Fréttablaðið - 24.02.2017, Qupperneq 18
2 4 . f e b r ú a r 2 0 1 7 f Ö S T U D a G U r18 S p o r T ∙ f r É T T a b L a ð i ð
KÖrfUboLTi Njarðvíkingar fá tæki-
færi til að hitamæla liðið í kvöld
þegar liðið fær Íslands- og bikar-
meistara KR í heimsókn í Ljóna-
gryfjuna í Njarðvík.
Njarðvíkingar hafa unnið fimm
af síðustu sex leikjum sínum í
Domino’s deildinni eða jafnmarga
deildarsigri og KR-ingar frá og með
13. janúar. Njarðvík hefur unnið
bæði Tindastól og Stjörnuna á þess-
um tíma og getur nú lokað topp-
liða hringnum með sigri í kvöld.
Leikur Njarðvíkur og KR hefst
klukkan 20.00 í kvöld og verður
sýndur beint á Stöð 2 Sport. Þetta
er lokaleikur 19. umferðarinnar.
Sebrahestarnir úr Vesturbæn-
um hafa oft verið hátíðarmatur í
Ljónagryfjunni á síðustu árum því
KR-liðið hefur margoft verið þar
í vandræðum undanfarin fjögur
tímabil. KR-ingar hafa tapað fimm
sinnum í Njarðvík á Íslandsmóti
(4) eða í bikar (1) í þjálfaratíð
Finns Freys Stefánssonar eða oftar
en í öllum öðrum húsum fyrir utan
DHL-höllina.
KR-liðið hefur samt unnið
deildarleiki sína í Ljónagryfjunni
undanfarin ár en tapað leikjunum
í úrslitakeppni og bikarkeppni í
húsinu. Við þetta bætist vandræða-
lega frammistaða KR-liðsins í fyrri
leik liðanna þar sem Njarðvíkingar
unnu ellefu stiga sigur í DHL-höll-
inni og héldu meisturunum í
aðeins 61 stigi.
KR-ingar töpuðu óvænt á Akur-
eyri í síðasta útileik sínum en
svöruðu því með sannfærandi sigri
á ÍR í síðustu umferð. Sigur kemur
Vesturbæingum enn nær deildar-
meistaratitlinum en heimamenn í
Njarðvík eru í mikilli baráttu um að
fá að vera með í úrslitakeppninni.
Það verður allavega saga til næsta
bæjar verði Njarðvíkingar með fullt
hús á móti Íslandsmeisturunum í
vetur. – óój
Sebrahestarnir úr Vesturbænum oft hátíðarmatur í Ljónagryfjunni
Logi Gunnarsson í fyrri leik KR og Njarðvíkur í nóvember. FRéttabLaðið/ERNiR
Flest töp KR í einstök-
um íþróttahúsum
Leikir á Íslandsmóti og í bikar í
þjálfaratíð Finns Stefánssonar
DHL-höllin, Frostaskjóli 6
Ljónagryfjan, Njarðvík 5
Síkið, Sauðárkróki 3
Ásgarður, Garðabæ 2
SKíðaGanGa Þó svo að skíðaganga
hafi verið vinsæl almenningsíþrótt
hér á landi um árabil hefur Ísland
átt fáa afreksmenn og -konur í
greininni á alþjóðavísu. Einar Ólafs-
son og Daníel Jakobsson hafa báðir
keppt á Vetrarólympíuleikum og
Sævar Birgisson keppti á leikunum
í Sotsjí fyrir þremur áru.
Í vikunni hófst heimsmeistara-
mótið í skíðagöngu í Lahti í Finn-
landi og er Ísland þar með fjóra
fulltrúa. Elsa Guðrún Jónsdóttir,
sem vann undankeppni kvenna í
skíðagöngu í fyrradag, er eina konan
en auk hennar og Sævars keppa
Brynjar Leó Kristinsson og Snorri
Einarsson fyrir hönd Íslands.
Snorri er þaulreyndur 31 árs
skíðagöngumaður sem hefur náð
frábærum árangri á ferli sínum.
Hann er þó að keppa fyrir hönd
Íslands á stórmóti í skíðagöngu
í fyrsta sinn. Hann er fæddur og
uppalinn í Noregi, á íslenskan föður
en norska móður, og keppti þar til á
síðasta ári undir merkjum Noregs.
Heimsækir Ísland árlega
„Mig hefur alltaf langað að keppa
fyrir Ísland,“ sagði Snorri í sam-
tali við Fréttablaðið í gær en hann
hafði þá nýlokið æfingu í Lahti.
Snorri keppir í sinni aðalgrein, 30
km skiptigöngu, á morgun.
