Fréttablaðið - 24.02.2017, Qupperneq 10
Viðskipti Húsnæðisskortur er í
sumum minni bæjum en þrátt fyrir
það er húsnæðisverð oft þriðjungur af
því sem gerist á höfuðborgarsvæðinu.
Í öðrum þorpum standa fjölmörg hús
á sölu óhreyfð um árabil.
Eftir stendur spurningin hvers
vegna ungt fólk leggur ekki land
undir fót og kaupir sér sína fyrstu eign
í minni byggðarlögum, í stað þess að
vera fast á leigumarkaði eða þurfa að
sætta sig við lakari húsakost á höfuð
borgarsvæðinu en vonir stóðu til.
„Þar sem er erfitt að selja íbúðir,
þorir fólk ekki að kaupa íbúðir,“
segir Þóroddur Bjarnason, prófessor
við Háskólann á Akureyri og fyrr
verandi stjórnarformaður Byggða
stofnunar. „En víða er alveg ofboðsleg
eftirspurn eftir leiguhúsnæði og það
er ekki jafn mikill munur á verði á
leigumarkaðnum á mörgum minni
stöðum samanborið við leiguverð á
höfuðborgarsvæðinu.“
Þóroddur bendir á að hvergi sé
sama fasteignaverð en vöxtur sé í
um það bil 75 til 100 kílómetra fjar
lægð frá stærri þéttbýlisstöðum með
öflugri þjónustu. Fólk kaupi til dæmis
ódýrt á Dalvík en vinni á Akureyri.
„Þetta kallast „counter urbanisa
tion“. Þetta er sem sagt ekki úthverfa
væðing heldur er fólk að flytja í
sjálfstæð byggðarlög sem eru í seil
ingarfjarlægð.“
Þóroddur segir þó fleira spila inn í
en tregðu við að kaupa húsnæði sem
erfitt gæti reynst að selja að nýju.
Þjónusta á sumum jaðarsvæðum sé
með eindæmum slæm.
„Þú getur keypt hús á Raufarhöfn
sem er í 100 km fjarlægð frá Húsavík,
en hvað ætlarðu að gera þar? Auðvit
að eru dæmi um að fólk vinni vinnu
þar sem engu skiptir hvar það er stað
sett, svo framarlega sem nettengingin
er í lagi. En ef þú býrð í þorpi ásamt
öðrum 120 og búðin er opin í tvo
klukkutíma á dag þá er það kannski
ekki vænlegur kostur.“
Á Bíldudal í Vesturbyggð hefur um
nokkra hríð verið uppgangur. Svo er
komið að fasteignaskortur er á svæð
inu. Það virðist þó ekki leiða til hækk
unar fasteignaverðs og lögmálið um
framboð og eftirspurn á því ekki við.
„Bankarnir, sérstaklega Íbúðalána
sjóður, hafa verið rosalega tregir. Ef
þú kemur með kaupsamning sem er
með hærra verði en hugmynd bank
ans um hvað hús á þessu svæði kostar,
þá neita þeir að viðurkenna hann.
Vítahringurinn sem þú situr svo
fastur í er að á meðan fasteignaverðið
er lægra en byggingakostnaðurinn þá
byggir enginn.“
Þóroddur nefnir dæmi um útgerð
á Raufarhöfn sem réð til sín 20 starfs
menn en síðan var ekki nægt hús
næði á staðnum. Mörg hús stóðu auð
en eru nýtt sem sumarhús..
Friðbjörg Matthíasdóttir, starfandi
sveitarstjóri í Vesturbyggð, nefnir
dæmi um fasteignakaup á Bíldudal.
