Fréttablaðið - 24.02.2017, Side 13
Nú liggur fyrir Alþingi frum-varp um að leyfa sölu á áfengi, þ.m.t. vodka og
brennivín, í matvöruverslunum.
Flutningsmenn frumvarpsins hafa
viðurkennt að áfengi er ekki eins
og hver önnur vara. Það er ekki
sami hlutur að drekka hálfan lítra
af vodka og hálfan lítra af mjólk svo
dæmi sé nefnt. Enginn er dómbær og
allsgáður sem hefur drukkið hálfan
lítra af vodka, ólíkt þeim sem drakk
mjólkina. Áfengi er vímugjafi og
að okkar mati á það ekkert erindi í
venjulegar verslanir, heldur þvert á
móti ætti að takmarka aðgengi að
því vegna eðlis og þeirrar skaðsemi
sem það veldur.
Í gegnum árin hefur ríkt íhaldssöm
stefna í áfengismálum á Íslandi. Sem
merki um það var sala á áfengum
bjór leyfð árið 1989 eftir 70 ára bann.
Frá því ári til ársins 2007 jókst áfeng-
isneysla á hvern Íslending 18 ára og
eldri um 66%, eða úr 4,53 l á mann
árið 1988 í 7,53 l á mann árið 2007,
þegar áfengisneyslan náði hámarki.
Síðan hefur dregið úr henni og var
áfengisneysla árið 2015 um 7,35 l á
hvern Íslending.
Áfengisvarnarstefna íslenskra
stjórnvalda hvílir á fjórum þáttum,
forvörnum, háum áfengiskaupa-
aldri, háum áfengissköttum og tak-
mörkuðu aðgengi að áfengi. Stefna
Íslands í áfengismálum hefur verið
í samræmi við forvarnarstefnu
Alþjóðaheilbrigðismálastofnunar
(WHO) í áfengismálum sem eru háir
áfengisskattar, takmarkað aðgengi
og bann við auglýsingum á áfengi.
Frumvarpið gengur gegn tveimur af
þessum þremur meginstoðum í for-
varnarstefnu WHO. Ef frumvarpið
nær fram að ganga munu áfengisaug-
lýsingar verða leyfðar í fjölmiðlum
og aðgengi að áfengi mun aukast. Í
dag rekur ÁTVR 50 verslanir, en ef
frumvarpið nær fram að ganga mun
verslunum þar sem áfengi verður selt
fjölga í 250 verslanir um land allt.
Sérfræðingar sammála
Ekki þarf að efast um, að ef frum-
varpið verður að lögum mun áfengis-
neysla á Íslandi aukast. Um það eru
allir sérfræðingar sammála sem vinna
við lýðheilsu og forvarnir. Meira að
segja viðurkenna sumir flutnings-
menn frumvarpsins sjálfir að svo
muni fara. Það er staðreynd að aukin
áfengisneysla leiðir til fleiri félags-
legra vandamála, meiri ölvunarakst-
urs, fleiri heimilisofbeldismála, fleiri
skilnaða, fleiri áfengistengdra dauðs-
falla, fleiri tapaðra vinnustunda vegna
áfengisneyslu. Stofnanir samfélagsins
(félagsþjónusta, heilbrigðiskerfið, lög-
regla o.s.frv.) munu verða fyrir meiri
tilkostnaði (mannskap og fé) í að
glíma við afleiðingarnar. Það er óboð-
legt í greinargerð með frumvarpinu
að hvergi er minnst á afleiðingar
aukinnar áfengisneyslu.
Í sænskri rannsókn var fjallað
um hvaða áhrif það myndi hafa að
leyfa sölu áfengis í matvöruverslun.
Ölvunarakstri, árásum, dauðsföllum
og veikindadögum myndi fjölga og
ef tölurnar yrðu heimfærðar fyrir
Ísland myndi tilfellum ölvunarakst-
urs þannig fjölga um 230 á ári, árásum
um 700 á ári og dauðsföllum vegna
meiri áfengisnotkunar um 70 á ári.
Veikindadögum myndi fjölga um
390 þúsund (T. Norström og fleiri:
Potential consequences of replacing
a retail alcohol monopoly with a
private licence system: results from
Sweden).
Því er eðlilegt að spurt sé? Af hverju
er verið að leggja fram þetta frum-
varp? Er verið að þjóna velferðar-
hagsmunum almennings með þessu
frumvarpi? Almenningur hefur ekki
kallað eftir þeim breytingum og
áhættu sem frumvarpið felur í sér.
Hverra hagsmuna er verið að gæta?
Almennings eða þröngra viðskipta-
hagsmuna verslunarinnar?
Áfengi í
matvörubúðir?
Gunnar Ólafsson
heilsuhagfræð-
ingur
Guðjón S.
