Dagblaðið Vísir - DV - 28.06.2016, Side 25
Vikublað 28.–30. júní 2016 Menning 21
M
erkt er glæpasaga eftir hina
sænsku Emelie Schepp
og jafnframt fyrsta skáld-
saga hennar. Yfirmaður
útlendingastofnunar finnst myrtur á
heimili sínu og morðin verða fleiri og
svo virðist sem börn hafi framið þau.
Jana Berzelius saksóknari og sam-
starfsmenn hennar í rannsóknarlög-
reglunni í Norrköping rannsaka málið.
Þetta er afar gölluð bók og það
er margt sem stuðlar að því. Sögu-
þráðurinn er með miklum ólíkind-
um og við bætist að lesandinn á afar
erfitt með að hafa nokkra samúð með
persónum, ekki einu sinni börnun-
um sem við sögu koma. Þetta er ein-
faldlega ekki geðugt fólk og um leið
er ansi hætt við því að áhugi lesenda
verði í lágmarki.
Aðalpersónan Jana á sérkenni-
lega fortíð sem hún gerir sér ekki
grein fyrir fyrr en seint og síðar meir
og allt sem því viðkem-
ur er æði reyfarakennt.
Bókin er mjög ofbeldis-
full og höfundur virðist hafa ánægju
af því að velta sér upp úr þeim lýs-
ingum en ekki er víst að lesend-
ur hafi sömu ánægju af að lesa þær.
Reyndar er gróft ofbeldi orðið áber-
andi einkenni á glæpasögum nútím-
ans og stundum er engu líkara en
glæpasagna höfundar séu í innbyrðis
keppni um að ofbjóða lesendum sín-
um. Í stað þess að einbeita sér að ná-
kvæmum lýsingum á ofbeldi mættu
höfundarnir sýna meiri hugmynda-
auðgi í stíl og persónusköpun.
Það sem skilur á milli lélegs
glæpasagnahöfundar og höf-
undar sem kann til verka er
einmitt stílgáfa og hæfni til að
skapa trúverðugar persónur.
Norrænir glæpasagna-
höfundur leitast yfirleitt við
að koma boðskap á fram-
færi í bókum sínum, fjalla þá
um mein eins og ofbeldi gegn
börnum og konum. Ofbeldi gegn
börnum og mansal er hér í forgrunni
en umbúðirnar eru það lélegar að er-
indið kemst ekki til skila á sannfær-
andi hátt. Það eina sem eftir stendur
er að hér er á ferðinni slöpp glæpa-
saga. n
Lélegar umbúðir
Kolbrún Bergþórsdóttir
kolbrun@dv.is
Bækur
Merkt
Höfundur: Emelie Schepp
Þýðandi: Kristján H.
Kristjánsson
Útgefandi: mth
391 bls.
E
ins og greint hefur verið frá í
fréttum hefur tónlistarhátíð-
inni ATP Iceland, sem átti að
fara fram í fjórða sinn að Ás-
brú í Keflvík í byrjun júlí, verið aflýst
vegna gjaldþrots tónleikahaldarans,
breska fyrirtækisins ATP Festival.
Tugir erlendra flytjenda áttu að
koma fram á hátíðinni auk fjölmargra
innlendra listamanna. Margir þeirra
listamanna sem áttu að spila á hátíð-
inni höfðu enn fremur bókað flug og
gistingu og leit út fyrir að þeir yrðu því
aðgerðar- og tekjulausir á landinu.
Nokkrir þessara listamanna brugðu því
á það ráð að hafa samband við hérlenda
tónleikastaði og skipuleggja tónleika í
stað þeirra sem þeir áttu að leika á.
Bandaríska indíþjóðlagasöng-
konan Angel Olsen, bílskúrsrokk-
bandið Thee Oh Sees, dómsdags-
hasshausabandið Sleep, kanadíska
rokkbandið Suuns og sýrlenski brúð-
kaupssöngvarinn Omar Souleyman
munu þannig öll koma fram í mið-
borg Reykjavíkur. Úr rústum ATP
Iceland vex því mikil indírokkhelgi í
Reykjavík.
„Hátíðinni var aflýst með
tveggja vikna fyrirvara, svo
þessi bönd og fleiri voru búin að
bóka flug og gistingu. Hljómsveit-
irnar og umboðsmenn fóru því að
hafa samband við vini og kunningja
á Íslandi og reyna að finna út hvað
væri hægt að gera. Í kjölfarið var haft
samband við okkur og við náðum að
setja þetta upp,“ segir Snorri Helga-
son sem skipuleggur tvenna ATP-
tengda tónleika á Húrra um helgina.
„Það voru fleiri hljómsveitir sem
höfðu samband við okkur, en við
þorðum ekki að taka meira að okk-
ur,“ segir hann.
