Dagblaðið Vísir - DV - 28.06.2016, Side 16
Vikublað 28.–30. júní 20162 Bestu pizzurnar í bænum - Kynningarblað
Sælkerapizzur
með hráefni
úr héraði
„Við spörum
ekki áleggið“
P
izzugerð hjá Kaffi-Seli, á
bænum Efra-Seli skammt
frá Flúðum, á sér 20 ára
sögu og fullyrða má að pizz-
urnar hjá Kaffi-Seli hafi
sterk sérkenni enda eru þær orðnar
mjög þekktar: „Við byrjuðum smátt
en erum núna með tvo ofna þannig
að við getum bakað hátt í 40 pizzur
á klukkustund, þegar mikið er að
gera. Við höfum alltaf lagt áherslu
á að nota hráefni úr héraði, t.d. af
garðyrkjustöðvunum í kring. Kjöt-
afurðir, hakk og beikon og annað,
allt kemur þetta úr héraðinu. Þetta
eru því mjög „local“ pizzur. Við
fáum til dæmis deigið frá Sindra
bakara á Flúðum sem nýlega hóf
sína starfsemi hér. Síðan er sósan al-
gjört lykilatriði, leyniuppskrift sem
við höfum haldið óbreyttri í 20 ár.
Við gerum sósuna alveg frá grunni.“
Þetta segir Unnsteinn Logi Egg-
ertsson, einn eigenda Kaffi-Sels.
Hann bætir við að áleggið sé ekki
sparað á pizzurnar, enda eru þær
þekktar sem sælkerapizzur með
ríkulegu og ljúffengu áleggi.
Í sama anda hefur hamborgara-
matseðillinn á Kaffi-Seli ný-
lega verið endurnýjaður. Ham-
borgararnir eru orðnir sannkallaðir
„gourmet“ sælkerahamborgarar,
sem bera örnefni úr héraðinu og
nöfn þekktra persóna á borð við
Fjalla-Eyvind (sjá mynd).
Enn fremur er boðið upp á
nokkrar tegundir af súpum, m.a.
með hráefni úr héraði, salöt og fleiri
rétti á matseðlinum. Kaffi-Sel er fjöl-
skyldufyrirtæki þar sem þrjár kyn-
slóðir koma að rekstrinum. Hjónin
Halldór Guðnason og Ástríður G.
Daníelsdóttir stofnuðu staðinn á
sínum tíma, fyrir rúmlega 30 árum.
Dóttir þeirra, Halldóra Halldórs-
dóttir, er eiginkona Unnsteins, en
auk þessara fjögurra vinna börn
Unnsteins og Halldóru mikið á
staðnum.
Starfsemin í heild samanstendur
af þessum rómaða veitingastað, 18
holu golfvelli og gistiaðstöðu sem
nýlega var sett á laggirnar. Golf-
klúbburinn Flúðir er rekinn sem
séreining en öll þjónusta við golfara
fer fram á veitingastaðnum. Að sögn
Unnsteins er vinsælt hjá fyrirtækja-
hópum að panta golfhring og grill-
veislu á veitingastaðnum á eftir. Þá
eru pizzuhlaðborð á Kaffi-Seli mjög
vinsæl, ekki síst eftir unglinga- og
krakkagolfmót. Á hlaðborðinu eru
allar pizzur á matseðli í boði, gestir
borga sig inn á hlaðborðið og fá sér
pizzur eins og þeir geta í sig látið.
Kaffi-Sel er að Efra-Seli, í þriggja
kílómetra fjarlægð frá Flúðum. Opið
er á staðnum alla daga yfir sumar-
tímann frá kl. 8 á morgnana til 20.30
á kvöldin.
Nánari upplýsingar, matseðla,
myndir og fleira má skoða á heima-
síðu staðarins, www.kaffisel.is og
Facebook-síðu hans, Kaffi-Sel á
Facebook. n
Halldóra Halldórsdóttir