðurslóð birtir hér til gamans svarfdælska uppskrift að laufa- brauði. 1 kg hveiti 200-300 g rúgmjöl 1 tsk. lyftiduft 1 tsk. salt 2 tsk. sykur 50 g smjörlíki 7-8 dl mjólk 4-5 msk. kúmen Mjólkin er hituð með smjörlík- inu og kúmeni í 80-90°C hita. Blandað í mjölið með kryddinu. Hnoðað hratt og vel. Steikt í tólg eða jurtafeiti. Kökurnar pressaðar með loki sjóðheitar. Skemmdir á berjalyngi í Svarfaðardal og nágrenni í haust Stundum hefur borið á skemmd- um á bláberjalyngi á haustin þannig að blöðin visna og berja- landið verður brúnt yfir að líta. Ymsar orsakir kunna að vera fyrir slíkum skemmdum, og stundum verður lyngið brúnt af haustfrostum. Nú í ágúst bárust mér fréttir af því að stórir lyngflákar í inn- anverðum Svarfaðardal væru skemmdir og að ekki væri um frostskemmdir að ræða. Fór ég ásamt Soffíu Arnþórsdóttur vist- fræðingi á Akureyrarsetri Nátt- úrufræðistofnunar til rannsókna á orsökum skemmdanna í svo- nefndum Hnjótum í Svarfaðar- dal. Kom í ljós að það er svört eða dökkblá fiðrildalirfa, svo- nefndur birkifeti (Rheumaptera hastata), sem veldur skemmdun- um. Étur lirfan blöð á bláberja- lyngi, og reyndar einnig fjall- drapa, og vefur þeim utanum sig. Lifir hún síðan sem púpa til næsta sumars en þá kemur fiðr- ildi úr púpunni sem verpir eggj- um sem verða að nýjum lirfum. Skemmdirnar eru oft stað- bundnar og eru mikil áraskipti á því hve áberandi þær eru, en áð- ur verða menn stundum varir við mikinn fiðrildasveim, fiðrildi sem hafa komið úr púpum að vori. Líklegt er að mildir vetur tryggi góða afkomu púpanna og að það sé ástæða faraldursins í Svarfaðardal. Við þessu er ekk- ert að gera, einungis að vona að náttúran grisji púpustofninn næsta vetur. Um svipað leyti og þessi far- aldur kom upp fengum við upp- hringingar um annars konar skemmdir á bláberjum. Það voru berjatínslumenn sem tóku eftir því að berin sjálf (ekki laufið) urðu brúnleit og litu stundum út eins og þau hefðu ekki þroskast. Bárust fréttir af þessu bæði af Böggvisstaðadal og Þorvaldsdal. Sýni af þessum berjum frá Ár- skógsströnd voru send Heil- brigðiseftirlitinu á Akureyri og fékk Guðríður Gyða Eyjólfs- dóttir sveppafræðingur á Nátt- úrufræðistofnun þau til rann- sóknar. Greindi hún þar fljót- lega vankynja stig asksvepps sem tilheyrir ættkvíslinni Pliia- lophora, en sveppir af þessari ættkvísl lifa víða, bæði á plönt- um, dýrum og í mold. Svepp- urinn sendir þræði inn um berið og dregur þaðan næringu og virðist stöðva þroska berjanna. Þessi tiltekni sveppur er í ræktun á rannsóknarstofu og verður hægt að greina hann nánar ef hann myndar kynstig. Ekkert er við þessu að gera annað en að forðast að tína sýkt ber. Bjarni E. Guðleifsson, Möðruvöllum Fréttahorn Fyrstu helgina í nóvember héldu tónlistarskólarnir á Dalvík og á Akureyri í samvinnu við foreldrafélag Suzukinem- enda námskeið fyrir börn í hljóðfæraleik í Tónlistarskólan- um á Dalvík. Um 50 krakkar mættu til leiks víða að af Eyja- fjarðarsvæðinu og nutu þeir leið- sagnar 7 kennara hvert í sinni grein. Klukkan 5 síðdegis hélt svo hópurinn tónleika í Dalvík- urkirkju við góðar undirtektir foreldra og annarra sem á hlýddu. Sýningar Leikfélags Dalvíkur á Kverkataki eftir Júlíus Júl- íusson ganga vel. Verkið hefur verið sýnt sjö sinnum fyrir fullu húsi og búið er að setja á nokkr- ar sýningar til viðbótar. Leikfé- lagið tekur þátt í keppni Þjóð- leikhússins um áhugaverðustu áhugasýninguna og kom dóm- nefnd að sunnan að sjá herleg- heitin í síðustu viku. Ekki er þó að vænta niðurstöðu frá henni fyrr en í vor. Næstu sýningar verða á föstudags- og sunnu- dagskvöld. Þá hefur hópur fólks úr Fjör- fiski, starfsmannafélagi Sam- herjavinnustaðanna a Dalvík, haldið uppi revíudagskrá í Böggveri sem þau nefna „Land- ið og miðin“ við mikinn fögnuð áhorfenda. Leikstjóri og prímus mótor dagskrárinnar er Arnar Símonarson. Munir og minjar Á byggðasafninu í Hvoli er fjöldi muna sem bera vitni um horfna starfshætti og margir þeirra koma nútímabörnum ef til vill spánskt fyrir sjón- ir. íris Ólöf Sigurjónsdóttir forstöðumaður Byggða- safnsins í Hvoli gerir hér lítilleg skil munum og minjum af safninu, auk þess sem birtar eru mynd- ir af skrýtnum hlutum sem lesendur mega ráða í til hvers voru notaðir. Ef þið hafið einhverjar upplýsingar um munina hvetjum við ykkur til að hafa samband við Irisi á byggðasafninu í síma 466-1497 eða 892-1497. Taðspaði. Gefandi: Sveinn Jónsson, Kálfs- skinni. Þetta áhald heitir taðspaði, notað- ur til að kljúfa sauðatað á vorin eftir að stungið var út úr fjárhús- krónum. Hnaus- arnir voru klofnir í 3ja til 5 sm þykkar flögur, þeim raðað til þerris á þurran hól, síðan reistar upp tvær og tvær saman eins og spilaborg. Gegn- þurrum var þeim hlaðið upp í taðhlaða sem stóðu úti fram á haust, en þá fluttir inn í eldiviðar- geymslur.Taðið var notað með öðru eldsneyti við eldamennsku, upphitun og ekki síst við reykingu matvæla. Mynd 7. Hvað er þetta?

x

Norðurslóð

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Norðurslóð
https://timarit.is/publication/1253

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.