Dagblaðið Vísir - DV - 28.06.2016, Page 14
Vikublað 28.–30. júní 2016
Heimilisfang
Kringlan 4-12
6. hæð
103 Reykjavík
fréttaskot
512 70 70fr jál s t, ó Háð dag b l að DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.
512 7000
512 7010
512 7080
512 7050
aðalnúmer
ritstjórn
áskriftarsími
auglýsingar
sandkorn
14 Umræða
Útgáfufélag: DV ehf. • Stjórnarformaður og útgefandi: Björn Ingi Hrafnsson • Ritstjórar: Kolbrún Bergþórsdóttir og Kristjón Kormákur Guðjónsson
Viðskiptaritstjóri: Hörður Ægisson • Fréttastjórar: Baldur Guðmundsson og Einar Þór Sigurðsson
Framkvæmdastjóri : Steinn Kári Ragnarsson • Umbrot: DV ehf. • Prentun: Landsprent • Dreifing: Árvakur
Vissulega ákveðin hætta
fyrir hendi
Davíð O. Arnar, yfirlæknir á hjartadeild, segir fótboltaleiki geta falið í sér hættu fyrir hjartveika. – landspitali.is
Traustsins verður
Í
nýafstöðnum forsetakosningum
höfðu kjósendur ekki áhuga á að
ræða Icesave eða þorskastríðið, efni
sem komu þó sífellt til tals í kosn
ingabaráttunni. Of mikill tími fór í þras
um fortíðina meðan ljóst var að lang
flestir frambjóðendur vildu horfa til
framtíðar. Of oft gerðist það að fram
bjóðendum var stillt upp eins og væru
þeir á sakamannabekk og þeir látnir
svara fyrir gömul orð, sem allflestum
var ljóst að höfðu verið sárasaklaus og
gáfu ekki tilefni til stórfelldrar umfjöll
unar. Spurningar fjölmiðlafólks voru í
of mörgum tilfellum með neikvæðum
formerkjum og frambjóðendur lentu
iðulega í því að þurfa að bera af sér
sakir. Einn hafði skrifað ógætileg orð
á Facebook fyrir einhverjum árum,
annar notað myndlíkingu sem hann
þurfti að útskýra hvað eftir annað, enn
annar verið fundarstjóri í útrásarboði
og þar sem einn frambjóðandi er einn
áhrifamesti stjórnmálamaður 20. ald
ar hér á landi var hann stöðugt spurð
ur um verk sín og gjörðir á þeim tíma.
Of mikið var staglast á þessum hlut
um í umræðuþáttum og þjóðin þurfti
óþarflega oft að hlusta á frambjóðend
ur útskýra sama hlutinn aftur og aftur.
Það var eiginlega meira rætt um fortíð
en framtíð í þessari kosningabaráttu,
þrátt fyrir að þeir frambjóðendur sem
bestum árangri náðu reyndu stöðugt
að setja framtíð Íslands og hlutverk
forsetans á dagskrá.
Guðna Th. Jóhannessyni er óskað
til hamingju með góða og afgerandi
kosningu. Það var aldrei raunhæft
að hann fengi jafn mikið yfirburða
fylgi og kannanir gáfu til kynna en
stuðningurinn var mikill og hann var
efstur í öllum kjördæmum. Frambjóð
andinn sem næst honum kom háði
vel skipulagða kosningabaráttu og
stóð sig vel í kappræðum og hlaut að
uppskera eftir því. Oft var illa vegið að
Guðna í kosningabaráttunni en hann
glataði ekki prúðmennsku sinni og
hélt ró sinni. Hann mun verða góður
forseti allrar þjóðarinnar, mun sam
eina en ekki sundra. Eins og núver
andi forseti Ólafur Ragnar Grímsson
hefur bent á þá er líka styrkur fyrir
hann að búa yfir meiri þekkingu á for
setaembættinu en flestir aðrir. Guðni
er traustsins verður.
Það er list að kunna að vinna og
Guðni tók sigrinum af þeirri hógværð
sem einkennir hann. Það er líka list að
kunna að tapa og meðframbjóðendur
hans sýndu að þeir kunna það. Eng
um tókst þó betur upp en Davíð Odds
syni sem hafði rekið grimma kosn
ingabaráttu sem beindist mjög gegn
Guðna. Davíð tók ósigri sínum af yfir
vegun og húmor og þó nokkurri reisn.
Þar sýndi hann á sér hlið sem margir
þekkja en sáu ekki oft í kosningabar
áttunni. Hann hefði örugglega náð
betri árangri í baráttu sinni hefði hann
allan tímann sýnt á sér þessa hlið.
Skoðanakannanir hafa sýnt að Ís
lendingar láta sér annt um forseta
embættið og vilja halda í það. Kjör
sóknin í forsetakosningunum sýndi
að það skiptir þjóðina máli hver gegn
ir embættinu. Henni hefur alltaf tek
ist að velja í embættið einstakling sem
hefur staðið sig með prýði. Hið nýja
val er örugglega engin undantekning
frá því. n
RÚV-heilkennið
Eftir því var tekið af hversu
mikilli reisn Davíð Oddsson tók
ósigri sínum í forsetakosning
unum en niðurstaðan hlýtur
að hafa valdið honum miklum
vonbrigðum.
Davíð fékk prik
frá mörgum fyrir
viðbrögð sín.
Einn heitasti
stuðningsmað
ur hans, Óli Björn
Kárason, gat ekki
sett sig í sama
gír og Davíð heldur kenndi fjöl
miðlum um. Óli Björn sagði í
viðtali við RÚV að fara þyrfti yfir
það hvernig fjölmiðlar hefðu
tekið á kosningabaráttunni og
þá sérstaklega RÚV sem hann
sagði hafa verið ósanngjarnt
gagnvart Davíð og reyndar fleiri
frambjóðendum. Ekki er þetta
í fyrsta sinn sem Óli Björn beit
ir sér gegn RÚV, en hann hefur
ítrekað gagnrýnt stofnunina.
Stundum hefur verið sagt að
þeir sem láti Davíð Oddsson
fara hvað mest í taugarnar
á sér séu haldnir Davíðs
heilkenninu. Svo má velta fyrir
sér hvort þeir sem hamast hvað
mest á RÚV séu haldnir RÚV
heilkenninu.
MynD HeiðA HelgADÓttiR
Myndin nýr forseti hylltur Yngsti meðlimur forsetafjölskyldunnar fylgist með mannfjölda safnast saman við heimili Guðna Th. Jóhannessonar á sunnudag, í öruggu fangi
móðurafans. MynD SigtRygguR ARi
„Oft var illa vegið
að Guðna í
kosningabaráttunni en
hann glataði ekki prúð
mennsku sinni og hélt ró
sinni.
Leiðari
Kolbrún Bergþórsdóttir
kolbrun@dv.is
allar gerðir
skreytinga
Kransar, krossar,
hjörtu og kistu-
skreytingar
Smáralind - S: 578 5075 - www.bjarkarblom.iS
Persónuleg og
fagleg þjónust
a
Ég nota argan
olíu daglega
Jóhannes Haukur Jóhannesson um skegghirðuna. – DV
Maður er bara maður sjálfur og það
hefur ekkert með þjóðerni að gera
egill Sæbjörnsson verður fulltrúi Íslands á Feneyjatvíæringnum. – DV