Dagblaðið Vísir - DV - 30.09.2016, Blaðsíða 31
Helgarblað 30. september–3. október 2016 Fólk Viðtal 23
K
arl Berndsen bjó í glæsihýsi,
átti gnægð fjár og um-
gekkst ríka og fræga fólkið.
Allir elskuðu Kalla og vildu
margir baða sig í stjörnu-
ljómanum. Hann stjórnaði sjón-
varpsþáttum og lék í auglýsingum.
„Þetta er allt í kaffinu,“ eru ein
hans fleygustu ummæli og margir
ættu að kannast við.
Í dag er Kalli löngu fluttur út úr
glæsihýsinu sem var svokallað „pent-
house“. Peningarnir eru af skornum
skammti og hann er ekki lengur
fastagestur á síðum slúðurblaðanna.
Karl eða Kalli Berndsen eins og hann
er gjarnan kallaður starfaði sem hár-
greiðslu- og förðunarmeistari en
er í dag 75 prósent öryrki eftir lífs-
hættuleg veikindi. Hann lá í dái í
þrjá mánuði. Þegar hann vaknaði var
hann breyttur maður og settist að í
50 fermetra íbúð hjá Blindrafélaginu.
Ellefu sinnum var borað í gegnum
höfuðkúpu hans og inn í heila en fyrir
aðgerðina hafði Kalli þær áhyggjur
að læknarnir boruðu of langt. Þeir
myndu jafnvel fyrir mistök bora úr
honum samkynhneigðina. Aðspurð-
ur hvort hann sakni Kalla Berndsen
eða Karls junior eins og hann kallar
sitt gamla sjálf, hvort þeir eigi eitt-
hvað sameiginlegt, hvort þeir séu lík-
ir, svarar Kalli og rödd hans brestur:
„Alls ekki. Ég ætlaði ekki að fara
að gráta hérna.“ Við sitjum úti á svöl-
um á Kringlukránni. Á borðinu eru
hlutirnir hans, haganlega raðað, allir
hægra megin. Vinstra augað skadd-
aðist í aðgerðinni í einu af þeim
skiptum sem læknar brutu sér leið í
gegnum höfuðkúpuna. Á borðinu er
kjúklingaréttur og hvítvínsglas. Kalli
er með fjólublátt teppi yfir axlirnar
til að verjast kuldanum. Hann lítur á
mig og segir: „Ég er svo guðslifandi
feginn að vera laus við Karl junior.
Nú er ég að rísa upp úr öskustónni
eins og fuglinn Fönix. Báturinn er
kominn að landi með fullfermi og nú
ætla ég að landa úr honum, bróðir.“
Í dái í þrjá mánuði
Árið 2013 var greint frá því í fjöl-
miðlum að Kalli glímdi við krabba-
mein. Fyrst var talið að um heilaæxli
væri að ræða. Seinna kom í ljós að
krabbameinið var í eitlum. Við tóku
fjölmargar lífshættulegar aðgerðir
þar sem borað var í gegnum höfuð-
kúpu Kalla til að tappa af heilavökva.
Hann var í dái í þrjá mánuði.
„Á þeim tíma dó ég þrisvar sinn-
um,“ segir Karl Berndsen sem fyrst
nú, þremur árum seinna er mættur
aftur á stóra sviðið og ætlar að
láta mikið á sér kveða á næstunni.
Meinið er farið eftir ellefu aðgerðir.
Nú í sumar fékk Kalli þær gleðifrétt-
ir að hann myndi ekki glata sjóninni.
Það óttaðist hann hvað mest. Það var
þá sem hann loks kom úr felum og
hætti að einangra sig.
Kalli hafði skömmu fyrir veik-
indin slegið í gegn með útlitsþátt-
um sínum Í nýju ljósi sem sýndir
voru á Stöð 2. Hann var landsþekkt-
ur fyrir að aðstoða konur og karla við
að breyta útliti sínu til hins betra. Þá
seldist bók hans VAXI-n eins og heit-
ar lummur. Hann rak stofuna Beauty
barinn í Kringlunni. Vinsældir hans
voru slíkar að Besti flokkurinn setti
hann í heiðurssætið fyrir borgar-
stjórnarkosningarnar árið 2010. Allt
virtist leika í lyndi.
Þegar þetta er rifjað upp, leggur
Kalli áherslu á að hann sé að koma
til baka. Hann kreppir hnefann. Rétt-
ir úr bakinu. Glampi í augum. Hann
minnist aftur á bátinn. Hann hafi á
þessum þremur árum sem hann hef-
ur verið í burtu, tvö af þeim í mikilli
kvíðaröskun sem hann hefur nú los-
að sig undan, fyllt bát sinn af ýmsu
góðgæti. Báturinn liggur nú við
bryggju eftir langa veru á úfnum sjó
og hann er að bera farminn í land.
