Dagblaðið Vísir - DV - 28.06.2016, Side 6
Vikublað 28.–30. júní 20166 Fréttir
Launahækkun
lífeyrisstjórans í
samanburði við
sjóðsfélaga
n Var litið til launakönnunar
VR við ákvörðun launa
n Fékk samt mun meiri
hækkun á hverju ári en
félagar VR
n Stjórnin kallar það
„leiðréttingu“
S
ú staðreynd að árslaun Guð-
mundar Þ. Þórhallssonar,
framkvæmdastjóra Lífeyr-
issjóðs verslunarmanna,
hækkuðu um rúmlega 19
milljónir króna á frá 2009 til 2015
hefur valdið talsverðu fjaðrafoki
síðan RÚV birti útreikninga sína á
launum framkvæmdastjórans fyrr
í þessum mánuði. Ólafía B. Raf-
nsdóttir, formaður VR, gagnrýndi
launaskrið framkvæmdastjórans í
kjölfarið og óskaði eftir því við fjóra
fulltrúa VR í stjórn Lífeyrissjóðs
verslunarmanna að málið yrði rætt
á stjórnar fundi.
Launamál framkvæmdastjór-
ans voru tekin fyrir á stjórnarfundi
sjóðsins á miðvikudag þar sem for-
manni og varaformanni stjórnar var
falið að fara nánar yfir fyrirkomu-
lag við ákvörðun starfskjara fram-
kvæmdastjóra sjóðsins og annarra
lykilstarfsmanna. En í tilkynn-
ingu stjórnar ver hún launahækk-
anir framkvæmdastjórans meðal
annars með því að benda á að Þór-
hallur hafi verið ráðinn í júní 2009
á 60% af launum fráfarandi fram-
kvæmdastjóra. Þá launalækkun hafi
staðið til að leiðrétta á nokkurra ára
tímabili sem og gert hafi verið og
það skýri að miklu leyti hlutfallslega
launahækkun framkvæmdastjór-
ans umfram vísitölur. Þeirri „leið-
réttingu“ sé nú lokið.
Ekki talað um leiðréttingu í fyrra
DV hefur áður fjallað um laun Guð-
mundar en í grein í fyrra var bent á
þá staðreynd að hann, þrátt fyrir að
vera launahæsti framkvæmdastjóri
stóru lífeyrissjóðanna, hefði hækk-
að mest í launum af kollegum
sínum. Þá sagði Ásta Rut Jónasdótt-
ir, stjórnarformaður Lífeyrissjóðs
verslunarmanna, að horft hafi verið
til ýmissa þátta launaþróunar þegar
stjórnin ákvað að hækka laun Guð-
mundar.
„Horft var m.a. til launakönnun-
ar VR en skv. könnuninni árið 2013
hækkuðu heildarlaun félagsmanna
um 6,9% en grunnlaun hækkuðu
um 7,5%. Jafnframt var launavísi-
tala Hagstofunnar skoðuð fyrir árið
2013 og var breyting launa með-
al fyrirtækja í fjármálaþjónustu og
lífeyrissjóða 7,1% og var breyting
launa á almennum vinnumarkaði
á sama tíma 6,1%,“ sagði Ásta Rut
í skriflegu svari við fyrirspurn DV í
maí í fyrra. Hvergi var minnst á þá
að hækkunin ætti rætur sínar að
rekja til leiðréttingar frá fyrri tíð. Þá
lá að hennar sögn engin ákvörðun
fyrir um að hækka laun Guðmund-
ar fyrir árið 2015. Svo fór að árslaun
hans hækkuðu engu að síður úr
35,8 milljónum króna í 37,4 millj-
ónir, eins og fram kemur í nýbirtum
ársreikningi sjóðsins.
Alltaf meiri hækkun en hjá
félagsmönnum VR
En vegna tengsla Lífeyrissjóðs
verslunarmanna (Live) og VR,
þeirrar staðreyndar að sjóðurinn
höndlar með lífeyri þúsunda fé-
lagsmanna VR og þeirra ummæla
formanns VR að launaþróun æðstu
stjórnenda fyrirtækja eigi að vera í
samræmi við almenna launaþróun
á vinnumarkaði ákvað DV að taka
Sigurður Mikael Jónsson
mikael@dv.is
Launaskrið í brennidepli
Þær miklu hækkanir sem
orðið hafa á launum fram-
kvæmdastjóra Lífeyrissjóðs
verslunarmanna hafa valdið
talsverður fjaðrafoki að
undanförnu.