Dagblaðið Vísir - DV - 30.09.2016, Blaðsíða 12
Helgarblað 30. september–3. október 201612 Fólk Viðtal
Eyravegi 23, Selfossi - S: 555 1314 - ha@hannyrdabudin.is
Hannyrðab
udin.isNý hei
masíða
Ótrúlegtúrval!
Í
mörg ár hélt ég í þá von að pabbi
væri kominn heim, í hvert einasta
skipti sem dyrabjallan hringdi.“
Þetta segir Haraldur Ari Karlsson
sem lenti í þeirri erfiðu lífsreynslu
árið 1992, aðeins fimm ára gamall,
að faðir hans fórst í sjóslysi við Vest-
mannaeyjar.
Sorgin varpaði skugga á æskuna
Lífið umturnaðist í kjölfarið og það
tók Harald mörg ár að sætta sig við
föðurmissinn. Þá sérstaklega vegna
þess að hann átti erfitt með að tjá
sorgina og erfiðar tilfinningar sem
ágerðust eftir því sem árin liðu.
Að sama skapi kveðst Haraldur
hafa átt frábæra æsku og verið um-
vafinn fjölskyldu og góðum vinum,
en sorgin varpaði þó engu að síð-
ur stórum skugga á tilveruna. Hann
segir það gríðarlega mikilvægt að
talað sé við börn sem lenda í áfalli
og að þau fái viðeigandi aðstoð.
Haraldur, sem er í dag 29 ára,
kvikmyndagerðarmaður og að-
stoðarleikstjóri, á þrjár ungar dæt-
ur með sambýliskonu sinni, Ásu
Jennýju Gunnarsdóttur. Fjölskyldan
er búsett í Vestmannaeyjum en
hann starfar þó að mestu á höfuð-
borgarsvæðinu.
Árið 2010 gerði Haraldur stutt-
mynd sem fjallar um slysið sem
kostaði föður hans lífið en myndin
var lokaverkefni í Kvikmyndaskóla
Íslands. Myndin er öll tekin á þeim
stöðum sem þeir gerðust árið 1992.
Haraldur skrifaði sjálfur handritið
og byggir það á eigin reynslu. Hann
segir að stuttmyndin hafi hjálpað
honum að sættast við lífið eins og
það er og halda áfram.
Heimurinn umturnaðist
Laugardagskvöldið 26. september,
1992, voru Haraldur, systir hans,
Kolbrún Stella, og móðir þeirra,
Sigríður Bjarnadóttir, í heimsókn
hjá vinafólki þegar bankað var upp
á og Sigríði tilkynnt að eiginmaður
hennar hefði fallið fyrir borð og
væri talinn af.
Sigríður fór í framhaldinu heim
en skildi börnin eftir í öruggum
höndum vinafólks þeirra. Tveim-
ur klukkustundum seinna voru
„Hann
fór bara í
vinnuna en
kom aldrei
aftur heim“
n Haraldur beið í mörg ár eftir pabba sínum sem fórst í sjóslysi
Kristín Clausen
kristin@dv.is
Feðgar Karl Jóhann og Haraldur Ari í lok árs 1987. Mynd Úr einKaSaFni