Brjánsson
alþingismaður
Öðru hverju sjást í fjölmiðlum frásagnir foreldra sem segja farir sínar ekki sléttar eftir
að börnin þeirra hafa eytt tugum
eða hundruðum þúsunda í einhvers
konar tölvuleikjaspil.
Sögurnar eru yfirleitt svipaðar.
Foreldrar eða börn hafa hlaðið niður
tölvuleik á síma eða tölvu. Leikurinn
sjálfur er gjarnan ókeypis eða ódýr
og fljótlega er einhver á heimilinu
kominn á bólakaf í að spila. Færnin
í leiknum eykst hröðum skrefum og
stigin hrannast upp. Leikmaðurinn
klifrar hratt upp alþjóðlega virðingar-
stiga í leiknum og er jafnvel kominn í
samskipti við alls konar fólk um heim
allan.
En sá böggull fylgir skammrifi að
til þess að vera samkeppnishæfur
til lengdar þá þarf leikmaðurinn að
kaupa alls kyns viðbætur við leikinn
eða hugsanlega að borga aukalega
fyrir að geta spilað lengur. Um þetta
snýst viðskiptaáætlun framleiðand-
ans; að gefa eða selja ódýrt til sem
flestra til þess að geta fundið þá örfáu
sem tilbúnir eru til þess að borga
miklu meira til þess að auka ánægju
sína af leiknum.
Yfirleitt eru upphæðirnar lágar
í hvert skipti; kannski nokkrir
hundraðkallar til þess að kaupa
nýjan leikmann eða komast inn á
nýtt „level“. En margt smátt verður
eitt stórt og eftir nokkrar vikur eða
mánuði taka foreldrarnir eftir því að
búið er að eyða svimandi upphæðum
til viðbótar í leiki sem ýmist voru
gefnir frítt í upphafi eða kostuðu
sáralítið.
Kynningartilboð
Viðskiptahættir af sama meiði eru
vel þekktir. Áskriftardagblöð og
fjölmiðlar eiga það til að senda fólki
ókeypis eintök eða opna dagskrána
og bjóða jafnvel upp á hin rausnar-
legustu kynningartilboð fyrir nýja
áskrifendur í þeirri von að þeim líki
varan (eða málflutningurinn) svo
vel að þeir séu tilbúnir til þess að
greiða fullt áskriftarverð síðar. Ekkert
óheiðarlegt eða óeðlilegt er við þessa
viðskiptahætti. Það mætti jafnvel
frekar kalla þetta fyrirtaksþjónustu
heldur en ágenga sölumennsku.
Sumir taka þetta skrefinu lengra.
Rakvélaframleiðandinn Gillette er
frægur fyrir að selja sköftin hræódýrt
en moka svo inn peningum þegar
notendur kaupa ný rakvélablöð,
sama má segja um þá sem framleiða
tölvuprentara; þeir eru seldir býsna
ódýrt en svo kostar arm og legg að
fylla á blekið. Flestum finnst þessir
viðskiptahættir pirrandi, en þeir eru
ekki í eðli sínu óheiðarlegir.
Fyrsti skammturinn frír
En þó eru miklar og varasamar
undantekningar á þessu. Þegar dóp-
salar gefa „fyrsta skammtinn“ þá er
það sannarlega ekki gert í þeim til-
gangi að gefa kúnnanum tækifæri til
þess að taka upplýsta ákvörðun um
hvort hann vilji halda viðskiptunum
áfram. Þar er tilgangurinn sá að veiða
í fórnarlamb í net óbrjótandi fíknar.
Svona viðskiptahættir tíðkast
einnig hjá þeim sem standa að fjár-
hættuspili. Spilavíti beita alls kyns
aðferðum til þess að ginna fólk inn,
meðal annars með því að bjóða upp
á ókeypis áfengi, ódýra hótelgistingu
og ýmiss konar annan munað. Leik-
irnir í spilavítinu eru svo hannaðir til
þess að gera fólk háð spennunni og
æsingnum.
Ef í ljós kemur að hinn nýi við-
skiptavinur á erfitt með að hemja
sig við spilaborðið þá hafa spilavítin
ráð undir rifi hverju til þess að rýja
hann inn að skinni áður en honum er
kastað öfugum og snauðum aftur út á
gangstétt.
Fórnarlömb eða viðskiptavinir
Því miður ástundar stór hluti tölvu-
leikjaiðnaðarins svipuð vinnubrögð
og siðferði og þekkist hjá dópsölum
og harðsvíruðum fjárhættuspiladólg-
um. Leikirnir sem líta út fyrir að vera
sakleysisleg afþreying eru beinlínis
hannaðir til þess að nýta veikleika
fólks og brjóta niður mótstöðuþrek
þess gegn ágengu peningaplokki eða
auglýsingaflóði.
