Fréttablaðið - 24.02.2017, Page 1
— M e s t l e s n a dag b l a ð á Í s l a n d i * —4 7 . t ö l u b l a ð 1 7 . á r g a n g u r F ö s t u d a g u r 2 4 . F e b r ú a r 2 0 1 7
Fréttablaðið í dag
skoðun Ari Trausti Guðmunds-
son skrifar um röng skilaboð
Bjarna Ben. 12
sport Möguleiki á
Hafnarfjarðarslag í
úrslitum. 16
lÍFið Ken-
dall Jenner er
drottning
götutísk-
unnar. 36
plús 2
sér-
blöð
l Fólk
l heilsa
og
Fegurð
*Samkvæmt prent-
miðlakönnun Gallup
apríl-júní 2015
FrÍtt
Sæktu um
N1 kortið
á n1.is
15% afsláttur
+ 3% í formi punkta
af Hella þurrkublöðum
og N1 tjöruhreinsi
fyrir N1 korthafa í febrúar
dóMsMál Hæstiréttur ómerkti í gær
dóm Héraðsdóms Reykjavíkur frá
því í október 2015 í Marple-málinu
svokallaða. Var dómurinn ómerktur
vegna vanhæfis sérhæfðs meðdómara
í málinu, Ásgeirs Brynjars Torfasonar.
Aðalmeðferð málsins þarf því að
fara fram á ný í héraðsdómi. Lög-
mönnum sem Fréttablaðið ræddi
við bar saman um að lögmanna-
kostnaður vegna þess gæti hlaupið á
tugum milljóna króna.
„Það er ljóst að það þýðir bæði
kostnað fyrir dómskerfið og þá sem
að því koma. En það er auðvitað ekki
einsdæmi að dómar séu ómerktir og
mál séu endurflutt. Það er náttúrulega
þekkt að það gerist og er sá möguleiki
hluti af málsmeðferðinni,“ segir Skúli
Magnússon, formaður Dómarafélags
Íslands.
Kristín Edwald, verjandi Magn-
úsar Guðmundssonar sem er einn
sakborninga í Marple-málinu, tekur
í sama streng. „Það segir sig sjálft að
það verður talsverður kostnaður við
að fara í gegnum þetta allt aftur,“ segir
hún.
Verjendur í málinu áfrýjuðu dómi
héraðsdóms til Hæstaréttar og töldu
Ásgeir Brynjar vanhæfan, meðal ann-
ars vegna setu hans í stjórn félagsins
Gagnsæis sem berst gegn spillingu,
vegna ummæla sem hann lét falla í
grein í Fréttablaðinu og vegna deil-
inga á samfélagsmiðlunum Facebook
og Twitter.
Ásgeir Brynjar vildi ekki tjá sig um
dóminn þegar Fréttablaðið náði tali
af honum.
Kristín segist fagna niðurstöðu
Hæstaréttar. „En að sama skapi er
Hæstiréttur að staðfesta að það hafi
verið brotið á rétti umbjóðanda
míns til réttlátrar málsmeðferðar
sem er vernduð bæði af stjórnar-
skránni og mannréttindasáttmála
Evrópu.
Auðvitað er þetta áfellisdómur
yfir héraðsdómi en á móti kemur að
þarna stígur Hæstiréttur fast niður og
er afdráttarlaus um að meðdómandi
í þessu tilviki hafi verið vanhæfur. Ég
held að niðurstaða Hæstaréttar ætti
frekar að auka trú á dómskerfinu
heldur en hitt,“ segir Kristín. – þea
Vanhæfismál kostar tugmilljónir króna
Dómur Héraðsdóms Reykjavíkur í Marple-málinu var ómerktur í Hæstarétti í gær vegna vanhæfis meðdómara í málinu. Lögmenn sem
Fréttablaðið ræddi við telja kostnað við ómerkinguna hlaupa á tugum milljóna. Verjandi eins sakborningsins fagnar niðurstöðunni.
saMFélag Kvikmyndir eftir karla
eru í miklum meirihluta þeirra kvik-
mynda sem sýndar eru á Íslandi.
Í rannsókn sem náði til allra
kvikmynda í íslenskum, dönskum
og sænskum kvikmyndahúsum
árið 2016 er kynjahlutfallið verst á
Íslandi. – kbg / sjá síðu 4
Hlutur kvenna í
bíómyndum rýr
lÍFið Daníel Ágúst Haraldsson og
Birgir Þórarinsson eru einir eftir í
hljómsveitinni GusGus. Ný plata með
sveitinni kemur út í september.
„Við höfum túrað í þessu formi
erlendis og svona mun hljómsveitin
GusGus birtast á næstu plötu,“ segir
Birgir. – gh / sjá síðu 38
GusGus að dúett
Hlaupið í Hafnarfirði Fjöldi fólks tók þátt í hlaupi FH og Atlantsolíu í Hafnarfirði í gær. Hlaupið var frá Strandgötu, norður meðfram sjó og aftur til baka. Samtals var hlaupið fimm kílómetrar.
Var það annað hlaupið í þriggja hlaupa seríu. Fljótustu þrír hlaupararnir í karla- og kvennaflokki fá verðlaun en verðlaunaafhending fyrir seríuna fer fram í Kaplakrika í apríl. Fréttablaðið/Eyþór
Það segir sig sjálft að
það verður tals-
verður kostnaður við að fara
í gegnum þetta allt aftur.
Kristín Edwald,
verjandi Magnúsar
Guðmundssonar,
eins sakborninga í
Marple-málinu
Besta
fyrir náttúruna
MÍN AÐ SKRÁ SIG
DAGAR FRÍTT3
2now.is
1
3
-0
6
-2
0
1
7
1
0
:4
6
F
B
0
6
4
s
_
P
0
6
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
D
1
3
-3
3
0
4
1
D
1
3
-3
1
C
8
1
D
1
3
-3
0
8
C
1
D
1
3
-2
F
5
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
0
6
4
s
_
2
3
2
2
0
1
7
C
M
Y
K