Dagblaðið Vísir - DV - 28.06.2016, Page 2

Dagblaðið Vísir - DV - 28.06.2016, Page 2
Vikublað 28.–30. júní 20162 Fréttir HAMBORGARASÓSA MEÐ BEIKONBITUM ... þarf að segja eitthvað meira? NÝ SÓSA Tilboð á Lappset útileiktækjum 2016 Leitið til sölumanna í síma 565 1048 HEILDARLAUSNIR FYRIR LEIKSVÆÐI - Leiðandi á leiksvæðum jh@johannhelgi.is • johannhelgi.is Uppsetningar, viðhald og þjónusta • Útileiktæki • Girðingar • Gervigras • Hjólabrettarampar • Gúmmíhellur • Fallvarnarefni Hleyptu rangri Sóleyju í leynispjall T uttugu og eins árs gömul alnafna Sóleyjar Tómas­ dóttur borgarfulltrúa fékk óvænta innsýn í bak­ tjaldamakk stjórnmál­ anna þegar henni var fyrirvaralaust bætt við umræðuhóp borgarstjórn­ armeirihlutans meðan á borgar­ stjórnarfundi stóð. „Það er leiðin­ legt að vera að troða þessu upp á óviðkomandi aðila og rétt að biðj­ ast afsökunar á því,“ segir formað­ ur borgarráðs sem segir umræður meirihlutahópsins vel þola dags­ ljósið. Strategískar umræður og sjálfsefi borgarstjóra „Mér fannst þessi ruglingur fyrst og fremst fyndinn en þegar maður hugsar þetta lengra þá eru þetta náttúrlega frekar ámælisverð vinnubrögð fyrir meirihluta borgar­ stjórnar,“ segir Sóley Tómasdóttir, 21 árs gamall nemi og alnafna odd­ vita Vinstri hreyfingarinnar græns framboðs í borgarstjórn. Sóley vissi ekki hvaðan á hana stóð veðrið þegar henni var skyndi­ lega bætt við samtal meirihluta borgarstjórnar á Facebook fyrir misskilning. Sóley staðfestir þetta í samtali við DV og segir að sam­ tal borgarfulltrúanna hafi gefið áhugaverða innsýn í baktjaldamakk stjórnmálanna. „Þau voru að ræða hver væri besta strategían til þess að fá ákveðið mál samþykkt í gegn­ um borgarstjórn óbreytt. Mest voru þau að spá í hver yrði mótleik­ ur minnihlutans og með hvaða hætti væri hægt að bregðast við. Einn borgarfulltrúi talaði um „að kalla blöff“ minni­ hlutans og á einum stað kemur borgarstjóri með tillögu en dregur síðan aðeins í land með orðunum „… eða er ég bara illgjarn pappa­ kassi?“, segir Sóley kímin. „Málið sem þau voru að ræða á þessum tímapunkti var ekkert sér­ staklega viðkvæmt en þetta vekur upp spurningar um hvort borginni sé stjórnað í gegnum Facebook­ spjall. Ef svo er þá er kannski rétt að sýna meiri aðgát,“ segir Sóley. Aðspurð segist hún sjaldan hafa orðið fyrir óþægindum út af nafni sínu. „Fyrir fjórum árum birt­ ist frétt á menn.is um nöfnu mína sem ég „like“­aði, þá sautján ára gömul. Í kjölfarið var hringt í mig frá vefsíðunni og tekið við mig ör­ stutt spjall. Í lokin var ég spurð hvort að ég myndi frekar giftast Agli Gillz eða Erpi Eyvindarssyni og ég svaraði Agli því ég taldi að hann væri yngri. Í kjölfarið birtist frétt á menn.is með fyrirsögninni „ Sóley Tómasdóttir myndi frekar giftast Gillz heldur en Erpi“, segir Sóley og hlær. Formaður borgar- ráðs biðst forláts Björn Blöndal, for­ maður borgarráðs og oddviti Bjartrar fram­ tíðar, biðst afsökunar á mistökunum sem hann segir vissulega vera óheppileg. „Þetta voru umræður meirihluta­ hópsins meðan á síðasta borgarstjórnarfundi stóð. Við tókum skyndilega eftir því að það voru tvær Sóleyjar í hópn­ um. Það er leiðinlegt að vera að troða þessu upp á óviðkomandi aðila og rétt að biðjast afsökunar á því,“ segir Björn. Að hans sögn eru engin málefni rædd í hópnum sem ekki þola dags­ ljósið og því fari fjarri að borginni sé stjórnað í gegnum Facebook. „Eins og allir í nútímasamfélagi þekkja þá er þetta ágætis vettvangur fyrir sam­ skipti þegar ekki er hægt að ræða saman upphátt, eins og til dæmis á borgarstjórnarfundi. Þarna er hitt og þetta rætt, jafnvel skipst á gaman yrðum en einnig athugað hvort allir séu ekki vakandi og hvort fólk sé nokkuð að fara að hlaupa út­ undan sér í atkvæðagreiðslu. Þetta er sósíalvettvangur meirihluta­ hópsins og ágætt tæki í sjálfu sér,“ segir Björn, sem lítur atvikið ekki alvarlegum augum. „Þetta er auð­ vitað óheppilegt en þarna er ekkert rætt sem ekki þolir dagsljósið. Það er jafnvel spurning hvort við ættum ekki að hafa umræðurnar „public“, það myndi kannski auka áhuga fólks á stjórnmálum,“ segir Björn. n Tuttugu og eins árs gömul alnafna borgarfulltrúans fékk innsýn í baktjaldamakk stjórnmálanna „Óheppilegt – formaður borgarráðs Björn Þorfinnsson bjornth@dv.is Björn Blöndal Segir umræður meirihluta- hóps borgarstjórnar á borgarstjórnarfund- um alveg þola dagsljósið. Þar sé skipst á gamanyrðum og athugað hvort að allir séu „vakandi“. Mynd davíð Þór Meirihluti borgarstjórnar Bættu rangri Sóleyju Tómasdóttur við „leynispjall“ hópsins meðan á borgarstjórnarfundi stóð.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.