Voru listamennirnir þá tilbúnir
að koma fram mjög ódýrt svo þetta
gæti gengið á svona litlum tónleika-
stöðum? „Jaaa … kannski ekki mjög
ódýrt. Húrra, sem er bara 300 manna
staður, er að minnsta
kosti ekkert að græða
brjálæðislega. En við
náðum að redda þessu
þannig að þetta rétt
sleppur. Það væri fyrst
og fremst alveg glatað
ef þessi bönd væru hér
á landinu en gætu ekki
spilað,“ segir Snorri.
Föstudaginn 1. júlí spilar Omar
Souleyman á Húrra, sama kvöld
spila Sleep á Gauknum og Suuns
á KEX Hostel. Laugardaginn 2. júlí
spila svo Angel Olsen og Thee Oh
Sees á Húrra. n kristjan@dv.is
Lítil ATP-hátíð í Reykjavík
Fimm listamenn sem áttu að koma fram á ATP Iceland spila í Reykjavík um helgina
Láta gjaldþrot ekki stöðva sig
Omar Souleyman og fjórar aðrar
hljómsveitir sem áttu að spila á ATP
Iceland um helgina munu koma fram
í Reykjavík. Mynd davíð Þór
BB | |
BB BB
BB | BLEMISH BAL
M
THE ORIGINAL
Light
Classic
Honey|
www.schrammek.com
The power of medical beauty.
Útsölustaðir
Verði þinn vilji snyrti og nuddstofa Borgartún 3 Reykjavík / Heilsa og útlit Hlíðasmára 17 Kópavogi / Deluxe snyrti og dekurstofa Glæsibæ
Nánari upplýsingar: www.vilja.is
Dregur úr bólgum í
húð og róar húðina
Örvar endurnýjun húðar
Hylur háræðaslit,
stórar húðholur,
roða og litabreytingar
Sótthreinsandi
Gott á sólbruna,
brunasár og
önnur sár
Gott á bólur
Góður hyljari
Hentar öllum
húðgerðum
www.schrammekshop.com
erði þinn vilji snyrti- li lí rs ára i - og dekurstofa Glæsib
Snyrtistofan Tulip Hæðasmára 6 Kópavogi / Pandora snyrti- og fót ðgerðastofa Þangbakka 8-10 Reykjavík
Nánari upplýsingar: www.vilja.is
BB ||
BB BB
BB | BLEMISH BAL
M
THE ORIGINAL
Light
Classic
Honey|
www.schrammek.com
The power of medical beauty.
Útsölustaðir
Verði þinn vilji snyrti og nuddstofa Borgartún 3 Reykjavík / Heilsa og útlit Hlíðasmára 17 Kópavogi / Deluxe snyrti og dekurstofa Glæsibæ
Nánari upplýsingar: www.vilja.is
Dregur úr bólgum í
húð og róar húðina
Örvar endurnýjun húðar
Hylur háræðaslit,
stórar húðholur,
roða og litabreytingar
Sótthreinsandi
Gott á sólbruna,
brunasár og
önnur sár
Gott á bólur
Góður hyljari
Hentar öllum
húðgerðum
www.schrammekshop.com
erði þinn vilji snyrti- li lí rs ára i - og dekurstofa Glæsib
Snyrtistofan Tulip Hæðasmára 6 Kópavogi / Pandora snyrti- og fót ðgerðastofa Þangbakka 8-10 Reykjavík
Nánari upplýsingar: www.vilja.is
B |B |
BB BB
BB | BLEMISH BAL
M
THE ORIGINAL
Light
Classic
Honey|
www.schrammek.com
The power of medical beauty.
Útsölustaðir
Verði þinn vilji snyrti og nuddstofa Borgartún 3 Reykjavík / Heilsa og útlit Hlíðasmára 17 Kópavogi / Deluxe snyrti og dekurstofa Glæsibæ
Nánari upplýsingar: www.vilja.is
Dregur úr bólgum í
húð og róar húðin
Örvar endurnýjun húðar
Hylur háræðaslit,
stórar húðholur,
roða og litabreytingar
Sótthreinsandi
Gott á sólbrun ,
brunasár og
önnur sár
Gott á bólur
Góður hyljari
Hentar öllum
húðgerðum
www.schrammekshop.com
erði þinn vilji snyrti- li lí rs ára i - og dekurstofa Glæsib
Snyrtistofan Tulip Hæðasmára 6 Kópavogi / Pandora snyrti- og fót ðgerðastofa Þangbakka 8-10 Reykjavík
Nánari upplýsingar: www.vilja.is
Útsölustaðir
Verði þinn vilji
Snyrti- og nuddstofa.
Borgartún 3, Reykjavík
Heilsa og útlit
Hlíðarsmára 17, Kópavogi
Deluxe snyrti-
og dekurstofa
Glæsibæ
Snyrtistofan Tulip
Hæðasmára 6, Kópavogi
Pandora snyrti- og
fótaðgerðastofa
Þangbakka 8-10 Reykjavík
Nánari upplýsingar:
www.vilja.is