Dagblaðið Vísir - DV - 30.09.2016, Blaðsíða 36
Helgarblað 30. september–3. október 201628 Skrýtið Sakamál
K
evin Ray Underwood
bjó árið 2006 í Purcell í
Oklahoma í Bandaríkjun
um. Purcell er, til upplýs
ingar fyrir þá sem áhuga
hafa, krummaskuð, staðsett nánast
í miðju fylkinu og íbúafjöldi er um
6.000 manns.
En hvað sem því líður þá hefst
saga þessi 17. apríl, 2006, þegar full
trúar bandarísku alríkislögreglunn
ar, FBI, fundu lík Jamie Rose Bolin,
10 ára stúlku sem hafði verið sakn
að í nokkra daga. Stúlkan fannst í
plastkari í svefnherbergi Under
woods, grillteinn og kjöthamar voru
einnig í karinu.
Ekki alveg heill á geði
Underwood, þá 26 ára, var feiminn
maður og sá sér farborða með því
að vinna í matvöruverslun. Frítíma
sínum varði hann mest fyrir fram
an tölvuna og leyfði þá huga sín
um – sennilega ekki alveg eðlileg
um – að ráfa um lendur MySpace og
Blogger. Mottó Underwoods þar var
„Líkaðu það sem þér líkar, njóttu
þess sem þú nýtur og láttu engan
vaða yfir þig.“
Eitt sinn skrifaði hann á sína eig
in bloggsíðu: „Ef þú værir mannæta
hverju myndir þú klæðast við
kvöldverð?“ Spurningu sinni svar
aði hann sjálfur: „Húð aðalréttar
gærkvöldsins.“
Kjörið fórnarlamb
Sem fyrr segir hafði Jamie Rose
verið saknað í nokkra daga. Hún
hafði farið á bókasafnið og aldrei
komið heim aftur. Sennilega var
það meinleg óheppni að hún lenti
í klónum á Underwood. Þannig var
mál með vexti að hún bjó ásamt
föður sínum í sama stigagangi
og Underwood. Fyrir neðan þau
feðginin bjó Underwood í félags
skap gælurottu sinnar.
Underwood ku hafa haft auga
stað á fleiri nágrönnum sínum,
en Jamie Rose var minnst og mest
veikburða og því tilvalið fórnar
lamb fyrir Underwood sem vildi
kanna nánar þráhyggju sína varð
andi mannakjöt.
Matseld í bígerð
Það þarf vart að taka fram að íbúar
Purcell voru slegnir þegar tíð
indin af verknaði Underwoods
bárust þeim til eyrna. Við rétt
arhöldin, í mars 2008, kom ýmis
legt í ljós; Underwood hafði numið
Jamie Rose á brott, lamið hana með
skurðarbretti og síðan kyrkt hana
með einangrunarlímbandi og ber
um höndum. Í kjölfarið misþyrmdi
hann líkinu kynferðislega og töldu
sækjendur í málinu að hann hefði
ætlað að sundurlima hana, tæma
hana af blóði og síðan leggja sér til
munns.
Í sjálfu sér er sú hugmynd ekki
fráleit í ljósi þess að Underwood
hafði á bloggsíðu sinni lýst sér sem
„einhleypum, dauðleiðum og ein
mana“ manni sem átti „hættulega
annarlegar“ fantasíur.
Hve illur ertu?
Underwood hafði verið á lyfjum
vegna þunglyndis sem gerði vart við
sig þegar stúlka sem hann var skot
inn í lést í bílslysi. Þess má geta að
stúlkan sú hafði ekki endurgoldið
tilfinningar hans.
En leiddar voru að því líkur að
Underwood hafi verið ljóst að hug
ur hans stefndi í óhugnanlegar átt
ir þegar lyfjunum sleppti. Hann
deildi undarlegum fréttum á netinu
og einnig hafði hann tekið netpróf,
Hve illur ertu?, og deilt niðurstöð
unum.
Skömmu áður en hann myrti
Jamie Rose velti hann fyrir sér að
hefja lyfjainntöku á ný en hætti við
og velti þess í stað fyrir sér hvað
hann kynni að gera af sér og hvað
aðrir myndu hugsa. Þrátt fyrir allt
virtist enginn í hans nánasta um
hverfi velta þeirri spurningu fyrir
sér.
Dómur fellur
Verjendur Underwood reyndu
hvað þeir gátu til að tryggja honum
vægan dóm. Þeir sögðu að auk geð
sjúkdóma glímdi hann við félags
fælni og kynferðisleg vandamál.
Samkvæmt einni bloggfærslu
Under woods var hann nánast
hreinn sveinn, hvernig sem það er
nú hægt.
Hryllilegar myndir af vettvangi,
kynlífsleikföng og einhvers konar
fórnarhnífur voru ekki til að styrkja
málflutning verjenda.
Réttarhöldin voru stutt og það
tók kviðdóm innan við klukku
stund að komast að niðurstöðu um
ótvíræða sekt Underwoods. Þann
3. apríl, 2008, fékk Underwood
dauðadóm sem enn hefur þó ekki
verið fullnægt. n
S HELGASON
- Steinsmiðja síðan 1953
Opnunartími
Mán - fim 9:00 -18:00
Föstudaga 9:00 - 17:00
Laugardaga 10:00 -14:00
Sími: 557 6677
Netfang: shelgason@shelgason.is
www.shelgason.is
EinhlEypur,
dauðlEiður
og Einmana
n Underwood var með mannakjöt á heilanum n Kvöldverður var í bígerð„Ef þú værir
mannæta hverju
myndir þú klæðast við
kvöldverð?
Fórnarlambið Jamie Rose
Bulin fór á bókasafnið og kom
aldrei heim aftur.
Kevin Ray
Underwood
Lét að
lokum undan
annarlegum
hugrenningum
sínum.