Fréttablaðið - 24.02.2017, Blaðsíða 4
Fyrir þig í Lyfju
Andaðu með nefinu
• Loft innan fárra mínútna
• Ilmur af mentól og eukalyptus
Otrivin
Otrivin/Otrivin Junior/Otrivin Comp/Otrivin Menthol nefúði, lausn. Inniheldur Xýlómetazólínhýdróklóríð. Bólgur og aukin slímmyndun í nefi, kinnholum og nefkoki. Lesið vandlega upplýsingar á
umbúðum og fylgiseðli fyrir notkun lyfsins. Leitið til læknis eða lyfjafræðings sé þörf á frekari upplýsingum um áhættu og aukaverkanir. Sjá nánari upplýsingar um lyfið á www.serlyfjaskra.is.
15%afsláttur*
*Afsláttur af öllum Otrivin tegundum. Gildir út febrúar 2017.
Otrivin-Andadu-5x10-Lyfja 15% copy.pdf 1 30.1.2017 13:18
Vinnumarkaður Nýlokið verkfall
sjómanna kostaði atvinnuleysis-
tryggingasjóð á bilinu 550 til 600
milljónir króna. Hráefnisskortur í
fiskvinnslu meðan á verkfallinu stóð
er meginskýring þessarar upphæðar.
Gissur Pétursson, forstjóri Vinnu-
málastofnunar, segir greiðslur úr
atvinnuleysistryggingasjóði vera
ákvarðaðar í fjárlögum hvers árs þó
sjóðurinn standi ágætlega.
„Við erum að taka saman kostnað-
inn. Vonandi rúmast þessi fjárútlát
innan fjárhagsramma ársins en við
gerum okkur vonir um að þurfa ekki
á aukafjárveitingu að halda vegna
verkfalls sjómanna. Það ræðst hins
vegar af því hvort atvinnuleysi hald-
ist enn lágt,“ segir Gissur.
Samkvæmt Hagstofunni var
atvinnuleysi í janúar 4,1 prósent af
vinnuafli og jókst um 1.400 manns
frá áætluðum fjölda atvinnulausra í
desember. – sa
Bætur kostuðu
600 milljónir
umhVerfismál Sporðamælingar
sem gerðar voru á 32 stöðum í fyrra-
haust sýna að jöklar eru að hopa
á nítján stöðum en ganga fram á
fjórum. Þetta kemur fram í pistli
Bergs Einarssonar í nýjasta frétta-
bréfi Jöklarannsóknarfélags Íslands.
Bergur segir ljóst að verði afkoma
jökla neikvæð árum saman, líkt og
hafi verið að undanskildum árunum
2014 og 2015, þá minnki jöklar og
sporðar þeirra hverfi.
„Vert er að hafa í huga að þessar
breytingar eru því miður á ábyrgð
okkar mannfólksins og það er lík-
lega frekar bölvun en blessun að
lifa á áhugaverðum tímum,“ skrifar
Bergur. – gar
Bölvun að lifa
áhugaverða tíma
Á Snæfellsjökli. Fréttablaðið/SteFÁn
Gissur Pétursson,
forstjóri Vinnu-
málastofnunar
samfélag Kvikmyndir eftir karla
eru í miklum meirihluta þeirra
kvikmynda sem teknar eru til sýn-
inga á Íslandi. Í rannsókn Kvenrétt-
indafélags Íslands og Stockholms
feministiska filmfestival sem náði
til allra kvikmynda sem teknar voru
til sýningar í íslenskum, dönskum
og sænskum kvikmyndahúsum
árið 2016 er kynjahlutfallið verst á
Íslandi.
93 prósent kvikmynda sem voru
teknar til sýninga í íslenskum kvik-
myndahúsum árið 2016 var leik-
stýrt af körlum. Rannsóknin á
Íslandi náði líka til dagskrár RÚV.
Hlutfallið var hið sama samkvæmt
rannsókninni, 93 prósent kvik-
mynda sem sýndar voru á RÚV 2016
var leikstýrt af körlum.
Niðurstöðurnar sýna að nánast
allar sögur sem við horfum á á
hvíta tjaldinu eru eftir karla. Kvik-
myndir eiga að spegla ólíka reynslu-
heima og það að fólk kynnist aðeins
sögum karla gefur mjög skakka
mynd af samfélaginu. Stóra verk-
efni kvikmyndaiðnaðarins eins og
hann leggur sig er að minnka þetta
kynjabil, við getum ekki haft þetta
svona lengur,“ segir Fríða Rós Valdi-
marsdóttir, formaður Kvenréttinda-
félags Íslands, sem greinir frá niður-
stöðum rannsóknarinnar.