„Jafnvel þó komið væri á sam
komulag á milli seljanda og kaup
anda upp á 20 milljónir þá sagði
bankinn að honum þætti húsið ekki
meira virði en 15 milljónir og lánaði
þá bara fyrir því.“
Undanfarið hafa ýmis störf verið
auglýst í Vesturbyggð en húsnæðis
skortur er viðvarandi. „Það er dálítið
erfitt að horfa upp á að það vantar
húsnæði fyrir íbúa en á meðan sjáum
við góð fjölskylduhús notuð sem
sumarhús í eina til tvær vikur á ári.“
Bankarnir halda verði
niðri á landsbyggðinni
Húsnæðisskortur er í sumum minni bæjum án þess að lögmál um framboð og
eftirspurn nái til fasteignaverðs. Prófessor segir fólk tregt til að kaupa þar sem
endursala er erfið. Verð er oft þriðjungur af því sem er á höfuðborgarsvæðinu.
Snærós
Sindradóttir
snaeros@frettabladid.is
Bankarnir, sérstak-
lega Íbúðalána-
sjóður, hafa verið rosalega
tregir.
Þóroddur
Bjarnason,
prófessor við
Háskólann á
Akureyri
#islenskaoperan · Miðasala: opera.is
HRÍFANDI UPPLIFUN
ÓPERA / LEIKRIT EFTIR POULENC & COCTEAU
SÍÐUSTU SÝNINGAR
TRYGGIÐ YKKUR MIÐA
„Fallegur samruni óperu og leikrits“
(JS/Fréttablaðið)
www.varmaclothing.com
Nú er hægt að versla Varma á netinu
740 Neskaupstaður
225,3 m2 einbýlishús
36.000.000 krónur
fermetraverð 159.786 kr.
340 stykkishólmur
181,2 m2 einbýlishús
40.000.000 krónur
fermetraverð 220.750 kr.
465 Bíldudalur
107,6 m2 einbýlishús
29.900.000 krónur fermetraverð 277.881 kr.
245 saNdgerði
162,3 m2
einbýlishús
29.900.000
krónur
fermetraverð
184.226 kr. 815 ÞorlákshöfN
202,2 m2 einbýlishús
28.000.000 krónur
fermetraverð
138.476 kr.
640 húsavík
172,3 m2 einbýlishús
29.500.000 krónur
fermetraverð 171.213 kr.
sAMGÖNGUR Bannað er að fljúga
drónum innan tveggja kílómetra
frá áætlunarflugvöllum og 1,5 kíló
metrum frá öðrum flugvöllum.
Einnig er bannað að fljúga drónum
ofar 130 metrum óháð þyngd þeirra.
Þetta felst í ákvörðun Samgöngu
stofu. Ákvörðunin sækir lagastoð í
lög um loftferðir.
Sé flug drónans lægra en hæstu
byggingar í nágrenninu má fljúga
dróna innan þess svæðis sem tak
markast af ákvörðuninni. Þá má
einnig fljúga dróna á svæðinu fáist
leyfi frá rekstraraðila flugvallarins.
Ákvörðunin felur meðal annars
í sér að óheimilt er að fljúga dróna
í vesturbæ Reykjavíkur og sömu
sögu er að segja af miðborginni, við
Kringluna, yfir öllum Fossvogi og á
Kársnesi í Kópavogi.
Að auki verður óheimilt að fljúga
dróna í stærstum hluta Keflavíkur.
Ákvörðun Samgöngustofu verður
í gildi þar til reglugerð um notkun
og starfrækslu dróna hefur fengið
samþykki ráðherra. Slík reglugerð
hefur verið í vinnslu í innanríkis
ráðuneytinu og er nú í umsagnar
ferli. – jóe
Bannsvæði fyrir drónana
myndin sýnir það svæði þar sem flug dróna er nú óheimilt. myNd/samgöNgustofa
2 4 . f e b R ú A R 2 0 1 7 f Ö s t U D A G U R10 f R é t t i R ∙ f R é t t A b L A ð i ð
1
3
-0
6
-2
0
1
7
1
0
:4
6
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
D
1
3
-6
E
4
4
1
D
1
3
-6
D
0
8
1
D
1
3
-6
B
C
C
1
D
1
3
-6
A
9
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
A
F
B
0
6
4
s
_
2
3
2
2
0
1
7
C
M
Y
K