Dagblaðið Vísir - DV - 28.06.2016, Blaðsíða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 28.06.2016, Blaðsíða 16
Vikublað 28.–30. júní 20162 Bestu pizzurnar í bænum - Kynningarblað Sælkerapizzur með hráefni úr héraði „Við spörum ekki áleggið“ P izzugerð hjá Kaffi-Seli, á bænum Efra-Seli skammt frá Flúðum, á sér 20 ára sögu og fullyrða má að pizz- urnar hjá Kaffi-Seli hafi sterk sérkenni enda eru þær orðnar mjög þekktar: „Við byrjuðum smátt en erum núna með tvo ofna þannig að við getum bakað hátt í 40 pizzur á klukkustund, þegar mikið er að gera. Við höfum alltaf lagt áherslu á að nota hráefni úr héraði, t.d. af garðyrkjustöðvunum í kring. Kjöt- afurðir, hakk og beikon og annað, allt kemur þetta úr héraðinu. Þetta eru því mjög „local“ pizzur. Við fáum til dæmis deigið frá Sindra bakara á Flúðum sem nýlega hóf sína starfsemi hér. Síðan er sósan al- gjört lykilatriði, leyniuppskrift sem við höfum haldið óbreyttri í 20 ár. Við gerum sósuna alveg frá grunni.“ Þetta segir Unnsteinn Logi Egg- ertsson, einn eigenda Kaffi-Sels. Hann bætir við að áleggið sé ekki sparað á pizzurnar, enda eru þær þekktar sem sælkerapizzur með ríkulegu og ljúffengu áleggi. Í sama anda hefur hamborgara- matseðillinn á Kaffi-Seli ný- lega verið endurnýjaður. Ham- borgararnir eru orðnir sannkallaðir „gourmet“ sælkerahamborgarar, sem bera örnefni úr héraðinu og nöfn þekktra persóna á borð við Fjalla-Eyvind (sjá mynd). Enn fremur er boðið upp á nokkrar tegundir af súpum, m.a. með hráefni úr héraði, salöt og fleiri rétti á matseðlinum. Kaffi-Sel er fjöl- skyldufyrirtæki þar sem þrjár kyn- slóðir koma að rekstrinum. Hjónin Halldór Guðnason og Ástríður G. Daníelsdóttir stofnuðu staðinn á sínum tíma, fyrir rúmlega 30 árum. Dóttir þeirra, Halldóra Halldórs- dóttir, er eiginkona Unnsteins, en auk þessara fjögurra vinna börn Unnsteins og Halldóru mikið á staðnum. Starfsemin í heild samanstendur af þessum rómaða veitingastað, 18 holu golfvelli og gistiaðstöðu sem nýlega var sett á laggirnar. Golf- klúbburinn Flúðir er rekinn sem séreining en öll þjónusta við golfara fer fram á veitingastaðnum. Að sögn Unnsteins er vinsælt hjá fyrirtækja- hópum að panta golfhring og grill- veislu á veitingastaðnum á eftir. Þá eru pizzuhlaðborð á Kaffi-Seli mjög vinsæl, ekki síst eftir unglinga- og krakkagolfmót. Á hlaðborðinu eru allar pizzur á matseðli í boði, gestir borga sig inn á hlaðborðið og fá sér pizzur eins og þeir geta í sig látið. Kaffi-Sel er að Efra-Seli, í þriggja kílómetra fjarlægð frá Flúðum. Opið er á staðnum alla daga yfir sumar- tímann frá kl. 8 á morgnana til 20.30 á kvöldin. Nánari upplýsingar, matseðla, myndir og fleira má skoða á heima- síðu staðarins, www.kaffisel.is og Facebook-síðu hans, Kaffi-Sel á Facebook. n Halldóra Halldórsdóttir

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.