Og hann býður gömlum og nýjum
vinum að taka þátt. Farmurinn er
meðal annars ýmis viðskiptatæki-
færi, nýjar hugsanir og hugsjónir. Í
brúnni stendur nýr Karl Berndsen.
Karl junior hélt á djúpið og kom
breyttur maður í land. Nýi Kalli vill
berjast fyrir umhverfinu, vera góð-
ur við náungann, hjálpa blindum.
Kenna okkur að hlusta á náttúruna.
„Ég er lögblindur,“ segir Kalli. „Ég
er bara með tíu prósent sjón. Þess
vegna sit ég hér á móti þér. Ég vil
vekja athygli á aðgengi blindra.“
Það tók lækna á Landspítalanum
marga mánuði að komast að hvað
væri að hrjá Kalla. Í viðtali stuttu eft-
ir að veikindin komu upp sagði Karl
junior:
„Það er alveg sama hversu mikill-
ar velgengni maður nýtur, líkaminn
verður að virka. Það er mikið áfall
að verða veikur. Fótunum er kippt
undan manni og maður fer að hugsa
lífið upp á nýtt. Mér fór líða eitthvað
undarlega í ágúst en hélt að ég væri
bara með flensu og þetta myndi lag-
ast. Það gerðist ekki og fyrir mánuði
var ég lagður inn á spítalann.“
Hann hafði á þessum tíma verið
undir miklu vinnuálagi. Hann náði
að klára þætti sína áður enn hann
var lagður inn. Þá sagði hann með-
ferðina ganga vel. Hann vissi ekki af
storminum fram undan. Vissi ekki
að þegar hann kæmi aftur í land yrði
hann breyttur maður. Víðsýnni mað-
ur. Annar Kalli. Betri Kalli. Enn sú
fæðing gekk ekki þrautalaust fyrir sig.
Hamingjusamur í æsku
Karl Berndsen er fæddur 1. ágúst
1964. Hann var ör sem barn og alltaf
á ferðinni. Hann kveðst snemma
hafa byrjað að leika sér með barbí-
dúkkur. Hann segist hafa verið alinn
upp við strangt enn kærleiksríkt
uppeldi. Móðir hans geymdi visku-
stykki úti í glugga. Karl hefur ekkert
nema gott um foreldra sína að segja
og þá voru aðrir tímar. Móðir hans
var og er hans helsti bandamaður.
„Mamma kenndi mér allt um
heimilisstörf og hún var mér allt.
Hún kenndi mér að vinna og lét mig
bursta skóna hans pabba. Pabbi kom
alltaf heim um hálf tíu í kaffi. Hann
gekk þá frá verkstæðinu enn hann
starfaði sem vélvirki. Hann hét Karl
Þórólfur Berndsen.“
Faðir hans lést árið 1995. Kalli
samdi þá texta við lagið Himnarn-
ir opnast en sá texti fjallar um föður
hans. Það tekur á Kalla að ræða um
missinn. Þegar Kalli rifjar upp æsku
sína segist hann líklega hafa verið
leikari allt sitt líf.
„Ég hef alltaf verið í minnihluta-
hópum frá því að ég fæddist. Ég
stamaði sem barn, lék mér að dúkk-
um og stundum bílum,“ segir Karl og
brosir og segir ímyndarafl sitt hafa
verið fjörugt. Stundum skar hann
upp dúkkurnar og dreymdi um að
verða læknir. Karl fer svo fram í tím-
ann, til unglingsáranna þegar hann
var að stíga inn í heim hinna full-
orðnu. Hann reyndi af öllum mætti
að fela og bæla niður tilfinningar til
karlmanna og lagðist upp í rúm með
hverjum kvenmanninum á fætur
öðrum. „Ég upplifði síðan kynlíf með
karlmanni og þá vissi ég hvar ég stóð.
Ég vildi bara vera normal. Pabbi var
vélvirki og bróðir minn vélstjóri en
ég var bara í dúkkuleik.“
Varst þú skammaður fyrir það?
„Aldrei. Ég fékk að vera ég sjálfur.“
„Vissu foreldrar þínir að þú værir
samkynhneigður?“
„Ekki í æsku. Pabbi vissi það
á dánarbeðinum, þegar hann lá í
óminni. Það var erfiðasti tími ævi
minnar.“
Hvernig brást hann við því?
„Hann var dáinn,“ segir Karl og
röddin brestur. Skilurðu ekki elskan,
hann var dáinn. Ég náði ekki að
segja honum það áður en hann dó.
Ég sagði honum það þegar hann var
dáinn. Ég hélt að hann myndi ranka
við sér.“
Aðspurður hvort föður hans hafi
ekki grunað hvers kyns var, segir
Kalli að líklega hafi svo verið.
