Dagblaðið Vísir - DV - 28.06.2016, Blaðsíða 17
Vikublað 28.–30. júní 2016 Kynningarblað - Bestu pizzurnar í bænum 3
Þunnbotna, eldbökuð pizza og
ekta ítölsk fjölskyldustemning
P
abbi vann í aukavinnu hjá
Eldsmiðjunni við ýmis störf
á sínum tíma. Ég fæddist
árið 1987 og þá hoppaði
pabbi bara beint á vakt af
fæðingardeildinni,“ segir Evert Aust
mann Ellertsson, bakari hjá Eldofn
inum í Grímsbæ, fjölskyldufyrirtæki
þar sem foreldrar, synir og annað
frábært starfsfólk leggja alúð sína
í að búa til framúrskarandi pizz
ur og veita góða þjónustu. Eins og
þessi frásögn Everts gefur til kynna
hefur fjölskyldan lengi verið viðriðin
pizzugerð.
Á Eldofninum eru eingöngu í
boði 12 tommu pizzur sem bakaðar
eru í eldofni og er eingöngu notaður
eldiviður við baksturinn.
Árið 2008, ári áður en Eldofninn
var opnaður, fóru hjónin Ellert Aust
mann Ingimundarson og Eva Karls
dóttir til Ítalíu í leit að hentugum
ofni. Þau komu heim með eldofn
með snúningsplötu, sem tryggir í
senn frábæran bakstur, ósvikið við
arofnsbragð og hraða þjónustu.
„Eftir að við setjum pizzuna inn í
ofninn þá ýtum við bara á einn takka,
pizzan byrjar að snúast og bakast
jafnt og þétt á tveimur mínútum,“
segir Evert.
Snúningsplatan í ofninum skapar
sjálfvirka alúð við baksturinn, hægt
er að afgreiða pizzurnar mjög hratt
en þær eru þó afar jafnt og vel bak
aðar.
„Við getum sett inn átta pizzur í
einu en þegar svona mikið er að gera
eins og er núorðið þá þarf að vera
með mann á ofninum til að koma
pizzunum inn og út.“
Allt eldað frá grunni
„Við búum til allt frá grunni, sósurn
ar okkar eru án aðfenginna aukaefna
og í hana eru notaðir plómutómat
ar; það sama má segja um hvítlauks
olíuna og Eldofnsolíuna okkar sem
er sterk chiliolía, en uppistaðan í
þessum olíum okkar er ekta ólífu
olía, ekki repjuolía. Rauðlaukinn
skerum við niður hérna og kryddið
sem fer í sósuna mallar í potti,“ segir
Evert.
En hvaða pizzur eru vinsælastar?
„Vinsælustu pizzurnar eru yfir
leitt þær sem eru kenndar við okkur
bakarana og við höfum sett saman
eftir okkar smekk. Sigga Spes pizzan
er til dæmis búin að vera vinsælasta
pizzan hér í 3–4 ár en á henni eru
sveppir, skorið pepperóní, ananas,
svartar ólífur, jalapeno, hvítlaukur,
rjómaostur og óreganó. Þessi pizza
slær í gegn hjá öllum og er sívinsæl.“
Opin ítölsk stemning í matsalnum
Veitingasalurinn á Eldofninum er
bæði huggulegur og skemmtilegur.
Allt er galopið svo viðskiptavinir sjá
bakarana að störfum, þeyta pizzum
upp í loftið.
„Krakkarnir eru mjög spenntir
fyrir þessu, til dæmis að sjá pizzurnar
snúast í ofninum,“ segir Evert og hon
um líkar það vel að matargestir sjái
fjölskylduna að störfum.
Tíu prósenta afsláttur er veittur af
mat sem er sóttur og einnig eru alltaf
í gangi hádegistilboð virka daga frá
11.30 til 14.00 en þá er staðurinn yfir
leitt þéttsetinn.
Matseðill og upplýsingar um til
boð má finna á heimasíðu staðarins,
eldofninn.is
Eldofninn er opinn þriðjudaga til
fimmtudaga frá kl. 11.30 til 21.00,
föstudaga til kl. 22.00.
Á laugardögum er opið frá kl.
17.00 til 22.00 og á sunnudögum frá
17.00 til 21.00.
Á mánudögum er lokað – eins
og á svo mörgum fjölskyldureknum
veitingastöðum í Evrópu.
n
Myndir Sigtryggur Ari