Leikirnir eru hannaðir út frá
aðferðum, sem margir af færustu sál-
fræðingum heims taka þátt í að móta,
og hafa þann tilgang að toga notand-
ann sífellt dýpra ofan í gerviveröldina
sem leikurinn býður upp á þangað til
hann sést ekki fyrir í metnaði sínum
eða týnir sér í sefjunarmætti leiksins
og verður háður honum.
Fólki á öllum aldri er hætt við að
láta í minnipokann fyrir þessum sál-
fræðihernaði—og þegar það gerist þá
er mikilvægt að skilja að við gætum
átt við ofurefli að etja.
Þægindi eða þrældómur
Eigendur snjallsíma og -tölva þekkja
flestir að í þeim er varla friður fyrir
sífelldum spurningum um hvort
forritið megi senda tilkynningar í
tíma og ótíma. Í ofanálag er stöðugt
verið að bjóða upp á þau „þægindi“
að geta keypt alls kyns drasl með
því að smella einu sinni á „OK“
takkann í stað þess að hamra inn
lykilorð. Þetta hefur vitaskuld ekkert
með þægindi að gera heldur er það
aðferð til þess draga fólk oftar inn í
forrit og leiki sem það hefði annars
ekki notað; og til þess að draga úr
allri fyrirstöðu við peningaeyðslu á
netinu.
Hvort sem tölvuleikir og smá-
forrit eru að stela af okkur tíma
og peningum þá verður það ekki
umflúið að ábyrgðin er okkar sjálfra.
Þjófnaðurinn á sér stað með sam-
þykki okkar.
En þótt samþykki fyrir þjófnað-
inum sé til staðar er hæpið að tala
um að hann eigi sér stað með vitund
okkar og vilja. Algleymi tölvunnar
getur nefnilega rænt okkur hvoru
tveggja—og í ofanálag er að verða
til sífelld þróaðri hugbúnaður sem
mælir leiðir til þess að finna veikustu
blettina á hverjum einstökum
notanda og nýta þá til peninga-
plokks og tímasóunar.
Foreldrar barna sem lenda í
þessum gildrum tölvuleikjanna ættu
því ekki að reiðast þeim. Þetta er
ójafn leikur sem hver sem er á hættu
á því að tapa. En það er líklegt að
það gildi sama um tölvuleikjafíkn
og aðra fíkn; fyrsta skrefið í að vinna
bug á henni er að gera sér grein fyrir
henni og hugsanlega að úthýsa þeim
freistingum—að minnsta kosti tíma-
bundið—sem valda vandamálinu.
Og þegar maður velur tölvuleiki
til að spila þá gæti borgað sig að
kaupa frekar vandaða leiki sem
greiddir eru fyrirfram heldur en að
fá fyrsta skammtinn frítt.
Peningaplokkandi tölvuleikir
Þórlindur
Kjartansson
Í dag
OPIÐ ALLAN SÓLARHRINGINN
ICELAND, ENGIHJALLA,
VESTURBERGI OG ARNARBAKKA
VERÐI ÞÉR
AÐ GÓÐU
Iceland er
með úrvalið:
ALLIR SEM VERSL
A FYRIR 8.000 K
R. EÐA MEIRA
OG BORGA MEÐ N
ETGÍRÓ FÁ GJAFA
KORT
FRÁ DUNKIN DON
UTS
Ger Súkkulaðibolla
Irish Coffie Bollur
Vatnsdeigs súkkulaðibollur
Vatnsdeigsbananabollur
Daim kaffibollur
Kókos Rjómabolla
Berlinarrjómabolla m/hesilhnetukremi
Krakkahringir m/karamellu
Krakkahringir m/súkkulaði
BAKARÍS
-
BOLLUR
B ÍS
-
BOLLUR
NÝTT
!
ALLAR T
EGUNDI
R
AÐEINS
Í ENGIHJ
ALLA
399
VATNSDEIGSBOLLUR
FRÁ MYLLUNNI
KR
6 STK.
369
ST. DALFOUR SULTUR
ALLAR TEG.
KR
284 G
699
MAGNUM ÍS
3 TEG.
KR
440 ML
BASKIN ROBBINS
499
4. TEGUNDIR
KR
500ML
MARS 10PK
399
SNICKERS 10PK
KR
338G/355G
s k o ð u n ∙ F R É T T a B L a ð i ð 13F Ö s T u d a g u R 2 4 . F e B R ú a R 2 0 1 7
1
3
-0
6
-2
0
1
7
1
0
:4
6
F
B
0
6
4
s
_
P
0
6
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
3
K
_
N
Y
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
D
1
3
-4
B
B
4
1
D
1
3
-4
A
7
8
1
D
1
3
-4
9
3
C
1
D
1
3
-4
8
0
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
0
6
4
s
_
2
3
2
2
0
1
7
C
M
Y
K