„Ég var 23 ára þegar ég sagði
mömmu þetta. Hún gjörsamlega
brotnaði niður. Henni sárnaði mest
sem móður að ég skyldi ekki hafa
treyst henni fyrir þessu fyrr,“ segir
Kalli og bætir við að þá hafi verið aðr-
ir tímar. Fordómarnir meiri. Næstum
allir með sjálfa sig inni í harðlæstum
skáp. Hann rifjar upp þegar Hörður
Torfason söngvari kom út úr skápn-
um og fór í umdeilt viðtal við Sam-
úel. Hörður var þá ungur maður en
Karl Berndsen barn.
„Ég varð vitni að því þegar fólk
sagði að það ætti að taka þennan
andskotans djöful og aflífa hann.
Börn á þeim tíma ólust upp við að
heyra slíkt en þá vissi fólk ekki betur,“
segir Kalli en þungu fargi var af hon-
um létt þegar hann opinberaði sig
fyrir móður sinni.
„Eftir að pabbi dó, þá sagði
mamma, það er kominn tími til að
þú lifir þínu lífi til fulls.“
Höfum tapað eiginleikanum til
að hlusta
„Ég vil ekki að þetta viðtal snúist að-
allega um veikindi. Ég er kominn
til baka eftir að hafa verið frá í öll
þessi ár. Karlinn er tekinn við stýr-
inu og það eru hlutir sem við þurfum
að vekja athygli á, bróðir. Ég er með
svo mikinn sjálfsaga þegar ég stend
sjálfur í brúnni, einn og óstuddur.
Ég verð aldrei sami Karl Berndsen.
Við endurfæðinguna kallaði ég mig
Karl the great en í húsi Blindrafé-
lagsins búa líka múslimar og Karl
sá var djöfulsins morðingi. Áður var
ég með fordóma. Nú baka ég fyrir þá
pönnukökur.“
Ertu mikið breyttur?“
„Jesús minn almáttugur, já. Ég
sé lífið á annan hátt. Ég er lögblind-
ur. Þú uppgötvar lífið upp á nýtt.
Nú sting ég upp í mig brauði, þegi
og loka augunum. Þú finnur bragð-
ið á annan hátt. Lífið á annan hátt.
Þetta er fullnæging í hjarta. Áður sat
ég kannski allur krepptur með kross-
lagðar hendur, alveg frosinn. Nú sit
ég hér gleiðfættur og afslappaður.
Ég var mikill rjúpnaveiðimaður.
Nú myndi ég ekki gera flugu mein.
Ég hugsa inn á við. Ég er náttúru-
verndarsinni og hirði upp flöskur og
sígarettustubba og stunda jóga.“
Hann bætir við að margir hafi
tapað eiginleikanum til að hlusta á
náttúruna. Hann kveðst hvorki trúa
á himnaríki né helvíti heldur mátt
hugans. Kalli talar lengi og mik-
ið um heimildamyndina Innsæi
eftir Kristínu Ólafsdóttur sem vakið
hefur mikla athygli erlendis. Hún
verður sýnd á RIFF núna um helgina.
Myndin fjallar um óskilgreinda til-
finningu innra með manninum
sem sé nánast hættur að treysta í
heimi stöðugra tækninýjunga. Vegna
margra breytinga sem sé að vænta
í heiminum sé nauðsynlegt fyrir
mannkynið að treysta og kynnast
betur þessari tilfinningu.
„Hvernig teiknuðu þeir upp höfin
í gamla daga. Við töluðum við höf-
in og náttúruna og ég hef verið að
kynnast aftur þessari tilfinningu.
Kristín sem framleiðir myndina er
ein af fáum sem skilur mig og ég
vona að allir flykkist í bíó til að kynn-
ast þessari dýrmætu mynd.“
Gat ekki hitt fólk í tvö ár – Hvar
eru allir vinir mínir?
Kalli var í dái í þrjá mánuði eins og
áður hefur komið fram. Þegar hann
vaknaði lokaði hann sig af og forð-
aðist fólk. Hann barðist við kvíða-
röskun og lauk þeirri glímu ekki fyrr
en nú í sumar. „Ég uppgötva eitt-
hvað nýtt í hverri viku.“ Í aðgerðinni
voru gerð mistök og farið of ná-
„Pabbi var vélvirki
og bróðir minn
vélstjóri en ég var bara í
dúkkuleik.
Kristjón Kormákur Guðjónsson
kristjon@dv.is
Kominn að landi
„Mig vantar hjálp við að
landa.“ Mynd SiGtryGGur Ari
Skráðu þig í Bed&Breakfast klúbbinn
okkar og fáðu betri kjör
s: 426 5000 — booking@bbkefairport.is — bbkeflavik.com
Ertu á leið í flug?
Við geymum bílinn frítt,
keyrum þig á flugvöllinn og
sækjum þig við heimkomu