Dagblaðið Vísir - DV - 28.06.2016, Blaðsíða 22
Vikublað 28.–30. júní 201618 Fólk Viðtal
Eliza Reid mun brátt flytja á Bessastaði. Hún er eiginkona Guðna Th.
Jóhannessonar, nýkjörins forseta Íslands. Ragnheiður Eiríksdóttir skrapp í heim-
sókn til hjónanna að morgni sunnudagsins 26. júní, þáði ljómandi góðan kaffi-
bolla og spjallaði við Elizu um nýja hlutverkið sem hún á í vændum. Nóttina eftir
flugu hjónin til Frakklands til að horfa á leik Íslands og Englands á EM. Á
Tjarnarstígnum eru út-
sendingarbílar RÚV að koma
sér fyrir þegar mig ber að
garði. Dyrnar á húsi númer
11 standa upp á gátt og rödd
nýja forsetans berst út í regnvotan
sumardaginn. Ég læðist inn og hitti
fyrir hina kanadísku Liz, frænku
Elizu, í eldhúsinu. „Ég kom til að að-
stoða þau,“ útskýrir hún fyrir mér.
Guðni situr í stofunni, prúðbúinn
innan um blóm, og er að ljúka við-
tali við annað dagblað, á borðstofu-
borðinu er ein stærsta súkkulaðikaka
sem ég hef séð og veggina prýðir
fjöldi mynda af fjölskyldunni. Eliza
tekur á móti mér brosandi og ég gef
henni hamingjuóskaknús. Svo lagar
hún fyrir mig kaffi í appelsínugulan
múmínbolla og við fáum okkur sæti
í stofunni. Ég byrja á að spyrja Elizu
hvernig henni líður.
„Mér líður mjög vel. Þetta er svo-
lítið eins og að fæða barn, konur skilja
tilfinninguna. Maður er ofsalega glað-
ur og þreyttur á sama tíma, og eitt-
hvað alveg glænýtt og óþekkt er að
byrja. Einhver óviss en falleg framtíð.“
Engar efasemdir
Fyrstu kannanir sýndu stórkost-
legt fylgi – voruð þið sigurviss allan
tímann?
„Þegar við byrjuðum að skoða
möguleikann á framboði vildi Guðni
ekki bjóða sig fram nema eiga góða
möguleika á sigri. Hann bauð sig
fram til að vinna, eins og allir hinir
væntanlega. Frá fyrstu skoðana-
könnunum hafði hann forskot,
en við bjuggumst alltaf við að þær
tölur mundu lækka. Hann stóð sig
vel í baráttunni, fólki líkaði tónninn
hans. Ég vissi að hann gæti orðið frá-
bær forseti, og svo kom í ljós að ansi
margir voru sammála því.“
Varstu einhvern tímann efins,
læddist sú hugsun einhvern tím-
ann að þér að ákvörðunin hefði ver-
ið röng?
„Nei, aldrei nokkurn tíma. Stund-
um finnur maður svo sterkt fyrir því
að eitthvað sé rétt, og þetta var eitt
af þeim skiptum. Við höfðum engu
að tapa. Ef Guðni hefði ekki unnið
hefðum við bara snúið aftur til okkar
starfa og haldið lífinu áfram með
skemmtilega reynslu að baki.“
Vann Guðna í happadrætti
Eliza fæddist í Ottawa, höfuðborg
Kanada, og ólst upp, ásamt tveimur
bræðrum sínum, í foreldrahúsum.
„Reyndar ólst ég upp á bóndabæ,
foreldrar mínir eru áhugabændur
og eiga til dæmis íslenskar kindur,
hænur og endur. Pabbi er kennari
og mamma húsmóðir. Annar bróðir
minn er verkfræðingur og hinn er
rithöfundur. Ég er með BA-gráðu í
ÞITT BESTA VAL Í LITUM
HANNAH NOTAR
LIT 3-65
PALETTE DELUXE
NÚ MEÐ LÚXUS
OLEO-GOLD ELIXIR
GERÐU LIT
AÐ LÚXUS
FYRIR ALLT AÐ 30% MEIRI GLJÁ*
NR. 1 Í EVRÓPU
NÝTT
Eliza flytur
á Bessastaði
Ragnheiður Eiríksdóttir
ragga@dv.is
„Þetta
er svo-
lítið eins og
að fæða barn,
konur skilja
tilfinninguna
Innflytjandinn Eliza
Vill nota tækifærið sem
forsetafrú til að vinna að
málefnum innflytjenda.
Mynd SIGtRyGGuR ARI