„Fyrir sex árum könnuðum við
málið og þá var ekki hægt að verða
við öllu sem þurfti að gera til að það
myndi ganga í gegn. En nú passar
það mér mun betur og ég var rosa-
lega ánægður þegar ég fékk símtalið
frá Skíðasambandinu. Auðvitað
vildi ég keppa fyrir Ísland,“ segir
hann.
Snorri bjó á Íslandi í eitt ár og
hóf raunar grunnskólagöngu sína
á Íslandi. En þess utan hefur hann
verið búsettur í norðurhluta Nor-
egs og býr nú í Tromsö. Þrátt fyrir
að það var ekki töluð íslenska á
heimilinu hans talar Snorri mjög
góða íslensku.
„Ég lærði mikið af því að búa í eitt
ár á Íslandi auk þess sem við reyn-
um að heimsækja ættingja okkar á
Íslandi að minnsta kosti einu sinni
á ári. Það verður vonandi enn meira
um heimsóknir til Íslands eftir að ég
byrjaði að keppa fyrir Ísland,“ segir
hann enn fremur.
Kvef varð að slæmum
veikindum
Snorri hefur síðustu tvö árin keppt
fyrir Team Santander sem kepp-
ir í löngum vegalengdum. Það
hefur gert Snorra kleift að æfa sem
atvinnumaður í tvö ár. Hann var
á góðu róli í haust og náði til að
mynda frábærum árangri á sterku
FIS-móti í Finnlandi þar sem hann
hafnaði í öðru sæti. Fékk hann þá
besta punktaárangur íslensks skíða-
göngumanns frá upphafi.
Veikindi settu þó strik í reikning-
inn í lok síðasta árs. Venjulegt kvef
varð að langvarandi veikindum sem
kostaði hann þátttöku á sterkum
mótum og takmarkaði undirbúning
hans fyrir mótið í Lahti.
„Ég var að æfa í mikilli hæð þegar
ég veiktist. Ég fór svo of snemma
aftur af stað og leið ekki nógu vel.
Ástandið versnaði þannig að kvef
varð að sex vikna veikindum,“
útskýrir hann.
„Um tíma hélt ég að ég myndi
aldrei komast aftur á lappir,“ segir
hann í léttum dúr. „En ég hef sem
betur fer náð ágætum undirbúningi
fyrir mótið og allt er eins og það á að
vera núna.“
Vill komast á topp 20
Snorri mun keppa í 30 km skipti-
göngu á morgun og vonast hann
eftir því að verða á meðal 30 efstu
keppenda. „Jafnvel topp 20 ef allt
gengur svakalega vel,“ segir Snorri
sem á silfur í þeirri grein frá norska
meistaramótinu, sem út af fyrir sig
er eitt allra sterkasta mót heims.
„Við skulum sjá til hvernig gengur.
Vildi alltaf
keppa fyrir
Ísland
Snorri Einarsson er fæddur og uppalinn í Noregi
en keppir nú fyrir íslenska landsliðið í skíðagöngu.
Hann verður í eldlínunni á HM í Lahti á morgun og
stefnir hátt. „Ég var rosalega ánægður þegar ég fékk
símtalið frá Skíðasambandinu,“ segir hann.
Snorri Einarsson stefnir á að vera á meðal 30 efstu keppenda í 30 km skiptigöngu á HM í Lahti. MyND/SKÍðaSaMbaND ÍSLaNDS
Ég hef ekki æft frjálsu gönguna mjög
mikið eftir að ég byrjaði að keppa í
lengri vegalengdum, sem er allt með
hefðbundinni göngu. En ég von-
ast auðvitað til þess að ná góðum
árangri,“ segir Snorri sem er nú
þegar búinn að tryggja sér þátttöku-
rétt á Vetrarólympíuleikunum sem
fara fram í Suður-Kóreu á næsta ári.
Snorri vonast til þess að skíða-
ganga öðlist meiri vinsældir á
Íslandi sem afreksíþrótt. „Það er
engin ástæða til að ætla annað en
Íslendingar geti náð í fremstu röð í
skíðagöngu eins og öðrum íþrótta-
greinum. Það myndi breyta miklu ef
það væri hægt að koma upp aðstöðu
svo að hægt sé að æfa allt árið, eins
og er algengt í Noregi. Við getum
komið okkur í fremstu röð ef okkur
langar til.“ eirikur@frettabladid.is
Ástandið versnaði
þannig að kvef varð
að sex vikna veikindum. Um
tíma hélt ég að ég myndi
aldrei komast á lappir.
Snorri Einarsson
1
3
-0
6
-2
0
1
7
1
0
:4
6
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
D
1
3
-4
1
D
4
1
D
1
3
-4
0
9
8
1
D
1
3
-3
F
5
C
1
D
1
3
-3
E
2
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
B
F
B
0
6
4
s
_
2
3
2
2
0
1
7
C
M
Y
K