Í dag býður Kvenréttindafélag
Íslands, WIFT á Íslandi, Stockholms
feministiska filmfestival ásamt
Stockfish Film Festival til sam-
ræðna í Bíói Paradís um kynjabilið
í kvikmyndaiðnaðinum undir yfir-
skriftinni „Hvað er svona merkilegt
við það? Kynjabilið á hvíta tjaldinu“.
Dögg Mósesdóttir, formaður
WIFT á Íslandi, segir niðurstöð-
urnar sláandi.
„Þetta kom mér mjög á óvart, ég
hélt þetta væri ekki svona rosalega
slæmt. Þetta er samt staðan í heim-
Mjög mikið hallar á konur í
íslenskum kvikmyndahúsum
Fríða rós Valdimarsdóttir, formaður Kvenréttindafélags Íslands, segir miður að reynsluheimur kvenna sé ekki meira til umfjöll-
unar í íslenskum kvikmyndahúsum. boðað er til samræðu um kynjabilið á hvíta tjaldinu í bíó Paradís í dag. Fréttablaðið/ernir
ÍSland
Um rannsóknina
Rannsóknin var unnin sem hluti af verkefninu „Öka jämställdheten inom filmbranschen i Norden“, í samvinnu
Stockholms feministiska filmfestival, Kvinderådet í Danmörku og Kvenréttindafélags Íslands.
inum í dag þó að í Svíþjóð hafi hlut-
fallið verið skárra. Leiðin út úr þessu
er aukin meðvitund og umræður.
Bíóhúsin þurfa að setja upp kynja-
gleraugun. Það er ábati af því fyrir
alla. Myndir eftir og um konur hafa
til dæmis verið söluhæstar í Banda-
ríkjunum í ár. Þar er að aukast með-
vitund með góðum árangri,“ segir
Dögg. Mikilvægt sé að gefa konum
tækifæri til inngöngu í iðnaðinn.
„Ég veit að stóru myndverin í
Bandaríkjunum eru að þjálfa konur
upp. Þar af er ein íslensk kona, Tóta
Lee, sem fær þjálfun til þess að leik-
stýra risastórum kvikmyndum.“
Dögg segir jákvæð teikn á lofti
og vonast til þess að niðurstöður
á næsta ári verði betri konum í vil.
Þáttaröðin Fangar sem sýnd var á
RÚV þykir henni hafa verið til fyrir-
myndar og nýjar reglur hjá Kvik-
myndasjóði lofi góðu.
„Konur eru að gera fullt af
myndum og nú verður unnið eftir
nýju kvikmyndasamkomulagi hjá
Kvikmyndasjóði um að það eigi að
úthluta jafnt til karla og kvenna og
taka tillit til kynjabilsins við mat á
umsóknum,“ segir Dögg.
kvikmynda
tekinna til sýninga
í íslenskum kvik-
myndahúsum var
leikstýrt af körlum
93%
Karlar voru 84% handritshöfunda
Karlar voru 75% framleiðenda
Karlar voru 71% aðalsöguhetja
Aðeins 4,5% kvikmynda
sýndra í íslenskum kvik-
myndahúsum 2016 var
bæði leikstýrt af konu og
höfðu konu í aðalhlutverki
4,5%
danmörK
kvikmynda
tekinna til sýninga í
dönskum kvik-
myndahúsum var
leikstýrt af körlum
87% 80%
Karlar voru 84% handritshöfunda
Karlar voru 74% framleiðenda
Karlar voru 69% aðalsöguhetja
SVÍþjóð
kvikmynda
tekinna til sýninga
í sænskum kvik-
myndahúsum var
leikstýrt af körlum
Karlar voru 74% handritshöfunda
Karlar voru 69% framleiðenda
90% heimsókna í kvikmyndahús
var á kvikmyndir sem leikstýrt var
af körlum (aðsókn)
93 prósent kvikmynda í
íslenskum kvikmynda-
húsum árið 2016 var
leikstýrt af körlum.
Þetta kemur fram í ný-
birtri rannsókn Kven-
réttindafélags Íslands
og Stockholms feminist-
iska filmfestival.
6%
Aðeins 6% kvikmynda
sýndra í dönskum kvik-
myndahúsum 2015 var
bæði leikstýrt af konu og
höfðu konu í aðalhlutverki
Kristjana Björg
Guðbrandsdóttir
kristjana@frettabladid.is
2 4 . f e b r ú a r 2 0 1 7 f Ö s T u D a g u r4 f r é T T i r ∙ f r é T T a b l a ð i ð
1
3
-0
6
-2
0
1
7
1
0
:4
6
F
B
0
6
4
s
_
P
0
6
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
3
K
_
N
Y
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
D
1
3
-4
B
B
4
1
D
1
3
-4
A
7
8
1
D
1
3
-4
9
3
C
1
D
1
3
-4
8
0
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
0
6
4
s
_
2
3
2
2
0
1
7
C
M
Y
K